Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 50
HUGVEKJA 50 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Alþjóðleg bænavika,þar sem fulltrúarhinna ólíku kirkju-og trúfélaga heims-ins koma saman og biðja fyrir einingu kristinna manna, er haldin í janúar ár hvert, oftast í þriðju viku, um gjörvalla jörð og hefur svo verið allt frá 19. öld, en þá voru fyrstu skrefin tekin í þessa mikilvægu átt. Á 20. öld hófust fyrir alvöru tilraunir við að sætta andstæður milli kirkjudeilda. Fram eftir öld- inni voru það aðeins evangelískar kirkjur sem ræddu þannig mál sín, en fljótlega bættust rétttrún- aðarkirkjur Austur-Evrópu og Austurlanda nær inn í viðræð- urnar. Árið 1926 hóf trúar- og skipulagsmálanefnd Alkirkju- ráðsins að gefa út efni til notk- unar í hinni samkirkjulegu bæna- viku. Upp úr 1965 fór rómversk-kaþólska kirkjan að líta til hinna og gefa færi á sér, og árið 1968 var svo farið að nota efni í bænavikunni útgefið af Al- kirkjuráðinu og Páfaráðinu. Aðildarkirkjur Alkirkjuráðsins eru um 340 talsins í yfir 100 löndum. Frá árinu 1975 hafa samkirkjulegir hópar í mismun- andi aðildarlöndum þess staðið að undirbúningi bænavikunnar, t.a.m. valið ritningarlestra fyrir átta daga vikunnar, samið bænir og guðsþjónstuform. Ástralía reið á vaðið og síðan hefur efni komið frá ýmsum stöðum í heim- inum, s.s. Bandaríkjunum, Eng- landi, Jamaíka, Írlandi, Kar- íbahafinu, Líbanon, Malasíu og Þýskalandi. Bænavikan var fyrst haldin á Íslandi árið 1968, og hefur Sam- starfsnefnd kristinna trúfélaga lengstum annast skipulagningu hér og m.a. komið á samkomum, og hafa þær staðið yfir alla ný- liðna viku og lýkur í dag. Aðild að nefndinni eiga Aðventkirkjan, Fríkirkjan Vegurinn, Hvíta- sunnukirkjan, Hjálpræðisherinn, Íslenska Kristskirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan. Mannkynið allt er um sex milljarðar einstaklinga. Af þeim eru kristnir menn u.þ.b. þriðj- ungur og tilheyra fjölda kirkju- deilda, ólíkum um margt. Nokkr- ar eru þar meiri að vöxtum en aðrar, langstærst er rómversk- kaþólska kirkjan, með um 1.000 milljónir. Og fjöldi kirkju- og trú- félaga innan hverrar deildar um sig er legíó, að því er lesa má í ritverkinu „World Christian En- cyclopedia“ alls um 34.000 tals- ins; á Íslandi þó „ekki nema“ um tuttugu. Af þessu má ljóst vera, að hópana greinir á í einhverjum atriðum, stundum veigamiklum. Það sem ber á milli er samt bara örlítið, miðað við allt hið sameig- inlega. Greinarnar eru margar, en stofninn einn. En það er gömul saga og ný, að ágreiningsefni þarf ekki að vera mikið til að úlfúð hljótist af. Þess vegna er mönnum hollt að brjóta múra og ræða saman, til að fyrirbyggja óþarfa misskiln- ing. Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika hefur það m.a. að leið- arljósi. Í fyrra komu hugmyndir að bænum, ritningartextum og guðsþjónustuformi frá trúsystk- inum okkar í Argentínu, en að þessu sinni frá Mið-Austur- löndum, úr borginni Aleppo í Norður-Sýrlandi, þar sem með- limir úr ellefu kristnum trú- félögum – sýrlensku rétttrún- aðarkirkjunni, rómversk- kaþólsku kirkjunni og níu mót- mælendakirkjum – undirbjuggu efnið. Yfirskrift ársins 2004 er fengin úr 14. kafla Jóhannesar- guðspjalls, 27. versi: „Minn frið gef ég yður“. Á sama tíma og þetta allt er að gerast, er unnið að boðun fagn- aðarerindisins víða um jörð. Árið 1900 eru kristniboðar sagðir hafa verið um 62.000, en nú á tímum um 400.000. Mest er fjölgun ný- kristinna í Austur-Asíu, Suður- Ameríku og Afríku. En þetta er ekki hættulaust, því ofsóknir á hendur kristnum eru við lýði í mörgum löndum, t.d. Alsír, Egyptalandi, Íran, Jemen, Kína, Laos, Líbýu, Marokkó, Norður- Kóreu, Sádi-Arabíu, Sómalíu, Súdan og Víetnam. Þetta er samt ekkert nýtt, því 70 milljónir kristinna hafa dáið fyrir trú sína þær 20 aldir, sem liðnar eru frá krossfestingu meistarans á Golg- ata. Af þeim er talið að um 160.000 einstaklingar hafi liðið píslarvættisdauða árið 2000. Það ár heyrðu um 120 milljónir Jesú frá Nasaret getið í fyrsta skipti á ævinni. Í viku hverri eru 3.500 ný guðshús opnuð og daglega bæt- ast 174 þúsund sálir í kirkju heimsins. Ég gef sr. Maríu Ágústs- dóttur, formanni Samstarfs- nefndar kristinna trúfélaga á Ís- landi, lokaorðið, en í Morgunblaðinu á dögunum sagði hún m.a. þetta: Tilgangurinn með alþjóðlegu sam- kirkjulegu bænavikunni, eins og sam- kirkjulegu starfi almennt, er að færa kristið fólk nær hvað öðru, stuðla að hinni andlegu einingu kristninnar. Svo vitnað sé í 2. Vatikanþingið er bænin sál samkirkjuhreyfingarinnar, og aldr- ei er nærvera Guðs jafn áþreifanleg eins og þegar kristin systkin koma saman til bæna. Okkur hefur verið fal- ið það mikilvæga verkefni að birta kærleika Guðs inn í mannlegt sam- félag og það gerum við best með því að sýna samstöðu og kærleika, bæði innbyrðis og útífrá. Bænarefnin hverju sinni gefa síðan til kynna á hvað þarf að leggja áherslu og sjaldan hefur ver- ið meiri þörf á að biðja heiminum frið- ar en nú. Ein rödd sigurdur.aegisson@kirkjan.is Aldrei er nærvera Guðs jafn áþreif- anleg eins og þeg- ar trúsystkin, ólík um svo margt, koma saman til að biðja. Sigurður Ægisson gerir hér að umtalsefni al- þjóðlega, sam- kirkjulega bænaviku, er hófst sunnudaginn 18. janúar og lýkur í dag. KIRKJUSTARF Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/690 7361 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222 Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591 Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Jakop Antonsson 486 8983 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663 Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475 Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni www.hofdi.is Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali. Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Bæjarhrauni 22 Sími 565 8000 Opið hús Laugarásvegur 73 - sérhæð Smáralind - 1. hæð Opið 14-17 lau. og sun. Sími 565 8000 Til sýnis í dag falleg og snyrtileg 120 fm efri sérhæð ásamt bílskúr í þessu virðulega húsi í Laugarásnum. Stórar stofur með gæsilegu útsýni yfir borgina. Verð 20,9 millj. Þú gengur beint inn og skoðar þessa eign í dag á milli kl. 14 og 16. Hörður verður á staðnum og sýnir eignina. Tómasar- messa í Breið- holtskirkju ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar Tómasarmessur efnir til fyrstu messunnar á þessu ári í Breiðholts- kirkju í Mjódd í kvöld, sunnudaginn 25. janúar, kl. 20. Tómasarmessan hefur vakið mikla ánægju þeirra sem þátt hafa tekið og virðist hafa unnið sér fastan sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík messa hefur verið haldin í Breið- holtskirkju í Mjódd síðasta sunnu- dag í mánuði, frá hausti til vors, síð- ustu sex árin. Framkvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholts- kirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guðfræðinema og hópur presta og djákna. Heiti Tómasarmessunnar er dreg- ið af postulanum Tómasi, sem ekki vildi trúa upprisu drottins nema hann fengi sjálfur að sjá hann upp- risinn og þreifa á sárum hans. Mark- mið messunnar er öðru fremur að leitast við að gera nútímamanninum auðveldara að skynja návist drott- ins, einkum í máltíðinni sem hann stofnaði og í bænaþjónustu og sál- gæslu, en mikil áhersla er lögð á fyr- irbænaþjónustu. Þá einkennist messan af fjöl- breytilegum söng og tónlist og sömuleiðis af virkri þátttöku leik- manna. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbúningi og framkvæmd Tóm- asarmessunnar, bæði leikmenn, djáknar og prestar. Það er von okkar, sem að mess- unni stöndum, að þær góðu mót- tökur sem Tómasarmessan hefur hlotið hingað til gefi tóninn um framhaldið og að hún megi áfram verða mörgum til blessunar og starfi íslensku kirkjunnar til efl- ingar. Morgunblaðið/Jim Smart Háteigskirkja. eldri borgarar Fé- lagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æsku- lýðsfélag Árbæjarsafnaðar, með fundi í safnaðarheimilinu. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Bessastaðasókn. Sunnudagaskól- inn er í sal Álftanesskóla kl. 11. um- sjón með sunnudagaskólanum hafa Kristjana og Ásgeir Páll. Allir vel- komnir. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel- komnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í dag er samkoma kl. 14. Sig- rún Einarsdóttir talar. Lofgjörð og fyr- irbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára og 7–12 ára börn á samkomu- tíma. Kaffi og samfélag eftir sam- komu. Allir velkomnir. Nánari upplýs- ingar á www.kefas.is Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Vörður Leví Traustason. Mikil lofgjörð í umsjón Gospelkórs Fíladelfíu. Fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir. Bæna- stundir alla virka morgna kl. 6.00. filadelfia@gospel.is www.gospel.is Safnaðarstarf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.