Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 1
Fá›u hól fyrir framan sjónvarpið Hendir engu Ólöf Anna Gísladóttir flytur úr borg í sveit | Daglegt líf Kynslóðaskipti á toppnum Raggi Bjarna veltir Nylon af toppi Tónlistans | Menning Viggó orðlaus yfir framgöngu Ró- berts  Rooney baðst afsökunar  Jaliesky Garcia ræðir við Göppingen Íþróttir í dag NORSKA stjórnin hefur ákveðið að taka þátt í því að mynda fyrirhugað hraðlið Evr- ópusambandsins og leggja því til allt að 150 hermenn, að sögn norska varnarmálaráðu- neytisins í gær. „Þátttaka Norðmanna í þessu er eðlilegt fram- hald stuðnings okkar við stefnu Evrópusam- bandsins í varnar- og ör- yggismálum,“ sagði Kristin Krohn Devold, varnarmálaráðherra Noregs. Hún bætti við að þótt Norðmenn stæðu utan Evrópusam- bandsins hefðu þeir nú þegar tekið þátt í að- gerðum undir stjórn ESB í Makedóníu og Bosníu. Ákvörðun minnihlutastjórnar hægri- og miðflokkanna nýtur stuðnings meirihluta á norska þinginu. Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, ætlar að styðja ákvörðunina, en þó með fyrirvara um að hún fari ekki í bága við stjórnarskrána. Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðflokk- urinn eru andvígir ákvörðuninni og segja hana stangast á við stjórnarskrána. Evrópusambandið hyggst koma hraðlið- inu á fót ekki síðar en árið 2007. Gert er ráð fyrir því að norsku hermennirnir verði í norrænni sveit undir stjórn Svía. Norðmenn með í hrað- liði ESB Ósló. AFP. Kristin Krohn Devold SAFN Bills Clintons var opnað í gær í Little Rock í Arkansas þar sem hann var ríkisstjóri áður en hann var kjörinn forseti Bandaríkjanna. Á meðal við- staddra voru fjórir forsetar, leikarar, söngvarar, er- lendir ráðamenn og íþróttastjörnur. Clinton, Hillary eiginkona hans, Chelsea dóttir þeirra og George W. Bush Bandaríkjaforseti fylgjast hér með skemmtiatriði við opnunina. /34 Reuters Clinton-safnið opnað í Little Rock RÆKTUN ópíumvalmúa hefur auk- ist um 64% í Afganistan frá því í fyrra, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Er þar varað við því að Afganistan geti orðið að „eiturlyfjaríki“ og hvatt er til þess að hersveitir Bandaríkjanna og NATO grípi til aðgerða til að stemma stigu við ópíumframleiðsl- unni. Í skýrslunni segir að 87% af öllu því ópíumi, sem selt er í heiminum, komi nú frá Afganistan. Í fyrra var þetta hlutfall 76%. Skýrsluhöfundarnir segja að óp- íum- og heróínvinnsla sé nú „helsti vaxtarbroddurinn í afgönsku efna- hagslífi“. Ræktun ópíumvalmúa hefur breiðst út til allra héraða landsins og tekjurnar af framleiðslunni eru tald- ar nema um 60% af vergri lands- framleiðslu Afganistans. Skýrsluhöfundarnir telja að afg- anska ríkisstjórnin sé of veik til að geta tekist á við þetta vandamál og skora á hersveitir Bandaríkjanna og NATO að grípa til hernaðaraðgerða gegn afgönskum eiturlyfjasmygl- hringum. SÞ óttast að Afganistan verði að „eiturlyfjaríki“ Stóraukin ópíumvinnsla Brussel. AFP, AP. BILL Gates, stjórnarformaður Microsoft, fær fjór- ar milljónir tölvu- bréfa á dag og megnið af þeim er ruslpóstur. Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, skýrði frá þessu í gær og sagði að Gates fengi að öllum líkindum meira af tölvuruslpósti en nokkur annar í heim- inum. „Við höfum þess vegna þróað sérstaka tækni sem síar ruslpóstinn frá. Við höfum bókstaflega heila deild sem annast þetta.“ Fær millj- ónir tölvu- bréfa á dag Singapore. AFP. Bill Gates „ÞÓTT rigningin hafi sett svip á hátíðina var stemn- ingin hér einstök,“ sagði Dav- íð Oddsson utanríkisráðherra þegar hann kom úr hádeg- isverði fyrir opinbera gesti við opnun Clinton-safnsins. „Það var gaman að hitta Clinton-hjónin í morgun og spjalla við þau, og einnig dótturina, Chelsea, sem minntist sérstaklega á ferð sína um Ísland. Það var einn- ig ánægjulegt að hitta aftur Bush, forseta, sem ég átti stutt samtal við. Þetta var allt afskaplega athyglisvert og ræðurnar skemmtilegar. Svo finnst mér safnið vera fallegt. Þetta er mikið hús og góð og mikil sýning, en við myndum segja á Íslandi að það mætti nota plássið betur,“ sagði Davíð og brosti. Davíð Oddsson Mikið hús og góð sýning Arkansas. Morgunblaðið. VERKIÐ sem myndlistarmaðurinn Rúrí gerði fyrir Feneyjatvíæringinn, Archive-endangered waters, er nú á leið heim til Íslands með skipi, einungis til þess að verða flutt aftur út til meg- inlands Evrópu til sýningar. Ástæðan er sú, að þegar vörur eru fluttar frá Íslandi til annarra landa, er hægt að fá gefið út svokallað ATA-skírteini hjá Verslunarráði Ís- lands, sem kemur í veg fyrir að greiða þurfi af þeim tolla og virðisaukaskatt við komuna til landsins. Skírteinið virkar sem einskonar vega- bréf fyrir vöruna, og er gefið út til eins árs í senn. Skírteinið sem var gefið út fyrir umrætt verk áður en það var flutt til Feneyja í fyrra þarfnast því endurnýjunar, og kom það á daginn að ódýrara og hagkvæmara er að flytja verkið með skipi uppá Íslandsstrendur og fá síðan nýtt ATA-skírteini útgefið, en að greiða af því refsi- tolla vegna of langrar dvalar þess erlendis, vegna ferða- laga milli sýningarstaða. „Það munar talsvert miklu. Fyrir flutninginn þarf að greiða um tíundahluta af þeim refsitollum og gjöldum sem annars bæri að greiða,“ segir Rúrí. Hún segir að þeg- ar eftirspurnin eftir að sýna verkið kom í ljós, sem í sjálfu sér sé mjög ánægjulegt, varð greinilegt að flytja yrði verkið heim milli sýninga. „Hins vegar er spurning hvort ekki sé tímabært að endurskoða fyrirkomulag tollamála, þannig að uppákomur af þessu tagi heyri sögunni til. Tollareglur mega ekki vera þannig úr garði gerðar að þær stuðli að einangrun íslenskrar myndlistar.“ Sigríður Á. Andersen, lögfræðingur hjá Verslunarráði Íslands, segir ekki mögulegt að sveigja reglurnar að þörfum myndlistarmanna. Engar sérreglur um listamenn „Ástæðan er einfaldlega sú að það er erfitt að meta hvað er listaverk og hvað ekki,“ segir hún. „Meginreglan er auðvitað sú að allir borga að- flutningsgjöld af öllu sem er flutt inn í öll lönd. Ef tollarar þyrftu að meta hvort um væri að ræða listaverk eða fiskflökunarvél frá Marel, væri það til að æra óstöðugan. Auk þess væri óeðlilegt að sérreglur giltu um listamenn um- fram aðra sem flytja út verk til kynningar.“ Að sögn Sigríðar er í vissum tilvikum hægt að fá ATA-skírteinin framlengd án þess að koma með vöruna aftur til landsins og fékk Rúrí slíka framlengingu vegna sýningar í París í haust. Flytja þarf Feneyjaverk Rúríar heim og aftur út vegna tollamála Tífalt ódýrara að flytja verkið heim milli sýninga Rúrí STOFNAÐ 1913 316. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.