Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 57 ÖFLUGUSTU TÖFRARNIR ERU Í BT 2.6 2.399 TVEIR DISKAR Hér er á ferðinni þriðja myndin um ævintýri Harry Potter. Meðal leikara eru m.a. Daniel Radcliffe, Rupert Grint, , Emma Watson, Gary Oldman og fleiri góðir. Þessi þriðji kafli fjallar um dularful- lan fanga sem sleppur frá Azkaban en markmiðið hjá honum að koma Harry Potter fyrir kattarnef. Myndin er með íslensku og ensku tali. Ekki klikka á þessari! ÉG hef stundum heyrt það frá tón- listarmönnum að það skipti máli hvar plötur eru teknar upp, bæði hvað varðar stemmningu í stúdíói, hljóm- burð og tæknimál, en ég held að sjaldan hafi upptökustaðurinn skipt eins miklu máli og á þeirri plötu sem ómar í eyrunum á mér meðan ég hamra inn þessi orð. Langþráður draumur Rabba rætt- ist þegar hann fékk tækifæri til að taka upp meirihluta síðustu sólóplötu sinnar í hinu sögulega Abbey Road stúdíói, þar sem Bítlarnir bók- staflega bjuggu um árabil. Það er auðheyrt að andi Bítlanna hefur svifið yfir vötnum og enginn af þeim snillingum sem fylgu Rabba í hans hinstu för hefur verið ósnortinn af þeim minningum og stemmningum sem svífa um Abbey Road. Spilagleði og innblástur er augljós og greinilegt að þarna hafa menn verið í senn sam- taka og upprifnir yfir því að standa í sporum Bítlanna, anda að sér loftinu og leika á píanó, sítar og rafharm- óníum, sem léku veigamikil hlutverk í síðari verkum sveitarinnar. En nóg um Bítlana! Ég er hæst- ánægður með þessa plötu. Auðvitað er erfitt að hlusta á hana án þess að hugsa um Rabba, hans frábæra feril og persónuleika, harmleik hans og um leið það frábæra fordæmi sem hann sýndi með æðruleysi sínu allt sitt líf. En það kemur ekki að sök, því þessi plata er alveg frábær vitn- isburður um alla þessa hluti. Textarn- ir og lögin eru í senn persónuleg, ein- læg og mjög áheyrileg, spilamennskan þétt og leikandi, eins og áður hefur verið minnst á og hljómurinn mjög hlýr og skemmti- legur. Notkun liðsmannanna á hinum sögufrægu hljóðfærum bítlanna er líka afar smekkleg og hófstillt og gæðir tónlistina lífi. Það er líka gaman að heyra það hvernig menn geta leikið sér með hrynfall þrátt fyrir að lögin séu í ein- földum töktum. Þannig leika önnur hljóðfæri en trommurnar mikilvægt hlutverk í að brjóta upp taktinn, en trommurnar negla lögin niður. En þar er ég kannski kominn að því sem má teljast einn af fáum hnökrum plötunnar. Ég kemst ekki hjá því að hugsa að eins frábær og trommu- leikur Egils Rafnssonar er, þá sé hann dálítið aftarlega í hljóðblönd- uninni á köflum. Kannski skrifast þetta á hógværð, en í öllu falli er ekki um alvarlega handvömm að ræða. Ekki fer heldur milli mála hversu miklir hæfileikar eru á ferðinni í son- um Rafns, en þeir unnu lögin með honum og flytja. Ragnar Zólberg hef- ur tekið út gríðarlegan þroska sem söngvari og tónlistarmaður og verður spennandi að fylgjast með þroska hans næstu árin, því hann er enn ós- lípaður demantur, en þvílíkur karata- fjöldi, maður lifandi! Rabbi var, eins og segir í inngangs- orðum bæklings plötunnar, tónlist- armaður fram í fingurgóma. Hann lifði fyrir tónlistina og hún var hans förunautur þar til hjarta hans sló sinn síðasta takt. Þessi plata er í senn verðugur minnisvarði um líf hans og feril, vini og fjölskyldu, fórnir og verðlaun lífsins, sorgar- og gleði- stundir og vitnisburður um æðruleysi og kraft, kjark og dug, öðrum til hvatningar og innblásturs. Sem plata stendur hún líka prýðilega; bráðvel gerð, hugmyndarík og skemmtileg. Verðugur minnisvarði TÓNLIST Íslenskar plötur Síðasta plata Rafns Jónssonar (Rabba). Ragnar Zolberg Rafnsson leikur á gítar og syngur, Egill Rafnsson trommar, Har- aldur Þorsteinsson leikur á bassa, Jón Ólafsson leikur á píanó, Hammond orgel og harmonium, Rúnar Þórisson leikur á gítar og Andrea Gylfadóttir syngur raddir. Þá leikur Magnús Kjartansson á píanó og Hammond orgel. Tekin upp í Abbey Road, Hljóðhamri, Glaðheimum og Grænaherberginu. Um upptökustjórn sá Rafn Jónsson. Útgef- andi: R&R músík. Rabbi – Fuglar geta ekki flogið á tunglinu  Svavar Knútur Kristinsson BANDARÍSKA tímaritið People hefur útnefnt breska kvikmynda- leikarann Jude Law kynþokka- fyllsta núlifandi karlmanninn. Segir tímaritið að Law sé „yfirnátt- úrulega myndarlegur“, hafi „gríð- arlega hæfileika“ og það orð fari af honum að hann sé „afar geðþekk- ur“. Leikkonur sem starfað hafa með Law eru þessu sammála. „Hann er fallegasti karlmaður sem gengið hefur á jörðinni – hann er eins og fullkomið olíumálverk,“ sagði ástralska leikkonan Naomi Watts sem lék með Law í gam- anmyndinni I Heart Huckabees. Og Gwyneth Paltrow segir: „Hann er sá mest töfrandi maður sem nokkur getur vonast til að hitta.“ Tímaritið hefur áður m.a. veitt Mel Gibson, Sean Connery, Brad Pitt, Johnny Depp, George Cloon- ey. Pierce Brosnan, Ben Affleck, Denzel Washington og John F. Kennedy Jr. þennan eftirsótta titil. Meðal þeirra sem komu til greina nú voru Brad Pitt, Ben Affleck, Matt Damon, Johnny Depp, Or- lando Bloom, Usher, Colin Farrell, Bruce Willis og Matt LeBlanc. Reuters Jude Law er nýskilinn þriggja barna faðir og á í ástarsambandi við leikkonuna Siennu Miller. Yfirnáttúrulega myndarlegur Reuters Forsíða nýjasta tölublaðs People. Fegurð | Tímaritið People segir leikarann Jude Law allra manna þokkafyllstan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.