Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 63
* * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * ** * * * ** * * * * * * * * ** * ** * Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000 Gwyneth Paltrow lJude Law Angelina Jolie Sýnd kl. 10.15. B.i. 12 ára. J U L I A N N E M O O R E SÁLFRÆÐITRYLLIR AF BESTU GERÐ SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! www.regnboginn.is Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON PIERCE BROSNAN SALMA HAYEK WOODY HARRELSON DON CHEADLE Ein besta spennu- og grínmynd ársins www.laugarasbio.is Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8 og 10.15. Sýnd kl. 5.50, 8.30 og 10.40. B.i. 14 ára. Frumsýning kl. 5.45, 8 og 10.15. Frábær gamanmynd með Billy Bob Thornton ... þú missir þig af hlári Sýnd kl. 8 og 10. Frumsýning Baunir sýnd kl. 6. Stjórnstöðin sýnd kl. 8. Í þessu máli og Alive in Limbo sýnd kl. 6. Kr. 500 Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. * * ** * ** * * * Shark Tale sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Líf og fjör á Saltkráku 2 sýnd kl. 4. Íslenskt tal. * * Sama Bridget. Glæný dagbók. Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON PIERCE BROSNAN SALMA HAYEK WOODY HARRELSON DON CHEADLE Ein besta spennu- og grínmynd ársins Sýnd kl. 8 og 10. 25.11.04 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 63 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Kr. 500 MARÍA Sólrún vakti fyrst athygli með stuttmyndum sínum Fall Fässler og svo Tvær stelpur og stríð sem vann til fjölmargra verðlaun hérlendis og á virtum erlendum kvikmyndahátíðum. Sem fyrr gerir hún þessa fyrstu kvik- mynd sína í fullri lengd í Þýskalandi þar sem hún býr og starfar. Umfjöllunarefnið er mjög áhuga- vert og í takt við tíðarandann, kannski ekki síst í Þýsklandi þar sem mikið er um innflytjendur, þótt það eigi auðvit- að við mun víðar. Jargo er ákveðinn og lífsglaður strákur sem flytur heim til Þýska- lands eftir að hafa verið alinn upp í Sádí-Arabíu. Við heimkomuna verður Kamil besti vinur hans, Tyrki alinn upp í Berlín, og á þann vinskap mun reyna. Jargo hafði lofað látnum föður sínum að verða karlmaður fyrir 16 ára afmælið sitt. Faðir hans, sem birtist honum af og til, segir að það þurfi fernt til: tóbak, alkóhól, stelpu og vin. Og það leggur Jargo af stað með. En í stað þess að vilja Emilíu, sæta og heil- brigða stelpu úr blokkinni, heillast hann af Noru, kærustu Kamils. Mér fannst myndin byrja mjög vel og lofa mjög góðu. Aðstaða Jargos er mjög áhugaverð, og þeirra vina að vera báðir mótaðir af austrænum gild- um hvor á sinn hátt. En því miður verður sagan of venjuleg þegar hún snýst um vináttu og ástarþríhyrning, án þess að nein átök myndist vegna þeirra sérstöku aðstæðna að vinirnir séu báðir á milli ólíkra menningar- heima. Það virðist ekki koma málinu neitt sérstaklega við, sem er synd. Það hefði gefið myndinni mun meiri dýpt og sérstöðu. Það er helst að vel valin tónlistin gefi tilfinninguna fyrir þessum blönduðu heimum. Það er þó greinilegt að María Sól- rún þekkir vel til menningarheims austurlenskra karlmanna, sem kem- ur fram í mörgum skemmtilegum og frumlegum smáatriðum í myndinni. Mér fannst t.d frábært atriðið þegar þeir Jargo og Kamil kynnast þegar aðstaða sem upp kemur hefur skír- skotun í reynsluheima þeirra beggja. María Sólrún hefur sýnt áður að hún er natin við að leikstýra krökk- um, og það á greinilega við um ung- linga líka. Leikarahópurinn er mjög sterkur og þau eru öll mjög heil- steyptar og sannfærandi persónur. Þótt það hefði verið skemmtilegra að sjá meira gert úr sérstökum að- stæðum vinanna, er Jargo á heildina litið áhugaverð, vönduð og trúverðug þroskasaga drengs. Að verða karlmaður KVIKMYNDIR Háskólabíó – Alþjóðleg kvik- myndahátíð í Reykjavík Leikstjórn og handrit: María Sólrún Sig- urðardóttir. Aðalhlutverk: Constantin von Jascheroff, Oktay Özdemir og Udo Kier. 90 mín. Þýskaland 2004. Jargo  Hildur Loftsdóttir LAG BOBS Dylans „Like A Rolling Stone“ er besta rokklag allra tíma samkvæmt úttekt bandaríska tónlistartímaritsins Rolling Stone. Tónlistartímaritið fékk einvalalið sérfræð- inga á sviði tónlistar; upptökustjóra, lagasmiði, hljóðfæraleikara, söngvara, framleiðendur og gagnrýnendur, til að taka þátt í vali á 500 bestu lögum allra tíma og er listinn birtur í nýjasta tölublaði tímaritsins, sem kemur út í dag. Lag Bob Dylans „Like a Rolling Stone“ er efst á lista tímaritsins. Miðað við listann þá hlýtur árið 1965 að teljast merkasta ár rokksins því næstbesta lagið að mati Rolling Stone er „(I Can’t Get No) Satisfaction“ með Rolling Ston- es. Þegar sambærilegur listi var tekinn saman árið 1989 voru sömu lög í efstu tveimur sætum, nema hvað að þá var „Satisfaction“ á toppnum. Athygli vekur augljós tengsl þessara tveggja topplaga við nafnið á umræddu tónlist- arriti en þau ku vera skondin tilviljun. Mikill meirihluti laganna sem komust á lista eru frá 7. áratug síðustu aldar en miklu færri þeirra eru frá því eftir 1990. Þeirra hæst er lag Nirvana „Smells Like Teen Spirit“ í 9. sæti. Nýjasta lagið er „Hey Yah!“ með OutKast sem náði 180. sæti. „Like A Rolling Stone“ er rúmlega sex mín- útna langt upphafslag plötunnar Highway 61 Revisited. Markaði lagið þáttaskil á ferli Dyl- ans því þá steig þessi þjóðlagatrúbador fram á sviðið sem fullsköpuð rafmögnuð rokkstjarna og oft er sagt að það hafi rofið hefðina um að popplög skuli vera þriggja mínútna löng. Tónlist | Rolling Stone velur bestu rokklög sögunnar Bob Dylan á hátindifrægðar sinnar. Like A Rolling Stone og Rolling Stones Like A Rolling Stone er allra rafmagn- aðasta lag sem gert hefur verið, að mati sérfræðinga Rolling Stone. Bestu lögin * * Að mati valnefndar Rolling Stone 1. Bob Dylan „Like A Rolling Stone“ 1965 2. Rolling Stones „(I Can’t Get No) Sat- isfaction“ 1965 3. John Lennon „Imagine“ 1971 4. Marvin Gaye „What’s Going On“ 1971 5. Aretha Franklin „Respect“ 1967 6. Beach Boys „Good Vibrations“ 1966 7. Chuck Berry „Johnny B. Goode“ 1958 8. Beatles „The Hey Jude“ 1968 9. Nirvana „Smells Like Teen Spirit“ 1991 10. Ray Charles „What’d I Say“ 1959 11. The Who „My Generation“ 1966 12. Sam Cooke „A Change Is Gonna Come“ 1965 13. Beatles „Yesterday“ 1965 14. Bob Dylan „Blowin’ in the Wind“ 1963 15. The Clash „London Calling“ 1980 16. Beatles „I Want to Hold Your Hand“ 1964 17. Jimi Hendrix „Purple Haze“ 1967 18. Chuck Berry „Maybellene“ 1955 19. Elvis Presley „Hound Dog“ 1956 20. Beatles „Let it Be“ 1970
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.