Morgunblaðið - 14.10.2003, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
13.000 gestir
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára
Ný vídd í
skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Settu upp
3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
Stórskemmtileg rómantísk
gamanmynd með Ewan McGregor og
Renée Zellweger sem fara á kostum í
þessari frábæru mynd
um ástina og baráttu kynjanna
með ófyrirséðum afleiðingum.
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
kl. 8 og 10.30. B.i. 12
Sýnd kl. 5 og 8. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Besta sérsveit sem sett hefur verið saman er
að lenda í sínu erfiðasta máli.
Mögnuð spennumynd!
Frá framleiðanda
Fast & the Furious og xXx
Beint á
toppinn
í USA
Sýnd kl. 4 og 6.
með ísl. tali.
Sýnd kl. 10.
B.i. 12.
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Ný vídd í
skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Settu upp
3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. B.i. 12.
Besta sérsveit sem sett hefur verið saman
er að lenda í sínu erfiðasta máli.
Mögnuð spennumynd!
Beint átoppinní USA
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
BJÖRGVIN Halldórsson er með
fjölmörg járn í eldinum um þessar
mundir og verður allt á fullu næstu
mánuði ef svo mætti að orði kom-
ast. Fyrst kemur til tals væntanleg
dúettaplata Björgvins, en áætlað er
að hún komi út í nóvember.
„Það sem er mest spennandi við
þetta er að í fyrsta skipti er ég ekki
með puttana í upptökustjórninni,“
segir Björgvin. „Það eru aðrir sem
munu sjá um þá þætti, menn eins og
Friðrik Karlsson, Þórir Baldursson,
Jón Kjell, Þórir Úlfarsson og Sölvi
Blöndal í Quarashi. Söngvarar sem
munu syngja með mér eru m.a.
Birgitta, Jónsi, Stefán Hilmarsson,
Sverrir Bergman, Páll Rósinkrans,
Sigga Beinteins, Hansa, Regína og
svo börnin mín, Svala og Krummi.“
Lögin verða bæði erlend og inn-
lend, öll ný og við íslenska texta.
Innlendir lagahöfundar eru m.a.
Jóhann Helgason, Friðrik Karlsson
og Einar Bárðarson.
Og Brimkló er á bullandi stími?
„Jú jú, við erum búnir að vera al-
veg á fullu og þetta er búið að
ganga alveg prýðilega. Við erum
alveg í skýjunum yfir þessum góðu
móttökum og þetta er búið að vera
alveg ofsalega gaman. Þetta eru sjö
manns á sviðinu þannig að hljóm-
urinn er stór. Við förum að draga
okkur í hlé núna og verðum með
stórtónleika á Players á föstudag-
inn. Svo spilum við ekkert á höf-
uðborgarsvæðinu í bráð en verðum
með einhverja tónleika úti á landi
næstu vikur. Við munum þá spila á
stóru jólaballi annan í jólum á
Broadway ásamt Pöpunum.“
Svo ert þú að fara af stað sjálfur
með jólasýningu á Hótel Nordica ...
„Já, ég er búinn að syngja mikið í
kringum jólatréð í gegnum árin
(hlær). Hugmyndin er að ramma
þennan part ferilsins í huggulega
kvöldstund.“
Sýningin Jólagestir Björgvins
verður frumsýnd 21. nóvember en
aðeins verður um fimm sýningar að
ræða. Einnig verður boðið upp á
jólamatseðil.
Og svo er það Brimklóplata eftir
áramót ...
„Já, okkur langar að henda okk-
ur í hljóðver í vetur. Við ætlum að
minnsta kosti að fara inn og taka
upp og sjá hvað gerist. Ef vel til
tekst kemur bara plata með vorinu.
Í þessum Brimklóarstíl að sjálf-
sögðu. Það er kominn mikil spila-
gleði í menn og það er gaman að
gera eitthvað saman meðan við er-
um í stuði.“
Og ekki er allt upp talið enn!
„Nei, nei. Það er sóló-sýning í
burðarliðnum sem yrði á næsta ári
en það er enn verið að pæla það út.
Þá er ýmislegt fleira í ofninum. Ég
er að vinna efni á kántrí-gosp-
elplötu og er svo lengi búinn að
ganga með Hank Williams „tribute“
plötu í maganum þar sem textarnir
yrðu íslenskir og sérvaldir söngv-
arar myndu sjá um að heiðra þenn-
an merka tónlistarmann.“
Ýmislegt á döfinni hjá Björgvini Halldórssyni
Plötur, sýningar
og margt fleira
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Björgvin á sviði með Brimkló.
arnart@mbl.is
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Iceland
Airwaves hefst á morgun með plötu-
snúðasettum á Sirkus og Kapital.
Henni lýkur á sunnudaginn og verða
þá yfir hundrað sveitir og listamenn,
bæði frá Íslandi og útlöndum, troðið
upp víðsvegar um miðbæ Reykjavík-
ur. Þetta er í fimmta skipti sem há-
tíðin er haldin og drífur að fjöldi er-
lendra blaðamanna og gesta til að
fylgjast með hátíðinni. Morgunblaðið
hafði samband við Þorstein Steph-
ensen, skipuleggjanda Airwaves, og
heyrði í honum hljóðið á síðustu
metrunum.
Borið uppi af
jaðartónlistarmönnum
Nú er þetta í fimmta sinn sem há-
tíðin fer fram. Hvernig hefur þú
skynjað árangurinn af henni í gegn-
um tíðina?
„Ég er mjög ánægður með þann
árangur sem hefur náðst af þessari
hátíð. Ekki síst hve vel hefur tekist að
auka áhuga Íslendinga sjálfra á þeim
innlendu listamönnum sem koma hér
fram. Tilgangurinn er auðvitað öðrum
þræði að koma íslenskum listamönn-
um á framfæri erlendis en auðvitað
líka að halda skemmtilega hátíð. Ég
gleðst þess vegna yfir því að þessi há-
tíð, sem er borin uppi af jaðartónlist-
armönnum, sé í dag talin mikilvæg.“
Kemur þessi velgengni þér á
óvart?
„Ég er ekki viss um að það hefði
verið hægt að sannfæra mig um að
þetta yrði til í dag fyrir fjórum ár-
um. Maður hafði þá mestar áhyggj-
ur af því að íslensk tónlistarmenn-
ing gæti ekki borið þetta, landið er
nú það lítið. En að það séu yfir 100
íslenskir listamenn á svona hátíð er í
rauninni alveg ótrúlegt.“
Breskir fjölmiðlar virðast hafa
tekið vel við sér í ár. Kanntu ein-
hverjar skýringar á því?
„Það hefur alltaf mestur fjöldi
blaðamanna komið frá Bandaríkj-
unum og svo er líka í ár, en þetta er
að jafnast út. Það er jákvætt en það
hefur einfaldlega tekið lengri tíma
að afla tiltrúar í Bretlandi. Svo má
líka segja að Bretinn hafi haft meira
aðgengi að íslenskri tónlist í gegn-
um tíðina og þess vegna hefur hann
ekki verið að æsa sig yfir þessari til-
teknu helgi.“
Áhugi útlendinga á íslenskri dæg-
urtónlist virðist mikill og stöðugur.
Hvers vegna?
„Ég held nú að mesta nýjabrumið
sé farið af þessu. Í dag verðum við
að gera eins og íslenska knatt-
spyrnulandsliðið, það er ekki nóg að
koma á óvart heldur verðum við að
vinna leikina. Og að því leyti til
finnst mér íslenska tónlistarsenan
vera að vinna ágætlega úr sínum
spilum.“
Þið fóruð af stað með upplýsinga-
miðstöð í hitteðfyrra. Hvernig hefur
það verið að mælast fyrir?
„Þetta byrjaði á Kaffibarnum en
svo var settur meiri kraftur í hana í
fyrra. Þetta er ennþá betra núna.
Við erum núna með fjóra starfs-
menn í vinnu sem verða þarna alla
dagana (miðstöðin er staðsett í
Hressingarskálanum eða Hressó).
Það verður þarna lítil verslun frá
12 tónum þar sem boðið verður upp
á efni með sem flestum þátttak-
endum hátíðarinnar. Þetta er besta
leiðin til að tengja fjölmiðlanna við
tónlistarmennina en þarna mæla
menn sér mót, skiptast á símanúm-
erum o.s.frv. Þetta er hagkvæm og
skemmtileg lausn því að þarna er
um leið fínasta kaffihúsastemn-
ing.“
Hafa erlendir aðilar verið að líta
til þessarar hátíðar sem fyr-
irmyndar?
„Já, reyndar. Við höfum fengið
fullt af skemmtilegum bréfum síð-
asta árið. Við fengum t.a.m. bréf frá
Kanaríeyjum, frá einhverjum að-
stoðarmanni menningarmálaráð-
herra þar. Hann var að óska eftir
samstarfi. Við höfum fengið svipuð
bréf frá Skotlandi, Lissabon og
Barcelona. Fólki finnst þetta áhuga-
vert. Nú erum við t.d. í viðræðum
við CMJ í New York sem er ein
stærsta óháða tónlistarhátíð heims
og þeir vilja skoða nánara samstarf
við okkur.“
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst á morgun
Fimm ára farsæld
Nilfisk er á meðal fjölmargra íslenskra sveita sem leika á Airwaves. Ætli
þeir nái að heilla erlendu pressuna líkt og þeir gerðu með Dave Grohl?
Prosaics er efnileg sveit frá New
York og hefur verið að gera það
gott þar í borg og víðar að und-
anförnu.
www.icelandairwaves.com.
arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason