Morgunblaðið - 06.08.2003, Síða 19

Morgunblaðið - 06.08.2003, Síða 19
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2003 19 F í t o n Ingvar Helgason notaðir bílar Ingvar Helgason hf. · Sími 525 8000 · Sævarhöfða 2 ih@ih.is · www.ih.is/notadir · opið virka daga kl. 9-18 GÓÐUR NOTAÐUR BÍLL IMPREZA WRX STi Verð 3.590.000 kr. Skráður 10/2002, ekinn 13.000 km. Ljósmynd/Ólafur Þór Krakkarnir í kofabyggðinni fengu margvíslegar viðurkenningar á lokahátíðinni sem haldin var fyrir skömmu. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Baldur Mattías, Bjarki og Magnús Ingibergur lögðu mikla vinnu í að byggja kofann, mála hann og snyrta í kring. Þeir eru ánægðir með árangurinn. MIKLAR framkvæmdir hafa staðið yfir á smíðavellinum í Sandgerði. Kofarnir sem þar risu eru hver öðr- um fallegri. Krakkarnir í kofabyggðinni héldu lokahátíð á dögunum. Þau létu ekki rok og rigningu hafa of mikil áhrif sig, sýndu kofana sýna og tóku við viðurkenningum frá umsjón- armönnunum Sigurbjörgu og Svav- ari og gæddu sér á grilluðum pyls- um. Kofabyggðin var færð á nýjan stað í sumar, á gamla knatt- spyrnuvöllinn, og líkar húsbyggj- endum það vel. Þar er meira skjól og betra að vera. Kofarnir eru byggðir samkvæmt ákveðnu skipulagi og er komin götumynd á byggðina. Þrír drengir sem fréttaritari ræddi við undir lok fram- kvæmdanna voru að mála kofann sinn og sögðu alla byggingarsöguna enda var mikil atorka leyst úr læð- ingi við þessa framkvæmd. Meðal nýmæla sem þeir voru stoltir af er sólpallur við kofann. Byggðu sólpall við kofann Sandgerði ÁTJÁN ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögregl- unnar í Keflavík í síðustu viku og um helgina. Sá sem ók hraðast var mældur á 148 kílómetra hraða og á hann von á hárri sekt. Flestir voru teknir á Reykjanes- brautinni og mældir á 113 til 148 kílómetra hraða. Einnig voru nokkr- ir teknir fyrir að aka of hratt á göt- um Reykjanesbæjar þar sem 50 kíló- metra hámarkshraði er leyfður. Kemur þetta fram í dagbók lögregl- unnar. Margir teknir fyrir hraðakstur Reykjanesbraut VIÐSKIPTAVINIR Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar (FFR) virðast almennt ánægðir með þjónustu stofnunarinnar og starfsfólk þess. Er það niðurstaða viðhorfs- könnunar sem FFR gerði í vor. 90% viðskiptavina Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar eru ánægðir með starfsfólk þjónustunn- ar, bæði hvað varðar viðmót þess og þekkingu á viðfangsefni. Tilgangurinn með könnuninni var að fá fram viðhorf viðskiptavina FFR til þjónustunnar og um leið hvað bet- ur mætti fara. Könnunin fór fram á skrifstofum FFR, þar sem tólf spurn- ingar voru lagðar fyrir viðskiptavini stofnunarinnar. Alls tóku 50 manns þátt. Framkvæmdin var með þeim hætti að í lok viðtals óskuðu starfs- menn eftir því við viðskiptavini, að þeir fylltu út könninunina og skiluðu henni í lokaðan kassa í afgreiðslu. Yfir 75% þátttakenda sögðust mjög sáttir eða sáttir við afgreiðslu erinda sinna. Einungis einn einstaklingur, sem svarar til tveggja prósenta, var mjög ósáttur með þann þátt. Flestir, eða 86%, voru mjög sáttir eða sáttir við þjónustuna sem þeir fengu, einn var ósáttur og sex hvorki né. Varðandi viðmót starfsmanna og þekkingu þeirra á viðfangsefninu svörðu flestir, eða 90%, að viðmót starfsmanna hafi verið mjög gott eða gott og einn taldi það hafa verið slæmt. 86% aðspurðra töldu þekkingu starfsmanns á viðfangsefninu mjög góða eða góða, tveir eða 4% töldu hana slæma. Niðurstöður könnunarinnar sýna ótvírætt að fylgni er á milli ánægju viðskiptavina og þess hver afgreiðsla erinda þeirra er. Einnig má sjá fylgni milli ánægju viðskiptavina eftir þekk- ingu starfsmanns á málefninu og við- móti hans. Þeir sem voru ósáttir við afgreiðslu erindi sinna gáfu viðmóti starfsmanns þolanlega eða góða um- sögn. Einungis einn aðili er ósáttur við viðmót starfsmanns en sá aðili er einnig mjög ósáttur við afgreiðslu er- indis síns, segir í frétt á heimasíðu bæjarins. Flestir ánægðir með þjónustuna Reykjanesbær Viðhorfskönnun meðal viðskiptavina Fjölskyldu- og félagsþjónustu SPARISJÓÐURINN í Keflavík og Knattspyrnudeild Keflavíkur hafa gert með sér nýjan sam- starfssamning. Keflavíkurliðið leikur með auglýsingu frá SpKef á keppn- istreyjum liðsins. Í fréttatil- kynningu frá knattspyrnudeild- inni kemur fram að stuðningur Sparisjóðsins sé afar mikilvæg- ur. Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri og Rúnar Arn- arson formaður deildarinnar undirrituðu samninginn. Við það tækifæri kom fram hjá Geirmundi að ánægjulegt væri að styðja íþróttahreyfinguna og Sparisjóðurinn hefði lengi viljað koma að þeim málum. Samning- urinn við Keflavíkurliðið væri liður í þeirri viðleitni. Sparisjóðurinn styður knattspyrnuna Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.