Morgunblaðið - 25.01.2004, Page 16
16 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
F
rá ómunatíð hefur rekaviðurinn verið gull Stranda-
manna. Fallegur viðurinn hrannaðist upp á fjörunni og
var nýttur til smíða, í girðingarstaura, til upphitunar og
í vöruskiptum. Í timburskorti Íslendinga allt fram á
miðja síðustu öld hefur það verið hreinasti fjársjóður
Strandamanna að hafa nánast ótæmandi timbur. Hús
voru rammgerð og bátar sterkbyggðir, ekki þurfti að horfa í smíða-
efnið. Öllu afgangsefni og sagi var síðan brennt til húshitunar og er
svo sumstaðar enn. Eftir að hafa litið rekaviðarbreiðurnar sér mað-
ur orðtakið „að eitthvað liggi eins og hráviði“ í réttu ljósi.
Á ferð okkar skoðuðum við sögunarverkið í Reykjarfirði. Í áranna
rás hefur geysimikið verið sagað þar af rekaviði. Meðan markaður
var mikill fyrir girðingarstaura var heilum skipsförmum skipað þar
út. Í Ófeigsfirði er líka mikill reki og fengum við að fara með heima-
mönnum okkur til gamans að bjarga einum rafti af fjörunni. Sýndi
það okkur líka að ekki hefur það gengið fyrirhafnarlaust að nýta
rekann og breyta honum í planka og borð.
Í Litlu-Ávík sýndi Sigursteinn Sveinbjörnsson bóndi okkur sögun-
arhúsið sitt og sagaði fyrir okkur nokkra litla boli. Hann vinnur mik-
ið af reka, bæði furu í byggingarefni fyrir sjálfan sig og til sölu og
rauðavið í fínni smíði og gólfefni. Gaman var að handleika þétt og
þung rauðaviðarborðin enda hreinasti eðalviður. Auðséð var að öll
þessi sögunarverk voru sett upp af hugkvæmni og útsjónarsemi og
dálítið eins og að koma í annan heim þar sem skoðuð er hver sög-
unarmyllan af annarri fyrir stórvið á okkar skóglausa Íslandi.
Sigursteinn Sveinbjörnsson í Litlu-Ávík tyllir sér á stafla af timbri
sem sagað var úr rekaviði.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Vélaraflið kemur sér vel þegar átt er við þunga rekaviðardrumba. Hér er verið að draga viðardrumb af fjöru í Ófeigsfirði.
Viður bíður þess að vera unninn í Litlu-Ávík. Sigursteinn bóndi vinnur mikið af reka, bæði furu í byggingarefni fyrir sjálfan sig og til sölu
og rauðavið í fínni smíði og gólfefni.
Ein af furðumyndunum í rekaviðnum var þessi skjaldbaka.
Börkur leggur hönd á sverasta rekaviðardrumbinn sem
rekið hefur í Reykjarfirði. Tréð er á annan metra í þver-
mál og var líklega 400-500 ára gamalt er það var fellt.
Gull
úr greipum Ægis
Rekaviður hefur verið dýrmæt auðlind Stranda-
manna frá alda öðli. Sigurgeir Jónasson og
Börkur Grímsson voru í hópi Vestmannaeyinga
sem heimsóttu Strandirnar.
Rekaviðurinn tekur á sig ýmsar myndir. Þessi rótarhnyðja líkist helst eðlu
sem skyggnist um á Ströndum.
Sigurgeir er ljósmyndari Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum. Börkur er
útibússtjóri Íslandsbanka í Vestmannaeyjum, en er nú í námsleyfi.