Morgunblaðið - 29.01.2004, Síða 56

Morgunblaðið - 29.01.2004, Síða 56
KVIKMYNDIR 56 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vísindaskáldsagnahöfundurinn Philip K. Dick er með þeim virtustu og hafa nokkrar af sögum hans verið kvikmyndaðar með glæsilegum ár- angri. Síðast Minority Report af Stev- en Spielberg, þá eru Total Recall og Blade Runner báðar sígildar framtíðarhroll- vekjur. Launaávísun (Paycheck), er byggð á smásögu og Hollywood- iðnaðarpennar séð um að koma henni í stórmyndarbúning. Það tekst upp og ofan. Michael Jennings (Af- fleck) er verkfræðingur og tölvusnill- ingur sem gengst inn á að taka að sér dularfullt verkefni fyrir Rethrick (Aaron Echart), gamlan vin sinn og eiganda Alcom, öflugs hátæknifyrir- tækis. Hann á að skoða og stela tækninýjungum aðalkeppinautanna og samræma í nýjan og öflugri búnað en áður hefur þekkst. Starfið tekur 3 ár og samþykkir Jennings að fórna þeim fyrir risavaxna launaásvísun og að láta eyða minni þessara ára úr heilabúinu að starfi loknu. Árin líða og Jennings er aftur frjáls en eitthvað geigvænlegt hefur farið úrskeiðis. Hann kemst samstundis að því að í launaumslaginu eru 20, að því er virð- ast, einskisnýtar vísbendingar, og all- ir eru á eftir honum. Vinnuveitendur hans, Alríkislögreglan og hann man vitaskuld ekki glóru. Þá kemur til skjalanna líffræðingurinn Rachel (Uma Thurman), ástkona hans og samstarfsmaður á árunum gleymdu. Hún og upplýsingarnar í launaum- slaginu leiða þau í ægilegan sannleik- ann. Einhverjir muna sjálfsagt „æv- intýraleikina“, frá bernskuárum tölvuleikja. Þátttakendur fengu slatta af vísbendingum og hjálpartækjum til að krafla sig áfram uns náð var í höfn. Myndin hans John Woo er slíkur leik- ur, kvikmyndaður. Engin yfirþyrm- andi ógn og firring sem einkenndi söguna, heldur spennandi púsluspil þar sem hlutirnir 20 hjálpa okkar manni að ná á leiðarenda. Woo er með snjallari mönnum að skapa æsileg augnablik og magnaða yf- irborðsspennu og þar stendur Launa- ávísun fyllilega fyrir sínu. Leiktjöldin og munirnir eru fagmannlega gerð og tölvuvinnslan sem og allt yfirbragð þessa tveggja tíma framtíðartryllis. Helstu gallarnir eru einnig áber- andi og þá einkum gjörsamlega líflaus leikur Afflecks í aðalhlutverkinu. Hann er stór og stæðilegur og getur orðið úthaldsgóður þumbari, að hætti Schwarzeneggers, en honum er fyrir- munað að koma með minnstu útgeisl- un innan frá. Thurman tekst aftur á móti að kveikja líf í Rachel og Gia- matti bregst ekki að venju. Þá velkist áhorfandinn aldrei í minnsta vafa um hvernig sagan endar, Launaávísun er fyrirsjáanleg frá fyrstu töku. Kvikmyndaður tölvuleikur Paycheck (Launaávísun) Laugarásbíó, Smárabíó, Borgarbíó Akureyri. Leikstjórn: John Woo. Handrit: Dean Georgaris, byggð á smásögu eftir Philip K. Dick. Kvikmyndatökustjóri: Jeffrey L. Kimball. Tónlist: John Powell. Aðalleik- endur: Ben Affleck, Aaron Eckhart, Uma Thurman, Paul Giamatti, Colm Feore, Joe Morton og Michael C. Hall. 119 mínútur. Paramount Pictures. Bandaríkin 2003. Sæbjörn Valdimarsson Ben Affleck. ÞAÐ er eðlilegt að menn leiti víða fanga að efniviði í kvikmyndir, en stundum hefur maður á tilfinningunni að hrein örvænting ráði þar för. Draugabælið er a.m.k. önnur Holly- wood-myndin á skömmum tíma sem byggð er á rússíbana úr Disney- skemmtigörðunum, og í þetta skipti hefur illa tekist til við að fylla kjöt á beinin, eða teinana, ólíkt því sem segja má um hina rússíbana-inn- blásnu Sjóræningjar Karíbahafsins. Dæmi um þann skort á hugmyndaríki sem hefur hrjáð aðstandendur mynd- arinnar er notkun þeirra á umfjöll- unarefni sem er að verða einstaklega ofnotað og þreytt í bandarískum barna- og fjölskyldumyndum, en þar er togstreita starfsframa og fjöl- skyldulífs gerð að uppsprettu ein- hvers konar gamanframvindu. Þetta er einmitt hliðarfrásögnin sem hefur orðið fyrir valinu í Draugabælinu og þannig er hún rekin áfram á fyrirsjá- anleikanum einum saman sem er ekki ákjósanlegasta staðan sem drauga- mynd vill vera í. Hér lendir Evers-fjölskyldan í því ævintýri að heimsækja afskekkt ætt- aróðal á leið sinni í helgarfrí, en fjöl- skyldufaðirinn Jim Evers (Eddie Murphy), sem er fasteignasali, vonast til þess að geta landað feitum sölu- samningi þar. Afgangurinn af fjöl- skyldunni samanstendur af eiginkon- unni Söru (Marsha Thomason) sem einnig er fasteignasali, og tveimur börnum, og þjáist sonurinn af mikilli kóngulóarfælni. Fyrr en varir sér Jim eftir því að hafa ekki bara farið beint í frí með fjölskylduna sína, því húsið er uppfullt af draugum með sársauka- fulla fortíð og hefur óðalseigandinn fengið augastað á Söru sem væntan- legri eiginkonu sinni. Myndin er reyndar hreint ekki af- leit framan af, þegar grandalaus vísu- tölufjölskyldan er að villast inn í óðal- ið og kynnast aðstæðum. Þar kemur Terence Stamp sterkur inn sem hinn skjálfraddaði bryti Ramsley, en dauð- yflissvipurinn í augum leikarans er það óhugnanlegasta í allri myndinni, sem að öðru leyti er ekkert óhugn- anleg, enda byggð á rússíbana og ekki ætlað annað en að vera rússíbanareið í kvikmyndaformi. Eddie Murphy er hér í enn einu hlutverkinu þar sem hann getur einfaldlega sett á sjálf- stýringu, og reyndar verið betri en flestir í hans sporum, en það er alltaf hálfsorglegt að horfa upp á hann sóa gamanleikgáfu sinni svo ítrekað í miðjumoðs afþreyingarmyndir. Þeg- ar á líður fer tilraunin til að búa til ein- hverja dramatíska sögu (sem felur m.a. í sér nauðungarbrúðkaup) í kringum rússíbanareiðina algjörlega í vaskinn, og gamanmyndin leysist upp í fáránleika með létt brengluðum und- irtónum. Úr rússíbana í mynd The Haunted Mansion / Draugabælið Sambíóin og Háskólabíó Leikstjórn: Rob Minkoff. Handrit: David Berenbaum. Aðalhlutverk: Eddie Murphy, Terence Stamp, Nathaniel Park- er, Marsha Thomason, Jennifer Tilly. Lengd: 98 mín. Bandaríkin. Walt Disney Pictures, 2003. Heiða Jóhannsdóttir Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einleikari ::: Pekka Kuusisto Ludwig van Beethoven ::: Fiðlukonsert Dímitríj Sjostakovitsj ::: Sinfónía nr. 4 Sími 545 2500 I www.sinfonia.is M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN FIMMTUDAGINN 29. JANÚAR KL.19:30 Aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitarinnar FIÐLUKONSERT BEETHOVENS OG 4. SINFÓNÍA SJOSTAKOVITSJ Stóra svið Nýja svið og Litla svið CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse 5. sýn í kvöld kl 20 - blá kort -UPPSELT, Fö 30/1kl 20 -UPPSELT, Su 1/2 kl 20, -UPPSELT, Fö 6/2 kl 20, - UPPSELT, Lau 7/2 kl 20 - UPPSELT, Fö 13/2 kl 20, - UPPSELT Lau 14/2 kl 20 - UPPSELT Su 15/2 kl 20-UPPSELT, , Fö 20/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 21/2 kl 20 - UPPSELT Su 22/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 28/2 kl 20 - UPPSELT, Su 29/2 kl 20, - UPPSELT, Mi 3/3 kl 20 - AUKASÝNING, Fö 5/3 kl 20 - UPPSELT Lau 6/3 kl 20 - UPPSELT, Su 7/3 kl 20 - UPPSELT, Fö 19/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 20/3 kl 20 - UPPSELT, Fö 26/3 kl 20, - UPPSELT, Lau 27/3 kl 20 - UPPSELT, Fi 1/4 kl 20 - AUKASÝNING Fö 2/4 kl 20, - UPPSELT, Lau 3/4 kl 15 - Ath. br. sýningartíma Lau 3/4 kl 20 ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is Meira (en) leikhús! SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams Fö 30/1 kl 20, Su 1/2 kl 20, Fö 6/2 kl 20, Lau 7/2 kl 20, Fö 13/2 kl 20, Lau 14/2 kl 20 ERLING eftir Hellstenius/Ambjörnssen lau 31/1 kl 20, su 8/2 kl 20, su 15/2 kl 20. lau 21/2 kl 20 Aðeins þessar sýninga RAUÐU SKÓRNIR e. H.C. Andersen í samvinnu við RAUÐU SKÓNA Su 1/2 kl 16 Síðasta sýning IN TRANSIT e. THALAMUS í samvinnu við leikhópinn THALAMUS Frumsýning su 8/2 kl 20, Fi 12/2 kl 20 ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Lau 31/1 kl 20, Su 8/2 kl 20, Fi 12/2 kl 20, Lau 13/3 kl 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 31/1 kl 14, - UPPSELT, Su 1/2 kl 14, Lau 7/2 kl 14 - TÁKNMÁLSTÚLKUÐ SÝNING, Su 8/2 kl 14,- UPPSELT, Lau 14/2 kl 14, UPPSELT, Su 15/2 kl 14, Su 22/2 kl 14, Lau 28/2 kl 14, Su 7/3 kl 14 GLEÐISTUND FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU **************************************************************** VIÐ MINNUM KORTAGESTI Á VALSÝNINGAR Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst Sýningar hefjast kl. 20 Miðasala í síma 555-2222 Miðsala opin mið, fim, fös, lau, kl. 16 - 19 Fös. 30. jan. uppselt Lau. 31. jan. örfá sæti laus Fös. 6. feb. nokkur sæti Ath. leikhúsumræður eftir sýningu Lau. 7. feb. nokkur sæti „Hrein snilld í Hafnarfjarðarleikhúsinu“ Valur Gunnarsson DV 7. jan. „...töfrar Hafnarfjarðarleikhússins losna fyrir alvöru úr læðingi“ „stórviðburður“ Þorgeir Tryggvason Mbl. 9. jan. „Sýningin er skemmtileg, litrík, fjölbreytileg, full af glæsilegum og skínandi hugmyndum“ Páll Baldvin DV 10. jan Miðasala í síma 552 3000 Loftkastalinn Fimmtud. 29. janúar kl. 20.00 Sveinsstykki Arnars Jónssonar Nýr einleikur eftir Þorvald Þorsteinsson fös. 30. jan. kl. 20 - örfá sæti laus fös. 6. feb. kl. 20 - laus sæti Vegna fjölda áskorana Aukasýningar af GREASE! Í tilefni af því er VISA korthöfum boðinn 20% afsláttur á eftirfarandi sýningar: Mið. 4. feb. kl. 19.00 laus sæti Fim. 5. feb. kl. 19.00 laus sæti Mið. 11. feb. kl. 19.00 laus sæti Selma Björnsdóttir fer í hlutverk Krissu. Birgitta Haukdal heldur áfram sem Sandy loftkastalinn@simnet.is Lau. 31. jan. kl. 20 örfá sæti Lau. 7. feb. kl. 20 nokkur sæti Fös. 13. feb. kl. 20 laus sæti Lau. 21. feb. kl. 20 laus sæti „Frábært-drepfyndin-átakanlegt“ Opið virka daga kl. 13-18 Miðasala í síma 562 9700 www.idno.is Opið frá kl. 18 fim. - sunnudagskvöld. Edda Björgvinsdóttir tekur á móti gestum og losar um hömlur í hádeginu Fös. 30. janúar. k l . 1 1 . 4 5 . Fös. 06. febrúar. k l . 1 1 . 4 5 . Lokasýning 13. febrúar. k l . 1 1 . 4 5 . Tenórinn Lau. 31. jan. k l . 20:00 örfá sæti Sun. 08. feb. k l . 20:00 laus sæti Fim. 12. feb. k l . 20:00 laus sæti Sellófon Gríman 2003: „Besta leiksýningin“ að mati áhorfenda Fös. 30. jan. k l . 21:00 nokkur sæti Fös. 13. feb. k l . 21:00 nokkur sæti Lau.14. feb. k l . 19:00 nokkur sæti Lau. 21. feb. k l . 19:00 laus sæti WWW.sellofon.is og sellofon@mmedia.is Vegna fjölda áskoranna verða örfáar aukasýningar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.