Morgunblaðið - 14.10.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2003 51
Stuttmyndin
Síðasta
Kynslóðin
sýnd á undan
myndinni
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6 og 9.
Tvímælalaust ein albesta mynd
ársins sem slegið hefur rækilega í
gegn í Bandaríkjunum
Stórmynd sem engin má missa af.
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 10.
SV MBL
SG DV
Sýnd kl. 5.30.
Sýnd kl. 8.
Munið afs láttarkort in á kv ikmyndahát íð
HK. DV
ELEPHANT
Sýnd kl. 8.
MBL
HK DV
MBL
MBL
SG MBL
HK DV
www.laugarasbio.is
Ný vídd í
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna.
Settu upp
3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 6 og 8.
Tvímælalaust ein albesta mynd ársins
sem slegið hefur rækilega í gegn
í Bandaríkjunum
Stórmynd sem engin má missa af.
SV MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12 ára.
Besta sérsveit sem sett hefur verið saman er að
lenda í sínu erfiðasta máli. Mögnuð spennumynd!
Frá framleiðanda
Fast & the Furious og xXx
Löggur þurfa líka hjálp!
Beint á
toppinn
í USA
Sýnd kl. 6. Með ísl. tali - Tilboð 400 kr.Sýnd kl. 8 og 10.
Vikutilboð15% afsl.
af öllum ljósum vikuna 13.-18. október
www.casa.is • Opið mán-fös 11-18 • lau 11-15
Mörkinni 3, 108 Reykjavík
sími 588 0640
HÚN gerist ekki safaríkari útgáf-
an á leigumyndbandi og -diski en
þessa vikuna. Alls koma út tólf á
myndbandi, þar af fjórar á mynd-
diski. Þrjár þeirra voru frum-
sýndar í bíó en hinar berast hing-
að í fyrsta sinn.
Woody Allen á sér marga aðdá-
endur hér á landi og er þeim sér-
staklega bent á að síðasta mynd
hans Hollywood-endir kemur á
leigurnar í dag. Sama dag koma
hinar myndirnar sem voru í bíó,
hrollvekjan vinsæla Myrkrið fellu
(Darkness Falls) og útgáfa Ítalans
Robertos Benignis á ævintýrinu
um Gosa.
Af frumsýningum á myndbandi
eru athyglisverðastar ný mynd frá
Jonathan Demme, sem frægastur
eru fyrir myndirnar Lömbin
þagna og Fíladelfía. Myndin heitir
Sannleikurinn um Kalla (The
Truth about Charlie) sem er nokk-
urs konar endurgerð á myndinni
Charade frá 1963 með þeim Cary
Grant, Audrey Hepburn og Walter
Matthau. Í nýju útgáfunni leika
þau Mark Wahlberg, Thandie
Newton og Tim Robbins en hér er
á ferð spennumynd með óvæntum
fléttum um konu sem er ekki fyrr
farin frá manni sínum Kalla en
hann er myrtur og hún liggur und-
ir grun um verknaðinn. Í viðleitni
sinni til að sanna sakleysi sitt
kemst hún síðan að því að ekkert í
hennar lífi er eins og það sýndist í
fyrstu.
Önnur einkar athyglisverð mynd
kemur út á morgun en hún er
skosk og heitir Morvern Callar,
eftir aðalpersónu myndarinnar,
ungri ráðlausri konu, leikin af
Samönthu Morton (Minority Re-
port, Sweet and Lowdown). Mynd-
in er gerð af einum efnilegasta
kvikmyndagerðarmanni Breta,
Lynne Ramsay (Ratcatcher) og
hefur hvarvetna fengið frábæra
dóma og unnið til fjölda verðlauna.
Skilyrðislaus ást (Unconditional
Love) er fyrsta myndin sem Ástr-
alinn P.J. Hogan gerði síðan hann
sendi frá sér My Best Friends
Wedding árið 1987. Tækifærið til
að vinna í Hollywood fékk hann
einmitt eftir að mynd hans Mu-
riel’s Wedding hafði slegið óvænt í
gegn um allan heim.
Nýja myndin sver sig í ætt við
þær fyrri, inniheldur ískaldan
húmor og miklar tilfinningar en
hún fjallar um miðaldra konu sem
verður fyrir því áfall á einum degi
að maður hennar fer frá henni og
uppáhaldstónlistarmaður hennar
er myrtur. Í einhverri ringlureið
ákveður hún að fara til Englands
til að vera viðstödd útför átrún-
aðargoðsins og hittir þar fyrir
elskhuga þess (Rupert Everett).
Eftir brösug fyrstu kynni verður
þeim brátt vel til vina og taka
saman höndum við að hafa upp á
morðingja goðsins.
Aðrar myndir sem koma út á
myndbandi í vikunni eru svo gam-
anmyndirnar Bátsferðin (Boat
Trip) og Á skutluveiðum (Chasing
Beauties), spennumyndirnar Stríð
Foyle’s 3 (Foyle’s War: Lessons in
Murder), Miðnæturmessa (Mid-
night Mass) og Emmett’s Mark og
síðast en ekki síst Disney-
teiknimyndin Bófabæli Mikka.
12 kvikmyndir koma út á myndbandi í vikunni
Blindur Allen og óséður Demme
!"
!" #
!"
!" $
$
$
#
!" #
$
$
$
$
$
!"
!" #
$
%
&
%
%
&
&
'
%
&
%
'
&
&
&
'
&
%
&
'
&
!"
#
$
%
& #'()
%
*&
!
%+$,
)
$
-
- !
. /
*)
!
Leikararnir Mark Wahlberg og
Thandie Newton í hlutverkum
sínum í Sannleikanum um Kalla.
DANSVERKIÐ Split Sides eftir
hinn þekkta dansahöfund Merce
Cunningham verður frumflutt í
Brooklyn Academy of Music í
kvöld. Tónlist við verkið er eins og
áður hefur verið greint frá flutt og
samin af Sigur Rós og Radiohead.
Um er að ræða 40 mínútna dans-
verk í tveimur hlutum. Verkið verð-
ur einnig sýnt fimmtudag, föstudag
og laugardag nema þá verður tón-
listin flutt af tónlistarmönnum úr
Dansflokki Merce Cunningham auk
þess sem eitthvað af tónlistinni
verður tekið upp á frumsýningunni
og flutt á síðari sýningum.
Robert Swinston, 53 ára, sem
dansað hefur með flokknum í 23 ár
segir í viðtali við New York Times
að dansararnir, sem æfi í þögn,
heyri vart tónlistina á sviði því
ótrúlega krefjandi hreyfingar
Cunninghams krefjist algjörrar
einbeitingar. „Fyrir mig þá skiptir
ekki máli þó þetta væri Beyoncé.
Mér finnst Beyoncé skemmtileg.
Við gætum líka dansað við Em-
inem,“ segir Swinston.
Dansverkið og tónlistin eru al-
gjörlega aðskildir þættir í sýning-
unni og segir NYT að erfitt sé að
segja hvor þátturinn sé ráðandi.
„Já, þetta eru vinsælar hljóm-
sveitir,“ segir Cunningham. „Það
skiptir mig ekki máli,“ segir hann
en Cunningham hefur lengi lagt
áherslu á að dansinn og tónlistin
séu sjálfstæð fyrirbæri.
Uppselt varð á sýninguna á auga-
bragði og þarf dansflokkurinn að
vera viðbúinn ásókn þeirra sem
fengu ekki miða á sýninguna í
kvöld og reyna að komast inn með
einhverjum hætti. „Þetta er óvenju-
legt fyrir okkur. Ég er ekki vanur
að vinna með rokkhljómsveitum,“
segir Cunningham.
Kunni vel við Sigur Rós
Hvor hljómsveitin flytur 20 mín-
útna tónverk. Sigur Rós sá dansa
Cunninghams seint í síðasta mánuði
og kunni Cunningham vel við fé-
lagana úr sveitinni. „Mér fannst
þeir eins og skólakrakkar. Ynd-
islegir! Mér líkaði mjög vel við þá.“
Georg Hólm, bassaleikari Sigur
Rósar, segir í viðtali við NYT að sér
hafi fundist dansarnir „mjög fal-
legir“. Ég veit ekki mikið um nú-
tímadans en ég hef mikinn áhuga.
Og áhuginn er örugglega kominn
til vegna Merce.“
Radiohead hefur aldrei séð dans-
flokkinn koma fram en hefur horft
á sýningar á myndbandi. „Þetta er
mjög spennandi,“ segir Jonny
Greenwood, gítarleikari Radio-
head. „Enginn veit við hverju hann
á að búast.“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sigur Rós, ásamt hljómsveitinni Radiohead, spilar á frumsýningu dans-
verksins Split Sides eftir Merce Cunninghams í New York í kvöld.
Tilraun í dansi og rokki
Dansverk Cunninghams við tónlist
Sigur Rósar og Radiohead frumsýnt