Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EINTAKA SELD
TVÆR MILLJÓNIR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
ÞESSI BÓK HEFUR ALLT,
TÖFRANA, ÆVINTÝRIN,
SPENNUNA, SKRAUTLEGU
PERSÓNURNAR OG
HEILLANDI SÖGUSVIÐ
... ÞETTA ER
HÖRKU BÓK.
- Newsweek
MEIRA EN
FORSVARSMENN sveitarfélaga á
landinu hafa flestir svipaða sögu að
segja af nýgerðum kjarasamningi
grunnskólakennara og sveitarfélag-
anna, sem nú bíður samþykkis kenn-
ara og sveitarfélaganna. Allir virðast
fegnir að búið sé að semja við kenn-
ara, og að tekist hafi að ljúka málinu
án þess að það kæmi fyrir gerðar-
dóm.
Þær kostnaðarhækkanir sem
kennurum eru boðnar geta þó orðið
þungur baggi fyrir sveitarfélögin,
sem hafa mörg hver átt í talsverðum
fjárhagserfiðleikum fyrir. Ekki virð-
ist vera verulegur munur á afstöðu
sveitarstjórnarmanna sem Morgun-
blaðið hafði samband við eftir stærð
sveitarfélagana, þó smærri sveitar-
félögin eigi erfiðara með að mæta
þessari útgjaldaaukningu vegna
bágrar fjárhagsstöðu og minna svig-
rúms til niðurskurðar.
Almennt virðast þó smærri sveit-
arfélögin hafa meiri áhyggjur af
kostnaði við nýja samninginn, og
verður víðast hvar farið í að reikna
út hvað hann kemur til með að kosta
hvert sveitarfélag – verði samning-
urinn samþykktur – á næstu dögum.
Víða virðist sem skera þurfi niður
eitthvað af ólögbundinni þjónustu
sveitarfélagana til að mæta auknum
útgjöldum. Þannig segir Ragnar
Snær Ragnarsson, sveitarstjóri Blá-
skógabyggðar, að sveitarfélagið
muni að sjálfsögðu axla sína ábyrgð,
og það ráði við þetta verkefni, en trú-
lega þurfi að koma til einhvers nið-
urskurðar í staðinn. Grunnskólarnir
eru víða dýrasta verkefni sveitarfé-
laganna, og því munar miklu um
kostnaðarhækkun sem trúlega er
nálægt 30% að meðaltali til loka árs
2007.
Víða niðurskurður
eða hækkun gjalda
Ekki hefur liðið nógu langur tími
frá því skrifað var undir samningana
til að sveitarstjórnarmenn séu farnir
að ákveða hvernig á að fá peninga til
að setja í grunnskólana, hvar eigi að
skera niður, og hvort gjöld verða
hækkuð á íbúa. Björn H. Guðmunds-
son, sveitarstjóri Djúpavogshrepps,
segist líta til þess að hægt verði að
auka tekjuöflun sveitarfélagsins, og
horfir hann til jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga í því sambandi, enda útsvar
fullnýtt þar eins og svo víða annars-
staðar. Ef tekjuaukningin verður
ekki nægjanleg segir hann blasa við
að til niðurskurðar þurfi að koma, og
ekki sé gott að sjá hvar megi skera
niður í þjónustunni.
Sveitarstjórnarmenn segja mis-
jafna sögu af hugsanlegri hækkun
gjalda vegna kennarasamninganna,
og margir vilja setja ákveðna fjar-
lægð þar á milli, svo ekki sé talað um
að hækka eitt eða annað sérstaklega
til að koma til móts við kröfur kenn-
ara. Hægt er að hækka þjónustu-
gjöld ýmiskonar eða fasteignagjöld
þótt hvergi hafi verið tekin nokkur
ákvörðun um slíkt hjá þeim sveitar-
félögum sem Morgunblaðið hafði
samband við.
Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri
Stykkishólmsbæjar, segir til að
mynda að varla sé hægt að standa
straum af hækkunum til kennara án
þess að hækka fasteignagjöld eða
þjónustugjöld, auk samdráttar á
ýmsum sviðum. Almennt líta for-
svarsmenn sveitarfélaganna til þess
að tekjuskipting ríkis og sveitarfé-
laga verði endurskoðuð, og er ljóst
að sú umræða mun koma upp milli
ríkis og sveitarfélaga fljótlega, í
framhaldi af viljayfirlýsingu þar að
lútandi sem samþykkt hefur verið.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæj-
arstjóri Mosfellsbæjar, segir að ekki
þurfi að hækka gjöld eða skera sér-
staklega niður í bæjarfélaginu vegna
þessa, og undir það taka sumir af
forsvarsmönnunum. Hún segir hins
vegar ljóst að reksturinn muni ekki
batna til muna eins og vonir hafi
staðið til. Því má gera því skóna að
jafnvel hjá þeim sveitarfélögum sem
sleppa við niðurskurð eða hækkaðar
álögur á íbúa muni þetta hafa áhrif,
t.d. á niðurgreiðslur skulda.
Fordæmi ríkisins komið
Samningar eru lausir við aðrar
stéttir starfsmanna sveitarfélagana,
og hafa forsvarsmenn leikskóla-
kennara þegar gefið til kynna að þeir
muni fara fram á svipaðar hækkanir
og grunnskólakennarar, enda sé það
krafan að allir kennarar með sömu
menntun og reynslu séu með sama
kaup. Sveitarstjórnarmenn voru
margir sammála um að þetta hlyti að
vera réttmæt krafa, og voru sumir
ósáttir við það fordæmi sem ríkið
setti með samningum við framhalds-
skólakennara í ársbyrjun 2001.
Aðrir voru þó ekki sáttir við að
aðrar stéttir elti þennan samning, og
sögðu að þessi samningur við grunn-
skólakennara mætti alls ekki verða
fyrirmynd að öðrum samningum, við
það ráði sveitarfélögin engan veginn,
enda samningarnir langt yfir viðmið-
unarmörkum.
Ef leikskólakennarar enda með
samning sem hefur svipaðar kostn-
aðarhækkanir í för með sér má leiða
líkum að því að hækka þurfi leik-
skólagjöld víða, og velta þannig
kostnaðinum yfir á foreldra að ein-
hverju eða öllu leyti. Sér í lagi þar
sem þegar hafi verið skorið niður og
leitað tekna vegna hækkunar grunn-
skólakennara.
Fréttaskýring | Sveitarstjórnarmenn ánægðir með að búið sé að semja við kennara
Þungur baggi fyrir marga
Morgunblaðið/Sverrir
Víða gæti þurft að skera niður þjónustu eða hækka álögur á íbúa til að mæta kostnaði vegna samninga við kennara.
Á skrifstofum sveitar-
félaga er víða setið við
og reiknað hver áhrif
samningar við kennara
hafa á rekstur sveitar-
félaganna. Brjánn
Jónasson heyrði
hljóðið í ráðamönnum
víða um land.
brjann@mbl.is
KENNARA og sveitarfélaga bíður
nú það verkefni að greiða atkvæði
um nýjan kjarasamning grunn-
skólakennara sem undirritaður var
í Höfðaborg í fyrradag. Er reiknað
með að niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar liggi fyrir 6. desember nk. en
einfaldur meirihluti ræður úrslit-
um, þ.e. einfaldur meirihluti þeirra
sem taka afstöðu.
Að sögn Eiríks Jónssonar, for-
manns Kennarasambands Íslands,
hefst kynning á samningnum með
trúnaðarmönnum í dag en í næstu
viku verður umfangsmikil kynning
meðal kennara og skólastjóra.
Reiknað er með að í vikunni sem
hefst 29. nóvember verði atkvæða-
greiðsla um samninginn og að
henni ljúki á miðvikudegi eða
fimmtudegi í sömu viku og úrslit
liggi fyrir á mánudegi, 6. desem-
ber, sem fyrr segir. Hátt í fimm
þúsund kennarar og skólastjórar
greiða atkvæði um samninginn.
Að sögn Ásmundar Stefánssonar
ríkissáttasemjara er ekki reiknað
með að atkvæði Launanefndar
sveitarfélaganna, sem greiðir at-
kvæði um samninginn fyrir hönd
sveitarfélaganna, liggi ljós fyrir
fyrr en um það leyti sem kennarar
hafa greitt atkvæði.
Hátt í fimm þúsund greiða atkvæði
Atkvæðagreiðsla
um kjarasamning
grunnskóla-
kennara hefst um
mánaðamótin
$#
% ! &
'&
( # )* !"!#$%%!&"'
$'%!
'%
$
!
"$(')"*+*%#+%$#,-.,--/-"&"'
$"$%
&
*
'%/%%&""/""
+( *0,!&"'%
%-
, !#) *1(
'
#"*+*%&$&/ ,%#'-!! !&
"'"
'"
# 2*%*"
-&)*0
'
"* +*"%&
$!/*%#"!
"!&"'$ "
!
&/
*)
$
3
$!
. *4 2*%
"%&*
'',$&&"*%"2'% "!!#!
&,
"%!
"%"
*)
$"$
!*" %5 +*"'
"%&"2'%
"
'"
! !"'%
(
*0
!3
$!! %&*6,%
.
*5$'
"&
""3%"
+7'
"* +*"'
'
&"*%"2'%"! "*%!2*%"'0
'!
"$(2'"3$
3%'& %&3!!"%!
"%"
*)
$3
$!$%! %&!"!
(
*8 "!!#!
&,"#
*%!&#*""*!&"'!*"*+!%
"*+*%$"$&
$"" %
$"!%!#$%0
"$&2'%
'
'
* &!
"*9"&""!&"'!*""*"!/
" $
&%
3"
((
*!+"!#*3
/*
"
%#!"$%:"'
"
&%
*!
,2'#
$
'!
"%"'
* &
(+
*;2'#
$
!&< #5<"'"'!&< *!
"%"'
* &#"!
"!&"'" %"&""!&"'!*"
(
*#$%%
=$&
'%!#$%%>)", $"6!"'!&<
&""!&"'!*"%&*$
"!<
!!*#!& &%'"" %"
(
* !$=3
$!#"*3
$!>*6,%#$%%
,2"
&+"
"""%
(/
*#$%%
=5*% "3$&'"%'" $&
'$%
$"*$&&""
"%*">,2"
&+"
"""%
(0
*&"' !#&""
'!
"$('=#
$&
'!#$%"
"%*">
Stöðvaður tíu
sinnum á fimm
mánuðum
Á FIMM mánaða tímabili, frá 15.
apríl til 13. ágúst á þessu ári, var 23
ára gamall maður stöðvaður tíu
sinnum af lögreglunni, ýmist fyrir
hraðakstur eða akstur sviptur öku-
réttindum. Í gær dæmdi Héraðs-
dómur Reykjaness hann í þriggja
mánaða fangelsi fyrir brotin.
Frá 1999 hefur maðurinn 14 sinn-
um verið dæmdur eða gengist undir
sektir vegna brota gegn almennum
hegningarlögum, lögum um ávana-
og fíkniefni og umferðarlögum.
Dómurinn í gær var hegning-
arauki við eldri dóm. Sveinn Sig-
urkarlsson kvað upp dóminn.
Taki stefnu
gegn ráðuneytinu
til meðferðar
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær að
hluta úrskurð Héraðsdóms Austur-
lands um að vísa frá máli sem tólf
íbúar Norður-Héraðs höfðuðu gegn
sveitarstjórninni og félagsmála-
ráðuneytinu og kröfðust þess að
ákvörðun um sameiningu sveitarfé-
lagsins yrði dæmd ógild. Rétturinn
vísað frá dómi þeirri kröfu tólf-
menninganna sem laut að ákvörðun
sveitarfélaganna en lagði á hinn
bóginn fyrir Héraðsdóm Austur-
lands að taka til umfjöllunar fyrir
dómi þá kröfu sem beindist gegn fé-
lagsmálaráðuneytinu.
Þess er krafist í málinu að úr-
skurður félagsmálaráðuneytisins
þar sem ákvörðun sveitarfélagsins
er staðfest verði gerð ógild. Átta af
þeim tólf sem stefndu sveitarfé-
laginu og ráðuneytinu voru þó ekki
taldir hafa lögvarða hagsmuni af
því að fá skorið úr málinu fyrir
dómstólum.
Málið var höfðað eftir að ein-
ungis þrjú af fjórum sveit-
arfélögum samþykktu sameiningu.
Sveitarstjórnir þeirra þriggja þar
sem samþykki lá fyrir ákváðu engu
að síður að sameina sveitarfélögin
Norður-Hérað, Austur-Hérað og
Fellahrepp. Íbúar í Fljótsdals-
hreppi höfnuðu sameiningunni.
Málið dæmdu Markús Sig-
urbjörnsson, Árni Kolbeinsson,
Gunnlaugur Claessen, Jón Steinar
Gunnlaugsson og Ólafur Börkur
Þorvaldsson.
Hróbjartur Jónatansson hrl.
flutti málið f.h. íbúanna en Logi
Guðbrandsson f.h. Norður-Héraðs.
ELDRI kona meiddist á handlegg
þegar jepplingur valt á hringveg-
inum í útjaðri Kirkjubæjarklaust-
urs um hádegisbil í gær. Talsverð
hálka var á veginum þegar jepp-
lingurinn valt.
Valt við Kirkju-
bæjarklaustur