Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 27 DAGLEGT LÍF Ég hef lengi veriðhrifinn af arab-ískri tónlist ogá meðan ég dvaldi í Englandi leitaði ég talsvert í arabísk menning- aráhrif,“ sagði Bjarni Helgason, sem er ný- kominn heim eftir árs- dvöl í Englandi þar sem hann stundaði mastersnám í því sem á fagmálinu er kallað „Artist film & video“, eða „myndbanda- list“, svo að reynt sé að íslenska þetta ágæta fagheiti. Bjarni hafði áður lokið prófi í graf- ískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og hélt að því loknu til Englands, þar sem hann stundaði nám við Kent Institude of Art and Design og leigði íbúð í smábænum Maidstone, skammt fyrir austan London. „Þetta var frekar leiðinlegur bær, nán- ast eingöngu íbúðar- hús og hversdags- legar verslanir, en lítið um lista- og menningarlíf,“ sagði Bjarni um „heimabæ“ sinn. Hann kvað þess vegna sér hafa orðið tíðförult til Lund- úna, enda ekki langt að fara. Plötuverslanir og bókabúðir „Vegna áhuga míns á arabísku tónlistinni leit- aði ég uppi arabana í London, og fann þá í hverfi í austur- hlutanum sem heitir Whitechaple. Þar er fræg gata sem heitir Brick Lane þar sem er aragrúi arabískra veitingastaða og verslana og þetta varð ein af uppá- haldsgötunum mín- um í London,“ bætti Bjarni við, en hann hefur einnig fengist við tónlistariðkun og spilar meðal annars í hljómsveitinni Uzi Jakapi, sem hann segir að leiki tilraunakennda tónlist þar sem ýms- um tónlistarstefnum er blandað saman. „Í arabahverfinu gat ég notið arabísku tónlistarinnar og enn- fremur kynnt mér ar- abísk menningaráhrif og trúarbrögð þeirra, islam. Þarna er mikið af plötuverslunum sem bjóða upp á ar- abíska tónlist og í bókabúðunum er hægt að fá arabískar bókmenntir og bækur trúarlest eðlis og þarna keypti ég meðal annars Kóraninn í enskri þýðingu. Einnig eru þarna nýlenduvöruverslanir sem selja mat- vöru, svo sem kjöt, sem unnið er samkvæmt islömskum hefðum.“ London í uppáhaldi Bjarni kvaðst ekki hafa orðið var við neinn óróa í þessu arabíska hverfi þrátt fyrir viðsjárverða tíma í Austurlöndum nær og árekstra milli breskra stjórnvalda og múslima á sviði heimsmálanna. „Lífið þarna virtist ganga mjög eðlilega fyrir sig og ég varð ekki var við að Bretar al- mennt væru að abbast upp á arab- ana sem þarna búa eða öfugt. Lond- on er ekki dæmigerð bresk borg heldur mjög fjölþjóðleg þar sem ýmsir menningarstraumar renna saman. Það er kannski það sem er mest heillandi við hana og London er tvímælalaust ein af mínum uppá- haldsborgum í heiminum. Ég ráð- legg öllum að sækja hana heim og fara í leiðinni í Whitechapel-hverfið og á Brick Lane og drekka í sig ar- abísk menningaráhrif, “ sagði Bjarni Helgason, sem nú starfar sem graf- ískur hönnuður hjá Hvíta húsinu auk þess sem hann sinnir tónlistinni með hljómsveit sinni Uzi Jakapi.  FERÐALÖG | Ein af uppáhaldsgötum Bjarna Helgasonar er Brick Lane í London svg@mbl.is Leitaði uppi arabana Bjarni Helgason í arabískum kufli sem hann keypti á uppáhaldsgötunni sinni, Brick Lane í London. Morgunblaðið/Kristinn Moskan í Whitechapel-hverfinu í Austur-London. Margar ráðleggingar hafafarið á milli fólks ígegnum tíðina um hvað eigi að gefa veiku fólki sem engu heldur niðri. Stundum var ráð- lagt að gefa kóladrykki eða bara vatn og það nýjasta er að gefa börnum með uppköst og niður- gang íþróttadrykk. Kolbrún Einarsdóttir næring- arráðgjafi á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi segir það mjög einstaklingsbundið hvað sé best að gefa fólki sem heldur engu niðri. Þegar fólk er búið að kasta mikið upp sé mikilvægast að gefa því vökva. Mestu skiptir hvað fer vel í hvern og einn og hvernig líðan viðkomandi er. Ef fólk fær ekki vökva í langan tíma er hætta á ofþornun. Margs konar íþrótta- og orku- drykkir eru á boðstólum, en Kol- brún segir þá vera svipaða og gosdrykki nema að ef til vill séu meiri sölt í þeim. Ekki er gott að gefa slíka drykki ef í þeim eru örvandi efni eins og koffein. Ef fólk er með velgju gengur því oft betur að drekka þessa þunnu drykki, en auðvitað er meiri nær- ing í prótein- eða næringar- drykkjum. Í lyfjaverslunum er einnig hægt að fá duft sem er blandað í vatn í ákveðnum hlut- föllum, því í duftinu eru ákveðið hlutfall sykurs og salta. Þessi blanda reynist vel gegn niður- gangi. Kolbrún vildi benda á að venjulega ganga uppköst og niðurgangur yfir á tveimur dög- um. Ef slík veikindi vara lengur er rétt að leita til læknis.  HEILSA | Hvað á að gefa fólki sem er lasið og heldur engu niðri? Best að koma niður þunnum drykkjum Bætiefni á betra verði! Gerið verðsamanburð! Glucosamine byggir upp brjósk í liðum. Það er því mikilvæg hjálp til að viðhalda heilbrigðum liðum. Þú finnur ekki sterkara Glucosamine hérlendis, 1500mg í einni töflu. Nánari upplýsingar á: www.heilsa.is og í bókinni "Glucosamine, Nature´s Arthritis Remedy" (Longevity Res. Ctr. CA) A ð e in s 1 á d a g ! Suðurlandsbraut 32 Sími 577 5775 Fundur eða veisla framundan? útbúum girnilega brauðbakka fyrir stórar veislur sem smáar MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 5171020 Opið: mán. - föstud.11-18 laugard.11-15 Spennandi gjafavörur og húsgögn Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.