Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 47 Sýningarsvæði á UT2004 Menntamálaráðuneytið stendur fyrir UT2004 - ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi 5. og 6. mars nk. Ráðstefnan verður haldin í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ undir yfirskrift- inni UT - vinnur með þér. Menntamálaráðuneytið býður fyrirtækjum að kynna framleiðslu sína og þjónustu á UT2004. Ráðstefnuna sækir meginþorri skólastjórnenda og aðilar, sem hafa áhrif á ákvarðanir um kaup á námsefni, tækjum og hugbúnaði til skóla. Búist er við allt að 1.500 þátttakendum á ráð- stefnuna. Nánari upplýsingar um sýningarsvæði og kostnað veitir Gyða Dröfn Tryggvadóttir í síma 599 1440 og netfangi gyda@mennt.is . Menntamálaráðuneytið. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við: Kjör formanns Neytendasamtakanna Í samræmi við lög Neytendasamtakanna aug- lýsir stjórn Neytendasamtakanna eftir fram- boðum til formanns Neytendasamtakanna vegna næsta kjörtímabils (2004-2006) og sem hefst frá og með þingi Neytendasamtakanna í haust. Framboðum ásamt lista yfir með- mælendur skal skilað á skrifstofur Neytenda- samtakanna í Reykjavík og á Akureyri, eigi síðar en kl. 16:00 þann 29. febrúar 2004. Einnig er hægt að senda tilkynningu um fram- boð ásamt lista yfir meðmælendur í pósti og má dagsetning póststimpils ekki fara fram yfir 29. febrúar 2004. Samkvæmt lögum Neytendasamtakanna fer kjör formanns fram það ár sem reglulegt þing samtakanna er haldið. Í 11. grein laga Neyt- endasamtakanna segir svo um kjör formanns: „Formaður er kjörinn sérstaklega í almennri kosningu allra félaga samtakanna en aðrir stjórnarmenn á þingi samtakanna“. Í 12. grein laganna segir: „Framboð til formanns skulu berast stjórn Neytendasamtakanna eigi síðar en fyrir lok febrúar þess árs sem reglulegt þing er haldið. Framboði til formanns skulu fylgja meðmæli 25 skuldlausra félagsmanna hið fæsta en 50 skuldlausra félagsmanna hið flesta“. Reykjavík 29. janúar 2004. F.h. stjórnar Neytendasamtakanna, Jóhannes Gunnarsson formaður. TILKYNNINGAR I.O.O.F. 11  1841298½  9.I* Í kvöld kl. 20.00 Lofgjörðarsamkoma í umsjón Inger Dahl. Allir velkomnir. Landsst. 6004012919 X I.O.O.F. 5  1841298  9.I * Fimmtudagur 29. janúar Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Predikun Þröstur Freyr Sigfússon. Mikill söngur og vitnisburðir. Allir eru hjartanlega velkomnir. Föstudagur 30. janúar Opinn AA-fundur kl. 20:00. Þriðjudagur 3. febrúar UNGSAM í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 19:00. Uppbyggilegt starf fyrir ungt fólk í bata. www.samhjalp.is R A Ð A U G L Ý S I N G A R PÉTUR Pétursson þulur og Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor fjalla um Hvíta stríðið í Reykjavík sem háð var í nóvember 1921, í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 15 á sunnudag. Pétur hélt erindi um sama efni sl. sunnudag og hlýddu þá fjölmargir á. Þá munu Pétur og Hannes einnig ræða um stöðu ís- lenskunnar og hlutverk Háskólans við að standa vörð um íslenska tungu. Hvíta stríðið eða Drengsmálið voru átök sem vöktu þjóðarathygli þegar fjölmennt lögreglulið réðst inn til Ólafs Friðrikssonar, ritstjóra Al- þýðublaðsins, og hugðist taka fastan rússneskan pilt sem Ólafur hafði tekið í fóstur og haft með sér heim af Alþjóðaþingi kommúnista í Moskvu. Ræða Drengs- málið og stöðu íslenskunnar Kynning á skátastarfi. Skátafélag- ið Garðbúar eru að hefja vornám- skeið ylfinga og skáta í Smáíbúða-, Bústaða-, Fossvogs- og Háaleit- ishverfi, en kynningarfundur verður haldinn í dag, fimmtudaginn 29. jan- úar, kl. 17.30–18.30. Ylfingar eru stelpur og strákar á aldrinum 8, 9 og 10 ára. Strákarnir eru með fundi á fimmtudögum en stelpurnar á mánudögum, báðir fundirnir eru kl. 17.30. Viðfangsefni ylfinga eru draugafundir, fánar, póstaleikir, spil, hættur á heimilum, útilega, vin- ir, hjálp í viðlögum, hnútar og bönd, útieldun o.fl. Skátarnir eru líka að byrja starfið sitt og hittast þeir á þriðjudögum kl. 18–19. Skátarnir læra t.d. dulmál, skyndihjálp, klifur og sig og leysa þrautir í dagsferðum, útilegum, næt- urleikjum og skemmta sér á kvöld- vökum. Skátastarfið er fyrir krakka á aldrinum 11, 12 og 13 ára. Nánari upplýsingar fást í skáta- heimilinu að Hólmgarði 34 og eins er hægt að kynna sér skátastarfið á www.skati.is. Í DAG Málþing um rammaáætlun. Á morgun, föstudaginn 30. janúar, verður haldið málþing um 1. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatns- afls og jarðvarma. Málþingið verður haldið í náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands og hefst kl. 13.30. Markmiðið með málþinginu er að fá fram sjón- armið og ábendingar um nið- urstöður 1. áfanga rammaáætlunar, vinnubrögð og aðferðir, notagildi. Þá er tilgangurinn einnig að líta til þess sem helst ber að hafa hliðsjón af við skipulag 2. áfanga rammaáætlunar. Dagskrá er tvískipt. Fyrri hlutinn fjallar um þær aðferðir sem beitt var. Sveinbjörn Björnsson, formað- ur verkefnisstjórnar rammaáætl- unar, mun greina frá aðferðunum og þrír sérfræðingar munu rýna í að- ferðirnar og reyna að svara því hvort þær byggist á traustum grunni. Á síðari hluta málþingsins verður at- hyglinni beint að notagildi ramma- áætlunar og jafnframt verður fjallað um frekari vinnu við næstu áfanga verkefnisins. Iðnaðar- og umhverfisráðuneytið boða til þessa málþings. MBA-námið í Háskóla Íslands stendur fyrir opnum fyrirlestri á morgun, föstudaginn 30. janúar, í Lögbergi, stofu 101, kl. 17.15. Fyr- irlesarinn er Flemming Poulfelt pró- fessor í Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Yfirskrift fyr- irlestrarins er: Nýjar hliðar á stjórn- unarráðgjöf: „New Perspectives of Management Consulting“. Í erindi sínu mun prófessor Flemm- ing Poulfelt fara yfir þá þætti sem munu hafa afgerandi áhrif á það hvort stjórnunarráðgjafar standi undir þeim væntingum sem til þeirra eru gerðar nú á dögum. Flemming Poulfelt er prófessor við Viðskiptaháskólann í Kaupmanna- höfn. Hann er forstöðumaður LOK- rannsóknarsetursins um stjórnun og rekstur hugvits- og þekkingarfyr- irtækja. Á MORGUN Átjánda Rask-ráðstefna Íslenska málfræðifélagsins verður haldin í fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar laug- ardaginn 31. janúar kl. 10. Erindi halda: Guðrún Kvaran, Ásta Svav- arsdóttir, Kristján Árnason, Hanna Óladóttir, Finnur Friðriksson, Þór- hallur Eyþórsson, Jón Friðjónsson, Tonya Kim Dewey, Jón Axel Harð- arson og Margrét Jónsdóttir. Á NÆSTUNNI FUNDUR hjúkrunarfræðinga sem starfa á öldrunarsviði Landspítala háskólasjúkrahúss Landakoti sem haldinn var 20. janúar sl. hefur sent frá eftirfarandi ályktun: „Hjúkrunarfræðingar á öldrunar- sviði Landspítala háskólasjúkrahúss Landakoti lýsa furðu sinni yfir þeirri ráðstöfun að fyrirhugað sé að skerða þá sérhæfðu þjónustu við aldraða sjúklinga sem er fyrir hendi á Landakoti og draga saman starf- semi. Hjúkrunarfræðingar þekkja vel að þjónusta við aldraða og aðstand- endur þeirra er hvergi nærri full- nægjandi eins og málum er háttað í dag og mikil þörf fyrir að hin sér- hæfða starfsemi fagfólks á Landa- koti sé óskert. Þessi samdráttur mun snerta alla íbúa höfuðborgarsvæðis- ins þar sem einnig þrengir að þjón- ustu við sama sjúklingahóp á öðrum sviðum LSH. Því munu fyrirhuguð sparnaðar- viðbrögð á Landakoti skerða veru- lega möguleika aldraðra einstak- linga sem þurfa á hjúkrun og endurhæfingu að halda og getur hver sem vill séð sig í þeirri stöðu. Hjúkrunarþjónusta í heimahúsum er þegar í mörgum tilvikum ekki full- nægjandi og starfsfólk með mikið vinnuálag en engar ráðagerðir sjá- anlegar að bæta þar úr. Við mótmælum harðlega fyrirætl- unum um lokanir á aldraða sjúklinga og förum fram á að hætt sé við þær. Við skorum einnig á stjórnvöld, fag- stéttir og almenning að móta skilj- anlega og framkvæmanlega stefnu í heilbrigðisþjónustu landsmanna þar sem öldruðum er tryggt öryggi í stað lokana.“ Öldruðum verði tryggt öryggi í stað lokana EFTIRFARANDI ályktun var sam- þykkt á fundi í Fagdeild bráðahjúkr- unarfræðinga sem haldinn var 26. janúar sl.: „Fagdeild bráðahjúkrunarfræð- inga fordæmir fyrirhugaðar breyt- ingar á starfsemi Landspítala há- skólasjúkrahúss, LSH. Uppsagnir starfsfólks, fækkun sjúkrarúma og breytingar á starf- semi hefur gríðarleg áhrif á alla þjónustu við sjúklinga og teflir ör- yggi þeirra í tvísýnu. Fyrirhuguð helgarlokun á Bráða- móttöku við Hringbraut hefur í för með sér aukið álag á starfsemi Slysa- og bráðamóttöku í Fossvogi, sem er þó nóg fyrir um helgar. Þetta eykur bið eftir þjónustu og hætta á mistök- um eykst auk þess sem aðgengi sjúk- linga að sérhæfðri hjúkrunarþjón- ustu mun minnka. Nú þegar annar LSH varla þeim verkefnum sem samfélagið gerir kröfur til. Ef skerða á þjónustu enn frekar munu sjúklingar útskrifast enn veikari heim en nú er raunin og gera aukna kröfu um aðhlynningu í heimahúsi. Heimahjúkrunin er ekki í stakk búin til að mæta þeim kröfum þannig að áhrifin á heimili landsins verða mikil. Afleiðingar þessa er óhjákvæmileg fjölgun endurinn- lagna sem leiðir til aukins álags og kostnaðar á bráðaþjónustuna. Fagdeild bráðahjúkrunarfræð- inga hvetur stjórnvöld til að endur- meta fjárveitingar til LSH auk þess sem óskað er eftir stefnumótun stjórnvalda hvað varðar starfsemi og þjónustustig LSH.“ Segja ör- yggi sjúk- linga teflt í tvísýnu NÝLEGA afhenti Merkúr hf. Tré- smiðju GKS fullkominn yfirfræsara og var hann settur upp í húsakynn- um fyrirtækisins að Funahöfða. Þangað hefur Trésmiðja GKS flutt hluta af starfsemi sinni. Yfirfræsari er fullkomin tré- smíðavél sem getur unnir mörg ólík verk sem margar ólíkar vélar vinna venjulega. Yfirfræsarinn er frá þýska framleiðandanum Homag og er af gerðinni BAZ 222. Hann er yfir 10 metra langur með fullkomnum hugbúnaði sem sér um að stjórna flóknum vélbúnaði með nákvæmni. Vélin getur þar af leiðandi sagað út og kantlímt flókin form á styttri tíma en hingað til hefur þekkst. Vinnuborðinu er skipt upp í fimm vinnusvæði og er hægt að láta hann vinna á tveimur vinnustöðvum á sama tíma, segir í fréttatilkynningu. Þröstur Lýðsson, forstjóri Merkúr, og Arnar Aðalgeirsson, framkvæmda- stjóri Trésmiðju GKS, takast í hendur við afhendingu yfirfræsarans. Trésmiðja GKS fær nýjan yfirfræsara Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.