Morgunblaðið - 25.03.2003, Qupperneq 50
Óskarsverðlaunahátíðin var með fremur hefðbundnu sniði
ÞÓTT dans- og söngvamyndin
Chicago hafi verið ótvíræður sig-
urvegari 75. Óskarsverðlaunahátíð-
arinnar var það Píanistinn sem stal
senunni. Myndin fékk reyndar að-
eins þrenn verðlaun á meðan
Chicago tók sex en í öllum tilfellum
kom sigur Píanistans á óvart. Fáir
höfðu t.a.m. búist við því að Ósk-
arsakademían myndi leggja blessun
sína yfir Roman Polanski sem
besta leikstjórann í ljósi þess að
hann hefur verið í útlegð frá
Bandaríkjunum í aldarfjórðung,
eftir að hafa verið fundinn sekur
um að hafa sængað hjá stúlku und-
ir lögaldri. Adrien Brody, sem val-
inn var besti aðalleikarinn í karl-
hlutverki, hafði reyndar verið
sagður sá sem helst gæti stolið
styttunni frá Daniel Day-Lewis og
Jack Nicholson en á viðbrögðunum
á hátíðinni mátti vel merkja að
fæstir höfðu trú á að honum myndi
takast það. En engir fögnuðu því
þó meira en þeir heiðursmenn sem
einnig voru tilnefndir. Brody ber
líka Píanistann uppi, hefur hana á
hærra plan, með einni af þessum
leikframmistöðum, sem um verður
rætt er fram líða stundir. En segja
má að það hafi þeir allir átt sam-
eiginlegt karlarnir sem tilnefndir
voru, sérstaklega Nicholson úr
Varðandi Schmidt, Day-Lewis úr
Gengjum New York-borgar og
Michael Caine úr Þögla Amerík-
ananum, allir sýndu þeir frábæran
leik og hefðu átt meiri séns væru
myndirnar sterkari og ef þeim
hefði gengið betur almennt á Ósk-
arshátíðinni. Hinn 29 ára Brody
hefur aldrei áður verið tilnefndur
til Óskarsverðlauna en hefur
löngum verið talinn með efnilegri
leikurum Bandaríkjanna. Ekki ein-
asta er hann yngstur allra til að
vinna Óskar sem besti aðalleikarinn
heldur er hann einnig sá fyrsti til
að vinna sigur á fjórum leikurum
sem þegar hafa fengið Óskara.
„Allt þetta á ég mömmu og pabba
að þakka,“ sagði hann í langri og
tilfinningaþrunginni ræðu, þar sem
hann sagðist biðja Guð, Allah eða
hvaða æðri máttarvöld sem væri
um heimsfrið.
Þriðju verðlaunin sem féllu
Píanistanum í skaut fóru svo til
Í skugga stríðsátaka fór 75. Óskarsverðlaunahátíðin fram með
nokkuð hefðbundnu sniði á sunnudag í Kodak-leikhúsinu í Los
Angeles. Skarphéðinn Guðmundsson rekur markverðustu tíðindi.
Chicago sigraði á meðan
Píanistinn stal senunni
D)'
!
!
" !
Greinilegt var á sterkum
viðbrögðum Adriens
Brodys að hann hafði
alls ekki búist við
að sigra.
Í geðshræringu
sinni kom hann
svo Halle Berry í
opna skjöldu, er hún
veitti honum Óskarinn
fyrir besta leik í aðal-
hlutverki, með því að
smella á hana einum
ekta bíómyndakossi.
50 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6 og 10. Sýnd kl. 7. B.i. 16.
HJ MBL
Þegar röðin er komin að þér þá flýrðu ekki dauðann!
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
SV. MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. B.i 12.
Sýnd kl. 10.20. B.i. 16. Sýnd kl. 3.40 og 8. B.i. 16.
Sýnd kl. 3.45 og 5.50.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20.
kl. 8 og 10.20
Eingöngu sýnd í LÚXUSSAL kl. 4. B. i. 12.
Skemmtilegasta rómantíska
gamanmyndin síðan
Pretty Woman!
Rómantík,
grín og góð
tónlist í
frábærri
mynd!
HJ MBL
Radíó X
X-IÐ
Frá Óskarverð-
launahöfunum
James Cameron
sem leikstýrði
Titanic og Steven
Soderberg sem
leikstýrði Traffic
kemur einstætt
meistaraverk.
Missið ekki
af þessari
mögnuðu mynd!
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12.
6 ÓSKARSVERÐLAUN M.A.BESTA MYNDIN
Fæst í öllum
betri bókabúðum
PARKER
Frontier
í glæsilegr
i gjafaösk
ju:
1795kr.
T
IL
B
O
Ð
BARDAGAKAPPINN Steven
Seagal klekkti nýverið á mafíósum
sem ætluðu að kúga út úr honum fé.
Glæponarnir voru fyrir dómstólum
fundnir sekir um að hafa reynt að
þröngva Seagal til að greiða sér
tvær milljónir punda.
Sendisveinar Gambino-glæpafjöl-
skyldunnar eiga að hafa skipað
Seagal að afhenda þeim upphæðina
á vafasömum veitingastað í Brook-
lyn og á víst að hafa litlu munað að
illa færi fyrir hinum fima Seagal.
En hann er vitaskuld öllu vanur og
búinn að lumbra á ófáum skúrk-
unum í kvikmyndum sínum og var
því vitaskuld ekki að láta ósvífna
glæpona komast upp með að
þjarma að sér. Ekki fylgir sögunni
hvort Seagal greip til einhverra af
þeim ótal fornu bardagalistum sem
hann kann, í samskiptum sínum við
mafíósana.
Steven Seag-
al: Maðurinn
sem skúrk-
arnir óttast.
Seagal lætur ekki vaða yfir sig