Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 45
MINNINGAR
✝ Ólöf Birna Ólafs-dóttir var fædd í
Reykjavík hinn 9.
október 1949. Hún
lést á Landspítalan-
um hinn 14. nóvem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru Ólafur Jón Guð-
björnsson, f. 27.3.
1921, d. 31.3. 1977,
og Ragna Klara
Björnsdóttir, f. 31.5.
1924.
Hinn 4. nóvember
1967 giftist Birna
Skúla Heiðari Ósk-
arssyni bifreiðastjóra á Hreyfli/
Bæjarleiðum. Þau eiga fimm
börn. Þau eru: 1) Sigrún Ragna
Skúladóttir, f. 1965, gift Jónasi
Þór Kristinssyni. Börn hennar
eru Birna Dís, Kristinn Viktor
og Heiðar Snær. 2) Ragnhildur
Skúladóttir, f. 1967, gift Andrési
Snorrasyni. Börn hennar eru
Sandra Mjöll, Sigrún Halldóra
og Snorri Heiðar. 3) Anna María
Skúladóttir, f. 1973, gift Hálf-
dani Þorsteinssyni.
Börn hennar eru
Þorsteinn og Hel-
ena Ósk. 4) Tvíbur-
arnir Óskar Dan
Skúlason, f. 24.5.
1980, í sambúð með
Dísu Friðleifsdótt-
ur, og 5) Ólafur
Guðbjörn Skúlason,
f. 24.5. 1980, í sam-
búð með Svanhvíti
Friðriksdóttur og
eiga þau einn
óskírðan son.
Birna starfaði
fyrst hjá Mjólkur-
samsölunni í Reykjavík. Þá vann
hún í nokkur ár í versluninni
Grundakjör og síðan í Hagkaup-
um í Kringlunni þar sem hún
starfaði síðastliðin 16 ár, fyrst
sem svæðisstjóri og síðan sem
deildarstjóri þar til hún lét af
störfum í desember 2003 vegna
veikinda.
Útför Birnu verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavik í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Elsku mamma, nú ertu horfin á
braut eftir erfiða baráttu og okkur
langar að minnast þín með nokkrum
orðum. Þegar við hugsum til baka til
æskuáranna minnumst við þín sem
trausts vinar og góðrar fyrirmyndar.
Það var sama hvað á bjátaði, ávallt
varstu með ráð við öllu. Við ólumst
upp hjá ykkur pabba við mikla ást og
umhyggju og þið veittuð okkur allt
sem góðir foreldrar geta veitt börn-
um sínum. Það hefur ekki verið auð-
velt að koma okkur öllum á legg og
lærðum við af ykkur að aðalatriðið er
að standa ávallt saman.
Fyrir tæplega ári síðan greindist
þú með krabbamein og þurftir að
ganga í gegnum erfiðar meðferðir.
Það sem hélt þér gangandi í gegnum
þetta allt var m.a. að komast aftur í
Hagkaup þar sem þú vannst síðast-
liðin 16 ár og áttir þar marga góða
vini. Meðferðirnar voru langar og
strangar en aldrei heyrðum við þig
kvarta.
Þrátt fyrir mikil veikindi drifuð
þið pabbi ykkur til Portúgal nú í
október. Þar áttuð þið saman ynd-
islega viku og erum við systkinin
þakklát fyrir þá stund sem þið áttuð
þar saman. Fljótlega eftir heimkom-
una lagðist þú inn á sjúkrahús þar
sem hlutirnir gerðust alltof hratt og
ekki varð við neitt ráðið, en ávallt
barðist þú hetjulega. Síðustu daga
ævinnar varstu með húmorinn í lagi
og viðhélst léttleikanum í kringum
þig. Það sem þér fannst mikilvægast
eins og alltaf var að fjölskyldan stæði
saman.
Elsku mamma, við erum þakklát
fyrir allt sem þú hefur gefið okkur.
Við hefðum viljað að tími okkar sam-
an hefði verið lengri en við fáum víst
engu um það ráðið. Þú munt ávallt
eiga stað í hjarta okkar en erfitt er
að hugsa sér lífið án þín. Við munum
alltaf elska þig og hafa í huga þín síð-
ustu orð þar sem þú lagðir m.a.
áherslu á að lífið héldi áfram. Við
kveðjum þig með söknuð í hjarta
okkar en eftir standa margar og
skemmtilegar minningar sem við
munum varðveita alla okkar ævi.
Elsku mamma, megir þú hvíla í
friði, guð geymi þig, við elskum þig
öll, þú ert hetjan okkar.
Elsku pabbi og amma, guð veiti
ykkur styrk á þessum erfiðu tímum.
Þín börn,
Sigrún Ragna, Ragnhildur,
Anna María, Óskar Dan og
Ólafur Guðbjörn.
Elsku tengdamóðir mín, það er
erfitt að kveðja þig með orðum sem
virðast vera týnd í þeim hundruðum
minninga um þig sem eru að brjótast
í mér, við fengum að vera í þeim for-
réttindahópi að njóta nærveru þinn-
ar sem var full af skilningi og hjálp-
semi sem er og mun alltaf vera okkur
hvatning til að gera betur og standa
saman sem fjölskylda. Þú náðir alltaf
að gera gott úr hlutunum sama hvað
var að. Þegar við hjónin þurftum
hjálp við að gæta barna okkar, hvort
sem var einn dag eða við hjónin fór-
um utan í nokkra daga, var alltaf
sama svarið „ekki málið“, og þú flutt-
ir heim til okkar en þegar við hjónin
komum heim var langur tími þar á
eftir sem börn okkar vildu fá hitt og
þetta eins og amma gerði það, orðið
nei var ekki til hjá þér þó að þú værir
í fullu starfi og álagið þar mikið sem
þú stóðst með sóma. Maður fann það
svo mikið þegar við heimsóttum þig í
vinnuna, það var alltaf mjög létt í
kringum þig og greinilegt að þú
hafðir áunnið þér vináttu og virðingu
samstarfsfólks þíns.
Þegar fjölskyldan hittist til að
gera sér glaðan dag var oft mjög
gaman. Þá varst þú þar oft manna
hressust. Jóladagur var sá dagur
sem var fastur liður að fjölskyldan
kæmi öll saman heima hjá þér og
Skúla. Þetta voru stundir sem eru og
verða alltaf ofarlega í hugum okkar
allra um alla ævi.
Það sem þú tókst að þér var alltaf
vel gert og allir vita að þú lagðir mik-
ið á þig til að svo yrði.
Þið Skúli voruð með stórt heimili,
fimm börn. Öll eru þau mjög sam-
viskusamir, sjálfstæðir og duglegir
einstaklingar sem þú mátt vera mjög
stolt af. Fengu þau allan þann stuðn-
ing og ást sem þau þurftu.
Við getum ekki annað en litið upp
til þín og það munum við alltaf gera.
Sá eiginleiki þinn að gera gott úr
nánast hverju sem er, hversu slæmt
sem ástandið var, er guðs gjöf sem
þú notaðir alveg fram á síðustu
stund.
Skúli minn, Ragna amma, Sigrún,
Ragnhildur, Anna María, Ólafur og
Óskar, ég vona að guð gefi ykkur
styrk til að takast á við þessa miklu
sorg.
Jónas Kristinsson.
Elsku Birna mín. Hvað ég á eftir
að sakna þín. Ég man þegar ég sá þig
fyrst, þá tókstu mér svo vel, ég fann
það strax að maður var velkominn í
fjölskylduna þína. Þú varst alltaf svo
góð og skemmtileg. Þegar maður
þurfti einhver svör vissir þú svörin.
Ég er mjög þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast þér. Í mínum aug-
um ertu hetja, sem ég mun alltaf líta
upp til. Ég á eftir að sakna þín. En
eftir skilur þú góðar minningar.
Munt þú alltaf lifa í hjarta mínu.
Þú sæla heimsins svalalind,
ó, silfurskæra tár,
er allri svalar ýtakind
og ótal læknar sár.
Æ, hverf þú ei af augu mér,
þú ástarblíða tár,
er sorgir heims í burtu ber,
þótt blæði hjartans sár.
(Kristján Jónsson.)
Þín tengdadóttir
Dísa.
Elsku Birna, hverjum datt í hug
að við sætum hérna í dag og skrif-
uðum minningargrein um þig?
Þegar þú færðir okkur þær fréttir
fyrir rúmum tíu mánuðum að þú
hefðir greinst með krabbamein var
það hræðilegt áfall, en þú varst alltaf
svo dugleg og sterk að okkur datt
ekki í hug að þetta fengi svona
snöggan endi. Það hvarflaði aldrei að
okkur.
Það koma margar minningar upp í
huga manns á svona stundu og við
gætum skrifað margar síður, en eins
og þú varst þá vitum við að þú hefðir
ekki viljað það. Efst í huga okkar er
þegar við vorum öll stödd hjá þér og
Skúla á afmælinu þínu 9. okt. og Óli
þinn hringdi og sagði þér að hann
hefði eignast son. Allir grétu af gleði,
því stærri afmælisgjöf er ekki hægt
að hugsa sér.
Elsku Birna, þú munt alltaf eiga
stóran hlut í hjarta okkar. Guð veri
með þér, elskan. Elsku Skúli, börn,
tengdabörn og barnabörn, guð
styrki ykkur í þessari miklu sorg.
Hinsta kveðja.
Mamma, Sæunn, Kristján,
Karl og Þorbjörg.
Elsku besta amma mín. Það er svo
margt sem kemur upp í huga minn
þegar að þú ert farin frá okkur, þetta
gerðist allt svo fljótt að ég áttaði mig
ekki á því hvað var að gerast. Það
fyrsta sem kemur mér upp í huga er
að þú varst alltaf svo glöð og það var
alltaf svo skemmtilegt hjá þér. Þú
varst alltaf svo góð við alla og vildir
alltaf hjálpa öllum. Þegar við vorum
að vinna saman á jólunum þá man ég
alltaf eftir þér hlaupandi um alla búð
brosandi að hjálpa öllum.
Þegar þú fórst frá okkur þá fannst
mér lífið svo ósanngjarnt, því þú ert
svo ung, en guð tekur fyrst þá sem
hann elskar mest og við fáum engu
um það ráðið. Ég mun aldrei gleyma
fallega brosinu sem þú gafst mér
þegar að þú varst á spítalanum. Ég
reyni samt að trúa því að þér líði bet-
ur hjá Guði og þetta sé betra því að
þú varst orðin svo veik, en barðist
svo hetjulega og aldrei heyrði maður
þig kvarta um að eitthvað væri að.
Elsku amma, ég mun alltaf sakna
þín og ég mun hugsa til þín, oft á dag.
Elsku afi, Guð styrki þig í sorg
þinni og umvefji þig alla tíð.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Þín nafna
Birna Dís.
Elsku besta amma. Nú ert þú
komin til himna og við vitum að Guð
passar þig. Við söknum þín svo mikið
og okkur langar svo að sjá þig aftur.
Við minnumst góðra stunda okkar
saman, t.d. þegar þú fórst með okkur
í húsdýragarðinn. Þið afi tókuð alltaf
vel á móti okkur þegar við komum til
ykkar og við eigum eftir að sakna þín
rosalega mikið.
Elsku amma, við elskum þig af
öllu hjarta og við munum aldrei
gleyma þér.
Þín barnabörn
Þorsteinn og Helena Ósk.
Elsku amma. Þú varst alltaf tilbú-
in að taka á móti okkur þegar við
vildum koma í heimsókn. Þú áttir
alltaf eitthvað gott handa okkur. Við
munum alltaf muna eftir þér í rauðu
peysunni þinni og hlýju inniskónum
sem okkur fannst svo gaman að fá að
prófa. Þú varst alltaf svo góð og
skemmtileg. Hjá þér var alltaf gam-
an, enda varstu alltaf í svo góðu
skapi. Við eigum eftir að sakna þín
mjög mikið og munum varðveita
minningu þína alla tíð.
Elsku afi, guð geymi þig.
Þínir dóttursynir
Kristinn Viktor og Heiðar Snær.
Elsku amma Birna. Mikið er sárt
að þú sért farin frá okkur. Okkur
langar ekki að trúa því, þú sem varst
svo frábær, skilningsrík og ávallt í
góðu skapi. Þú varst alltaf svo góð
við alla og rosalega mikill dýravinur.
Mikið á hundurinn þinn hún Týra
eftir að sakna þín, en Sæja systir þín
ætlar að hafa hana, því að hún er
dýravinur eins og þú. Við vitum að
það er heimilið sem þú vildir að hún
væri á, því þar er vel hugsað um
hana.
Það er erfitt að hugsa um afmæli,
jól og fleira án þín. Við vitum að þér
líður vel hjá pabba þínum og Guði.
Við vitum líka að þú verður alltaf hjá
afa, langömmu og okkur öllum líka
því þú sagðir á dánarbeði þínum að
þú ætlaðir alltaf að vera hjá okkur.
Einnig vitum við að þú elskaðir okk-
ur afar heitt eins og við munum alltaf
elska þig og ávallt muna eftir þér.
Hvíl þú í friði, elsku amma.
Kveðja frá hundunum Týru og
Perlu.
Þín barnabörn
Sandra Mjöll, Sigrún
Halldóra og Snorri Heiðar.
Elsku Birna, þú fórst svo skyndi-
lega frá okkur og við söknum þín
ótrúlega mikið, en núna ertu komin á
betri stað. Þú varst svo veik og áttir
ekki skilið að þurfa að þjást eins og
þú gerðir. Núna sjá englarnir um þig
og við hugsum stöðugt til þín. Við
munum bara eftir þér sem yndislegri
og hlýrri manneskju, alltaf jákvæð
og dugleg. Alltaf brosandi. Við hugs-
um líka til allra sem stóðu þér nærri
og sendum þeim stuðning og hlýju.
Einhvern tímann sjáumst við aftur.
Þínar frænkur
Ragna og Kolbrún.
Elsku Birna, ég þakka þér fyrir
samfylgdina og yndislega viðkynn-
ingu.
Hvíl í friði.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Skúli og fjölskylda, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð. Megi guð
styrkja ykkur í sorginni.
Ykkar
Svanhvít.
Okkur langar að skrifa kveðjuorð
til kærrar vinkonu og samstarfs-
manns sem lést langt fyrir aldur
fram eftir stutta og harða baráttu við
krabbamein.
Elsku Birna, það er sárt að sjá á
eftir þér og vita að þú kemur ekki
aftur til okkar í Hagkaup í Kringl-
unni. Þín verður sárt saknað og erfitt
verður að fylla tómið. Við biðjum al-
góðan Guð að blessa og varðveita sál
þína og gefa þér skjól í sínu húsi. Við
þökkum samfylgdina í gegnum árin,
elsku Birna, og biðjum Guð að blessa
og styrkja fjölskyldu þína.
Vinir og samstarfsfólk
í Hagkaupum, Kringlunni,
Guðni Þórisson.
ÓLÖF BIRNA
ÓLAFSDÓTTIR
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
HJÖRLEIFUR GUNNARSSON,
Þúfubarði 11,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði miðviku-
daginn 17. nóvember.
Ingibjörg Ástvaldsdóttir,
Björg Hjörleifsdóttir, Sumarliði Már Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson, Margrét Ósk Guðjónsdóttir,
Guðmundur Rúnar Guðmundsson, Sigríður R. Sigurðardóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
FRIÐÞJÓFUR G. KRISTJÁNSSON
frá Ísafirði,
Langholtsvegi 122,
Reykjavík,
lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi
miðvikudaginn 17. nóvember.
Kristín Jósepsdóttir,
Margrét V. Friðþjófsdóttir, Stefnir Þór Kristinsson,
Sigríður María Friðþjófsdóttir, Tómas Valdimarsson,
Ingibjörg Friðþjófsdóttir
og barnabörn.