Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 29.01.2004, Blaðsíða 51
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 51 STJÖRNUSPÁ Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert víðsýn/n og umburð- arlynd/ur en stendur engu að síður fast á skoðunum þínum. Á þessu ári muntu ljúka ákveðnum verkefnum og skapa þannig rými fyrir eitthvað nýtt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Viðskipti ættu að ganga vel í dag. Hikaðu ekki við að deila hugmyndum þínum með yf- irmanni þínum en hlustaðu á sama tíma eftir hugmyndum hans. Naut (20. apríl - 20. maí)  Naut sem hyggjast leggja stund á lögfræði eða lækn- isfræði eru á réttri leið. Hvers kyns nám mun færa þér ánægju, visku og betri framtíð. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Leitaðu leiða til að nýta þér auð annarra án þess þó að ganga á þeirra hlut. Þú munt á einhvern hátt njóta góðs af öðrum í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú býrð yfir krafti jákvæðrar hugsunar. Þér líður eins og sigurvegara og jákvæðni þín gerir það að verkum að þú átt auðvelt með að hrífa aðra með þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það sem þú gerir í vinnunni í dag getur aukið tekjur þínar og bætt framtíð þína með ein- hverjum hætti. Haltu fast í trú þína á það að þú sért á réttri leið. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú færð spennandi upplýs- ingar sem tengjast listaheim- inum, vinnu með börnum eða fyrirhuguðum ferðalögum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Öll samskipti fjölskyldunnar ættu að ganga vel í dag. Dag- urinn hentar einnig vel til að taka ákvarðanir varðandi fast- eignaviðskipti og viðskipti fjöl- skyldunnar. Treystu innsæi þínu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þetta er góður dagur til að ganga frá samningum og hvers konar viðskiptum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þetta ætti að verða þér hag- stæður dagur varðandi fjár- málin. Hikaðu ekki við að koma hugmyndum þínum á framfæri. Gerðu það sem þú getur til að bæta starfsaðstöðu þína og auka tekjur þínar. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Dagurinn hentar vel til að bæta þekkingu þína með námi eða ferðalögum. Samskipti við fólk í fjarlægum löndum ættu að ganga sérstaklega vel. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þetta er góður dagur til að leita fjárstuðnings frá stórum stofnunum eða hinu opinbera. Það er alls ekki útilokað að þú fáir þá hjálp sem þú biður um. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Vinir þínir sýna þér og maka þínum mikinn stuðning þessa dagana. Það er engu líkara en að allir í kringum ykkur vilji gera ykkur greiða. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SIGLING INN EYJAFJÖRÐ Loks eftir langan dag lít eg þig, helga jörð. Seiddur um sólarlag sigli eg inn Eyjafjörð. Ennþá, á óskastund, opnaðist faðmur hans. Berast um sólgyllt sund söngvar og geisladans. Verja hinn vígða reit varðtröllin klettablá, máttug og mikilleit, Múlinn og Gjögratá. Hljóti um breiða byggð blessun og þakkargjörð allir, sem tröllatryggð taka við Eyjafjörð. – – – Davíð Stefánsson frá Fagraskógi LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 29. janúar, er sjötugur Ingi- berg Egilsson flugvirki. Hann verður ásamt eig- inkonu sinni, Hrönn Jó- hannsdóttur, í sólinni á Kanarí á afmælisdaginn. „ÉG á þó einn slag handa þér,“ segir makker þegar hann leggur upp blindan. „Það gæti verið verra.“ Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠82 ♥963 ♦Á752 ♣9643 Vestur Austur ♠93 ♠ÁDG764 ♥ÁK4 ♥G ♦G984 ♦1063 ♣KG75 ♣1082 Suður ♠K105 ♥D108752 ♦KD ♣ÁD Vestur Norður Austur Suður – – 2 spaðar* 3 hjörtu Pass Pass Pass * Veikir tveir. Vestur spilar út spaða- níu og austur er ekki lengi að finna bestu vörnina – hann tekur með spaðaás og skiptir yfir í hjartagosa. Vestur tekur ÁK og spilar þriðja trompinu. Þar með verður spaði ekki stung- inn, og tígulásinn – sem makker var svo stoltur af – er bundinn á lokuðum reikningi og næst ekki út nema með skriflegu sam- þykki beggja mótherja. Og sú undirskrift fæst ekki þvingunarlaust. Til að byrja með tekur sagnhafi öll hjörtun og byggir upp þessa stöðu: Norður ♠8 ♥– ♦Á752 ♣9 Vestur Austur ♠– ♠DG7 ♥– ♥– ♦G98 ♦1063 ♣KG7 ♣– Suður ♠K10 ♥– ♦KD ♣ÁD Nú er spaðakóng spilað. Ef vestur hendir laufi, tek- ur suður KD í tígli og spil- ar laufás og drottningu. Vestur lendir inni og þarf að gefa blindum síðasta slag á tígulás. Vestur verð- ur því að henda tígli og þar með hefur hann skrif- að undir. Næst er þvinga austur og það er gert með laufás. Eftir tígulafkast vesturs er austur nú einn um að valda tígulinn og verður því að henda spaðagosa. Þá tekur sagnhafi tíg- ulhjónin og sendir austur inn á spaðadrottningu. Og gleymir ekki að þakka mótherjunum fyrir góð viðskipti. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 60 ÁRA afmæli. Í dag, fimmtudaginn 29. janúar, erusextugir tvíburarnir Ingvi Ingiþórs Ingason, fram- kvæmdastjóri Rafha ehf., Suðurlandsbraut 16 , Reykjavík og Ágúst Ingiþórs Ingason, fyrrverandi tæknifræðingur hjá Electrolux í Noregi. Þeir bræður halda upp á afmælið í dag í Noregi. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Bb7 5. Rc3 d5 6. cxd5 Rxd5 7. Dc2 Rxc3 8. bxc3 c5 9. e4 Rc6 10. Be3 Be7 11. d5 exd5 12. Hd1 d4 13. cxd4 O-O 14. d5 Rd4 15. Db2 He8 16. Bxd4 cxd4 17. Bb5 Bxa3 18. Dxd4 Bc5 19. Dd3 Bb4+ 20. Kf1 Hf8 21. Rd4 Dc8 22. h4 Bc5 23. h5 Dg4 24. Rf3 Had8 25. Hh4 Dc8 26. Bc4 b5 27. Bxb5 Bb6 28. h6 g6 29. Db3 Dc5 30. Db2 f6 31. Hf4 Bc7 Staðan kom upp í A-flokki Corus skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Ivan Sokolov (2706) hafði hvítt gegn rússneska ,,heimsmeist- aranum“ Vladimir Kramnik (2777). 32. Hc1! Db6 33. Hxc7! Í kjölfar skiptamuns- fórnarinnar fær hvítur tvo öfluga frelsingja á miðborð- inu og getur svartur ekkert við það ráðið. 33...Dxc7 34. Hxf6 Hxf6 35. Dxf6 Hf8 36. Db2 Hc8 37. d6! Dc1+ svartur yrði mát eftir 37... Dxd6 38. Dg7# en eftir textaleikinn ræður hann ekki við frelsingja hvíts. 38. Dxc1 Hxc1+ 39. Ke2 Hc8 40. Rg5! a6 41. Ba4 og svartur gafst upp enda fátt til varnar. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík LYFJA og HSÍ undirrituðu með sér samstarfssamning daginn áður en landsliðið í handknattleik lagði af stað til Danmerkur. Samning- urinn felur í sér að Lyfja kaupir merkingu á keppnisbúning karla- landsliðsins í handbolta í eitt ár og er þar með einn af aðalstyrktarað- ilum liðsins. Samstarfið er tvíþætt, annarsvegar fjárhagslegur stuðn- ingur Lyfju við landsliðið og svo þjónusta við HSÍ á hjúkrunarvör- um, lyfjum og bætiefnum fyrir keppnisfólk. Auk þess býðst liðs- mönnum landsliðsins að koma í mælingar sem boðið er upp á hjá Lyfju meðan á samningstímanum stendur. Lyfja í samstarfi við íslenska karlalandsliðið í handbolta Ljósmynd/Nordfoto Við undirritun samningsins í Lyfju Smáratorgi, Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, og Þórarinn Þórhallsson, markaðs- og gæðastjóri Lyfju hf., innsigla samstarfið með handabandi. FRÉTTIR Laugavegi 20b, sími 552 2515 ÚTSALAN Á FULLU OG VERÐIN LÆGRI OG LÆGRI Innskotsborð og útskotsborð í úrvali ®Fitulausa pannan Smiðjuvegi 11, gul gata, Kóp. símar 568 2770 og 898 2865 • Opið 9-17 mán.-fös. Dönsk gæðavara - einstök ending  Glerkeramik húð  Steiking án feiti  Maturinn brennur ekki við  Þolir allt að 260° hita í ofni  Nikkelfrí húð sem flagnar ekki af Ný sending Pantanir óskast sóttar HARÐFISKUR OG HÁKARL Ýsa og steinbítur, hákarl í heilum beitum Hákarlsbitar í krukkum og 3 eða 10 kg plastfötum HARÐFISKUR OG HÁKARL HNÍFSDAL Símar 456 4531 og 862 9868
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.