Morgunblaðið - 25.01.2004, Síða 70
70 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TÓNLISTARMENN sem starfa við
söngleikinn Vesalingarnir (Les Mis-
erables), sem sýndur er í West End í
Lundúnum, hafa hótað að fara í
verkfall. Ástæðan er sú að stjórn-
endur þessa vinsæla söngleiks hafa
í hyggju að
skipta þeim út
fyrir tölvu. Í apr-
íl flytur sýningin
úr Palace-leik-
húsinu yfir í
Queens-leik-
húsið, en þar er
hljómsveitar-
gryfjan heldur
minni. Hljóm-
sveitinni, sem er
tólf manna, gæti því hugsanlega
verið bolað í burtu.
Það er Sir Cameron Mackintosh
sem er heilinn á bak við sýninguna
og hefur hann mætt harðri and-
stöðu frá stéttarfélagi hljómlistar-
manna. Ef allt fer í hnút yrði þetta
fyrsta verkfallið í sögu West End.
Talsmenn hljómsveitarinnar
segja að það myndi draga verulega
úr heildarupplifun söngleiksins ef
hana vantaði.
Á síðasta ári fóru tónlistarmenn
sem vinna á Broadway í New York í
verkfall. Sextán sýningar féllu nið-
ur og var tapið af því hálfur millj-
arður íslenskra króna.
Bil beggja
Friðrik Karlsson tónlistarmaður
er búsettur í Bretlandi og starfaði
um hríð í West End sem slíkur eða í
sex ár. Morgunblaðið innti hann
álits á málinu.
„Menn eru hræddir við það að ef
Mackintosh keyrir þetta í gegn
muni aðrir fylgja,“ segir Friðrik.
„Mackintosh skýlir sér á bak við
það að nýja leikhúsið rúmi ekki
hljómsveit en peningasparnaður er
það sem menn eru með að leið-
arljósi, það er klárt mál. En þetta er
þróunin, tölvur eru að leysa mann-
fólkið af að einhverju leyti og ég
held að það sé lítið hægt að sporna
við því. Verkfallið yrði bara tíma-
bundið, það er ekki hægt að banna
fólki að nota tölvur.“
Friðrik segir að þetta sé ekkert
nýtt, hlutir sem þessir hafi verið
lengi yfirvofandi. Í síðasta verkinu
sem hann hafi spilað í hafi þetta
komið til tals en það hafi verið
stoppað af, vegna hræðslu við stétt-
arfélagið
„Ef tónlistarfólkið fer í verkfall
getur það hreinlega gengið frá
heilu sýningunum. Ef þú getur ekki
sýnt í nokkra daga þá er voðinn
vís.“
Friðrik segir í raun ótrúlegt að
stéttarfélagið hafi náð að halda
tölvuþróuninni í skefjum svona
lengi.
„Ég held að það sem muni gerast
er að tölvur verði notaðar sam-
hliða. Fyrir sum verk henta tölv-
urnar kannski en fyrir önnur er
betra að hafa lifandi tónlist. Hvoru-
tveggja á eftir að verða í gangi, það
er ekki hægt að vinna á móti svona
þróun.“
Friðrik hafnar rökum „öfga-
manna“ um að tilkoma tölvanna
eigi eftir að eyðileggja söngleikja-
upplifunina.
„Þetta fer fyrst og fremst eftir
sjálfri tónlistinni. Þetta er ekki eins
svart og hvítt og fólk er að segja.
ABBA-söngleiki og slíkt er hægt að
gera ágætlega með tölvum á meðan
„klassískari“ söngleikir kalla
kannski frekar á lifandi hljóðfæra-
leik.“
Friðrik segir hræðslu þeirra sem
starfa á West End mjög skiljanlega.
Enda hafi West End átt erfitt upp-
dráttar að undanförnu.
„Ferðamannastraumur hefur
minnkað og ákveðin stykki hafa
verið að falla. Þetta spilar inn í og
þá fara menn að leita að sparnaðar-
leiðum. En þar fyrir utan tel ég ill-
mögulegt að sporna við þessari
tækniþróun.“
Af Friðriki er það annars að
frétta að hann hefur mikið verið að
spila í bresku Stjörnuleitarkeppn-
inni. Einnig er að hann að vinna
með sigurvegaranum í frönsku
Stjörnuleitarkeppninni. Þá gengur
fyrirtæki Friðriks, Feel Good Mus-
ic, vel og er hann um þessar stundir
í viðræðum við heilsubúðakeðjuna
Holland and Barret um umboðsölu
á hljómdiskum.
Tölvur leysa fólk af í West End
„Óhjákvæmileg
þróun,“ segir
Friðrik Karlsson
Vesalingarnir hafa hingað til verið sýndir í Palace-leikhúsinu.
Friðrik Karlsson
Sýnd kl. 4. B.i. 12.
Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 4 og 8.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Svakalegasti
spennutryllir
ársins
frá leikstjóra
Face/Off og
Mission
Impossible 2.
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
HJ MBL
VG. DV ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany Murphy (8 Mile og Just
Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún stendur uppi
peningalaus.
Með hinni frábæru Dakotu Fanning.
Sýnd kl. 2.
Íslenskt tal.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
kl. 2, 6 og 10.
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Yfir 80.000 gestir
VG. DV
Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.15.
FRUMSÝNING