Morgunblaðið - 02.02.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005 11
FRÉTTIR
Það eru ekki mörg fyrirtækisem hafa burði til aðleggja grunnnet,“ segirAlfreð Þorsteinsson,
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur (OR). „Það er m.a. af
praktískum ástæðum að það hæfir
Orkuveitunni vel að leggja ljósleið-
ara, hann fer í sömu skurði og aðr-
ar lagnir fyrirtækisins,“ segir Al-
freð. Hann segir fjarri lagi að OR
hafi tapað á fjárfestingum í fjar-
skiptafyrirtækjum. Um sé að ræða
fjárfestingar sem skili sér eftir 5–
10 ár.
Hann er því ekki sammála því að
OR eigi að einbeita sér að hefð-
bundnum rekstri, þ.e. sölu á köldu
og heitu vatni og raforku, eins og
Guðlaugur Þór Þórðarson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem á
sæti í stjórn OR, sagði í Morg-
unblaðinu í gær.
Alfreð segir að ágreiningur innan
stjórnar OR sé í sjálfu sér ekki
flókinn. Hann snúist um fjarskipta-
starfsemi Orkuveitunnar. „Sjálf-
stæðismenn hafa sett sig á móti því
að Orkuveitan legði ljósleiðaranet
um höfuðborgarsvæðið,“ segir Al-
freð. „Meirihlutinn hefur hins vegar
viljað skapa samkeppni á þessu
sviði til að lækka verð á gagnaflutn-
ingum til fólks og fyrirtækja.
Stundum hef ég það á tilfinning-
unni að fulltrúar sjálfstæðismanna í
stjórn Orkuveitunnar séu fremur
hagsmunagæslumenn Símans en
fulltrúar Reykjavíkurborgar. Það
er mikill samhljómur í afstöðu full-
trúa sjálfstæðismanna og forstjóra
Símans sem tjáði sig nýlega um
málefni Orkuveitunnar.“
Síminn lengi haft
horn í síðu OR
Að sögn Alfreðs hefur Síminn ár-
um saman haft horn í síðu OR
vegna fjarskiptastarfsemi sem OR
hefur rekið og gjarnan er kölluð
fjórða veitan. Gagnrýni Símans
byggist á því að OR eigi einungis
að stunda hefðbundin veituverkefni,
þ.e. rafmagn, heitt og kalt vatn.
„Hins vegar er þróunin alls staðar í
kringum okkur sú, bæði austan og
vestan hafs, að orkufyrirtæki hafa
lagt ljósleiðara og veitt við-
skiptavinum sínum aukna þjónustu.
Það er líka í samræmi við nið-
urstöðu Orkustefnunefndar Reykja-
víkurborgar að Orkuveitan eigi að
bæta fjórðu veitunni við þá þjón-
ustu sem hún býður upp á. Borg-
arráð hefur staðfest fyrir sitt leyti
þá niðurstöðu.“
Alfreð segir að miðað við þá
„óheyrilegu gjaldtöku“ sem Síminn
viðhafði, áður er samkeppni frá OR
kom til sögunnar, hafi verið full-
komlega réttlætanlegt að OR færi
út í þennan rekstur.
Hann segir OR sennilega stærsta
gagnaflytjanda á höfuðborgarsvæð-
inu sem þjóni flestum stærstu fyr-
irtækjum og opinberum aðilum,
eins og heilbrigðisstofnunum, skól-
um, bankastofnunum og ráðu-
neytum.
„Má segja að kostnaður við
gagnaflutninga hafi lækkað um tugi
prósentna með tilkomu Orkuveit-
unnar,“ segir Alfreð. „Gott dæmi er
þegar Orkuveitan lagði ljósleiðara
nýlega til Akraness, þá lækkaði
Síminn gjaldtöku á Akranesi um
35% á einni nóttu.“
Fjárfesting til framtíðar
Guðlaugur Þór talaði í Morg-
unblaðinu í gær um taprekstur fjar-
skiptafyrirtækja Orkuveitunnar. Al-
freð segir hins vegar að
lagning ljósleiðara sé eins og
hvert annað langtímaverkefni á
sviði veitustarfsemi. „Ef Orkuveitan
leggur rafmagn í ný hverfi, hvort
sem það er í Reykjavík eða Kópa-
vogi, skilar fjárfestingin sér á
löngum tíma. Engum dettur í hug
að tala um að um glataða fjárfest-
ingu sé að ræða í því sambandi.
Hagnaður verður ekki fyrr en eftir
5–10 ár. Það sama á við um ljósleið-
arann. Það er því fjarri öllu lagi að
Orkuveitan hafi tapað á fjárfest-
ingum sínum í fjarskiptamálum.
Þetta er fjárfesting til framtíðar.“
Alfreð segir hins vegar ljóst að
OR hafi tapað á rekstri Tetra Ís-
lands eins og Landsvirkjun hafi
reyndar líka gert. „En það á sínar
skýringar og aðkoma ríkisins að því
dæmi var dapurleg. Hins vegar má
segja að Tetra-kerfið hafi sannað
ágæti sitt og bjargað mannslífum á
höfuðborgarsvæðinu þar sem það
er í notkun hjá lögreglu, slökkviliði
og mörgum öðrum.“
Heimili á höfuðborgarsvæðinu
ljósleiðaravædd
Næsta skref OR á sviði fjar-
skipta er að ljósleiðaravæða heimili
á höfuðborgarsvæðinu. Þegar hafa
verið gerðir samningar við tvö
sveitarfélög, Akranes og Seltjarn-
arnes, en nú þegar hafa um 100
heimili í Reykjavík verið tengd. Bú-
ið er að undirbúa tengingar nokk-
urra þúsunda heimila í þessum
þremur sveitarfélögum.
Alfreð segir að þegar Reykjavík-
urlistinn tók við stjórn orkumála
fyrir ellefu árum hafi fátt verið að
gerast í orkumálum Reykvíkinga.
„Starfandi voru þrjú veitufyrirtæki,
sem hvert um sig voru prýðilega
rekin, en voru ekki nægilega öflug
til að fara í nauðsynlega uppbygg-
ingu, eins og t.d. raforkufram-
leiðslu. Reykvíkingar áttu t.d. allt
sitt undir Landsvirkjun varðandi
rafmagnskaup.“
Það var að sögn Alfreðs ekki fyrr
en farið var út í raforkuframleiðslu
á Nesjavöllum árið 1998 og veitu-
fyrirtækin voru sameinuð í Orku-
veitu Reykjavíkur, að hjólin fóru að
snúast.
„Eignir voru um 35 milljarðar, en
núna sex árum síðar eru eignir yfir
70 milljarðar og velta um 13 millj-
arðar, en var áður um 7 milljarðar,“
segir Alfreð.
Hann minnir á að Orkuveita
Reykjavíkur hefur fært út kvíarnar,
sameinast veitum á Akranesi og
Borgarfirði og keypt aðrar í Þor-
lákshöfn, Hveragerði og Rang-
árvallasýslu, auk þess sem smærri
sumarbústaðaveitur eru reknar víða
fyrir austan fjall og í Borgarfirði.
„Starfsemi Orkuveitu Reykjavík-
ur hefur haft gífurleg áhrif á at-
vinnulífið á höfuðborgarsvæðinu,
enda hafa milljarðaframkvæmdir í
virkjunum á Nesjavöllum og Hellis-
heiði skapað hundruð starfa í nútíð
og framtíð með uppbyggingu í
tengslum við uppbyggingu álvers
Norðuráls í Hvalfirði. Að þessu
leyti hefur Reykjavíkurborg staðið
að raunverulegri atvinnuuppbygg-
ingu, en á árunum 1990–94 var þá-
verandi meirihluti sjálfstæðismanna
í borgarstjórn úrræðalaus í at-
vinnumálum og beitti sér fyrir at-
vinnubótavinnu, sem dugði
skammt.“
Lág gjöld miðað við höfuð-
borgir annarra Norðurlanda
Alfreð segir að Orkuveitan sé vel
rekið fyrirtæki „sem býður höf-
uðborgarbúum upp á lág orkugjöld,
sem eru 40–70% lægri en í höf-
uðborgum annarra Norðurlanda.
Fyrirtækið stendur fyrir margs
konar nýsköpun og er með ljósleið-
aravæðingu að skapa þau skilyrði á
höfuðborgarsvæðinu, að Reykjavík
er vel samkeppnishæf við ná-
grannalönd um búsetuskilyrði.“
Hann minnir á að með lögum nr.
136/2001 frá Alþingi var fyrirtæk-
inu sett það markmið að stuðla að
nýsköpun og atvinnuuppbyggingu í
tengslum við sína starfsemi.
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
stjórn OR stöðva ekki framþró-
unina á þessu sviði frekar en öðr-
um,“ segir Alfreð. „Hið ágæta
stafsfólk Orkuveitunnar á skilið að
fá vinnufrið vegna þeirra þýðing-
armiklu starfa, sem það vinnur í
þágu höfuðborgarbúa. Orkuveita
Reykjavíkur er eitt öflugasta fyr-
irtæki landsins og mikill mann-
auður sem býr í fyrirtækinu,“ segir
Alfreð Þorsteinsson, stjórn-
arformaður OR.
Samhljómur í afstöðu sjálfstæð-
ismanna og forstjóra Símans
Stjórnarformaður
Orkuveitunnar er ekki
sammála því að OR
eigi eingöngu að sinna
hefðbundnum rekstri
eins og sölu á heitu og
köldu vatni og raf-
orku. Fjarskipti falli
vel að starfsemi OR.
Engu sé líkara en
fulltrúar Sjálfstæð-
isflokks í stjórn OR
séu hagsmunagæslu-
menn Símans.
Morgunblaðið/Þorkell
Alfreð Þorsteinsson segir að lagning ljósleiðara sé fjárfesting sem skili sér
á löngum tíma. „Það er því fjarri öllu lagi að Orkuveitan hafi tapað á fjár-
festingum sínum í fjarskiptamálum. Þetta er fjárfesting til framtíðar.“
ORKUVEITA Reykjavíkur hefur verið rekin með góðum hagnaði á und-
anförnum árum, að sögn Alfreðs Þorsteinssonar, stjórnarformanns OR.
Hann segir að til dæmis sé hagnaður sl. árs fyrir afskriftir og fjármagns-
gjöld áætlaður 4,8 milljarðar króna. Orkuveitan greiði eigendum sínum
arð sem nemur um 1,5 milljörðum króna.
„Það er ljóst að Orkuveita Reykjavíkur er eigendum sínum mjög mik-
ilvæg, bæði vegna þeirrar miklu atvinnuuppbyggingar sem Orkuveitan
hefur stuðlað að á höfuðborgarsvæðinu og þeirra fjármuna sem skila sér í
arðgreiðslum til þeirra. Þá er ekki síður ljóst að þau ódýru orkugjöld og
góða þjónusta sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu njóta eru ein meginund-
irstaða velmegunar íbúanna sem þeirra njóta,“ segir Alfreð
OR stuðlað að mikilli
atvinnuuppbyggingu
BENEDIKT Halldórsson varði sl.
haust doktorsritgerð við umhverfis-
og byggingarverkfræðideild Há-
skólans í Buffaló,
Ríkisháskóla
New York,
Bandaríkjunum.
Ritgerðin ber
heitið „The
Specific Barrier
Model: Its Cal-
ibration to Eart-
hquakes of
Different Tecton-
ic Regions and the Synthesis of
Strong Ground Motions for Earth-
quake Engineering Applications“.
Mat á jarðskjálftaáhrifum er mik-
ilvæg hönnunarforsenda mann-
virkja á jarðskjálftasvæðum. Þegar
best lætur er slíkt mat byggt á
raunhæfu líkani af eðlisfræði jarð-
skjálftaupptaka, útbreiðslu jarð-
skjálftabylgna, sem og staðbundinni
bylgjumögnun vegna jarðlaga.
Jarðskjálftaupptökin eru einna mik-
ilvægust og það líkan sem veitir
raunhæfasta lýsingu á brotferli
jarðskjálfta, en jafnframt krefst
fárra kennistærða, er hið svonefnda
„Specific Barrier Model“. Í því er
gert ráð fyrir að brotferli jarð-
skjálfta megi lýsa sem hrinu
smærri jarðskjálfta (undirskjálfta),
sem dreifa skjálftavæginu á tiltek-
inn hátt um brotflötinn. Forsenda
fyrir hermun jarðskjálftaáhrifa með
líkaninu er þekking á kennistærð-
um þess og hegðun með vaxandi
jarðskjálftastærð.
Í doktorsritgerðinni voru helstu
kennistærðir líkansins, spennufall
undirskjálfta og umfang þeirra,
ákvarðaðar fyrir jarðskjálfta á
stærðarbilinu 4,2 til 7,9 á þrenns
konar tektónískum svæðum: fleka-
skilum, innflekasvæðum og svæðum
þar sem jarðskorpan er í gliðnunar-
ástandi. Var sýnt fram á að spennu-
fall undirskjálfta er fasti sem tekur
mismunandi gildi eftir jarð-
skjálftasvæðum og að umfang und-
irskjálfta vex á kerfisbundinn hátt
með vaxandi jarðskjálftastærð. Að
auki sýndu niðurstöðurnar svæð-
isbundinn mun á hegðun jarð-
skjálftarófa með vaxandi jarð-
skjálftastærð. Líkanið var notað til
hermunar á tímaröðum og svör-
unarrófum fyrir nokkra jarðskjálfta
þar sem bæði mismunandi herm-
unaraðferðir og líkön af undir-
skjálftunum sjálfum voru notaðar.
Kvörðun líkansins auðveldar mjög
hermun raunhæfra yfirborðshreyf-
inga af völdum jarðskjálfta á mis-
munandi tektónískum svæðum,
jafnvel þar sem lítið er um jarð-
skjálftagögn. Niðurstöður ritgerð-
arinnar gefa aukna eðlisfræðilega
innsýn í upptakaferli jarðskjálfta
samtímis þess að henta afar vel til
hermunar nærsviðs- og fjarsviðs-
áhrifa jarðskjálfta á þeim tíðnisvið-
um sem mest áhrif hafa á mann-
virki. Niðurstöður ritgerðarinnar
nýtast því bæði á sviðum jarð-
skjálftafræði og jarðskjálftaverk-
fræði.
Aðalleiðbeinandi var Apostolos S.
Papageorgiou prófessor, nú við Há-
skólann í Patras, Grikklandi. And-
mælendur voru þeir Gary F. Dar-
gush og Andre Filiatrault,
prófessorar við Háskólann í Buffaló,
og Yuehua Zeng, prófessor við Há-
skólann í Nevada, í Reno, Banda-
ríkjunum.
Benedikt Halldórsson lauk B.S.
prófi í jarðeðlisfræði við raunvís-
indadeild Háskóla Íslands árið 1994
og M.S. prófi í verkfræði við um-
hverfis- og byggingarverk-
fræðideild Háskóla Íslands árið
1997. Hann var sérfræðingur á
Verkfræðistofnun Háskóla Íslands
og stundakennari í Verkfræðideild
Háskóla Íslands frá 1997 til 1999.
Foreldrar hans eru Halldór B.
Kristjánsson og Auðbjörg Erlings-
dóttir. Hann er kvæntur Berglindi
Guðmundsdóttur, doktorsnema í
klínískri sálarfræði við Háskólann í
Buffaló.
Doktor í
bygginga-
verkfræði