Morgunblaðið - 29.01.2004, Side 18

Morgunblaðið - 29.01.2004, Side 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hlíðar | Ný viðbygging við Hlíða- skóla var opnuð formlega í fyrra- dag. Viðbyggingin er á milli stjórn- unarálmu og næsta húss þar fyrir austan, og myndar nýja miðju skól- ans, en einnig voru tvær álmur skól- ans lengdar til norðurs. Umfangs- miklar breytingar fóru einnig fram á eldra húsnæði skólans, í bróð- urparti þess voru niðurtekin loft endurnýjuð, vatnsúðakerfi var sett upp, brunavarnir endurbættar stór- lega, raflagnir og lampar endurnýj- uð, lagðar tölvulagnir, skólastofur og gangar máluð, smíðaðar nýjar innréttingar, skipt var um gólfefni og ofnakerfi lagfært. Samkvæmt samantektum hafa kostnaðaráætl- anir staðist með ágætum. Kostnaður við framkvæmdir nýbyggingar var um 400 milljónir og vegna end- urskipulagningar og bættra bruna- varna um 135 milljónir eða samtals 535 milljónir. Kostnaðaráætlanir viðbyggingar og endurskipulagn- ingar framreiknaðar til sama verð- lags eru einnig um 535 milljónir. Flatarmál nýju viðbygging- arinnar er 1.948 fermetrar. Í henni eru meðal annars fjórar almennar kennslustofur, smíðastofa, handa- vinnustofa, hússtjórnunarstofa, tón- mennta-stofa, fjölnotastofa, mynd- menntastofa, raungreinastofa, hópherbergi, aðstaða fyrir tal- þjálfun, aðstaða námsráðgjafa, mötuneyti nemenda, fjölnotasalur, sérdeild málörvunar, stjórnun- araðstaða, húsvarðarherbergi, lyfta og tæknirými. Við vesturhlið vest- asta hússins var steypt lítil viðbygg- ing til að stækka sal í kjallara og koma fyrir tröppum. Í rýminu er lengd viðvera og aðstaða fyrir heyrnarskerta. Fyrir rúmu ári fluttu nemendur Vesturhlíðarskóla í Hlíðaskóla og er nú starfrækt sérstök deild fyrir heyrnarskerta í skólanum. Nem- endur í Hlíðaskóla eru rétt rúmlega 600 og starfsmenn rúmlega 100. Skólinn loksins fullbyggður Við opnun nýju viðbygging- arinnar var margt um manninn og margir aðstandendur skólans mættu til að samfagna starfsfóli og nem- endum. Kristrún G. Guðmunds- dóttir, skólastjóri Hlíðaskóla, segir daginn hafa verið afar skemmti- legan og hátíðlegan. „Hér var fjöldi fólks og góð stemning. Flutt voru nokkur ávörp en einnig voru skemmtiatriði sem nemendur sáu um. Má þar nefna kórsöng, danssýn- ingu og heimsókn skólarottu Hlíða- skóla sem sagði sögu skólans frá upphafi. Rottan hefur búið í skól- anum alla tíð en ekki komið fram op- inberlega fyrr,“ segir Kristrún. Hlíðaskóli er nú fullbyggður og öll starfsemi hans nú undir sama þaki að því undanskildu að nemendur sækja sund í Sundhöll Reykjavíkur. Heilsdagsskólinn, sem var starf- ræktur í húsnæði í Vesturhlíð, flutti inn í Hlíðaskóla fyrir tveimur vikum. Kristrún segir það mikinn létti að byggingarframkvæmdum sé lokið. „Það hefur óhjákvæmilega truflandi áhrif á skólastarf þegar slíkar fram- kvæmdir eru í gangi,“ segir Krist- rún og bætir við að allir starfsmenn og nemendur séu fegnir að þetta tímabil sé á enda. „Við erum afar ánægð með útkomuna sem er glæsi- legt húsnæði sem býður upp á fjöl- breyttara skólastarf en áður og þar með getum við veitt nemendum og foreldrum þeirra betri þjónustu. Ég hlakka til að geta nú snúið mér í auknum mæli að áframhaldandi uppbyggingu innra skólastarfs eftir ágæta samvinnu við þá iðnaðarmenn sem hér hafa starfað að und- anförnu,“ segir Kristrún að lokum. Allt starf skólans undir eitt þak Ný álma Hlíðaskóla: Með tilkomu nýju álmunnar er nú öll starfsemi skólans komin undir eitt þak. Nú verður áhersla lögð á innra starf skólans. Morgunblaðið/Þorkell Gæddu sér á kræsingum: Um leið og krakkarnir fögnuðu því að hamarshögg og vélsagarhljóð heyrðu sögunni til gæddu þau sér á indælis kræsingum. Ný og rúmgóð viðbygging við Hlíðaskóla tilbúin eftir áralangar framkvæmdir Nauthólsvík | Arkitektastofan Arkitektur.is varð hlutskörpust í samkeppni um hönnun á nýrri að- stöðu fyrir siglingastarfsemi ÍTR í Nauthólsvík, en til stendur að bæta aðstöðu siglingastarfseminnar til muna og einnig að samræma útlit svæðisins í anda nýju ylstrandar- innar í Nauthólsvík og aðstöðunni við hana. Í greinargerð Arkitektur.is kem- ur fram að markmið höfunda með hönnun byggingarinnar og mótun landsins kringum hana hafi verið þríþætt: 1: Að hanna heildstætt umhverfi sem þjónar sem best þörfum og væntingum þeirra sem starfa á svæðinu. 2: Að hanna byggingu sem fellur að einstöku umhverfi Nauthóls- víkur og auðgar það. 3: Að hanna metnaðarfullt hús sem er eigendum sínum til sóma en gæta þess jafnframt að bygg- ingar- og viðhaldskostnaði sé stillt í hóf. Lágmarks truflun fyrir göngufólk Í tillögu Arkitektur.is myndar byggingin, sem er grafin inn í land- ið, umgjörð um starfsemina á sjáv- arkambinum, umlykur hana, held- ur utan um samfélag siglinga- fólksins og myndar tengsl milli lands og sjávar. Byggingin er graf- in inn í landið. Veggir hliðarbygg- inganna teygja sig frá henni í átt að sjónum og rísa hærra úr landinu er nær dregur sjónum. Á suðvesturhorni lóðarinnar af- markar húsið torg sem opnast móti sjónum. Torgið er aðalaðkomu- svæði byggingarinnar, andlit starf- seminnar, tengipunktur milli sjáv- arins og starfseminnar í landi. Inn á torgið koma gönguleiðir frá bíla- stæðunum og stígnum meðfram sjónum frá vestri til austurs. Hliðið að sjónum, sjósetningarrampurinn, leiðir beint inn á torgið. Aðkomu- leið fyrir aðföng er frá bílastæð- unum. Veröndin sunnan við húsið er annað skjólgott og sólríkt útirými á lóðinni. Hún er útivistarsvæði ÍTR, hálfopinbert svæði, skermuð frá gönguleiðinni fyrir neðan með hlöðnum steingarði og hæðarmis- mun. Gönguleiðin með sjónum liggur meðfram sjávarkambinum og trufl- ar því daglegt starf á svæðinu lít- ið.Gert er ráð fyrir nýrri upphækk- aðri fjöru austan við rampann, þar sem hægt verður að sjósetja segl- bretti og kajaka og lenda þeim án tillits til sjávarhæðar. Gert er ráð fyrir að tillagan verði unnin nánar á næstu mánuðum, verkið boðið út í maí 2004 og fram- kvæmdum verði lokið í apríl 2005. Tillaga komin á borðið um nýja aðstöðu siglingastarfsemi ÍTR Hagnýtt hús sem fellur að umhverfinu Glæsileg strandarsýn: Svona lítur hugmynd Arkitektur.is að nýrri Sigl- ingaaðstöðu ÍTR í Nauthólsvík út. Kópavogur | Nokkrir skátar stóðu fyrir útileik í Kópavogi á dögunum, en um var að ræða eitt af þeim verkefnum sem skátarnir þurfa að klára til að standast Gilwell þjálfun í Gil- wellskóla Bandalags íslenskra skáta. Útileikurinn var haldinn fyrir ylfinga úr skátafélaginu Kópum. Þema leiksins voru listir og gerðu börnin krít- arlistaverk á klettana umhverfis Kópavogskirkju og bjuggu til lista- verk úr sjálfum sér og hvert öðru. Þá grilluðu þau pulsur í fjörunni og heimsóttu Gerðarsafn í Kópavogi þar sem þau nutu leiðsagnar og virtu fyr- ir sér Carnegie Art Award 2004 sýn- inguna. Annað af verkefnum Gilwell þjálfunarinnar er að vekja athygli á skátastarfinu og verður það að vera gert í landsfjölmiðli, en það verkefni kláruðu skátarnir með röggsemi. Ylfingar í útileik Útsala - enn meiri verðlækkun Klapparstíg 44 - sími 562 3614 Útsala 50% afsláttur Skólavörðustígur 8 Sími: 552 4499 tsalan er hafin 50%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.