Morgunblaðið - 25.01.2004, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 65
DAGBÓK
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöld 6. febrúar og laugardag
7. febrúar í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Snyrtistofan Jóna, Hamraborg 10,
Kópavogi, óskar Díönu Hörpu velkomna
aftur til starfa eftir barneignafrí.
Gamlir og nýir viðskiptavinir velkomnir.
sími 554 4414, www.snyrtistofan.is
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú aukaflug til Kanarí um páskana, enda allar páska-
ferðir þangað uppseldar. Beint flug þann 2. apríl á þennan vinsælasta
áfangastað Íslendinga þar sem þú nýtur frábærs veðurfars og getur valið
um úrvals gistivalkosti í sólinni. Að sjálfsögðu
nýtur þú þjónustu frábærra farastjóra okkar á
Kanarí allan
tímann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 58.095
M.v. hjón með 2 börn, Beach Flor,
netbókun. 2. apríl, 11 nætur.
Verð kr. 69.690
M.v. 2 í húsi, Beach Flor, netbókun.
2. apríl, 11 nætur.
· 30. mars - uppselt
· 2. apríl - aukaflug
· 6. apríl - uppselt
Aukaferð til
Kanarí
um páskana
2.–13. apríl
frá kr. 58.095
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert metrnaðarfull/ur og
góðum gáfum gædd/ur og
gætir því átt erfitt með að
velja þér braut í lífinu. Það
verða miklar breytingar í lífi
þínu á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Mundu að það geta orðið mikl-
ar og góðar breytingar í
vinnunni hjá þér á þessu ári.
Settu markið hátt og þá muntu
ná miklum árangri.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta ætti að verða þér gott ár.
Það er hugsanlegt að þú verðir
ástfangin/n á næstu mánuðum
og samvistir við börn ættu
einnig að verða sérstaklega
gefandi. Njóttu lífsins.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Árið ætti að verða þér hag-
stætt í fjölskyldu- og einkalíf-
inu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert sérstaklega jákvæð/ur
og það er langt síðan þú hefur
verið jafnbjartsýn/n og þú ert
nú. Samskipti þín við systkini
þín eru sérlega uppörvandi og
gefandi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að geta aflað meiri
tekna á þessu ári en á því síð-
asta. Þú munt sennilega taka
að þér aukastarf eða fá launa-
hækkun.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Lífið leikur við þig og því áttu
auðvelt með að vera bjartsýn/n
og jákvæð/ur. Hinn heppni
Júpiter er í merkinu þínu og
því hafa hlutirnir sannarlega
breyst til batnaðar síðustu
fjóra mánuðina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sólin og neptúnus eru í merk-
inu þínu og það gerir þig sér-
staklega félagslynda/n. Þú
ættir því að þiggja öll heimboð
sem þér berast. Á sama tíma
er sköpunargáfa þín sterk og
því þarftu einnig að gefa þér
tíma til að hlúa að henni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vinir þínir og fjölskylda sýna
þér óvenjumikinn stuðning á
þessu ári. Hikaðu ekki við að
notfæra þér það. Þú ert ekki
að nota fólk þótt þú leyfir því
að hjálpa þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Júpiter er í merkinu þínu og
því ætti þetta að verða þér
hagstætt ár. Afstaða stjarn-
anna gerir að verkum að já-
kvæð áhrif Júpiters hafa hvað
mest áhrif á starfsframa þinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú munt fá mörg tækifæri til
að ferðast og mennta þig á
þessu ári. Reyndu að gera sem
mest úr þeim tækifærum sem
þú færð.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir notið góðs af auði
annarra á þessu ári. Maki þinn
mun hugsanlega fá arf eða
kauphækkun.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nánasta samband þitt hefur
batnað svo mikið að und-
anförnu að það er lyginni lík-
ast. Mundu að til að hlutirnir
gangi þarft þú að leggja jafn-
mikið af mörkum og maki
þinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
AÐ NÝJU
Aftur skal haldið til auðna.
Upp eftir nauðblásnum hlíðum,
svarta og þreytandi sanda
saman við félagar ríðum.
Allur er andinn í fangið.
Öskuryk þyrlast úr götum,
leitar að andfærum, augum,
eyrum og smugum á fötum.
Reiðhross með rykugar nasir
rymja og hósta og frýsa.
Þjáir þau hungur og þorsti.
Þau ættu ferðum að lýsa.
Sigurður Jónsson frá Brún.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
SYSTRABRÚÐKAUP. Hinn 26. júlí sl. var systrabrúðkaup í
Flateyjarkirkju á Breiðafirði. Gísli H. Kolbeins gaf brúð-
hjónin saman, þau Helgu Maríu Jóhannesdóttur og Guð-
mund Kristján Snorrason, búsett í Grundarfirði, og Hildi-
gunni Jóhannesdóttur og Alfreð Viktor Þórólfsson, búsett
í Stykkishólmi.
Í spili gærdagsins sáum við
slemmu sem vannst þótt
vörnin ætti ÁK í sama lit.
Hér er annað dæmi af sömu
gerð, sem er 50 ára gamalt
og birtist fyrst í tímaritinu
The Bridge World:
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ÁKG3
♥1094
♦74
♣ÁKDG
Vestur Austur
♠106 ♠D8542
♥632 ♥85
♦962 ♦ÁK5
♣109853 ♣762
Suður
♠97
♥ÁKDG7
♦DG1083
♣4
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf 1 spaði 2 hjörtu
Pass 4 grönd Pass 5 tíglar
Pass 6 hjörtu Allir pass
Stökk norðurs í fjögur
grönd var venjuleg ásasp-
urning, enda „fimm ása“
spurning ekki til á þessum
tíma. Austur vonaðist eftir
tígli út, en hann hafði meld-
að spaðann og því kom ekki
á óvart þegar vestur lagði af
stað með spaðatíu.
Sagnhafi sá aðeins einn
möguleika til vinnings.
Hann tók með spaðaás og
spilaði strax litlum spaða úr
borði. Þetta er djörf áætlun,
en gekk upp þegar austur
lét lítinn spaða í þeirri von
og trú að útspil makkers
hefði verið frá 109x en ekki
10x. Meira þurfti ekki til –
fjórir tíglar heima fóru nið-
ur í lauf blinds og spaða-
kóng.
Norður þakkaði makker
sínum ástsamlega fyrir
snilldina, en austur þaggaði
niður í ástarhjalinu með því
að benda á örugga vinnings-
leið. Og hún er þannig:
Sagnhafi tekur ÁK í hjarta,
en spilar svo laufi fjórum
sinnum og hendir þremur
tíglum heima. Hann kemst
heim á trompunum í blind-
um sem hann geymdi og
klárar þau öll. Í þriggja
spila endastöðu á blindur
KG3 í spaða, en heima er
sagnhafi með spaðahund og
DG í tígli. Til að valda spað-
ann hefur austur neyðist til
að henda öðru háspilinu í
tígli. Austri er síðan spilað
inn á tígul og síðustu slag-
irnir fást á KG í spaða.
Sama stef og í þætti gær-
dagsins.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4.
d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rc3 g6
7. Rd2 Ra6 8. e4 Bg7 9. Be2
O-O 10. O-O Rc7 11.
He1 Rfe8 12. Rc4 f5
13. exf5 Bxf5 14. Be3
b5 15. Ra5 b4 16. Rc6
Dd7 17. Ra4 Rf6 18.
Bc4 Hae8 19. a3 Be4
20. Rxa7 Df5 21.
axb4 Rg4 22. Dd2
Staðan kom upp í
C-flokki Corus
skákhátíðarinnar en
lokadagur hennar fer
fram í dag, 25. jan-
úar. Ernst Sipke
(2474) hafði svart
gegn Tea Lanchava-
Bosboom (2322).
22... Bxg2! 23. Bxc5 svartur
stæði einnig til vinnings eft-
ir 23. Kxg2 Df3+ 24. Kg1
Be5. 23... Rxh2! 24. Ha3
Rf3+ 25. Hxf3 Bxf3 26.
Bxd6 Dh3 og hvítur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Samþykki
afmælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
MEÐ MORGUNKAFFINU
Geturðu ekki gert eitthvað annað? Bókaskápurinn
er allur í óreiðu!