Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 23
Borgarnes | Hallbera
Eiríksdóttir var kjör-
in íþróttamaður
Borgarbyggðar árið
2003. Hallbera er tví-
tug og byrjaði að æfa
frjálsar íþróttir 6 ára
gömul. Hún hefur
verið aldurs-
flokkameistari í
kringlukasti þrisvar
sinnum og sleggju-
kasti einu sinni.
Hallbera hefur
mjög oft verið í verð-
launasætum á aldurs-
flokkameistaramótum
í öðrum greinum
einnig s.s. kúluvarpi
og spjótkasti og hef-
ur sett nokkur aldursflokkameist-
aramótsmet í kringlukasti bæði
13–14 og 15–16 ára. Árið 2001 náði
hún lágmarki í kringlukasti fyrir
Ólympíudaga æskunnar sem
haldnir voru í Murcia á Spáni, og
einnig á Norðurlandamóti ung-
linga í Óðinsvéum sumarið 2003. Á
síðasta ári varð hún Íslandsmeist-
ari í kringlukasti kvenna.
Hallbera æfði og keppti í sundi
til 14–15 ára aldurs og þjálfaði hjá
sunddeild Skallagríms um tíma.
Hún hefur einnig æft og keppt í
körfubolta. Fyrir síðustu jól lauk
hún stúdentsprófi frá FVA og er
nú í íþróttalýðháskóla í Sönder-
borg í Danmörk (Idrætshøjskolen
i Sønderborg ) þar sem hún verð-
ur til vors. Hallbera
var því fjarri góðu
gamni þegar við-
urkenningin var veitt,
en Eríkur Ólafsson,
faðir hennar, veitti
bikar og blómum við-
töku fyrir hennar
hönd þegar athöfnin
fór fram í Íþrótta-
miðstöðinni í Borg-
arnesi. Hallbera var
einnig valin frjáls-
íþróttamaður ársins
annað árið í röð.
Tómstundanefnd
útnefnir
Deildir og félög í
Borgarbyggð tilnefna
sinn besta afreksmann og er það
tómstundanefndar Borgarbyggðar
að útnefna íþróttamann ársins úr
þeim tilnefningum sem berast.
Aðrir sem voru tilnefndir fyrir ár-
ið 2003 voru: Kristín Þórhalls-
dóttir, Umf. Stafholtstungum, fyr-
ir frjálsar íþróttir, Elísabet
Fjeldsted, Faxa, fyrir hestaíþrótt-
ir, Benedikt Líndal, Skugga, var
valinn hestamaður ársins, Guð-
mundur Daníelsson var valinn
golfari ársins, Helgi Sveinsson var
valinn íþróttamaður Kveldúlfs fyr-
ir boccia, Einar Þ. Eyjólfsson var
valinn knattspyrnumaður ársins,
körfuknattleiksmaður ársins var
valinn Pálmi Þór Sævarsson, og
bróðir Hallberu Trausti Eiríksson
var valinn badmintonmaður árs-
ins. Að auki var Jófríður Sigfús-
dóttir heiðruð sérstaklega fyrir
óeigingjarnt starf í þágu íþrótta-
deilda Skallagríms.
Úr Minningarsjóði Auðuns Hlíð-
kvists Kristmarssonar fékk Heiðar
Ernest Karlsson viðurkenningu og
íþróttastyrk en hann stundar
knattspyrnu og badminton. Heiðar
varð þrefaldur Íslandsmeistari í
þeirri grein árið 2002. Ennfremur
var í fyrsta skipti veittur styrkur
úr sjóðnum til tveggja deilda
Skallagríms, knattspyrnudeild-
arinnar og körfuknattleiksdeild-
arinnar, og verður styrknum varið
til námskeiða fyrir þjálfara.
Fjölhæfur íþróttamaður valinn
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Sterkur hópur: Þau sem voru tilnefnd og fulltrúar þeirra, Eiríkur Ólafsson, faðir Hallberu, er fremst fyrir miðju.
Hallbera Eiríksdóttir,
íþróttamaður Borg-
arbyggðar 2003.
Vestmannaeyjar | 31 ár var liðið frá upphafi Heima-
eyjargossins 23. janúar sl. og af því tilefni var af-
hjúpað skilti um hraunkælingu í gosinu. Er skiltið
staðsett uppi á nýja hrauni við hliðina á einni af dæl-
unum sem notaðar voru og gerð var upp fyrir
skömmu. Vakti þessi aðferð heimsathygli á sínum
tíma og segja kunnugir að með þessu hafi tekist að
bjarga innsiglingunni til Eyja.
Það var strax á fyrsta degi gossins sem prófess-
orarnir Trausti Einarsson og Þorbjörn Sigurgeirsson
og Leó Kristjánsson jarðeðlisfræðingur komu til Eyja
og var erindi þeirra meðal annars að kanna aðstæður
til að kæla hraunið niður, með því að dæla á það köld-
um sjó. Fyrsta tilraunin var gerð tveimur vikum eftir
upphaf gossins og voru slökkviliðsbílar bæjarins not-
aðir við það. 1. mars kom svo dæluskipið Sandey og
dældi skipið um 400 lítrum af sjó á sekúndu á hraun-
ið.
Menn sáu fljótt að margfalt afkastameiri dælubún-
að þyrfti, sem gæti dælt allt að þrefalt meira magni
en dæluskipið Sandey réð við. 26. mars kom svo
fyrsta sending af dælubúnaði flugleiðis frá Bandaríkj-
unum. Vel gekk að setja dælurnar upp og árangurinn
lét ekki á sér standa. Er talið að samtals hafi verið
dælt 6,2 milljónum tonna af vatni.
Hraunkæl-
ingar minnst
Baráttunnar minnst: Páll Zóphóníasson afhjúpaði skilt-
ið og virðir það fyrir sér í fyrsta sinn. Hann var bæjar-
tæknifræðingur í Eyjum árið 1973 og lék stórt hlutverk
í baráttunni við náttúruöflin í gosinu.
FRÁBÆRT VERÐ !
OSRAM flúrperur
Lumilux Daylight,
Lumilux Cool White
Lumilux Warm White
Lumilux Interna
Kaupbætir fy lg i r hver jum
100 stk af perum.
Jóhann Ólafsson & Co Johan Rönning Reykjavík/Akureyri Rekstrarvörur Reykjavík
Rafbúðin Álfask. Hfj. Rafbúð R.Ó. Keflavík Árvirkinn Selfoss
Faxi Vestmannaeyjar Rafás Höfn S.G. Raftv. Egilsstaðir
Víkurraf Húsavík Ljósgjafinn Akureyri Tengill Sauðárkrókur
Straumur Ísafjörður Glitnir Borgarnes Rafþj.Sigurdórs Akranes
Það birtir til með OSRAM