Morgunblaðið - 02.02.2005, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.02.2005, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005 13 ÚR VERINU Eldaskálinn Brautarholti 3 105 Reykjavík Sími: 562 1420 www.invita.com Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Prag 15. mars Kr.19.990 Flugsæti m.v. 2 fyrir 1. Netverð. Róm 12. maí Kr. 39.990 Flugsæti með sköttum. Netverð. Dubrovnik 12. maí Kr. 39.990 Flugsæti með sköttum. Netverð. Búdapest 25. apríl Kr. 28.890 Flugsæti með sköttum. mánud. til fimmtud. Netverð. Sorrento 19. maí Kr. 39.710 Flugsæti með sköttum. Netverð. Barcelona 17. apríl Kr. 36.910 Flugsæti með sköttum. Netverð. BENEDIKT Sveinsson hefur látið af störfum sem forstjóri Iceland Sea- food Corporation, dótturfélags SÍF hf. í Bandaríkjunum. Hættir Bene- dikt að eigin ósk. „Ég hætti hér í góðri sátt við alla hlutaðeigandi. Ég er búinn að vera í sölu sjávarafurða í tæp 30 ár og var farinn að hugsa til hreyfings. Á þeim tímamótum að fyrirtækið er selt með góðum hagn- aði til nýrra manna finnst mér rétt að nota tæki- færið til að skipta um kallinn í brúnni,“ segir Benedikt. „Það spillir heldur ekki að fyrirtækið stendur nú mun betur en fyrir 6 árum, þegar ég kom hingað. Það tókst með góða manna hjálp að bæta hag þess verulega. Ég hætti því hér sáttur við allt og óska nýjum eigendum velfarnaðar í starfi. Fjöl- skyldan hlakkar til að koma heim aftur eftir 6 viðburðarík ár í Amer- íku,“ segir Benedikt Sveinsson. Benedikt á að baki nærri 30 ára starfsferil tengdan sölu og vinnslu sjávarafurða en hann hefur verið forstjóri Iceland Seafood Corpor- ation frá ársbyrjun 1999. Benedikt hóf störf hjá Sjávarafurðadeild Sam- bandsins árið 1976, varð fram- kvæmdastjóri Iceland Seafood Lim- ited í Bretlandi 1981–1986, aðstoðar- framkvæmdastjóri Sjávarafurða- deildar Sambandsins 1997–1990, framkvæmdastjóri Sjávarafurða- deildar Sambandsins í sex mánuði 1990 og forstjóri Íslenskra sjávaraf- urða hf. (arftaka Sjávarafurðadeild- arinnar) frá 1990–1998. Nú hafa verið staðfestir samning- ar um sölu á Iceland Seafood Corp- oration, dótturfélagi SÍF hf. í Banda- ríkjunum. Kaupandi er Sjóvík ehf. Söluverð félagsins er 26,5 milljónir evra en að auki tekur kaupandi yfir vaxtaberandi skuldir að fjárhæð 22 milljónir evra. Áður var tilkynnt um sölu félagsins til Sjóvíkur ehf. í til- kynningu SÍF hf. þann 27. október sl. Bókfærður söluhagnaður SÍF hf. vegna viðskiptanna nemur um 18 milljónum evra og færist á reikn- ingsárið 2004. Áður hafði verið áætlað að sölu- hagnaður myndi nema 21 milljón evra. Frávik frá áður áætluðum sölu- hagnaði skýrast aðallega af afkomu félagsins á 4. ársfjórðungi síðasta árs og lægra gengi Bandaríkjadals gagnvart evru. SÍF hf. fjárfestir á móti í Sjóvík ehf. fyrir jafnvirði 6,1 milljónar evra og verður við það eig- andi tæplega 13% hlutafjár í félag- inu. Ég hætti hér í góðri sátt við alla hlutaðeigandi Benedikt Sveinsson snýr heim eftir 6 góð ár hjá Iceland Seafood Corp. Fiskvinnsla Starfsemi Iceland Seafood, dótturfyrirtækis SÍF í Bandaríkjunum, hefur gengið vel undanfarin ár og skilað hagnaði. Nú hefur verið gengið frá sölu þess til Sjóvíkur. Söluhagnaður nemur um 18 milljónum evra. Benedikt Sveinsson TBEN efh. í Hafnarfirði hefur tekið við söludeild Hampiðj- unnar innanlands, það er að segja sölu á trollneti, garni og köðlum. Tben, sem er dóttur- fyrirtæki Hampiðjunnar, verð- ur áfram í Hafnarfirði í núver- andi húsnæði með höfuðstöðvar að Hvaleyrar- braut 41, í allt um 1.800 fer- metrum. Gylfi Hallgrímsson, sölu- maður Hampiðjunnar til margra ára, Gestur Rúnars- son, sem áður starfaði hjá Strendu ehf., og Ólafur Benón- ýsson netagerðarmeistari, áður verkstjóri á netaverkstæði Hampiðjunnar, hófu allir störf hjá Tben um áramótin. Gylfi er sölumaður, Gestur sölustjóri og Ólafur er sölumaður ásamt því að sjá um skipaþjónustu. Samhliða þessum breytingum tók Magnús Sigurðsson við lag- er og afgreiðslustjórn, Jón Pét- ur Guðjónsson annast innkaup og sölu og Sigurjón Karlsson víraþjónustu. Þorsteinn Bene- diktsson er framkvæmdastjóri Tben. Tben mun nú leggja meiri áherzlu á vöru tengda þorsk- netaveiðum, en býður auk þess upp á breiða línu af útgerðar- vörum. Ennfremur býður það víraþjónustu og setur upp nýj- ar steinastiklur (rockhopper- lengjur) og gerir við gamlar. Tben tekur við sölu- deild Hamp- iðjunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.