Morgunblaðið - 02.02.2005, Page 1
Íþróttir í dag
Manchester United afvopnaði Ars-
enal Lögðu Norðmenn að velli í
karate Allt um HM í Túnis
STOFNAÐ 1913 31. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Arnar Eggert spáir í íslensku
tónlistarverðlaunin Menning
Hverjir bera af
í tónlistinni?
Spennandi
verkefni
Glerlist Lindu Mjallar Leifsdóttur í
Stuttgart og Kabúl Daglegt líf
LANDSBANKI Íslands hefur gert
yfirtökutilboð í breska verðbréfa-
fyrirtækið Teather & Greenwood.
Tilboðið hljóðar upp á 42,8 milljónir
punda, sem samsvarar tæplega 5
milljörðum króna.
Landsbanki Holdings, dóttur-
félag Landsbanka Íslands, sem
gerir hið formlega tilboð hefur þeg-
ar tryggt sér 57,8% hlutafjár í fyr-
irtækinu. Þar af eru 9,3% í eigu
bankans en auk þess hafa eigendur
ríflega 48% hlutafjár skuldbundið
sig til þess að samþykkja tilboðið
sem er háð samþykki fjármálayfir-
valda í Bretlandi og Fjármálaeft-
irlitsins.
Tilboðið er háð samþykki yfir
50% hlutahafa félagsins og hefur
stjórn þess samþykkt að mæla með
því við hlutafjáreigendur að þeir
samþykki tilboð Landsbankans.
„Ein ástæða þess að við ákváðum
að ganga til samninga við Lands-
bankann var sú að þeir töluðu alltaf
um samstarf í stað þess að tala um
eignarhald,“ sagði Kenneth Baker
lávarður, stjórnarformaður T&G, í
samtali við Morgunblaðið. Hann
segir jafnframt að margir hafi sýnt
áhuga á að kaupa félagið sem velti
tæplega 2,2 milljörðum króna á síð-
asta ári.
Útrás bætir áhættudreifingu
Markmið Landsbankans með út-
rás er að bæta áhættudreifingu
bankans og fjölga tekjustraumum,
að sögn Halldórs J. Kristjánssonar,
bankastjóra Landsbankans. „Það
eykur arðsemi bankans og stefnan
er að stækka hann til að geta tekið
þátt í stærri verkefnum,“ segir
Halldór.
Landsbankinn býður í
breskt verðbréfafélag
ÞAÐ VAR ákaft fagnað þegar Laugalækjarskóli sigr-
aði í úrslitum Skrekksins, hæfileikakeppni grunn-
skólanna í Reykjavík. Keppnin fór fram í Borgarleik-
húsinu í gærkvöldi. Seljaskóli varð í öðru sæti og
Austurbæjarskóli í því þriðja. Að auki kepptu Haga-
skóli, Réttarholtsskóli og Ölduselsskóli til úrslita.
Keppnin var nú haldin í 15. skipti og tóku 20 skólar
þátt í undanúrslitum hennar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugalækjarskóli sigraði
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, skýrði frá því í
gærkvöldi að hann hefði falið Bill
Clinton, fyrrverandi Bandaríkja-
forseta, að hafa yfirumsjón með
uppbyggingarstarfinu vegna ham-
faranna við Indlandshaf annan dag
jóla.
Clinton á að hefja störf í næsta
mánuði sem sérlegur sendimaður
SÞ vegna uppbyggingarstarfsins til
að tryggja að ríki heims standi við
loforðin um aðstoð við löndin sem
urðu verst úti. Clinton fær enn
fremur það hlutverk að beita sér
fyrir friði í tveimur landanna,
Indónesíu og Sri Lanka. Talsmaður
Annans sagði að Clinton fengi tæki-
færi til að nota pólitíska hæfileika
sína til að beita sér fyrir friðarsamn-
ingum við uppreisnarmenn í Aceh-
héraði og skæruliðahreyfingu Tam-
íl-tígranna svonefndu á Sri Lanka.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hafði áður falið Clinton og
George Bush, föður sínum og fyrr-
verandi Bandaríkjaforseta, að hafa
yfirumsjón með fjársöfnun í Banda-
ríkjunum vegna hamfaranna.
Clinton í
starf sendi-
manns SÞ
Sameinuðu þjóðunum. AP.
MAHMOUD Abbas, forseti Palestínu-
manna, hét því í gær að afmá „svarta
bletti“ í stefnu Yassers Arafats, forvera
síns í embættinu, og
koma á lögum og reglu
á svæðum Palestínu-
manna.
„Á Vesturlöndum litu
menn Arafat allt öðrum
augum en við Palestínu-
menn,“ sagði Abbas í
viðtali við rússneska
dagblaðið Kommersant.
„Þeir kölluðu hann
hryðjuverkamann, sökuðu hann um að
hindra umbætur og standa ekki við loforð
sem hann gaf í samningaviðræðum. Hann
var álitinn einræðisherra. Við getum auð-
vitað ekki látið sem við sjáum ekki þessa
neikvæðu hlið á honum.“
Abbas staðfesti enn fremur að stefnt
væri að því að hann ræddi á næstunni við
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
líklega á þriðjudaginn kemur.
Hyggst afmá
„svarta bletti“
Arafats
Moskvu. AFP.
Landtökumenn/17
Mahmoud Abbas
KAFALDSBYLUR olli víða umferðaröngþveiti í borgum í norðanverðu
Japan í gær, auk þess sem aflýsa þurfti tugum flugferða og lestasam-
göngur lögðust niður.
Kona í borginni Nagaoka mokar hér snjó á milli bráðabirgðahúsa fyrir
fólk sem missti heimili sín í jarðskjálfta í október. 39 manns fórust og yfir
2.000 slösuðust í skjálftanum sem mældist 6,8 stig á Richters-kvarða.
Hríðaráfelli í Japan
AP
FORSETI bráðabirgðastjórnar Íraks, Ghazi al-
Yawar, sagði í gær að það væri „alger vitleysa“
að biðja erlendu hersveitirnar í landinu að fara
þegar í stað. Yawar bætti þó við að brottflutn-
ingur hersveitanna gæti hafist fyrir lok ársins.
Forseti íraska herráðsins, Babakir Zebari hers-
höfðingi, sagði að hersveitirnar gætu farið frá
íröskum borgum innan árs.
Bandaríkjastjórn og leiðtogar írösku bráða-
birgðastjórnarinnar segja að enn sé varasamt að
ákveða hvenær flytja eigi hersveitirnar á brott,
vegna árása uppreisnarmanna.
„Það væri alger vitleysa að biðja hersveitirnar
að fara í þessari ringulreið og valdatómarúmi,“
sagði Yawar. Hann kvaðst hafa hafið „óbeinar
viðræður“ við trúarleiðtoga súnní-araba sem
voru andvígir kosningunum á sunnudag vegna
hernámsins og hvatti þá og stjórnmálaleiðtoga
súnníta til að ganga til viðræðna um nýja stjórn-
arskrá þótt þeir hefðu sniðgengið kosningarnar.
Einn leiðtoga súnní-araba, Raad al-Hamadani,
sagði í gær kosningarnar ólögmætar. Hernáms-
yfirvöld hefðu þröngvað þeim upp á Íraka og nýtt
þing hefði því ekki umboð til að semja nýja
stjórnarskrá. Hann og aðrir súnní-arabar væru
ekki andvígir kosningum en vildu ekki kjósa nýtt
þing fyrr en hernáminu lyki. Hamadani fer fyrir
hópi sem nefnist Ráð íraskra ættflokka.
Herafli verði í Írak um sinn
Forseti Íraks telur að brottför erlendra sveita geti hafist fyrir árslok
Bagdad. AP, AFP.
Undirbúa brottflutning/16
Páfi á
sjúkrahús
Páfagarði. AFP.
JÓHANNES Páll II páfi var fluttur á
sjúkrahús í gærkvöldi eftir að hafa
fengið flensu.
Talsmaður páfa sagði að hann hefði
átt mjög erfitt með öndun vegna háls-
bólgu og hann hefði því verið fluttur í
skyndi á sjúkrahús í Róm.
Fyrr um kvöldið sögðu embættis-
menn í Páfagarði að veikindi páfa, sem
er 84 ára, væru ekki alvarleg og hann
væri ekki með mikinn hita.
Páfi þjáist af Parkinsons-veiki, hæg-
fara taugasjúkdómi sem lýsir sér með
skjálfta í vöðvum í hvíld, hægum
hreyfingum og svipbrigðaleysi.