Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR 52 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ  JESPER Winther Sörensen, Dan- inn sem leikur með KR-ingum, verður frá æfingum og keppni næstu 4–6 vikurnar. Sörensen varð fyrir því óláni að tábrotna og þar með bætist enn einn leikmaðurinn á sjúkralista vesturbæjarliðsins en fyrir á honum eru Baldur Ólafsson sem hefur aðeins spilað sex leiki á tímabilinu, Arnar Kárason sem hef- ur spilað tvo leiki og Herbert Arn- arsson en hann hefur ekkert leikið með KR-ingum á leiktíðinni.  SÖRENSEN brotnaði á æfingu KR-liðsins í síðustu viku. Í fyrstu var talið að um tognun væri að ræða en við myndatöku í fyrrakvöld kom í ljós að um brot var að ræða.  MIDDLESBROUGH og Arsenal gátu ekki spilað síðari undanúrslita- leikinn í ensku deildabikarkeppn- inni á Riverside-vellinum í Middles- brough í gærkvöld þar sem völlurinn var frosinn og þótti hættu- legt að láta leikinn fara fram. Leiknum var því frestað og fer hann fram á þriðjudag.  DOUG Ellis, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa, segir að félagið hafi verið rek- ið með rúmlega 2 milljarða króna tapi á fyrstu sex mánuðum núver- andi rekstrarárs. Alls fóru rúmlega 500 milljónir í að greiða upp samn- inga við leikmenn sem liðið vildi ekki hafa áfram í sínum röðum og segir Ellis að bjartari tímar séu framundan hjá liðinu og fullyrðir að síðari hluti rekstrarársins verði mun betri.  GAVIN McCann, miðvallarleikur Aston Villa, bað í gær félaga sína og stuðningsmenn liðsins afsökunar á því að hafa nælt sér í rautt spjald í leik liðsins gegn Bolton í fyrrakvöld. McCann sló til Emersons Tome beint fyrir framan nef Steve Benn- etts dómara sem átti ekki annarra kosta völ en að senda Írann í bað. Þar sem þetta er annað rauða spjald McCanns á leiktíðinni á hann yfir höfði sér fjögurra leikja bann.  ÞÝSKA knattspyrnuliðið Bayer Leverkusen hefur keypt þýska ung- mennaliðsmanninn Jermain Jones, 22 ára, frá Frankfurt.  ARGENTÍNSKI landsliðsmaður- inn Juan Sebastian Veron, leikmað- ur Chelsea, verður frá æfingum og keppni í þrjá mánuði til viðbótar en leikmaðurinn gekkst undir aðgerð á baki í Buenos Aries í gær.  VERON hefur átt við þrálát bak- meiðsli að stríða og frá því í nóv- ember hefur hann ekkert leikið með Lundúnaliðinu og líklegt er að hann spili ekkert meira á yfirstandandi leiktíð. Þessi tíðindi verða örugg- lega til þess að forráðamenn Chelsea kaupi nýjan miðjumann og Scott Parker hjá Charlton er þar nefndur til sögunnar þó svo að Charlton hafi í tvígang neitað Chelsea um að fá leikmanninn. FÓLK ÁRNI Gautur Arason, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, verður líklega á varamannabekk Man- chester City í leiknum við Arsenal á Highbury í London á sunnudaginn þó svo hann hafi ekki getað spilað með varaliði City í fyrrakvöld. Árni varð fyrir því óláni að togna lítils- háttar í læri á æfingu í síðustu viku sem varð til þess að hann gat ekki staðið á milli stanganna í bik- arleiknum á móti Tottenham um síðustu helgi eins og til stóð. David James tekur stöðu Danans Kevins- Stuhr Ellegård í markinu gegn Ars- enal en James gat ekki spilað bik- arleikinn þar sem hann hefur spilað með West Ham í keppninni á þess- ari leiktíð. „Sjúkraþjálfarinn segir að Árni verði orðinn góður fyrir sunnudaginn. Hann hefði svo sem getað spilað varaliðsleikinn en ég vildi ekki taka neina áhættu. Hann getur æft með okkur en hann finn- ur til ef hann sparkar í boltann svo ef hann gerir það ekki næstu þrjá daga þá verður hann klár í slaginn fyrir helgina,“ segir Kevin Keegan, stjóri City, á heimasíðu félagsins. Kasper Schmeichel, sonur Pet- ers, sem gerði garðinn frægan á milli stanganna í marki Manchester United, Sporting Lissabon, Aston Villa og síðar Manchester City, lék í marki varaliðsins í fyrrakvöld sem hafði betur gegn Sunderland, 3:0. Árni Gautur á bekknum gegn Arsenal á Highbury Um 30 börn að 11 ára aldri æfa íhvoru félagi en ekki er gert ráð fyrir að þau taki þátt í keppni fyrr en þeim aldri er náð. Allir hefja ferilinn með hvít júdóbelti, síðan kemur gult, svo appelsínurautt og síðan fleiri litir en þjálfarar félaganna sögðu ekki laust við að krakkarnir bæru höfuðið aðeins hærra eftir því sem litir breytast. Við æfingar hjá yngstu kynslóðinni er mikið lagt upp úr leika sér, læra grunnatriði eins og að detta og velta sér en svo er eitt og eitt júdóbragð tekið fyrir. Gígja Guð- brandsdóttir, þjálfari hjá JR, sagði gott að fá krakkana unga á æfingar, því þeir væru fljótir að læra og ná tökum á ýmis konar æfingum, sem dæmi nefndi hún að í fyrsta tíma léti hún krakkana gera æfingu sem felst í að hlaupa afturábak. Þá félli hver um annan þveran en síðar færu þau létt með að gera æfinguna. Að sögn Gígju er starfið mjög krefjandi en líka mjög skemmtilegt, í því fælist einnig að þurrka tár, hnýta júdóbelti rétt og ekki síst að hlusta. Björn H. Hall- dórsson, þjálfari hjá Ármanni, tók í sama streng og sagði að foreldrar hefðu stundum á orði að ærslin væru minni heima fyrir því útrásin væri öll á júdóæfingum. Fleiri félög sinna barna- og ung- lingastarfi. Auk Júdófélags Reykja- víkur og Ármanns eru deildir í Grindavík, Vogum, Selfossi, Þykkva- bæ og hjá KA á Akureyri. Ármenn- ingar byrjuðu á síðasta ári að byggja upp júdódeild Gerplu og æfa nokkrir úr Kópavoginum með Ármenningum. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Yngsti efniviðurinn í Júdófélagi Reykjavíkur á æfingu. Í neðri röð frá vinstri Benja- mín Pálsson, Rán Ólafsdóttir, Maríanna Eva Sæmundsdóttir, Logi Haraldsson, Tara Mist Eiríksdóttir, Selma Antonsdóttir, Viktor Snær Jónsson, Aron Vikar Eiríksson, Kristján Hjartarson, Svavar Bæring Þorsteinsson, Kristján H. Gíslason, Haukur Bæring Þorsteinsson og Viðar Oddsson. Í efri röð Katalin Balázs, Dagur Freyr Bjarnason, Daði Arnarsson, Ingi Þór Kristjánsson, Matthías Már Valdimarsson, Sævar Þór Róbertsson, Sævar Örn Hilmarsson, Ágúst Ingi Kristjánsson, Skarphéð- inn Kristjánsson, Sigurður Sverrir Gunnarsson og Aron Brandsson. Elva Margrét Árnadóttir æfði með strákunum og gaf þeim ekkert eftir. Bræðurnir Haukur, 6 ára, og Svavar, 8 ára, stóðu saman í blíðu og stríðu. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi, eða systur. Systkinin Tara Mist, 7 ára, og Aron Vikar, 9 ára, Eiríksbörn æfa bæði með Júdófélagi Reykjavíkur. Þau litu til hvort með öðru, ef annað varð fyrir hnjaski var hitt fljótt á vettvang. Aron Brandsson sveiflaði sér af krafti í lokaæfingunni. Viktor Jónsson með appelsínurautt belti og Sævar Örn Hilm- arsson með gult tókust duglega á en það var stutt í grínið. JÚDÓ UNGLINGA Tekið til við að tuskast Nokkuð reyndi á þolinmæði krakka í Júdófélagi Reykjavíkur og Ár- manns þegar þeir gengu fylktu liði inn í æfingasali sína enda mikið lagt upp úr aga – fyrst varð að vera í fallegri röð, hneigja sig fyrir kennara og meistara íþróttarinnar en síðan var tekið til við að tusk- ast og gera skemmtilegar æfingar. Stefán Stefánsson skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.