Morgunblaðið - 03.07.2003, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 03.07.2003, Qupperneq 47
HIPP-hopp-tónlistarstefnan á ræt- ur sínar í Harlem og Bronx þar sem rapparar komu fram á sjónarsviðið fyrir röskum tveimur áratugum. Nú eru heilu hverfin sem ferða- menn forðuðust áður eins og heitan eldinn orðin að vinsælum áfanga- stöðum fyrir þá sem vilja skoða uppruna þess sem hvað vinsælast er í tónlistinni í dag. Og það að sem meira er, það eru sjálfir frumkvöðl- arnir í hipp-hopp-heiminum sem eru leiðsögumenn. „Allir aðrir eru að græða á þessu, svo hví ættum við ekki að gera það líka?“ sagði Rahiem, úr einu af þekktari frumkvöðlaböndum hipp- hoppsins, Grandmaster Flash and the Furious Five, í viðtali við BBC. Ferðalangar sem fara í kynn- isferðir með Rahiem og kollegum hans furða sig á því að gömlu kemp- urnar skuli ekki eiga feikinóg af peningum. Ástæðan er helst sú að þegar tónlistarstefnan fór fyrst að mótast var ekki stór markaður fyrir tónlistina. Þannig segir Rahiem að í gamla daga hafi þeim félögum þótt himnasending að komast í að spila á tónleikum fyrir 5.000 dali en í dag fái stórstjörnurnar 40-falda þá upp- hæð fyrir að skemmta á risavöxnum íþróttaleikvöngum, troðfullum af æstum áhorfendum. Í kynnisferðunum eru ferða- langar leiddir um æskuslóðir hipp- hoppsins og þeim sýndir markverðir staðir þar sem gamlir rapparar bjuggu eða tóku upp lögin sín. Grandmaster Flash and the Furious Five klæddir samkvæmt nýjustu tísku í árdaga hipp-hoppsins. Á fornum hipp-hopp- slóðum Gamlir rapparar drýgja tekjurnar með leiðsögumennsku FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2003 47 AKUREYRI • REYKJAVÍK • KEFLAVÍK Myndbönd Fjölskyldumynd Virginia’s Run/ Virginía hleypir á skeið Bandaríkin/Kanada 2002. Skífan. VHS (100 mín.) Öllum leyfð. Leikstjóri: Peter Markle. Aðalleikendur: Lindze Lether- man, Gabriel Byrne, Joanne Whalley. Lítil og hádramatísk fjölskyldu- mynd sem sækir fyrirmynd sína augsýnilega í nafnkunn hliðstæð eldri verk á borð við National Velv- et, en meinið er að hér er engin Elizabeth Taylor eða frumleg og áhrifarík saga. Söguhetjan Virg- inia (Lindze Leth- erman) er 12 ára gamall telpukrakki sem missti móður sína í slysi er hún féll af hestbaki. Pabbi hennar (Gabriel Byrne) setur sig á móti því að Virginía litla komi nálægt hest- um eftir atburðinn en hún er ekki á sama máli. Virginía á eldri systur sem er í tygjum við Darrow (Kevin Zegers), óforskammaðan náunga sem vinnur hvert hlaupið á fætur öðru og gerir allt til þess að Virg- inía geti ekki tekið þátt í árlegum þorpsveðhlaupum. Ansi fyrirsjáanleg, frá upphafi veit maður nokkurn veginn hvernig málin þróast hjá Virginíu og hennar hestamál öll. Þeir vondu fá fyrir ferðina og hver skyldi standa uppi sem sigurvegari? Gettu einu sinni. Nokkrar hliðarsögur eru í gangi, m.a. ein sem snertir tamningamann (Joanne Whalley) sem kemur til bæjarins og þegar ljóst er að sú sem leikur hann er engin önnur en glæsikvendið Joanne, sú sem áður bætti Kilmer aftan við skírnarnafn- ið, er pabbi gamli fljótur að ná sér eftir konumissinn. Og annað eftir því. Þokkaleg skemmtun fyrir börn knapa og tamningamanna. Sæbjörn Valdimarsson Myndbönd Virginía á veðhlaupa- brautinni Bara koss (Just A Kiss) Gamanmynd Bandaríkin 2002. Skífan VHS/DVD. Öllum leyfð. (89 mín.) Leikstjórn Fisher Stevens. Aðalhlutverk Marisa Tomei, Kyra Sedgwick, Ron Eldard, Patrick Breen. ÞESSI rómantíska gamanmynd er blessunarlega ekki eins og þær flest- ar. Hún er fyrir það fyrsta frumlegri. Hún er klikkaðri og þar af leiðandi langsóttari. Sá sem gerði hana er Fisher Stev- ens, kauði sem mað- ur sá fyrst í menntaskólamynd- um en dúkkaði síð- an upp í burðarhlut- verki í Á köldum klaka Friðriks Þórs. Hann og hand- ritshöfundurinn Breen – sem jafnframt leikur eitt að- alhlutverkið – hafa hugmyndaflugi til að dreifa, það er greinilegt. Tilgerðin er reyndar allmikil á köflum en línan er líka fín á milli tilgerðar og frum- legheita þegar djarft er teflt. Óþarfi er að tíunda þráðinn að öðru leyti en að hann flakkar um í tíma og gengur út á hversu miklu skiptir að standast freistinguna, hversu alvar- legar afleiðingar getur haft í för með sér að misstíga sig einu sinni – allt þó á léttfáránlegum nótum. Og allir átta leikararnir sig á fárán- leikanum, skila sínu og gera ágætis stundargaman ennþá skemmtilegra.  Skarphéðinn Guðmundsson Hvað ef?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.