Morgunblaðið - 11.02.2005, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.02.2005, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR mbl.is Föstudagur 7. janúar 2005 Forsíða Viðskipti Íþróttir Afþreying Fólkið AtvinnaFasteignir Gagnasafn Myndasafn MorgunblaðiðSmáauglýsingar Panta auglýsingu Upplýsingar um pantanir Spurt og svaraðBreyta netfangi Breyta lykilorði ...ódýrasta 300 kr. birtist í 7 daga mbl.is smáauglýsingin Frábært verð ódýrasta auglýsingin kostar 300 kr. Auðvelt að bóka þú getur pantað auglýsingu þegar þér hentar Auðvelt að leita tekur örskot að finna það sem leitað er að Vöktun þú færð tölvupóst eða SMS þegar rétti hluturinn finnst Vaktmappan geymir auglýsingar til frekari skoðunar mbl.isá Orkurebbi er ekkert lamb að leika við. Vegna virkjana-og álversfram-kvæmda hefurerlendu vinnu- afli fjölgað hér á landi og viðbúið að sama þróun haldi áfram. Þörfin er mis- mikil eftir starfsgreinum og eðlilega er hún mest í byggingariðnaði um þess- ar mundir. Hlutfallslega hafa flest ný atvinnuleyfi, fyrir fólk utan evrópska efnahagssvæðisins, verið gefin út vegna fiskvinnslu en samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun er þörf- in þar ekki eins mikil og áð- ur. Fyrir nokkrum árum voru um 30% nýrra at- vinnuleyfa vegna fiskvinnslu en hlutfallið á síðasta ári var 16%. Hefur verktakageirinn náð þar yf- irhöndinni um sinn. Útgerðarmenn og fiskverkend- ur hafa margir hverjir kvartað undan því hve seint og illa gangi að fá atvinnuleyfi frá Vinnumálastofn- un fyrir erlent fiskverkafólk. Haft hefur verið eftir þeim í sjávarút- vegsblaði Morgunblaðsins, Úr verinu, að leyfisferlið hafi tekið allt upp undir þrjá mánuði og eftir þann tíma jafnvel komið neitun. Hefur því verið haldið fram að at- vinnugreinum sé mismunað hvað þetta varðar. Getur verið „þung í drætti“ Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, vísar þessu á bug og segir öll fyrirtæki sitja við sama borð lagalega séð, sama úr hvaða atvinnugrein þau koma. Hins vegar geti framboð og eftir- spurn eftir erlendu vinnuafli verið mismikil eftir atvinnugreinum og landshlutum. Vinnumálastofnun meti stöðuna hverju sinni og taki fyrst og fremst mið af fjölda fólks á atvinnuleysisskrá. Ef margir séu atvinnulausir á tilteknu svæði geti stofnunin verið „þung í drætti“. Útgáfa atvinnuleyfa miðist við framboð á þeim störfum sem í boði eru hverju sinni. Sökum þess hve margir séu atvinnulausir á höfuð- borgarsvæðinu og Suðurnesjum geti útgáfa atvinnuleyfa tekið lengri tíma. Útgáfan gangi hraðar fyrir sig þar sem færri séu atvinnu- lausir, t.d. á Vestfjörðum þar sem mikil eftirspurn sé eftir vinnuafli. Gissur segir Vinnumálastofnun ganga hart eftir því að fullreynt sé að fólk fáist ekki til starfa hjá þeim fyrirtækjum sem sækja um at- vinnuleyfi. Hann segir þann vanda hafa skapast að vegna fjölgunar á erlendu vinnuafli undanfarin ár hafi þrýstingur á Vinnumálastofn- un aukist frá ættingjum og kunn- ingjum þeirra útlendinga sem ósk- að er eftir atvinnuleyfi fyrir. Þrýstingurinn sé jafnvel orðinn meiri en frá fyrirtækjunum sjálf- um. Gissur segir þetta valda tor- tryggni hjá stofnuninni. Markmið með útgáfu atvinnuleyfa sé að jafna raunverulega eftirspurn eftir vinnuafli, ekki að standa fyrir „ætt- ingjainnflutningi“. Ekki megi held- ur gera það of auðvelt fyrir ís- lenska atvinnurekendur að fá erlent vinnuafl, vernda þurfi inn- lendan vinnumarkað og halda at- vinnuleysinu niðri. Fyrirtækin verði að reikna með að leyfisferlið taki sinn tíma, víða erlendis geti það tekið marga mánuði að fá at- vinnuleyfi, t.d. í Bandaríkjunum. Samkvæmt lögum um atvinnu- réttindi útlendinga er m.a. sett það skilyrði fyrir útgáfu tímabundins atvinnuleyfis að kunnáttumenn verði ekki fengnir innanlands og atvinnuvegi landsins skorti vinnu- afl. Áður en leyfið er veitt ber at- vinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnu- afli, nema slík leit verði fyrirsjáan- lega árangurslaus að mati Vinnu- málastofnunar. Einnig þarf að liggja fyrir umsögn frá verkalýðs- félagi, ráðningarsamningur, sjúkratrygging, heilbrigðisvottorð o.fl. Fyrirtækjum ber einnig að auglýsa störfin í allt að fjórar vikur hjá svæðisvinnumiðlunum. Hvort fjórar vikur séu ekki of langur tími segir Gissur Pétursson að það geti verið í sumum tilvikum. Stofnunin verði þó að hafa svigrúm til að ganga á fólk á atvinnuleys- isskrá. Matsatriði sé hvenær fyr- irtækjum beri að auglýsa en hvað fiskvinnslu varðar sé eðilegt að auglýsa þar, ekki síst á höfuðborg- arsvæðinu þar sem margir gangi atvinnulausir. Tjón af óþarfa auglýsingum Forsenda atvinnuleyfis er að við- komandi hafi einnig fengið dvalar- leyfi frá Útlendingastofnun. Þar hefur orðið breyting á verklagi allra síðustu mánuði í þá veru að sam- ræma útgáfu dvalarleyfa betur með útgáfu atvinnuleyfa. Hefur þetta stytt afgreiðslutímann frá því sem áður var. Ragnar Árnason á vinnu- markaðssviði Samtaka atvinnulífs- ins segir að þessari þróun beri að fagna. Hann segir kvartanir ekki hafa borist samtökunum um að starfsgreinum sé mismunað við út- gáfu atvinnuleyfa. Hins vegar sé mikilvægt að fyrirtækjum sé ekki að óþörfu gert að auglýsa eftir störfum sem vitað sé fyrirfram að enginn hafi áhuga á eða getu. Tíminn geti skipt miklu fyrir atvinnurekendur og þótt einhver sparnaður geti orðið fyrir kerfið með því að koma fólki af atvinnuleysisbótum þá geti fyrir- tækið orðið fyrir tjóni þegar þau fá ekki nægan mannskap tímanlega. Fréttaskýring | Útgáfa atvinnuleyfa fyrir útlendinga Mismikil þörf eftir greinum Þrýstingur á Vinnumálastofnun jafnvel meiri frá ættingjum en fyrirtækjum Erlendu starfsfólki fjölgar hér á landi. Meira en tvöföldun á út- gáfu nýrra atvinnuleyfa  Árið 2004 voru gefin út alls 3.750 atvinnuleyfi fyrir útlend- inga, samanborið við 3.304 árið 2003 og 3.637 árið 2002. Mest fjölgaði nýjum tímabundnum at- vinnuleyfum á síðasta ári. Voru þau 563 árið 2003 en fjölgaði í 1.374 í fyrra. Þetta er þó ekki jafnmikil útgáfa og árið 2001 þegar ný leyfi voru 1.401, þar af 468 vegna fiskvinnslu. Hins veg- ar fækkaði framlengdum at- vinnuleyfum í 1.135 á síðasta ári. bjb@mbl.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Fréttir á SMS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.