Morgunblaðið - 25.03.2003, Síða 49
FÓLK Í FRÉTTUM/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2003 49
Miðaverð á tónleikana kr. 3.500. Með mat kr. 6.400. Húsið opnað fyrir matargesti kl. 19.30.
Einstakt tækifæri til að heyra þessa frábæru og sögufrægu
hljómsveit flytja sígilda rokksmelli sína eins og For Your Love, Heart
Full Of Soul, Good Morning Little Schoolgirl, Shapes Of Things, Still
I'm Sad, Over Under Sideways Down og marga fleiri, auk nýs efnis
af væntanlegri plötu, þeirri fyrstu sem The Yardbirds senda frá sér
frá árinu 1968.
Tryggið ykkur miða í tíma! Aðeins einir tónleikar!
„Yardbirds ruddu brautina fyrir súrt rafgítarrokk og
almenna rokkframúrstefnu. Í breskri blúsrokksögu
eru Yardbirds fremstir meðal jafningja og ótrúlegt til
að vita að þeir Jeff Beck, Jimmy Page og Eric Clapt-
on hafi allir verið í sömu hjómsveitinni.“
- Árni Matthíasson, Mbl
„Ein af þeim minnisstæðustu ...“
- Einar Már Guðmundsson, rithöfundur
„Yardbirds eru bresk uppspretta sem hafði og hef-
ur enn áhrif á rokksöguna um allan heim og hefur
getið af sér mikið af því allra besta sem komið hefur
fram í rokktónlist síðan 1964.“
- Rúnar Júlíusson, tónlistarmaður
„Eric Clapton, Jimmy Page og Jeff Beck spiluðu
allir með Yardbirds á sínum tíma. Þarf að segja
meira?“
- Ólafur Páll Gunnarsson, Rás 2
„Án efa ein mikilvægasta hljómsveit Bítlaáranna!“
- Jón Ólafsson, tónlistarmaður
„Yardbirds eru kannski ævintýralegasta sveit 7.
áratugarins; uppeldisstöð þriggja gítarhetja sem á
sínum tíma vísaði veginn að því hvernig standa beri
að tilraunamennsku innan popp- og rokktónlistar.“
- Arnar Eggert Thoroddsen, Mbl
„Yardbirds höfðu áhrif á allar hljómsveitir, sem
komu frá Bretlandi á 7. áratugnum, allt frá Bítlunum
til Rolling Stones.
- Ásmundur Jónsson Smekkleysu
Einstæð rokkveisla á með
Fimmtudagskvöldið
27. mars
kl. 22.00
Miðasala er hafin á í síma 533-1100. Fax 533-1110 og í bókabúðum Máls og menningar Laugavegi, Mjódd og Síðumúla.
FYRIR fáeinum árum spjaraði
Endalokin (Final Destination), lítil
en frumleg hrollvekja, sig með slík-
um ágætum að nú sitjum við uppi
með framhaldið. Líkt og fyrirrenn-
arinn fjallar Endalokin 2 um hóp af
fólki sem sleppur frá mannskæðu
stórslysi á yfirnáttúrulegan hátt. Í
fyrri myndinni átti það sér stað í
flugvél, nú er röðin komin að hrað-
brautinni. Að þessu sinni er það ung
stúlka, Kimberley Corman (A.J.
Cook), sem sér fyrir atburðinn og
verður til þess að bjarga nokkrum
vegfarendum frá bráðum bana. En
dauðinn sér um sína og kann illa að
taka ósigri.
Vel gerð og spennandi afþreying
með eftirminnilega vönduðum og
trúverðugum brelluatriðum. Slysið á
hraðbrautinni (og nokkur fleiri), er
svo yfirþyrmandi raunverulegt að
maður grípur fyrir augun! Frammi-
staða lítið og óþekktra leikara telst
vel viðunandi, þekkt nöfn eru ekki að
flækjast fyrir sem getur verið til
bóta og gert myndir trúverðugri.
Meinið er að rauði þráður fram-
haldsmyndarinnar er í höfuðdráttum
eftiröpun þeirrar fyrri. Því vita þeir
sem hana sáu svona nokkurn veginn
hvernig framvindan þróast. Höfund-
arnir halda þó athygli áhorfenda
lengst af fanginni í hrollblandinni
spennu ógnvekjandi augnablika þeg-
ar hausar svífa af búkum, persónurn-
ar stikna, drukkna, bútast í sundur…
Með dauðann á hælunum
Þar skall hurð nærri hælum Keegan Connor Tracy.
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri
ENDALOKIN 2/Final Destination 2) Leikstjóri: David R. Ellis. Handrit: J.
Mackye Gruber og Eric Bress, byggt á
sögu Grubers, Bress og Jeffrey Reddick.
Kvikmyndatökustjóri: Gary Capo. Tónlist:
Shirley Walker. Aðalleikendur: Ali Larter
(Clear Rivers), A. J. Cook (Kimberly
Corman), Michael Landes (Thomas
Burke), T. C. Carson (Eugene Dix), Jon-
athan Cherry (Rory), Keegan Connor
Tracy (Kat). 95 mín. New Line Cinema.
Bandaríkin 2003.
Sæbjörn Valdimarsson
MADONNA var yf-
irburðasigurvegari
þegar Gullnu hind-
berjaverðlaunin
voru afhent, kvöld-
ið fyrir Óskars-
verðlaunahátíðina.
Þessi verðlaun eru
veitt fyrir verstu
frammistöðu ársins
í kvikmyndum og
var Madonna valin
versta leikkonan
bæði í aðal- og
aukahlutverki fyrir
myndirnar Frá sér
numin (Swept
Away) og Deyðu
annan dag (Die
Another Day). Frá sér numin var
einnig valin versta myndin og Guy
Ritchie, eiginmaður Madonnu, versti
leikstjórinn.
Madonna varð raunar að deila
verðlaunum sem versta leikkonan
með söngkonunni Britney Spears,
sem þótti einnig standa sig með af-
brigðum illa í Á krossgötum.
John Wilson, sem stofnaði til þess-
arar verðlaunahátíðar fyrir 23 árum,
varði þá ákvörðun að halda hátíðina
þrátt fyrir stríðið í
Írak og sagði:
„Stríð afsakar ekki
frammistöðu Ma-
donnu.“ Madonna
átti einnig aðild að
versta kvikmynda-
pari ársins ásamt
Adriano Giannini
sem lék á móti
henni í Frá sér
numin.
Britney Spears
fékk einnig verð-
laun fyrir versta
lag í kvikmynd,
lagið „I’m Not a
Girl, Not Yet a
Woman“.
Sjálfur George Lucas fékk þá
hindber fyrir versta handrit myndar
fyrir Stjörnustríð – kafli II: Árás
klónanna og Hayden Christensen
var valinn versti karlleikari í auka-
hlutverki fyrir þátt sinn í þeirri
mynd. Versti karlleikarinn í aðal-
hlutverki var hins vegar Ítalinn Ro-
berto Benigni fyrir leik í mynd sinni
Gosa. Madonna hefur nú fengið flest
hindberjaverðlaun í sögunni ásamt
Sylvester Stallone eða níu talsins.
Verstu kvikmyndatilþrif ársins
Einungis Sly Stallone stendur
uppi í hárinu á Madonnu þegar
að Gullna hindberinu kemur.
Yfirburðir Madonnu