Morgunblaðið - 18.12.2004, Page 20
20 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
YFIRTAKA Íslandsbanka á Bolig-
og Næringsbanken ASA, eða
BNbank, í Þrándheimi í Noregi er
nú að komast í höfn. Eigendur
meira en 90% hlutafjár í bank-
anum hafa samþykkt yfirtöku-
tilboð Íslandsbanka upp á 340
norskar krónur á hvern hlut.
Bjarni Ármannsson forstjóri Ís-
landsbanka hefur dvalið lang-
dvölum í Noregi síðustu mánuði og
borið hitann og þungann af bæði
yfirtöku á BNbank og Kred-
ittbanken í Álasundi, en þeirri yf-
irtöku lauk 30. nóvember. Íslands-
banki hefur í kjölfarið skilgreint
bæði Noreg og Ísland sem sína
heimamarkaði.
Hvað er eftirsóknarvert við
BNbank?
„Það er eftirsóknarvert fyrir Ís-
landsbanka að vaxa á áhugaverð-
um svæðum utan Íslands því vaxt-
armöguleikar innanlands eru
takmarkaðir. Íslandsbanki hefur
þó á undanförnum tveimur árum
nýtt sér ýmsa áhugaverða mögu-
leika innanlands eins og að kaupa
Sjóvá Almennar tryggingar hf.,
auka samþættingu í fjármálaþjón-
ustu og nú síðast framsókn á hús-
næðislánamarkaðnum. Við höfum á
síðustu sex árum byggt upp al-
þjóðlega starfsemi, upphaflega
með áherslu á sjávarútveg en út-
víkkuðum hana síðan yfir í áherslu
á matvælamarkaðinn. Við höfum
sótt inn á Norðurlöndin, einkum
Noreg og Danmörku, og sett upp
útibú í London og Lúxemborg í
þessum tilgangi. Það er ljóst að til
þess að ná meiri markaðshlutdeild
þurfum við sterkari stöðu inni á
viðkomandi mörkuðum. Okkur hef-
ur litist einna best á norska mark-
aðinn, bæði vegna þess að menn-
ingarlega og í háttum, þá hentar
það okkur vel að eiga viðskipti við
Norðmenn og þeirra efnahagur
byggist eins og okkar að verulegu
leyti á nýtingu náttúruauðlinda.
Þess vegna er mikið af þeim fjár-
festingum sem þar er ráðist í okk-
ur kunnuglegar.
Með það að markmiði að dreifa
okkar áhættu og skjóta frekari
stoðum undir rekstur Íslands-
banka þá höfum við skilgreint
Noreg og Ísland sem heimamark-
aði bankans. Með þessa stefnu að
leiðarljósi fórum við í það fyrr á
árinu að kaupa Kredittbanken í
Álasundi í Noregi. Þar með erum
við komin með bankastarfsemi í
höfuðstað norsks sjávarútvegs sem
er einnig sterkt útflutningssvæði.
Við erum að sækja fram bæði á
starfssvæði bankans og sömuleiðis
um allan Noreg í þeim þáttum sem
lúta að sjávarútvegi, olíuiðnaði og
skipasmíðum. Á hinn bóginn vild-
um við í framhaldinu styrkja okk-
ar stöðu almennt í Noregi, bæði á
fyrirtækjamarkaði og á ein-
staklingsmarkaði. BNbank er
mjög áhugaverður banki með við-
skiptamódel sem svipar á margan
hátt til Íslandsbanka að því leyti
að bankinn er rekinn á hag-
kvæman hátt og áhersla lögð á
lágan rekstrarkostnað. Hann hefur
aðgang að ódýru lánsfé og hefur
byggt upp langtímaviðskipta-
sambönd.“
Af hverju hefur hann aðgang
að ódýru lánsfé?
„Það er einkum vegna þess
trausts sem bankinn hefur áunnið
sér og helgast af því að bankinn,
sem stofnaður var árið 1961, hefur
verið rekinn með hagnaði á hverju
ári frá stofnun hans. Þetta hefur
auðvitað skapað bankanum ákveð-
ið orðspor og þess vegna nær
hann að fjármagna sig hagkvæmt
á markaði og með innlánum í Nor-
egi.
Kaupin á BNbank veita okkur
tækifæri til að útvíkka þjónustuna
enn frekar og nýta BNbankann,
sem er fjórði stærsti viðskipta-
banki í Noregi, sem grunn til að
vaxa á. Með þessum kaupum er
Íslandsbankasamstæðan komin í
hóp leiðandi banka í Noregi og
ætlar sér að vera leiðandi þátttak-
andi á þeim markaði eins og hér á
Íslandi.“
Þú talar um lágan rekstr-
arkostnað. Er þetta lággjalda-
banki?
„Kostnaðarhlutfall bankans er
30%. Það er lykilatriði fyrir heild-
sölubanka eins og BNbanka sem
er ekki með víðtækt útibúanet og
aðeins með 85 stöðugildi að geta
boðið upp á viðskiptamódel sem
stenst samkeppni við aðra við-
skiptabanka og helstu fjárfesting-
arbanka. Bankinn nýtur hag-
kvæmrar fjármögnunar og
viðhefur skjót og sveigjanleg
vinnubrögð og lagar sig að þörfum
viðskiptavinarins. Það má segja að
viðskiptavinirnir viti mjög vel að
hverju þeir ganga. Það eykur ör-
yggi þeirra og vellíðan.“
Hvernig kom það til að þið
keyptuð BNbank, en ekki ein-
hvern annan banka?
„Það má segja um norska mark-
aðinn að hann sé ekki ósvipaður
þeim íslenska. Þarna eru nokkrir
bankar sem eru ráðandi á mark-
aðnum, til að mynda þá er DNB
Nor sem er stærsti bankinn með
hátt í 50% markaðshlutdeild á lyk-
il-markaðssvæðum. Svo eru er-
lendir bankar á markaðnum og
sparisjóðir á afmörkuðum starfs-
svæðum sem keppa. BNbankinn er
í raun eini óháði bankinn í Noregi
og þess vegna er afar mikilvægt
að ná að kaupa hann, því aðkoma
á norska markaðinn er á margan
hátt að lokast.“
En var enginn samkeppni um
kaup á bankanum?
„Það var einn leiðandi hluthafi í
BNbanka, Sparbanken Øst, en
hann hafði tæplega fjárhagslegt
bolmagn til að gera þá hluti sem
við erum að gera nú. Það náðust
samningar um að Íslandsbanki
myndi kaupa þeirra eignarhlut, um
20%, í kjölfarið keyptum við svo
um 10% á markaði. Þegar við til-
kynntum um yfirtökutilboðið þá
átti Íslandsbanki rétt tæplega 30%
í BNbanka, og við þær aðstæður
er mjög erfitt fyrir aðra aðila að
koma með gagntilboð, í raun úti-
lokað. En við þurftum að gefa að-
eins í, þ.e. hækka verðið um 6%, í
tilboðsferlinu til að fá hluthafa að
borðinu.“
Hefur yfirtakan valdið óróa á
norska markaðnum?
„Almennt hefur okkur verið
mjög vel tekið í Noregi og á þess-
um svæðum þar sem þessir bankar
okkar eru hefur okkur verið sér-
staklega vel tekið, bæði af almenn-
ingi og af viðskiptalífinu. Það er
okkar mat og skoðun að það þurfi
að vinna svona mál í náinni sam-
vinnu við hagsmunaaðila á hverju
svæði og við þurfum að leggja eitt-
hvað á okkur til að verða hluti af
því umhverfi sem við viljum starfa
í. Og það erum við tilbúnir að
gera.“
Hvernig verður BNbank rekinn
– eru einhverjar breytingar í far-
vatninu?
„Við höfum óskað eftir því við
daglega stjórnendur að þeir haldi
áfram að reka bankann út frá
þeirri grunnstefnu sem verið hef-
ur. Við höfum áhuga á að auka
vöruframboðið og nýta fjárhags-
legan styrk samstæðunnar og að-
gang að alþjóðlegum lánamörk-
uðum til að skapa frekari
verðmæti í Noregi.“
Hvernig verður yfirtökunni
háttað í framhaldinu?
„Eigendur meira en 90% hluta-
fjár hafa samþykkt yfirtökutilboð
okkar í bankann. Við erum búnir
að framlengja tilboðsfrestinn fyrir
aðra hluthafa um tvær vikur, en
eftir það verða þeir hlutir sem eft-
ir standa innkallaðir. Það að hafa
náð 90% markinu var mjög mik-
ilvægt skref og þýðir að við getum
eignast bankann að fullu með inn-
lausn hluta. Kaupin eru svo auðvit-
að háð samþykki fjármálayfirvalda
hér heima og í Noregi.“
Hvernig ráðið þið við þessa
fjárfestingu – hvaðan koma pen-
ingarnir?
„Þessi kaup hefðu ekki verið
gerleg nema með stuðningi hlut-
hafa Íslandsbanka. Við fórum í
hlutafjárútboð í lok nóvember þar
sem við sóttum ríflega 10,5 millj-
arða út á markaðinn og það er
ljóst að dýpt íslenska hlutabréfa-
markaðarins hefur vakið mikla at-
hygli í Noregi. Það er klárlega
samkeppnislegt atriði hve aðgang-
ur að áhættufé í gegnum hluta-
bréfamarkaðinn er góður á Ís-
landi. Í morgun [í gærmorgun]
hófst hlutafjárútboð með áskrift-
arfyrirkomulagi til forkaupsrétt-
arhafa þar sem hluthöfum er gef-
inn kostur á að kaupa á sama
verði og við seldum á í lok nóv-
ember og við ætlum sem sagt að
fjármagna kaupin með þessari eig-
infjáraukningu og útgáfu víkjandi
skuldabréfa á alþjóðamarkaði.“
Genguð þið að því sem vísu að
þið gætuð aflað fjár með þessu
hætti?
„Það er ekkert borðleggjandi í
þessum efnum, en við teljum okk-
ur vera í ágætis samskiptum við
markaðinn og við treystum okkar
dómgreind í því hvað gangi upp og
hvað ekki. En það er aldrei á vísan
að róa í sjálfu sér. En við rekstur
á fyrirtæki verður stjórnandi að
treysta á dómgreind sína og í
þessu tilfelli töldum við okkur vera
með það góð kaup í höndunum að
við gætum farið til okkar hluthafa
og óskað eftir peningum sem fælu
í sér aukinn hagnað og styrkingu á
efnahagsreikning samstæðunnar.“
Í ljósi þess að þið þurftuð að
hækka tilboðsverð ykkar – var
þetta dýrt fyrir ykkur?
„Niðurstaðan er viðunandi,
hækkunin var um 6% og við telj-
um okkur geta unnið vel út úr
þessari stöðu sem við erum komin
í þannig að úr þessu verði áhuga-
verð tækifæri.“
Verður BNbank áfram skráður
í norsku kauphöllina?
„Bankinn verður afskráður úr
norsku kauphöllinni. En í ljósi
þess að Íslandsbanki verður með
meiri útlán til Noregs en Íslands
eftir þessi kaup, þá munum við
skoða möguleikann á að skrá Ís-
landsbanka í norsku kauphöllina
samhliða skráningunni á Íslandi.
Við teljum að það geti gefið okk-
Dýpt markaðarins hefur
vakið mikla athygli
Morgunblaðið/Jim Smart
Noregur og Ísland heimamarkaðir Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka segir að það henti Íslendingum vel að
eiga viðskipti við Norðmenn. „Efnahagur þeirra byggist eins og okkar að verulegu leyti á nýtingu náttúruauðlinda.“
!!"
# $% &$'"
DANSKA kauphöllin hefur hafið
rannsókn á hvort hinir nýju íslensku
eigendur að Magasin hafi gert ólög-
legt samkomulag við Magasin du
Nord-sjóðinn sem seldi þeim stóran
hlut í eignarhaldsfélagi Magasin,
Wessel & Vett.
Íslensku kjölfestufjárfestarnir,
Baugur, Straumur og B2B, hafa
fengið einn mánuð til að sýna fram á
orðspor sitt sem „góðir kaupmenn“,
að því er segir í Jyllands-Posten.
Í fyrstu stóru viðskiptum sínum
hjá verslunarkeðjunni tókst Íslend-
ingunum að hagnast um 175
milljónir danskra króna eða
rúmlega þriðjung kaupverðsins sem
þeir greiða fyrir Th. Wessel & Vett.
Þau viðskipti kölluðu á viðbrögð
eins af smærri hluthöfum í félaginu
til að vara aðra hluthafa við því að
selja Íslendingunum hlutabréf á því
verði sem stóru hluthafarnir sam-
þykktu fyrir rúmum mánuði. Þá hef-
ur eignamiðlari nokkur frá Esbjerg
lagt fram kvörtun til Kauphallarinn-
ar í Kaupmannahöfn vegna þess að
Magasin du Nord-sjóðurinn hafi,
gagnstætt öllum öðrum hluthöfum,
haft möguleika á að setja skilyrði
um sölu á 13,5% hlut sínum í félag-
inu.
Skilyrðin voru þau að sjóðurinn
yrði stór hluthafi í félaginu sem nú á
fasteignina sem Magasin du Nord
er í, við Kóngsins nýja torg í Kaup-
mannahöfn.
Magasin-viðskipt-
in rannsökuð
Morgunblaðið/Ómar
Fasteignin dýra Íslensku fjárfest-
arnir í Magasin hafa nýtt sér endur-
kauparétt á fasteigninni á Kóngsins
nýja torgi.