Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ SUÐURNES Hafnarfjörður | Umtalsverður ár- angur náðist á síðasta ári í barátt- unni við vímuefnaneyslu ungs fólks í Hafnarfirði, og segir forvarnar- fulltrúi það hafa gefið góða raun að beina forvarnarstarfi að foreldrum barna í grunnskólum bæjarins. Rannsókn og greining gerir ár- lega rannsókn á lífsstíl ungs fólks, og segir Geir Bjarnason, forvarn- arfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, að nýjar niðurstöður rannsóknar sýni að færri unglingar reyki tóbak og drekki áfengi en áður. Hann segir kannanir undanfarinna nokkurra ára hafi sýnt að vímuefnaneysla hafi verið umtalsvert algengari í Hafnar- firði en í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. „Þess vegna var stofnuð hér for- varnarnefnd og þessi mál sett á odd- inn. Síðan ráðfærðu menn sig við sérfræðinga hjá Rannsókn og grein- ingu um hvað væri líklegt til að skila árangri. Við fórum til Ísafjarðar og lærðum af þeim hvað þeir hafa verið að gera, þeir hafa staðið sig rosalega vel. Niðurstaðan var sú að einbeita okkur að foreldrunum, það væri leið- in okkar,“ segir Geir. Skólar og félagsmiðstöðvar vinna gott starf með börnunum, en það vantaði einhverskonar foreldrasam- starf og foreldrafræðslu, segir Geir. „Við höfum einbeitt okkur að öllum foreldrum, við erum ekki bara að horfa á foreldra barna í unglinga- deild, heldur er forvarnargildið svo mikið ef við erum með foreldra 10 til 12 ára barna.“ Hægt að skoða eftir hverfum Geir segir að niðurstöður rann- sóknarinnar, sem Rannsókn og greining vann í bænum, hafi einnig fengist sundurliðaðar fyrir hvert skólahverfi, sem gefi mikla mögu- leika til að taka á ákveðnum vanda- málum sem koma upp í einstökum hópum í ákveðnum hverfum, en eru ef til vill frekar lítið hlutfall þegar heildin er metin. Meðal þess sem gert var á liðnu ári var að standa fyrir svokölluðu foreldrarölti, þar sem hópur foreldra gengur um hverfið að kvöldi til, kannar hvar unglingarnir eru, hvað þeir eru að gera og ræðir við þá, og lætur jafnvel lögreglu vita ef eitt- hvað er að. „Þetta gera menn flest föstudagskvöld, og þetta hefur haft mjög jákvæð áhrif. Ekki bara til að fæla krakkana burt, heldur bara efla samtakamátt foreldra. Foreldrarnir tala saman um það sem skiptir máli.“ Einnig hafa verið haldnir for- eldrafundir í skólunum þar sem fulltrúar frá félagsmiðstöðvum, námsráðgjafar og lögregla hitta for- eldra og ræða málin og halda fræðslukvöld. Geir segir að einnig hafi innra starfið í sveitarfélaginu aukist, og reynt sé að ýta undir þverfaglega vinnu allra aðila sem koma að mál- efnum unglinga, svo sem lögreglu, félagsþjónustu, skóla og félagsmið- stöðva. „Þessir aðilar hittast og ræða málin, finna hvar er pottur brotinn og beina einhverjum aðgerð- um til að laga málin. Það er ekki nóg að benda bara á vandamálin, það þarf líka að gera eitthvað.“ Hann segir þessa aðila hafa úrræði til að bregðast við og nota þau markviss- ara í samráði hver við annan. Samt yfir meðaltali Þrátt fyrir þetta starf eru hafn- firskir unglingar yfir meðaltali á höf- uðborgarsvæðinu í mörgum flokk- um, og segir Geir að halda verði áfram því góða starfi sem unnið hafi verið af sama krafti til að minnka enn frekar notkun vímuefna meðal unglinga. Hann segir að í samráði við Rannsóknir og greiningu hafi verið ákveðið að breyta ekki aðferð- unum sem hafi virkað svo vel heldur halda áfram að beita þeim mark- visst. Ekki sé hægt að segja hvað af því sem gert sé virki best og því þurfi að halda óbreyttu starfi, en þó sníða agnúa af og bæta við þar sem þarf. MEÐAL þess sem kemur fram í rannsókn á vímuefnaneyslu ungmenna í Hafnarfirði er að mun færri stelpur í 10. bekk höfðu orðið ölvaðar síðasta mánuðinn áður en könnunin var gerð. Árið 2003 sögðust 48% stúlkna hafa orðið ölvaðar síðasta mánuðinn, en árið 2004 hafði sú tala lækkað um rúm- lega helming og var 23%. Engin breyting varð á drykkju stráka í 10. bekk, 25% sögðust hafa orðið ölvaðir síðasta mánuðinn í könnuninni í ár, sem er sama tala og í fyrra. Fjöldi þeirra sem reykja daglega er á niðurleið, 14% stráka í 10. bekk reykja daglega, en í könnuninni 2003 sögðust 21% reykja. Alls 16% stelpna í 10 bekk sögðust reykja, sem lækkar úr 18% í fyrra. Tölurnar í Hafnarfirði eru þó talsvert hærri en meðaltalið á höfuðborgarsvæðinu, en það er 10% hjá strákum en 14% hjá stelpum. Stelpurnar drekka minna Náðu góðum árangri í baráttunni gegn tóbaks- og vímuefnaneyslu unglinga Einbeita sér að foreldrunum Morgunblaðið/Sverrir Forvarnir Góða raun hefur gefið að beina forvarnarstarfi ekki bara að for- eldrum barna í unglingadeild heldur einnig að þeim sem eiga yngri börn. Barnadagur | Laugardagurinn 20. nóvember verður sannkallaður barnadagur í Gerðubergi, og hefst hann kl. 13.30 með því að opnuð verður sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum sem komið hafa út á árinu. Sýndar verða myndir úr 40 bókum eftir 27 myndskreyta, og fá börnin að velja þá myndskreytingu sem þeim þykir best. Sýningin stendur fram til 9. janúar. Á laugardaginn munu einnig fjöl- margir barnabókahöfundar lesa fyrir börnin upp úr bókum sínum, og Benedikt búálfur mun sjá um kynninguna. Allir eru boðnir vel- komnir, og er aðgangur ókeypis. Hafnarfjörður | Superbygg, lág- vöruverðsverslun með byggingar- vörur, var opnuð í Bæjarhrauni 8 í Hafnarfirði á dögunum. Að sögn Steinars Árnasonar, eins eiganda verslunarinnar, er hér á ferðinni ný hugsun í sölu byggingarvara; stað- greiðsluverslun þar sem leitast verð- ur við að bjóða ávallt lægsta verðið. „Við munum kappkosta við að vera alltaf með lægsta verðið og það er eitt verð fyrir alla, það eru engir afslættir, allir fá sama verðið,“ segir Steinar. Hann segir að vöruúrvalið eigi eftir að þróast en nú þegar býð- ur verslunin ágætis úrval af verk- færum, og sitt lítið af hverju í gólf- efnum og málningu svo eitthvað sé nefnt. „Við erum með flest allt sem húsbyggjandi þarf.“ Hann segir að viðbrögð viðskipta- vina hafi verið mjög góð. Verslunin hafi enn verið lítið kynnt en það standi til bóta. Þá segir hann fram- tíðarhugmyndina vera að opna sam- bærilega verslun í Reykjavík. Lágvöruverðs- verslun með byggingavörur ♦♦♦ Vogar | Hreppsnefnd Vatnsleysu- strandarhrepps hefur ákveðið að ganga til samninga við Trésmiðju Snorra Hjaltasonar hf. um byggingu þriggja fjölbýlishúsa við Heiðargerði og um framkvæmdir við Miðdal og Heiðadal. Í skipulagi er gert ráð fyrir þrem- ur blokkum með alls 28 íbúðum á lóð gömlu bensínstöðvarinnar í Vogum. Kristján Baldursson, tækni- og um- hverfisstjóri Vatnsleysustrandar- hrepps, segir að stöðug eftirspurn sé eftir lóðum og húsum í Vogum, ekki síst minni eignum sem ekki séu margar í þorpinu. „Það er greinilegt að fólk vill flytja hingað og er það vel,“ segir Kristján. Eftir að leitað var til nokkurra byggingaverktaka ákvað hrepps- nefnd á síðasta fundi sínum að ganga til samninga við Trésmiðju Snorra Hjaltasonar hf. um úthlutun lóðar- innar. Býst Kristján við að fyrst verði byggðar tvær blokkir. Rífa þurfi gömlu bensínstöðina sem nú er notuð sem félagsmiðstöð unglinga áður en framkvæmdir við þá þriðju hefjast. Í samþykkt hreppsnefndar felst einnig að samið verður við Tré- smiðju Snorra um framkvæmdir við Miðdal og Heiðadal. Þar er gert ráð fyrir 24 einbýlishúsum en Kristján segir að það geti átt eftir að breytast enda verði gengið endanlega frá deiliskipulagi í samvinnu við verk- takann. Fyrirhugað að byggja þrjú fjölbýlis- hús í Vogum og byggja tvær götur Fjölgun Verulega fjölgar í Vogum þegar byggð verða þrjú fjölbýlishús. Gengið til samninga við Snorra Hjaltason Keflavík | Fimmtíu ára afmælis Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja var minnst í gær. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpaði gesti á afmælishátíð sem fram fór í sjúkrahúsinu í Keflavík. Afmælisins var minnst með ýms- um hætti. Í gærmorgun komu starfsmenn saman á lóðinni við sjúkrahúsið og sungu afmælissöng- inn. Í ávarpi á afmælishátíðinni minntist Konráð Lúðvíksson lækn- ingaforstjóri á að leiðin hefði ekki alltaf verið greiðfær fyrir Heilbrigð- isstofnunina en nú stæðu menn býsna keikir eftir áföllin og þakkaði það samstöðu starfsfólksins. Stjórnendur og starfsfólk veittu viðtöku fjölda gjafa og listaverkið Askur Yggdrasils eftir Erling Jóns- son var afhjúpað. Er það gjöf frá iðnaðarmönnum á Suðurnesjum. Verkinu hefur verið komið fyrir í „Mímisbrunni“ framan við elstu byggingu spítalans, sem byggð var fyrir fimmtíu árum. Þá afhenti stjórn Styrktarfélags Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja stofnuninni að gjöf fánastöng og minningarstein til minningar um Kristján Sigurðsson yfirlækni og Valgerði Halldórsdóttur konu hans en hún var fyrsti formaður Styrktar- félagsins. Kristján var yfirlæknir sjúkrahússins á árunum 1971 til 1992 og byggði mjög upp starfsemi þess. Afkomendur þeirra afhjúpuðu minningarsteininn ásamt stjórn Styrktarfélagsins. Síðan var opið hús og Suðurnesja- mönnum boðið að þiggja léttar veit- ingar í húsakynnum Heilbrigðis- stofnunarinnar. Stöndum núna býsna keik eftir áföllin Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Afhjúpun Afkomendur Kristjáns Sigurðssonar og Valgerðar Halldórs- dóttur afhjúpuðu minningarstein framan við sjúkrahúsið í Keflavík. Afmæli Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var í hópi fjölda gesta sem viðstaddir voru fimmtíu ára afmælishátíð HSS í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.