Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Afreksmaður og eldhugi Eyjólfur Jónsson sundkappi var einn dáðasti afreksmaður Íslendinga um miðja síðustu öld, en hann synti meðal annars frá Reykjavík til Akraness. Saga Eyjólfs er í senn saga ótrúlegs afreksmanns og eldhuga og einstæð lýsing á viðburðaríku lífi fólks í bæ sem breyttist í borg. KIWANISHREYFINGIN á Ís- landi safnaði alls um 14,6 milljónum króna til handa Geðhjálp og Barna- og unglingageðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss (BUGL) í lands- söfnun Kiwanis á K-deginum. Söfn- unin, sem bar yfirskriftina Lykill að lífi, fór fram dagana 7.–10. október sl. Fulltrúar Kiwanis afhentu Geð- hjálp og BUGL söfnunarféð við at- höfn í Kiwanishúsinu í gær. Að sögn Kristins Richardssonar, formanns K-dagsnefndar Kiwanis, var markmiðið með söfnuninni í ár annars vegar að rjúfa einangrun geðsjúkra á landsbyggðinni og hins vegar að styðja við uppbyggingu göngudeildar BUGL. Á fimmta hundrað félagar í Kiwanis og um 200 aðstoðarmenn frá íþrótta- félögum og skátum seldu K- lykilinn, barmmerki söfnunarinnar, vítt og breitt um landið. Kristinn þakkaði þann góða stuðning og hlý- hug sem landsmenn sýndu átakinu og þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem lögðu söfnuninni lið. Ólafur Ó. Guðmundsson, yf- irlæknir á BUGL, rifjaði í þakk- arorðum sínum upp hvernig Kiw- anishreyfingin hefur um árabil stutt við bakið á BUGL og nefndi í því samhengi framlag Kiwanis þeg- ar unglingadeildin var opnuð 1987 og íbúð fyrir aðstandendur barna af landsbyggðinni sem deildin hefur haft til afnota síðan 1996 fyrir til- stilli fjárstuðnings Kiwanis. Fjár- stuðningur félagsins nú nemur tæp- um sex milljónum króna og sagði Ólafur að sá stuðningur skipti BUGL miklu máli. „Þessi stuðningur kemur í afar góðar þarfir þar sem nú stendur, í fyrsta sinn á Íslandi, til að byggja sérhæft húsnæði fyrir geðheilbrigð- isþjónustu fyrir börn og unglinga. Húsnæðið, sem staðsett verður við Dalbraut, er nú á lokastigi hönn- unar og vonumst við til að fram- kvæmdir geti hafist strax á næsta ári. Þessi gjöf er því ómetanleg til þess að hjálpa okkur að koma því verkefni í gang.“ Markmið að rjúfa einangrun geðsjúkra á landsbyggðinni Sveinn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar, sagði stuðning Kiwanis ómetanlegan fyr- ir Geðhjálp, en félagið hlaut tæpar níu milljónir af söfnunarfénu. „Það er mikilvægt að vita til þess að hreyfing eins og Kiwanis leggi ítrekað sitt af mörkum til þess að styrkja starfsemi á vegum Geð- hjálpar og einnig vekja þjóðina til vitundar um málefni geðsjúkra. Þessi styrkur mun gera okkur kleift að setja í gang og halda úti verkefni sem miðar að því að rjúfa einangrun þeirra sem við geð- sjúkdóma eiga að etja á lands- byggðinni,“ segir Sveinn. Hann vísar þar til sérstaks er- indreka sem stefnan er að ráða á vegum Geðhjálpar sem hafi það að markmiði að ferðast um landið og kanna hver þörf geðsjúkra er fyrir þjónustu og tengslaneti á landsvísu og jafnframt benda á leiðir til úr- bóta. „Þetta er hlutur sem ég er ansi hræddur um að hefði verið erf- itt að fá opinbera aðila til að sam- þykkja með fjárframlögum.“ Söfnunarfé landssöfnunar Kiwanishreyfingarinnar afhent Morgunblaðið/Sverrir Sigurður R. Pétursson, umdæmisstjóri Kiwanishreyfingarinnar á Íslandi, Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir á BUGL, og Kristinn Richardsson, formaður K-dagsnefndar Kiw- anis, fyrir miðri mynd ásamt hópi Kiwanismanna. 14,6 milljónir til stuðn- ings geð- sjúkum AFSTAÐA Samkeppnisstofnunar til kæru vegna viðskiptahátta bankakerfisins þar sem hin nýju húsnæðislán eru annars vegar mun liggja fyrir á næstu dögum. Fjár- málaeftirlitið, sem einnig hefur eft- irlit með bönkunum samkvæmt lögum, fylgist með framgangi máls- ins samkvæmt upplýsingum Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins. Í grein sem Jóhannes Valde- marsson rekstrarfræðingur birti í Morgunblaðinu eru gerðar athuga- semdir við ýmislegt er varðar við- skiptahætti bankakerfisins hvað varðar hin nýju húsnæðislán og vísað til samkeppnislaga í því sam- bandi og að hann hafi sent Sam- keppnisstofnun erindi af þessu til- efni og óskað aðgerða af hálfu stofnunarinnar. Í greininni er rakið að til þess að njóta 4,2% vaxta þarf að uppfylla ýmis skilyrði, eins og að vera í um- talsverðum viðskiptum við bankann að öðru leyti, að 4,2% vaxtapró- sentan er ekki sú vaxtaprósenta sem þinglýst er á viðkomandi eign heldur 5,1% í því dæmi sem Jó- hannes tiltekur, að ólöglegt sé að krefjast þess að viðskiptavinir kaupi þjónustu eins og tryggingar í tengslum við lánveitingar, auk þess sem uppgreiðslugjald bankanna er gert að umtalsefni. Anna Birna Halldórsdóttir hjá Samkeppnisstofnun sagði að erind- ið væri svo nýkomið til stofnunar- innar að ekki hefði unnist tími til að taka afstöðu til þess, en afstaða í þeim efnum muni liggja fyrir fljótlega. Fjármálaeftirlitið fylgist með Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði að Fjár- málaeftirlitið hefði með starfshætti bankanna að gera. Hins vegar sé í viðkomandi grein verið að vísa til samkeppnislaga, en Fjármálaeftir- litið muni fylgjast með því hvað komi út úr þessu hjá Samkeppn- isstofnun. Viðskiptahættir bankanna vegna húsnæðislána kærðir Afstaða Samkeppnisstofn- unar liggur fyrir fljótlega EINHVER stærsti farmur af fryst- um fiskafurðum sem farið hefur í einni sendingu frá Vestmannaeyjum fór þaðan í gær. Um var að ræða tæplega 3.000 tonn, mestmegnis fryst síld og síldarflök. Vinnslustöðin sendi 1.530 tonn og þar af voru 60 tonn af frystum karfaflökum, en annars var um síld að ræða sem fer til Póllands og Rússlands. Þetta er ekki stærsta sending Vinnnslustöðvarinnar en fyrirtækið sendi 2.100 tonn af loðnu frá sér í einni sendingu fyrir tíu ár- um síðan. Skipið sem flytur afurðirnar heit- ir Green Crystal og er skrásett í London. Það er heldur gamaldags þegar kemur að því að ferma það og tók það starfsmenn stöðvanna þrjá og hálfan sólarhring að koma síld- inni um borð. Þeir voru helst á því að skipið væri hannað til ávaxta- flutninga. Rúnar Vöggsson, verk- stjóri í Vinnslustöðinni, sagði að þeir hefðu líklega verið helmingi fljótari ef aðstæður hefðu verið betri. Stór farmur af fiskafurðum Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. Íslandsmót skákfélaga 2004 hefst í kvöld klukkan 20 í Mennta- skólanum við Hamrahlíð og mun mótið standa yfir alla helgina. Keppnin er í tveimur hlut- um og verður fyrri hlutinn, sem er fjórar umferðir, tefldur nú um helgina og síðari hlutinn, sem er þrjár umferðir, verður tefldur snemma í vor. Það verður því ekki fyrr en þá sem Íslandsmeistari verður krýndur. Að sögn Guðfríðar Lilju Grét- arsdóttur, forseta Skák- sambands Íslands, taka 48 lið þátt í mótinu eða rúmlega 200 manns, þ.e. þau taflfélög landsins sem eiga aðild að Skák- sambandi Íslands. Guðfríður Lilja segir skákmótið vera í raun árshátíð skákliðsins á Ís- landi þar sem allir skákáhuga- menn og -konur á landinu koma til þess að taka þátt í mótinu auk stórmeistara. „Þetta er- stærsta skáksamkoma ársins,“ segir Guðfríður Lilja og bætir því við að öllum áhugasömum sé velkomið að koma og fylgjast með. Hún segir að búast megi við mjög spennandi baráttu í fyrstu deildinni en eitt sterkasta skák- félag síðustu ára, Skákfélagið Hrókurinn, hefur dregið sig út úr keppni á Íslandsmótinu. Hún á því von á að Taflfélag Reykja- víkur, Taflfélagið Hellir og Tafl- félag Vestmannaeyja eigi eftir að berjast um efsta sætið að þessu sinni. „Stærsta skáksam- koma landsins“ Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Á FUNDI Samkeppnisstofnunar með stjórnarformanni, stjórnar- manni og lögmanni Olíufélagsins (Essó) í mars 2002 voru engin fyr- irheit gefin og þar af leiðandi engin fyrirheit brotin. Þetta segir Guðmundur Sigurðs- son, yfirmaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar, sem sat fund- inn af hálfu Samkeppnisstofnunar. Engin fyrirheit voru gefin RANNSÓKN á flugslysinu í Sam- einuðu arabísku furstadæmunum, þegar Boeing 747-200 þota flug- félagsins Air Atlanta fór út af flug- braut fyrir tæpum tveimur vikum, beinist að hægri aðalhjólabúnaði flugvélarinnar, en rannsókn á vett- vangi slyssins er nú lokið. Aðalhjólabúnaðurinn hægra meg- in verður fluttur til frekari rann- sóknar, svo sem dekk, felgur og bremsur, auk þess sem lesið verður úr flugritunum í næstu viku hjá rannsóknanefnd flugslysa í Eng- landi. Flugvélin, sem var á leið til Frank- furt með frakt, hlekktist á í flugtaki og hafnaði utan flugbrautarinnar stórskemmd eftir að flugstjóri vél- arinnar ákvað að hætta við flugtak þegar vísbendingar höfðu komið fram um bilun í vélinni. Fjögurra manna áhöfn var um borð og sakaði hana ekki. Rannsókn beinist að að- alhjólabúnaði ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.