Morgunblaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 61
„ÉG ER mjög ánægður með þennan disk og það
eru margir sem segja að þetta sé það allra besta
sem ég hef gert á ferlinum,“ segir Ragnar
Bjarnason söngvari, en nýja platanhans er nú
kominn út og ber heitið Vertu ekki að horfa, sem
er tilvísun í eitt vinsælasta lag íslenskrar dæg-
urtónlistarsögu fyrr og síðar. Platan spannar
hálfrar aldar söngferil Ragnars, gömul lög og ný
í bland og ferskar og nýjar útsetningar á flestum
laganna.
Röddin á sínum stað
„Er þetta ekki bara ágætlega sungið af karli
sem orðinn er sjötugur?“ spyr Raggi glaðbeittur
þegar hann hefur spilað plötuna fyrir blaða-
mann, sem verður að játa að þetta er stórvel gert
hjá karlinum. Röddin er á sínum stað, ekki síðri
en áður og mýkri ef eitthvað er. „Röddin hefur
auðvitað þroskast með árunum eins og maður
sjálfur og það eru engin læti í þessu.“
Platan hefst á rytmískri salsasveiflu í anda
Milljónamæringanna, enda eru þeir félagar
mættir þarna ásamt Bjarna Ara og í kórnum eru
gamlir félagar úr Sumargleðinni. Lagið heitir
„Hvað ertu að pæla“ og það vekur strax athygli
hversu góður hljómur er á þessari upptöku, sem
reyndar er raunin með öll lögin á plötunni. “Ég
vildi endilega hafa Millana með í þessu, enda er
ég þeim mjög þakklátur fyrir að hafa haft mig
með í því sem þeir eru að gera, á böllum og svo-
leiðis,“ segir söngvarinn.
Næst er gamalkunnugt lag í nýrri útsetningu,
„Nótt í Moskvu“. „Helle konan mín stakk upp á
því að hafa þetta lag með svona ekta rússneskum
kósakkatakti, og mér finnst það koma mjög vel
út,“ segir Ragnar og blaðamaður er honum alveg
sammála, lagið er miklu flottara svona en í gömlu
útsetningunni og félagar úr Karlakórnum Fóst-
bræðrum, setja afar skemmtilegan svip á lagið.
Nýtt lag
„Svo er hérna nýtt lag eftir mig við ljóð eftir
föðurbróður minn, Ágúst Böðvarsson, „Móð-
urást“. Hann samdi það til móður sinnar, sem
var amma mín, og mér fannst ljóðið svo frábært
að ég ákvað að semja lítið lag við það.“
„Úti í Hamborg“ er lag sem Raggi söng á sín-
um tíma með Jóni bassa Sigurðssyni. Hér er það
Bogomil Font sem syngur með, enda útsetti
hann lagið, einkar skemmtileg útsetning í suð-
rænum rytma.
Svo kemur „Heyr mína bæn“, sem Ragnar
setti á plötuna til minningar um Ellý Vilhjálms.
Guðrún Gunnarsdóttir syngur með honum og
Borgardætur eru í bakgrunni. Alveg einstaklega
fallegt og vel flutt í þessari útgáfu og vel við hæfi
að minnast Ellýjar með þessum hætti. „Mér þyk-
ir vænt um að geta minnst Ellýar með þessum
hætti enda vorum við góðir vinir,“ segir Ragnar
um þetta lag.
Næst kemur gamall rokkari, „Rockin Robin“,
við íslenskan texta Kristjáns Hreinssonar og ber
heitið „Flottur jakki“, sem helgast af því að text-
inn fjallar um tweed-jakka sem fellur skemmti-
lega að upprunalega enska textanum. Jón bassi
útsetti lagið í anda hinnar klassísku rokk-
tónlistar. „Ég spurði Sigga Flosa hvort hann
spilaði á piccolo-flautu og hann sagðist vera með
eina úti í bíl. Svo kom hann með flautuna og spil-
aði þessa frábæru sóló í einni töku,“ segir Raggi
um stórskemmtilega flautusóló Sigurðar Flosa-
sonar í þessu lagi.
Í næsta lagi syngur Raggi dúett með Silju
Ragnarsdóttur, eiginkonu Bjarna Ara, sem er
hér að syngja inn á sína fyrstu plötu, en þetta er
gamli dúettinn þeirra Bings Crosby og Grace
Kelly í laginu „True love“, sem hér heitir
„Treystu á mig“.
Svo kemur gamli smellurinn hans Ragga,
„Komdu í kvöld“, í svingaðri útsetningu tríós
Bjössa Thor, en með honum er Jón Rafnsson á
bassa og á trommunum er gamli félaginn úr KK-
sextettinum, Guðmundur „papa jazz“ Stein-
grímsson. Raggi syngur þetta lag einstaklega vel
í þessari útsetningu og blaðamaður hefur orð á
því. „Já, þetta er bara afslappað og hreint og
beint, ekkert vesen í kringum sönginn eða út-
setninguna,“ segir söngvarinn og við vindum
okkur í næsta lag, „Capri Katarína“, sem Raggi
segist hafa sett á plötuna í minningu Hauks
Morthens. „Ég heyrði fyrst í Hauki þegar ég var
níu ára, hann var þá nítján og söng með hljóm-
sveitinni hans pabba á Borg í Grímsnesi. Upp frá
því urðum við Haukur vinir og mig langaði til að
heiðra minningu hans á þessari plötu.“
Næst er það „Lítið barn“, sem Ragnar samdi
við ljóð Steins Steinarr. Hér er það í nýrri út-
setningu Þóris Baldurssonar og félagar úr
Karlakórnum Fóstbræðrum syngja með. „Ég er
mjög ánægður með þessa útsetningu Þóris.
Þetta er líklega besta útsetning sem gerð hefur
verið af þessu lagi og þarna kemur inn í millispil,
sem ég hafði samið en var búinn að stein-
gleyma.“
Lag sem fylgdi pabba
Gamli Dean Martin-slagarinn „Sway“ er
hérna líka undir nafninu „Svífðu með“, þar sem
Páll Óskar syngur með Ragnari. Virkilega fag-
mannlega gert hjá þeim báðum og flott undirspil.
Svo eru það þjóðþekkt lög úr smiðju Ragga sjálfs
frá fyrri tíð, „Vor við flóann“, „Vorkvöld í
Reykjavík“ og „Vertu ekki að horfa svona alltaf
á mig“. Tvö síðastnefndu lögin eru í svipaðri út-
setningu og fyrir 40 árum. „Ég fékk Adda Schev-
ing til að skrifa þessi lög í svipuðum útsetningum
og í „den“ enda held ég að þau virki ekki öðru-
vísi,“ segir söngvarinn um þessa gömlu „smelli“
sína.
Á þessari nýju plötu eru einnig tvær eldri upp-
tökur, lag eftir Gunnar Þórðarson sem hljóðritað
var árið 1981, „Ljúfa langa sumar“, og loks „Við
bjóðum góða nótt“, lag Bjarna Böðvarssonar við
texta Ágústs bróður hans. „Þetta lag fylgdi
pabba alla tíð, hann endaði öll sín böll með þessu
lagi og ég gerði það svo líka allan þann tíma sem
ég var með eigin hljómsveit,“ segir Raggi og er
greinilega sáttur við útkomuna í heild. „Það er
mikil fjölbreytni á þessari plötu og þótt sum lag-
anna hafi hljómað árum saman eru þau hér flest
endursungin í nýjum og ferskum útsetningum.
Þetta eru allt lög sem skipta mig miklu máli og
ég hef sterkar taugar til, enda hafa þau fylgt mér
í gegnum ferilinn.“
Tónlist | Ný plata Ragnars Bjarnasonar, Vertu ekki að horfa, er komin út
Lög sem skipta mig miklu máli
Morgunblaðið/Eggert
Ragnar Bjarnason hélt nýverið upp á tvöfalt afmæli; sjötugsafmæli og hálfrar aldar söng-
afmæli og fagnaði með vel heppnaðri söngskemmtun á Broadway.
svg@mbl.is