Morgunblaðið - 29.01.2004, Side 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 21
Keflavíkurflugvöllur | „Mér
finnst mjög gott hjá fyrirtækinu að
gera þetta. Það sýnir að hlustað er
á starfsfólkið,“ segir Atli Már
Ólafsson, starfsmaður í hreins-
unardeild Flugþjónustunnar á
Keflavíkurflugvelli (IGS). Fyr-
irtækið vinnur í samvinnu við Mið-
stöð símenntunar á Suðurnesjum
og fulltrúa starfsfólks að greiningu
á þörf fyrir fræðslu í þessum hópi
starfsfólks.
Tæplega fjörutíu manna hópur
starfsfólks IGS vinnur við að
hreinsa flugvélarnar. „Þessi hópur
hefur orðið svolítið útundan hjá
okkur við skipulagningu fræðslu-
starfs, við höfum lagt mesta
áherslu á þá sem eru í beinum sam-
skiptum við flugfarþega og aðra
viðskiptavini og vinna að sérhæfð-
um tækni- og öryggismálum. En nú
er röðin komin að hreinsunardeild-
inni og ég finn að starfsfólkið er
ánægt með það,“ segir Kjartan
Már Kjartansson, markaðs- og
starfsmannastjóri Flugþjónust-
unnar, sem er dótturfélag Flugleiða
og annast afgreiðslu á farþegum og
vörum á Keflavíkurflugvelli.
Byggja einstaklinga upp
Kjartan Már segir að tilgang-
urinn með fræðslustarfinu sé að
byggja einstaklingana upp og auka
verkkunnáttu þeirra. „Við ætlum að
fá ánægðara starfsfólk sem kann
betur til verka. Ef öll fyrirtæki
gerðu þetta myndi hæfni starfs-
fólks á vinnumarkaði hér á Suð-
urnesjum batna til muna,“ segir
Kjartan Már og bætir því við að
fræðslustarf af þessu tagi sem unn-
ið hefur verið að hjá IGS sé mik-
ilvægt á tímum vaxandi atvinnu-
leysis. Þeir sem hafi menntun og
kunnáttu af einhverju tagi eigi auð-
veldara með að fá störf.
Fimm fulltrúar starfsfólks vinna
með ráðgjöfum að þarfagreiningu
fyrir fræðslustarfið. Notað er kerfi
sem nefnist Markviss uppbygging
starfsmanna. Að sögn Guðjónínu
Sæmundsdóttur, forstöðumanns
Miðstöðvar símenntunar, og Fjólu
Maríu Lárusdóttur, Markviss-
ráðgjafa hjá Mími, vinna stjórn-
endur og starfsfólk saman að því að
greina hvað þurfi að gera til að efla
starfsmannahópinn, jafnt í nám-
skeiðahaldi og öðru. Með því séu
meiri líkur á að verkefnunum verði
fylgt eftir enda verði verkfærið eft-
ir í fyrirtækinu þegar hlutverki
ráðgjafanna sé lokið.
Erfið vinna
Starfsfólk sem rætt var við
kvaðst ánægt með þetta framtak
fyrirtækisins. „Við fáum tækifæri
til að taka þátt í þessu starfi og
fáum þannig meiri áhuga á
vinnunni. Það er ekki einhver
stjórnandi sem ákveður hvað skuli
gera heldur er unnið með okkur að
því að leysa málin,“ sagði Atli Már
Ólafsson. Guðrún Guðmundsdóttir
bætir því við að þetta verkefni sé
skemmtilegt og uppbyggilegt.
Auður Sigurðardóttir telur að
áherslan hljóti að verða á það að
auðvelda vinnuna og bæta starfs-
andann. Hjálpsemi og tillitssemi
yrðu lykilorðin.
Fram kom hjá starfsfólkinu að
starfið við að hreinsa flugvélarnar
væri erfitt og það væri unnið undir
mikilli tímapressu. Þetta væri
tarnavinna sem reyndi verulega á
fólkið. Auk þess væri ábyrgð þess
mikil því ef eitthvað færi úrskeiðis
hjá einni manneskju gæti flugvél
seinkað og fyrirtækið tapað hundr-
uðum þúsunda eða milljónum
króna.
Thelma Dögg Árnadóttir segist
hafa áhuga á að læra meira í ensku
og á tölvur. Það geti hjálpað henni
að komast í betra starf eða jafnvel í
skóla.
Kjartan Már segir að áhersla sé
lögð á starfsþróun innan fyrirtækja
Flugleiða. Fólk geti unnið sig upp
innan fyrirtækisins og farið á milli
fyrirtækja þess. Telur hann að
ýmsar dyr geti opnast fyrir áhuga-
sama starfsmenn hreinsunardeild-
arinnar að loknu fyrirhuguðu
fræðsluátaki.
Starfsfólk í hreinsunardeild Flugþjónustunnar tekur þátt í þarfagreiningu vegna fræðsluátaks
Hlustað er á
starfsmennina
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Greina þarfirnar: Starfsfólk hreinsunardeildar IGS sem undirbýr fræðsluátak við höfuðstöðvar fyrirtækisins
ásamt ráðgjöfum, f.v. Kjartan Már Kjartansson, Anna Garðarsdóttir, Atli Már Ólafsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Auður Sigurðardóttir, Thelma Dögg Árnadóttir, Guðjónína Sæmundsdóttir og Fjóla María Lárusdóttir.
Njarðvík | Æðarfugl sem
lent hefur í sjálfheldu í
pramma sem liggur við
festar í Njarðvíkurhöfn
sveltur til bana. Lögreglan
fjarlægði þaðan níu dauða
fugla í fyrrakvöld en þrír
voru lifandi.
Lögreglan telur að æð-
arfuglinn kafi undir
prammann og upp um
farmhólfin sem sum eru
opin. Virðist sem fuglarnir
hafi ekki ratað til baka og
ekkert rými sé til að hefja
sig til flugs. Á vef lögregl-
unnar kemur fram að af
ástandi fuglanna megi ráða
að fæðuleysi hafi valdið
dauða þeirra.
Lögreglan segir að
pramminn sé dauðagildra fyrir æðar-
fugl auk þess sem hann sé hættulegur
börnum og unglingum.
Pramminn er í eigu verktakafyrir-
tækis í Keflavík og var notaður til að
flytja grjót í hafnargarðinn í Keflavík.
Hefur hann síðan legið við festar í
Njarðvíkurhöfn. Pétur Jóhannsson
hafnarstjóri segist hafa látið eiganda
prammans vita af þessu vandamáli,
þegar það barst honum til eyrna í
fyrradag. Vonast hann til að hægt
verði að búa betur um hnútana um
borð. Best væri þó að losna við
prammann úr höfninni en ekki væri
víst að það yrði alveg á næstunni.
Æðarfugl sveltur
í sjálfheldu
Morgunblaðið/RAX
Stofna bæjarmálafélag | Að-
standendur Sandgerðislistans (Þ)
sem fékk einn mann kosinn í bæj-
arstjórn við síðustu kosningar hafa
ákveðið að stofna bæjarmálafélag.
Stofnfundurinn verður á Mamma
Mía í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30.
Á fundinum verður kynntur und-
irbúningur að stofnun félagsins og
kosin framkvæmdastjórn, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Allir áhugamenn um bæjarmál í
Sandgerði eru boðnir velkomnir,
sérstaklega stuðningsmenn Sand-
gerðislistans.
Breið bros og brjóstastækkanir
Í þættinum verður fjallað um lýtalækningar og fegrunaraðgerðir. Einar Karl Haraldsson ræðir við
læknana Ottó Guðjónsson og Ólaf Einarsson ásamt Dýrleifu Guðjónsdóttur frá samtökunum Breiðum
brosum og Katrínu Önnu Guðmundsdóttur, ráðskonu í staðalímyndarhópi Feministafélags Íslands.
Á Útvarpi Sögu, 99,4 í dag, fimmtudag, kl. 17:00 - 18.00
Þátturinn er endurtekinn á laugardögum kl. 13:00 á Útvarpi Sögu 99,4