Morgunblaðið - 02.02.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005 9
FRÉTTIR
50% afsláttur
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
VILTU VERÐA JÓGAKENNARI
EÐA DÝPKA JÓGAÁSTUNDUN ÞÍNA?
S K Ó L I N N
Skeifan 3b,
Reykjavík
Skráning í símum 544 5560 og 862 5563,
eða á www.jogaskolinn.is
Jógaskólinn hefst að nýju í febrúar, en frá árinu 1997 hefur
Ásmundur Gunnlaugsson útskrifað nemendur, sem ýmist starfa
sem jógakennarar í dag eða hafa tekið þátt til þess að dýpka
þekkingu sína. Námskeiðið er yfirgripsmikið og öflugt
sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið, tækifæri til að nema af
kennara með mikla reynslu og þekkingu. Tilhögun þess fer saman
með starfi og öðru námi en kennt er eftirfarandi helgar: 18.-20.
febrúar, 11.-12. mars, 1.-3. apríl, 22.-24. apríl, 6.-8. maí og 27.-29. maí (fös. kl. 20-22, lau.
og sun. kl. 9-15). Þjálfunin er viðurkennd af International Yoga Federation. Allar nánari
upplýsingar á www.jogaskolinn.is .
Ásmundur heldur kynningarfund fyrir áhugasama laugardaginn 12. febrúar kl. 17.00
í húsakynnum Jógaskólans.
Fjögurra daga ofurnámskeið
með hvatningarþjálfaranum
og metsöluhöfundinum Anthony
Robbins í London 6.-9. maí 2005.
Nánari upplýsingar og skráning
á www.changeyourlife.is
eða í síma 699-6617 & 517-5171.
UNLEASH
T
H
EPOWER
WITHIN!
A
nt
ho
ny
R
ob
b
in
s
Laugavegi 53
sími 552 3737
Opið virka daga 10-18
laugardaga 10-16
Útsala
Síðustu dagar
Buxur kr. 1.000
Peysur kr. 1.000-1.500
Bolir 500
Erum með alla línuna í
Art to heart og Benartex.
Alla línuna í
Jinny Beyer Thimbleberries,
Lynette Jensen og
Moda efni.
Eyravegi 15, 800 Selfoss
S: 4822930
Skólabraut 37, Akranesi
Erum að fá ný efni í
barnateppi o.fl.
Bækur og snið í úrvali.
Gott verð
Verðhrun
50 - 70% afsláttur
Fermingarmyndartökur
Óhefðbundnar myndatökur
Fjölskyldumyndatökur
Pantið tímanlega
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020
Mynd, Hafnarfirði s. 565 4207
www.ljósmynd.is
„KYNFERÐISLEGT ofbeldi er al-
gengara en flesta grunar. Í nýlegri
íslenskri rannsókn kom fram að 23%
stelpna og 8% drengja eru beitt kyn-
ferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur,“
segir Halla Gunnarsdóttir, sem
heldur námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar Háskóla Ís-
lands dagana 18. og 19. febrúar nk.
Námskeiðið ber yfirskriftina „Úr
viðjum vanans – námsefni um jafn-
rétti, kynmótun og kynferðislegt of-
beldi“.
Námskeiðið er einkum ætlað
grunn- og framhaldsskólakennurum
en á jafnframt erindi við allt fagfólk
sem starfar með börnum og ungling-
um. Halla segir námskeiðið fara yfir
eðli og umfang kynferðislegs ofbeld-
is auk þess sem tengslin milli kyn-
mótunar og kynferðislegs ofbeldis
verða skoðuð. „Sú litla fræðsla sem
verið hefur hingað til um kynferðis-
ofbeldi hefur verið í beinu framhaldi
af umfjöllun um kynlíf,“ segir Halla
og bætir því við að það verði að gera
skýran greinarmun á kynlífi og kyn-
ferðislegu ofbeldi, því um tvo mjög
ólíka hluti sé að ræða. Hún bendir á
að fólk verði að horfa á þessa hluti af
raunsæi og raunveruleikinn sé sá að
a.m.k. tvö af hverjum tíu börnum
verða fyrir kynferðislegu ofbeldi,
auk þess sem nauðganir séu mun al-
gengari en fólk geri sér almennt
grein fyrir. „Skilin milli ofbeldis og
kynlífs hafa því miður ekki verið
skýr og klámvæðingin hefur gert
þau enn óskýrari en ella,“ segir
Halla.
Hún telur skólann gegna veiga-
miklu fræðslu-
hlutverki og sé
eina stofnunin
sem geti náð til
heilu kynslóð-
anna. „Ég trúi því
að besta vopnið í
þessari baráttu
sé fræðsla,“ segir
Halla.
Á námskeiðinu
er fjallað um
hvernig hægt er að kenna nem-
endum um kynferðislegt ofbeldi og
hvernig bregðast skuli við ef kenn-
ara grunar að nemandi sé eða hafi
verið beittur slíku ofbeldi. „Ég er
m.a. með verkefni sem ég legg fram
sem kennarar geta notað í kennslu
til þess að fá upp umræðu um þessi
mál í skólastofunni,“ segir Halla.
Hún segir auk þess að aukin meðvit-
und um kynferðislegt ofbeldi geri
það að verkum að þolendur, og ekki
síst börn, segi frekar frá ofbeldinu.
Einnig sé hugsanlegt að ofbeld-
ismönnum fækki. „Sá eða sú sem
ekki veit að um ofbeldi er að ræða
segir aldrei frá,“ segir Halla.
Kennsla fer fram með fyr-
irlestrum, umræðum og verkefna-
vinnu. Í lok skólaársins hittist hóp-
urinn að nýju og ræðir reynslu af
vinnu með námsefnið.
Fræðsla er
besta vopnið
Halla
Gunnarsdóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
SJÁLFSTÆÐISMENN í Reykja-
vík vilja að Reykjavíkurborg hefji
samningaviðræður við fulltrúa
einkaskóla um hlutverk þeirra í
reykvísku samfélagi og fjárhags-
legan stuðning. Héldu þeir fund í
Valhöll við Háaleitisbraut í gær
þar sem Guðrún Ebba Ólafsdóttir
borgarfulltrúi ræddi stöðu einka-
rekinna leik- og grunnskóla og
tónlistarskóla. Kom fram að mark-
mið samningaviðræðna, sem lagt
væri til að farið yrði í, ætti að vera
að finna framtíðarlausn fyrir sjálf-
stæðu skólana þannig að raunveru-
legt valfrelsi ríkti í skólamálum
fyrir foreldra og nemendur. Það
næðist meðal annars með því að
tryggja að allir nemendur í leik- og
grunnskólum nytu sama stuðnings
til náms frá borginni óháð rekstr-
arformi einstakra skóla.
Á fundinum lýstu Margrét Theo-
dórsdóttir, skólastjóri Tjarnar-
skóla, og Sigursveinn Magnússon,
skólastjóri Tónskóla Sigursveins,
því hvernig rekstri sjálfstæðra
skóla væri háttað og stöðu þeirra
með hliðsjón af öðrum skólum
borgarinnar.
Sjálfstæðismenn segja að nem-
endum sé mismunað í borginni og
ekkert tillit tekið til þess að
rekstrarþarfir skólanna séu mis-
munandi. Vandi einkarekinna
grunnskóla og tónlistarskóla sé
mikill og þeir hafi átt undir högg
að sækja sökum stefnu R-listans í
menntamálum. Rekstrarstyrkir til
þeirra séu mun lægri en til op-
inberra skóla og samkeppnisstaðan
því mjög erfið.
Tónlistarskólar í vanda
Þá segja sjálfstæðismenn að
framlag Reykjavíkurborgar til tón-
listarskólanna hafi dregist saman á
undanförnum árum. Samdráttur-
inn á framlögum til Tónlistarskól-
ans í Reykjavík nemi t.d. 42% á að-
eins þremur árum. Samtök
tónlistarskóla í Reykjavík hafi lýst
yfir þungum áhyggjum vegna þess
að framlög hafi farið lækkandi
jafnvel þótt skólum hafi fjölgað.
Raunframlög til tónlistarfræðslu
hafi sáralítið breyst í meira en ára-
tug.
Fram kom á fundinum að mik-
ilvægt væri að tryggja fjölbreytni
og stuðla að framþróun í skóla-
starfi. Allt tal um sjálfstæði skóla
hefði enga merkingu ef allir væru
bundnir á sama klafa. Að sama
skapi væri ekki hægt að tala um
raunverulegt valfrelsi á milli skóla
ef nemendum væri mismunað fjár-
hagslega af borgaryfirvöldum.
Sjálfstæðismenn funda um skólamál
Allir nemendur
fái notið sama
fjárstuðnings