Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ SJÖ ár eru langur tími í tónlistar- sögunni og á síðustu árum hafa ótal stefnur brotist fram og horfið jafnharðan, óteljandi byltingar orðið í rokki og poppi, grúi tónlist- armanna og hljómsveita stigið fram, sigrað heiminn og hafnað svo á ruslahaug sögunnar. Á með- an rokkelfan belj- aði fram með stöku þurrkum og vorflóðum í sjö ár sátu þeir Porno- pop-bræður inni í hljóðveri að taka upp, að snurfusa og fínpússa, púsla saman hug- myndum og hendingum – það eru nefnilega sjö ár síðan þeir sendu síðast frá sér plötu. Fyrir sjö árum kom út platan Blue með Pornopop, tvöföld plata með annars vegar rafsoðinni ambi- ent-tónlist og hins vegar drunga- legu tilraunakenndu rafpoppi; frá- bær plata sem fékk fína dóma. Eftir það spurðist ekki mikið til sveitarinnar þó hún hafi spilað öðru hvoru, til að mynda á eft- irminnilegum tónleikum á Gaukn- um fyrir réttum sex árum. Þeir Pornopop-bræður létu svo í sér heyra á Airwaves um daginn og sendu um líkt leyti frá sér þá skífu sem hér er skrifað um. Víst hefur ýmislegt gerst utan hljóðvers þeirra Pornopop-bræðra, en það hefur líka talsvert gerst inni í því eins og heyra má á plöt- unni nýju, því þó enn sé treginn í aðalhlutverki er tónlistin gagn- særri, hljómavefurinn ekki eins þéttur. Fínlegar hugmyndir og gagnsæjar laglínur einkenna mörg lög plötunnar, hljóðfæraskipan einfaldari en forðum og rafeinda- hljóð notuð af smekkvísi til að fylla upp í lögin. Þessi plata Pornopop sýnir að þeir bræður eru enn að leita og hafa reyndar fundið býsna margt frá því Blue kom út – hún er til- raunakenndari og um leið for- vitnilegri, sífellt fleira kemur í ljós því oftar sem maður hlustar á hana. Í þeim lögum sem ganga ekki fyllilega upp, til að mynda „Little Kafka“, eru samt snilldar sprettir og reyndar má segja að öll lögin á henni séu fyrirtak og mörg hreinasta afbragð. Nefni „Sleep“ sem byrjar meinleysislega en á eftir að fara heilan hring áð- ur en við erum komin aftur í kyrrðina, margslungið lag. Þar næst kemur svo besta lag plöt- unnar að mínu mati, „It Doesn’t Mean a Thing“ með klifunar- kenndum texta sem segir svo býsna margt í einfaldleika sínum. Í því lagi og víðar nota þeir áhrifahljóð einkar skemmtilega. ... And The Slow Songs About The Dead Calm In Your Arms er einkar skemmtileg plata sem sýnir að þó Pornopop sé ekki beinlínis starfandi hljómsveit þá hefur hún síður en svo staðnað. Sjö árum síðar … TÓNLIST Íslensk plata Pornopop - ... And The Slow Songs About The Dead Calm In Your Arms  Plata með hljómsveitinni Pornopop sem skipuð er þeim Pétri Jóhanni og Ágústi Arnari Einarssonum. Þeir semja öll lög og flytja. Arnar Helgi Aðalsteinsson stýrði upptökum, hljóðblandaði og gerði frum- eintak. Arnar Helgi lék einnig á ótilgreind hljóðfæri á plötunni eða söng og það gerðu einnig Hallgrímur Jón Hall- grímsson, Vilhjálmur Pálsson, Þorkell Heiðarsson, Anna Hugadóttir og Anna Þorvaldsdóttir. Hljómsveitin gefur sjálf út. 41:44 mín. Árni Matthíasson LISTAFÉLAG Nemendafélags Verslunarskóla Íslands sýnir um þessar mundir franskan farsa eftir Marc Camoletti sem heitir Douglas, Douglas. Fjallar verkið um arkitekt sem er trúlofaður þremur flugfreyjum sem búa allar hjá honum. Þær vita samt ekki hver af annarri því þær eru alltaf á sitthvorri vaktinni. Einn daginn kemur mikið óveður og vaktaplanið hjá stúlkunum rask- ast. Þar af leiðandi fer allt í bál og brand hjá arkitektinum. Hann þarf því að bregðast skjótt við … Leikarar í sýningunni eru Sindri Tryggvason, Fannar Sveins- son, Ásdís Björk Guðmundsdóttir, Heiðrún Björk Gísladóttir, Ingunn Sigurpálsdóttir og Þórdís Reynisdóttir. Leikstjóri er Ís- gerður Elfa Gunnarsdóttir. Leikhópurinn í Douglas Douglas í fullum skrúða. Leiklist | Douglas Douglas í Versló Douglas Douglas er sýnt í kvöld kl. 20. Miðaverð 1500 kr. Trúlofaður þremur flugfreyjum Fréttir á SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.