Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 55

Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 55 UMRÆÐAN þú þekkir Canon A400 Fullkomin vasamyndavél Hentar afar vel byrjendum en hún er með 3.2 milljón punkta/pixla myndflögu þannig að þú getur prentað út myndir í allt að A4 stærð. • 2,2x aðdráttarlinsa. • 3,2 milljón punktar/pixlar. • Allt að 3 mín. myndskeið með hljóði. • Direct Print. Verð 22.900 kr. Canon PowerShot A75 Auðveld en öflug Canon PowerShot A75 er auðveld í notkun en þó fullbúin til að takast á við krefjandi myndatökur. Með 3.2 milljón punkta/pixla myndflögu þannig að þú getur prentað út myndir í allt að A4 stærð. • 3x aðdráttarlinsa. • 3,2 milljón punktar/pixlar. • Fjölmargar tökustillingar. • Allt að 3 mín. myndskeið með hljóði. • Direct Print. Verð 29.900 kr. Canon Ixus 500 Ber af í öllum skilningi Ixus 500 er glæsilega hönnuð fimm milljón punkta/pixla vél sem býr yfir háþróaðri tækni. Um er að ræða yfirburða stafræna myndavél þar sem Digic myndflagan frá Canon skilar frábærum myndgæðum. • 3x aðdráttarlinsa og 9-punkta AiAF sjálfvirkt fókuskerfi. • 5 milljón punktar/pixlar. • Skynjari sem nemur hvernig vélin snýr og birtir myndirnar réttar við endurspilun. • Allt að 3 mín. myndskeið með hljóði. • Direct print. Verð 44.900 kr. Listaverð 49.900 kr. Canon ip2000 Flottur, hraðvirkur og auðveldur Canon ip2000 er með tveggja hylkja kerfi og prentar allt að 20 bls. á mín. í sv/hv og 15 bls. á mín. í lit. Hann er með allt að 4800x1200 punkta upplausn og býður upp á rammalausa prentun – blæðing. • Arkamatari fyrir 150 bls. • Kemur með tveimur pappírsbökkum. • Microfine Droplet tækni sem stuðlar að lægri rekstrarkostnaði og meiri gæðum. Verð 10.900 kr. Canon ip4000 Hraðvirkur fyrir heimilið Frábær alhliða prentari sem gefur framköllunarþjónustum ekkert eftir þegar kemur að ljósmyndaprentun. • Innbyggð ,,duplex" tækni og CDR/DVD diskaprentun. • 4800x1200 dpi upplausn og 2pl prentstútar. • Prentar allt að 25 bls. á mín. í sv/hv og 17 bls. í lit. • Fjögurra hylkja Single Ink kerfi sem gerir hann mjög sparneytinn. Verð 22.900 kr. Söluaðilar um land allt www.nyherji.is/canon Af hverju átt þú að kaupa Canon stafræna myndavél og prentara? Canon hefur í yfir 60 ár verið leiðandi í heiminum á sviði mynd- og prentlausna. Mikil þekking og reynsla þar sem gæði eru ávallt í fyrirrúmi. Mikið af hugbúnaði fylgir með myndavélum og prenturum. Með Direct Print er hægt að prenta beint úr stafrænni myndavél án þess að nota tölvu. N Ý H E R J I / 2 0 2 5.000 kr Þú sparar Þú spara r NÚ Í atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning sjómanna er sjómönn- um nauðsynlegt að bera saman samn- inginn sem kjósa á um og gamla samninginn. Við þann samanburð kemur ýmislegt í ljós sem er sjó- mönnum mjög óhagstætt, svo ekki sé meira sagt. Sjómenn skulu hugsa vel sinn gang og ekki láta fagurgala for- ystumanna sinna villa sér sýn. Fyrir það fyrsta eru mönnunarákvæði samningsins röng og einungis til þess gerð að lækka skiptaprósentuna svo um munar eða allt að 25–30% tekju- lækkun. Í flestum veiðigreinum er mönn- unin færð upp um 1–3 menn frá raun- mönnun, það er að segja frá gerð- ardómi frá því fyrir 4 árum þegar lög voru sett á sjómenn. En þessi ákvæði voru rétt þar. Þetta er eingöngu gert til að lækka skiptaprósentuna og þar með til lækkunar á launum. Þegar fækkað er um menn á skipi leggst meiri vinna á þá sem eftir eru og er nú nóg samt. Þetta á nú útgerðin að fá allt í sinn hlut á kostnað áhafnar (fækkun + aukin vinna). Eru sjómenn tilbúnir að stórlækka í launum (með tveimur undantekn- ingum) til að þóknast mönnum sem telja það aðalmarkmið kjarasamn- ings að semja um hvað sem er eins og bréf forustumanna til sjómanna ber með sér? En þeir telja eins og stend- ur í bréfinu frá þeim að eitt af meg- inmarkmiðum samningsins sé að semja til að útgerðarmenn geti ekki sagt að erfitt sé að ná samningum við sjómenn. Hvenær hefur verið auðvelt að ná samningum þegar tekist er á um pen- inga? Í bréfi því sem félagsmenn FFSÍ fengu er mikið talað um lélega afkomu útgerðar, er það orðið hlut- verk forustumanna stéttarfélaga að gæta hagsmuna viðsemjenda um- fram hagsmuna sinna félagsmanna. Fljótt á litið er eitt það jákvæðasta í samningnum aukin lífeyrisréttindi, en þegar að er gáð borgum við þau að fullu úr eigin vasa. Hækkun á orlofi eftir 10–15 ár hjá sömu útgerð, hvað skyldu margir falla undir þann flokk? Hækkun í sjúkrasjóð er tekin beint af launum sjómanna. Hvað stendur þá eftir? Uppsagnarákvæði samningsins eru lítils virði þar sem útgerðarmenn eru farnir að láta áhafnir sínar skrifa undir tímabundna ráðningarsamn- inga, jafnvel 2–3 á ári eins og dæmin sanna. Ekkert af rétttindum sjó- manna fylgir þeim á milli skipa. Við erum alltaf eins og viðvaningar sem kunnum ekkert til verka ef við skipt- um um skipspláss, þrátt fyrir jafnvel áratugareynslu. Ofan á lækkun á skiptaprósentu vegna mönnunarákvæðis samnings- ins (fækkun í áhöfn) bætist lækkun á skiptaprósentu vegna nýrra skipa um 10% en þá fer hún úr 29,5% í 26,16% + lækkun um 0,9% samtals 25,9%. Síðan fækkun á mönnum úr 12 í 9 menn, það þýðir lækkun um 4,8% þá er skiptaprósentan komin í 21,1%. Er þá komin lækkun úr 29,5% í 21,1% það er hægt að finna fleiri svona dæmi í þessum samningi. Með hlið- sjón af þessu er það sem stendur í bréfi sem sent var frá forustumönn- um okkar með samningnum til sjó- manna hreinlega ósatt. Ofan á þetta bætist möguleiki til að semja um lækkun á skiptaprósentu tímabundið eða ótímabundið vegna tækninýjunga ásamt fleiri atriðum. Þarna er farið inn á mjög hættulegar brautir, það jaðrar við að það sé gefið á okkur veiðileifi. (Hvað myndu bankastarfsmenn segja ef það ætti að lækka við þá launin vegna tækninýj- unga?) Sjómenn, þið vitið hvað þetta þýðir í samskiptum við útgerð- armenn og einnig er verið að opna fyrir frekari lækkun skiptaprósentu. Hlífðarfatapeningar eru í dag eins og allir vita, en taka á upp nýtt fyr- irkomulag þannig að útgerðin skaffar fatnað. Hver á að meta það hvenær menn vantar hlífðarfatnað? Hvernig er með afleysingamenn og hvaða hlífðarföt eiga menn að fá? Eiga þeir að skaffa sjógalla, vett- linga, stígvél eða jafn- vel flotvinnubúning, dettur einhverjum í hug að þetta gangi eft- ir? Olíuverðsviðmiðun er þannig að breytingin á henni mun ekki hafa neitt að segja á næstu árum vegna hás olíu- verðs. Réttur til að vera heima hjá veikum börnum væri til bóta ef þetta gengur eftir en þetta verður mjög tor- sótt í návígi við útgerðarmenn. Í dag er þess jafnvel krafist að menn fari á sjó veikir eins og dæmin sanna hjá ákveðnum út- gerðum. Í áðurnefndu bréfi sem sent var til sjó- manna með samn- ingnum er talað um að horfin sé út grein sem hefur verið misnotuð af útgerðarmönnum um að fækka mönnum við tækniframfarir niður fyrir mönnunarákvæði og skipta því á milli út- gerðar og áhafnar. En í nýja kjarasamningnum er bein lækkun skiptaprósentu sem útgerðin fær alla í sinn hlut. Í viðtali við Helga Laxdal hjá Vél- stjórafélaginu bar samninginn, sem yrði félagsmönnum óhagstæður, á góma, hann talaði um að slíkur samn- ingur væri góður fyrir formenn stétt- arfélaga en afleitur fyrir félagsmenn, þetta er nákvæmlega þannig samn- ingur. Mín niðurstaða í samantekt á þess- um samningi er sú að ég tel að farið sé aftur um 20–30 ár í kjörum sjó- manna, sem þýðir í raun og veru al- gera uppgjöf. Þá er tímabært að skipta út forustumönnunum ef þeir geta ekki lengur gætt hagsmuna okk- ar. Hvet ég alla sjómenn, undirmenn sem yfirmenn, til að fella þennan samning, því að þessi gjörningur verður ekki aftur tekinn ef hann verður samþykktur. Aðför að kjarasamningum sjómanna Brynjar Eyland Sæmundsson skrifar um kjarasamninga sjómanna ’Hvet ég alla sjómenn,undirmenn sem yf- irmenn, til að fella þenn- an samning, því að þessi gjörningur verður ekki aftur tekinn ef hann verður samþykktur.‘ Brynjar Eyland Sæmundsson Höfundur er stýrimaður.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.