Morgunblaðið - 03.07.2003, Síða 17

Morgunblaðið - 03.07.2003, Síða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2003 17                              !"        #$" %    &  '    (((   )$)*+,#+    - &  )        .   &       STARFSMENN Reykjavíkurborg- ar voru í óða önn að hreinsa götur í rigningunni í Vesturbænum í gær. Starfið gekk ágætlega en stundum vill svo bregða við að fólk skilur eftir bílana sína á götunum svo götusópar komast við illan leik framhjá þeim. Vesturbæingar fengu tilkynningu um fyrirhugaða hreinsun fyrir nokkru og voru þeir vinsamlegast beðnir um að leggja bifreiðum annars staðar en við þær götur sem hreinsa átti. „Við höfum verið að fá fólk til þess að annað hvort leggja ekki bílum við einhverja tiltekna götu eða ein- göngu öðru megin götunnar þessa ákveðnu daga. Þetta gerum við til þess að komast að,“ segir Sigurður Skarphéðinsson, gatnamálastjóri í Reykjavík. Hann segir að götur borgarinnar séu hreinsaðar nánast allt árið, meira að segja sé farið af stað yfir vetrartímann þegar vel viðri og það sé þíða. Í maí er mikið átak og borgin hreinsuð eftir veturinn og síðan er haldið áfram jafnt og þétt út sumarið og fram á haust. Hann segir að á sumrin séu send skila- boð í hús og íbúum tilkynnt hvaða dag gatan þeirra verði hreinsuð og þeir vinsamlegast beðnir um að leggja ekki í götunni á þeim tíma. „Þetta er yfirleitt á vinnutíma og þegar komið er út fyrir miðborgina gengur þetta yfirleitt vel því það er náttúrulega hagur íbúanna að gatan þeirra sé hreinsuð,“ bendir hann á. Að sögn Sigurðar getur starfið reynst erfiðara eftir því sem nær dregur miðborginni, þar sem fólk kemur annars staðar að og bíla- stæði eru fá. Fólk leggur bifreið- um sínum þar sem hægt er að koma þeim fyrir og því er jafnvel sama þótt gatan sé ekki hreinsuð þar sem þetta er ekki „þeirra gata“. Þegar hann er spurður hvort það gerist reglulega að fjar- lægja þurfi bifreiðar segir hann að það hafi komið fyrir. „Við höfum þurft að róta við bílum en ekki fjarlægt þá þannig að eigandinn sæki þá og þurfi að greiða þann kostnað sem af því hlýst, en það kemur aðeins fyrir að við höfum kranabíl með okkur og hnikum bíl- um til þegar við eigum ekki ann- arra kosta völ,“ segir Sigurður. Hann bætir jafnframt við að í mið- borginni verði að setja upp skilti við viðkomandi götu um að hún verði hreinsuð á tilteknum tíma, en í úthverfunum séu tilkynningarnar í hús látnar nægja. „Það er full ástæða til þess að vekja athygli á þessu til að fá fólk til þess að virða þessa ósk okkar um að leggja ekki á tilteknum stað á tilteknum tíma.“ Skelfileg umgengni eftir skemmtanir Sigurður leggur einnig áherslu á að um helgar og eftir hátíðisdaga bíði hreinsunardeildarinnar mikið verk. Hann segir það afar fróðlegt að sjá hvernig fólki skilji við miðborgina sína eftir skemmtanir, sérstaklega þegar vel viðrar, þá sé umgengnin alltaf skelfileg. „Þetta er alltaf sama vandamálið. Fólk fer út með bjórglös sem brotna og síðan er mikið um umbúðir utan af ýmsum mat, samlokum, pizzum og svo framvegis. Ef það er sæmilega hlýtt og þurrt þá komumst við ekki að til þess að þrífa fyrr en á milli fjögur og fimm á morgnana. Mannfjöldinn er það mikill að við leggjum ekki í það að fara inn með þessi þungu og stóru tæki. Það er oft á tíðum alveg með herkjum að við náum að þrífa það mesta áður en fólk fer aftur á stjá milli átta og níu,“ segir hann. Morgunblaðið/Jim Smart Götur í Vesturbænum voru hreinsaðar í gær og var Skildinganesið þeirra á meðal. Ekki virtu allir bíleigendur boð um að leggja annars staðar. Erfiðara að hreinsa göturnar nær miðborginni Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.