Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VISA Ísland og ÍSÍ kynntu í gær
listasamkeppnina Ólympíuleikar
ímyndunaraflsins í Snælandsskóla í
Kópavogi en sigurvegari keppn-
innar vinnur ferð fyrir sig og for-
eldri/forráðamann á Ólympíuleika
í Aþenu í ágúst í sumar.
Keppnin nær til sautján landa en
þátttökurétt hafa börn á aldrinum
9 til 13 ára. Krökkunum er boðið
að teikna eða mála hugmyndir sín-
ar um hvernig Ólympíuleikarnir
geta stuðlað að bættri framtíð.
Nálgast má frekari upplýsingar
um keppnina á vefsetri hennar:
www.visa.com/visakids
Tuttugu verk valin á sýningu
Úr innsendum verkum verða
tuttugu verk valin til sýningar í
Grasagarðinum. Þessi tuttugu verk
verða síðan metin af dómnefnd
sem í sitja m.a. söngkonan Birgitta
Haukdal og Þórey Edda Elísdóttir
stangarstökkvari. Verkin verða
metin á grundvelli listrænna eig-
inleika, frumleika og á því hvernig
hugmyndinni á bak við Ólympíu-
leikana er komið á framfæri. Höf-
undar verkanna tuttugu fá sér-
stakan heiðurspening og verðlaun
verða veitt fyrir listaverk sem
hafna í næstu sætum á eftir sig-
urvegaranum.
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ,
minnti á í ávarpi að Ólympíu-
leikarnir væru ekki bara keppni
heldur stæðu fyrir ákveðna hug-
sjón sem byggist á því að fólk geti
búi saman í sátt og samlyndi þar
sem ríki friður í heiminum. „Að því
vilja íþróttasamtökin sem standa
fyrir þessum Ólympíuleikum
stuðla, bæði hjá ungum sem eldra
fólki. Í tilefni af þessum Ólympíu-
leikum og í tilefni af ári menning-
arinnar, menntunarinnar og
íþróttanna hefur Visa Inter-
national ákveðið að stofna til ann-
arra Ólympíuleika sem þeir kalla
Ólympíuleika ímyndunaraflsins
sem felast í því að hver og einn sem
hefur áhuga getur lagt sitt af
mörkum með ákveðnum hætti,“
sagði Ellert.
Leifur Steinn Elísson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VISA, sagði til-
ganginn með þessu framtaki vera
að kynna Ólympíuhugsjónina fyrir
íslenskum börnum og stuðla þann-
ig að því að efla áhuga þeirra á
íþróttum og heilbrigðu líferni.
Leifur minnti á að Visa hefði verið
alþjóðlegur stuðningsaðili Ólymp-
íuleikanna síðustu 18 árin og hefði
árið 2002 skuldbundið sig til þess
að styðja þá og Ólympíumót fatl-
aðra allt til ársins 2012.
„Við viljum leggja okkar af
mörkum til þess að tryggja við-
gang leikanna inn í framtíðina,“
sagði Leifur Steinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Leifur Steinn Elísson, aðstoðarframkvæmdastjóri Visa, Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, og Broddi Kristjánsson
íþróttakennari ásamt hópi nemenda í Snælandsskóla þar sem listasamkeppnin var kynnt.
Keppt um þátttöku í Ólympíu-
leikum ímyndunaraflsins
NOKKUR stærstu samtök í at-
vinnulífinu mótmæla harðlega fyrir-
huguðu frumvarpi að nýjum heildar-
lögum um vátryggingasamninga
sem liggur fyrir Alþingi. Lögunum
er ætlað er að koma í stað núgildandi
laga um vátryggingasamninga. Í
umsögn samtakanna um frumvarpið
segir að efnislega feli frumvarpið í
sér grundvallarbreytingar á gildandi
löggjöf um vátryggingasamninga en
það standist ekki grundvallarkröfur
og ekki verði séð hvaða þörf knýi á
um þessar breytingar.
Mikill kostnaðarauki
Það eru Samtök atvinnulífsins,
Samtök iðnaðarins, LÍÚ, Samtök
fjármálafyrirtækja, Samtök verslun-
ar og þjónustu og Samtök fisk-
vinnslustöðva sem hafa sent frá sér
sameiginlega álitsgerð um frum-
varpið. Þar er m.a. gagnrýnt að í því
sé ekki gerð nein tilraun til þess að
meta kostnaðaráhrif breytinganna á
atvinnulífið. Færa megi að því rök að
frumvarpið feli í sér mikinn kostnað-
arauka og engin tilraun sé gerð til
þess að vega hann saman við ætlað
hagræði. Kanna þurfi löggjöf í sam-
keppnislöndum og þróun innan
EES-svæðisins og gæta þess að ís-
lensk löggjöf sé í samræmi við hags-
muni atvinnulífsins í því samhengi.
Þennan mælikvarða standist frum-
varpið ekki heldur enda hafi við
frumvarpssmíðina verið stuðst nær
eingöngu við norsk lög um vátrygg-
ingasamninga, þótt vitað sé að sú
löggjöf sé verulega frábrugðin lög-
gjöf annarra norrænna ríkja og lög-
gjöf innan EES-svæðisins.
Sameiginleg álitsgerð
samtaka í atvinnulífinu
Mótmæla frum-
varpi um vátrygg-
ingasamninga
TYRKNESK yfirvöld hafa enn ekki
greitt þær skaðabætur sem Mann-
réttindadómstóllinn í Strassborg
dæmdi þau til að greiða Sophiu
Hansen vegna meðferðar á máli
hennar fyrir tyrkneskum dómstól-
um, alls 75 þúsund evrur eða tæp-
lega 6,5 milljónir íslenskra króna.
Dómurinn féll þann 23. september
og höfðu tyrknesk yfirvöld frest til
að greiða bæturnar í síðasta lagi
þann 24. desember síðastliðinn.
Sigurður Pétur Harðarson, stuðn-
ingsmaður Sophiu, segir að tyrk-
nesk yfirvöld hafi ekki staðið við
þetta og að lögmaður Sophiu hafi
þrýst verulega á um að bæturnar
yrðu greiddar, en án árangurs. Að-
spurður hvort leitað verði til utan-
ríkisráðuneytisins til að fá skaða-
bæturnar greiddar segir Sigurður
Pétur að fyrst verði reynt til þrautar
að þrýsta á Tyrki um að greiða bæt-
urnar.
Heildarkostnaður í forræðisbar-
áttu Sophiu nemur nú um 140 millj-
ónum króna og eru heildarskuldir
um 20 milljónir. Í fréttatilkynningu
sem samtökin „Börnin heim“ hafa
sent frá sér kemur í ljós að mestar
séu skuldirnar í KB banka, óskað
hafi verið eftir viðræðum við bank-
ann um skuldirnar, en þær séu ekki
hafnar enn.
Tyrknesk yfirvöld
hafa ekki enn greitt
Sophiu skaðabætur
FRUMVARP um siglingavernd,
sem lagt verður fram nú í upphafi
þings, gerir þær kröfur að hafnir,
þar sem tekið er á móti farþegaskip-
um í millilandasiglingum og flutn-
ingaskipum yfir 500 brúttótonn,
grípi til ráðstafana til að koma í veg
fyrir hryðjuverk og ógnanir. Miðað
við kostnaðartölur frá Reykjavíkur-
höfn má búast við að árlegur kostn-
aður vegna þessa verði 150–200
milljónir kr. á að teknu tilliti til
stofnkostnaðar.
Hafnaryfirvöld þurfa að láta vinna
áhættumat á viðkomandi hafnarað-
stöðu og útbú fyrir hana verndar-
áætlum. Að fengnu áliti embætti rík-
islögreglustjóra fær höfnin leyfi
Siglingastofnunar. Samtals hafa á
milli 30 og 40 hafnir tilkynnt um sigl-
ingavernd.
Frumvarpið byggist á viðauka við
samþykkt Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar um öryggi mannslífa
á hafinu (SOLAS). Ísland er skuld-
bundið til að gera þessar ráðstafanir
og eiga reglurnar að taka gildi 1. júlí
nk. á alþjóðavísu. Samgönguráð-
herra hefur lagt frumvarpið fram í
ríkisstjórn og verður það í framhald-
inu lagt fyrir stjórnarþingflokkana
til afgreiðslu áður en það fer til með-
ferðar í þinginu.
Nokkur kostnaður fylgir þessum
alþjóðaskuldbindingum að mati ráð-
herra og fellur hann á útgerðir,
hafnir, farmflytjendur, ferðamenn
og ríkissjóð. Hann segir erfitt að
gera sér grein fyrir honum öllum á
þessu stigi þar sem ekkert áhættu-
mat eða verndaráætlun hefur verið
samþykkt. Því er mikil vinna eftir
við að útfæra verkferla, verkaskipt-
ingu, ráðast í ráðstafanir og leggja
mat á búnað sem hafnir þurfa að
kaupa.
Akureyrarhöfn gerir ráð fyrir 10–
20 milljón kr. stofnkostnaði og 8–15
milljón kr. árlegum rekstrarkostn-
aði. Hafnarfjarðarhöfn gerir gróft
ráð fyrir 25–45 milljón kr. stofn-
kostnað og 20–30 milljón kr. árlegan
rekstrarkostnað. Kostnaðurinn er
lægri þar sem umferðin er lítil.
Mæta þarf nýjum kröfum um aukið
öryggi í Reykjavíkurhöfn
Siglingavernd
kostar 200 millj-
ónir króna árlega
Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814
Stærsta töskuverslun landsins
Gæðatöskur á frábæru verði!
Verð kr.
7.100.-
Verð kr.
6.800.-
Verð kr.
4.700.-
Verð kr.
4.900.-
Verð kr.
2.300.-
Verð kr.
4.600.-
Verð kr.
9.200.-
Verð kr.
10.300.-