Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ 575 1230 5.900fl. N‡skr.10.2002, 5400cc vél. 5 dyra, sjsk. Hvítur, ekinn 22.fl. LINCOLN NAVIGATOR í notuðum bíl frá okkur Hafðu það notalegt Opi› mán-fös 10-18 Laugard. 12-16 STÓR gámaflutningabíll fór út af skammt frá Kambanesskriðum í gærmorgun. Atvikið átti sér stað skammt austan við skriðurnar og er jafnvel talið að bílstjóri flutningabílsins hafi sofnað undir stýri. Hann fór út af veginum og áfram meðfram hon- um um 50 metrum neðar og hélst til allrar mildi á hjólunum uns bílstjór- inn náði að stöðva ferðina í mýr- lendi. Bílstjórinn slapp ótrúlega vel að sögn nærstaddra, var þó nokkuð vankaður og fluttur til Reykjavíkur til aðhlynningar. Ferðinni hafði verið heitið á Djúpavog að sækja vörur og bíllinn því með tóman vörugám á tengivagninum. Segja þeir sem til þekkja að tómur gám- urinn og hvar flutningabíllinn fór út af hafi verið lán í óláni bílstjór- ans að þessu sinni. Morgunblaðið/Albert Kemp Gámaflutningabíll fór útaf skammt austan Kambanesskriða undir hádegið í gær og lenti nokkrum tugum metra neðan vegar í mýrarfláka. Vöruflutningabíll fór út- af í Kambanesskriðum Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið. UNGT par segist þurfa að greiða að fullu fyrir eyrnaaðgerð sem sjö ára sonur þeirra fór í 7. jan- úar sl., meðan á deilu sérfræðilækna og heilbrigð- isráðuneytis stóð. Þurfa þau að greiða rúmlega 21 þúsund krónur fyrir aðgerðina sem fólst í því að setja rör í eyrun á barninu. „Það kom alls ekki til greina að fresta aðgerðinni,“ segir móðir drengs- ins. „Hann var orðinn mjög kvalinn af eyrnaverkj- um og nærri heyrnarlaus vegna eyrnabólgu.“ Móðirin segir að sér hafi verið bent á að bíða með aðgerðina eða fá hana framkvæmda á sjúkrahúsi í stað lækningastofu. „Það kom heldur ekki til greina. Það er þriggja vikna biðlisti eftir þessari aðgerð á sjúkrahúsi sem hefði þýtt að sonur minn hefði ekki verið búinn að fara í aðgerðina áður en deilunni lauk hefðum við valið þann kost.“ Móðirin segir að ákveðið hafi verið fyrir jól að drengurinn þyrfti á aðgerð að halda en ekki var hægt að framkvæma hana fyrr en 7. janúar. „Það var hringt í okkur frá læknastofunni til að láta okkur vita að við þyrftum að greiða kostnaðinn sjálf. En hann var búinn að vera með mikinn verk yfir öll jólin svo það var aldrei inni í myndinni að fresta aðgerðinni.“ Foreldrarnir höfðu strax samband við Trygg- ingastofnun og fengu þau svör að trúlega yrði að- gerðin ekki endurgreidd. „En ég efaðist samt aldrei um að þetta yrði endurgreitt þar sem ég hef áður lent í þessu þegar strákurinn var yngri en þá var endurgreitt.“ Sögðu fréttirnar rangar Nú hafa foreldrarnir hins vegar fengið þau svör að aðgerðin verði ekki endurgreidd, en komið var til móts við hluta þeirra sjúklinga sem þurftu að greiða úr eigin vasa meðan deilan stóð yfir. „Mér skildist það á fréttum að þetta yrði allt endurgreitt [þegar deilan var leyst], en þeir hjá Trygginga- stofnun sögðu fréttirnar rangar.“ Móðirin er í háskólanámi og faðirinn er nýút- skrifaður. „Auðvitað er þetta dýrt fyrir okkur, þar sem maður er bara á námslánum. En mér finnst aðal- málið vera að ég er í þessu heilbrigðiskerfi, borga mína skatta og á eftir að gera í framtíðinni. Maður fer ekki bara inn og út úr þessu kerfi. Ég er alveg brjáluð út af þessu, mér finnst vera búið að brjóta á mínum rétti.“ Þurfa að greiða að fullu fyrir eyrnaaðgerð sjö ára sonar vegna læknadeilunnar Var orðinn nærri heyrnar- laus vegna eyrnabólgunnar STJÓRNARNEFND Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) ákvað á fundi sínum í gær að beina þeim til- mælum til stjórnar spítalans að leit- ast verði við að tryggja áfram rekst- ur endurhæfingardeildar fjölfatlaðra í Kópavogi. Lokun deildarinnar var eitt af nið- urskurðaráformum stjórnenda LSH og var fyrirhugaðri lokun harðlega mótmælt. Um er að ræða þjónustu við fjölfatlaða einstaklinga í Kópa- vogi, alls 56 einstaklinga sem eru mikið fatlaðir og munu þurfa slíka þjónustu allt sitt líf. Í yfirlýsingu frá stjórnarnefnd LSH kemur fram að endurhæfing sú sem veitt er mikið fötluðum og fjöl- fötluðum einstaklingum í Kópavogi sé afar sértæk, og hún gegni mik- ilvægu hlutverki í lífi þeirra einstak- linga sem nota þjónustuna þar. Segir þar einnig að þar hafi orðið til dýr- mæt reynsla og sérþekking í með- ferð þessa hóps sem brýnt sé að glat- ist ekki. Endurhæf- ingardeild verði ekki lokað Í KJÖLFAR læknadeilunnar breytti heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra reglugerðum og greiðslureglum á þann veg að í stað þess að fólk fái ekkert endurgreitt frá Tryggingastofnun ríkisins vegna samningsleysis við sérfræðilækna fær fólk afsláttarkort en samkvæmt lögum eiga sjúkratryggðir einstaklingar ekki rétt á afslátt- arskírteini ef sérfræðilæknir er ekki með samn- ing við TR. Samkvæmt upplýsingum Trygg- ingastofnunar segir í almannatryggingalögum að sérfræðilæknar verði að hafa samning við TR til að þær greiðslur sem sjúkratryggðir ein- staklingar greiða læknum séu taldar með þegar hámarksupphæð til afsláttarskírteinis er reikn- uð saman. Þá var reglum um endurgreiðslu á umtals- verðum útgjöldum sjúkratryggðra vegna lækn- ishjálpar, lyfja og þjálfunar einnig breytt í kjöl- far deilunnar og gagnast sú breyting fyrst og fremst tekjulágum fjölskyldum. Réttur til afsláttarskírteinis en ekki bein endurgreiðsla FERÐASKRIFSTOFAN Heims- ferðir hefur fest kaup á húsi Eim- skipafélagsins við Pósthússtræti, auk samliggjandi húss við Tryggva- götu, og hyggst opna fjögurra stjörnu hótel í húsunum um páskana árið 2005. Andri Már Ingólfsson, forstjóri Heimsferða, segir húsið henta mjög vel fyrir hótel. „Staðsetningin er náttúrulega sú besta. Húsið sjálft er þannig upp byggt að það nýtist mjög vel, við fáum hátt hlutfall af her- bergjum og það þarf ekki að gera miklar breytingar á hæðunum.“ Andri segir að áformað sé að hafa á bilinu 65–70 herbergi í hótelinu, og verði þar gistirými fyrir um 150–180 manns. Ekki er búið að ganga frá hönnun hótelsins og því ekki hægt að segja til um endanlegt gistirými. Heimsferðir hafa um nokkurt skeið verið að leita að húsnæði undir hótel í miðbæ Reykjavíkur, og segir Andri að slíkt hótel vanti þar. „Í öll- um miðborgum þar sem við þekkjum til í kringum okkur er alltaf mesta eftirspurnin eftir fallegum, reisuleg- um húsum alveg í miðbæ borganna. Það eru alltaf eftirsóttustu hótelin á hverjum stað.“ Andri segir að það verði staðsetn- ing og húsnæðið sem muni tryggja nýtingu hótelsins, og segist óhrædd- ur þrátt fyrir að gistirými í miðbæn- um muni aukast mikið á næstunni. Hann segir að Heimsferðir og Terra Nova, sem er í eigu Heimsferða, flytji árlega til landsins á annan tug þúsunda erlendra ferðamanna og því skapist ákveðið hagræði í því að reka hótel fyrir einhvern hluta þeirra. Söluverð húsanna er um 510 millj- ónir króna og verða húsin afhent nýj- um eigendum 1. júlí. Áætlaður sölu- hagnaður Eimskipafélagsins af sölunni er tæpar 90 milljónir króna. Heimsferðir kaupa hús Eimskips í miðbæ Reykjavíkur Ætla að opna fjög- urra stjörnu hótel Morgunblaðið/Jim Smart „OKKUR hjónunum brá í brún þeg- ar við lásum að við værum búin að kaupa rúm 38% í Flugleiðum,“ segir Hörður Guðmundsson, flugmaður og eigandi Flugfélagsins Ernir, en Hörður og eiginkona hans eru skráð- ir eigendur félagsins Oddaflug ehf., sem skráð hefur verið í firmaskrá allt frá árinu 1989. Eins og fram hefur komið hefur Eignarhaldsfélagið Oddaflug ehf., í eigu Fjárfestingarfélagsins Primus- ar ehf., keypt 38,48% hlut í Flugleið- um. Hörður er ekki sáttur við ef hægt er að skrá annað félag undir sama nafni með þessum hætti í op- inberum firmaskrám. „Oddaflug er félag sem við stofnuðum árið 1989 og átti þetta félag flugvél sem við vor- um með í rekstri bæði hér heima og erlendis í nokkur ár. Við gerum upp fyrir þetta félag á hverju ári,“ segir Hörður. Hann kveðst strax hafa leitað skýringa hjá Fyrirtækjaskrá hvern- ig á því stæði að annað félag með sama nafni hefði verið skráð en fékk þau svör að hið nýja félag væri ekki komið á skrá hjá Fyrirtækjaskrá. Hafði hann því næst samband við skrifstofu Ríkisskattstjóra, sem heldur utan um fyrirtækja- og hluta- félagaská, og fékk þau svör að komið hefði tillaga að nafninu Oddaflug en því hefði verið hafnað. Þegar hins vegar flett var upp í skránni hafi komið í ljós að búið var að skrá hið nýja félag sem Fjárfestingarfélagið Oddaflug ehf. Hann segir óvíst hvert framhald þessa máls verður en segist telja eðlilegt að það verði skoðað. Hefur átt Odda- flug frá 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.