Morgunblaðið - 11.02.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.02.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 35 UMRÆÐAN LÍTIÐ hefur farið fyrir umræðu í hinum vestræna heimi um viðbrögð Asíubúa í kjölfar jarð- skjálfta og flóðbylgju um jólin. Flestir muna fréttaviðtölin þar sem vestrænir ferðamenn lýstu grátklökkir hvern- ig heimamenn fórnuðu öllu til að hjálpa þeim, fólki af öðrum þjóð- ernum. Við Íslendingar sátum í stofusófunum og hlustuðum á Svía og Dani segja sögur af heimafólki sem bauð all- ar eigur sínar í fórnfúsu hjálparstarfi. Heyrðum af bláfátæku fólki sem vann baki brotnu sólarhringum saman við að aðstoða náungann. Náunga af ólíkum kynþætti. Vellríka ferðamenn sem áttu það eitt sameiginlegt með As- íufólkinu að vera menn. Við Íslendingar stóðum fyrir fjár- söfnun vegna hamfaranna sem var hið besta mál og er þá málið ekki ein- faldlega úr sögunni? Kannski. Kannski ekki. Áleitin er sú spurning hvort við myndum bregðast við af sömu fórnfýsi og örlæti og Asíubú- arnir ef aðstæðurnar snerust við. Ef við stæðum frammi fyrir mannskæðum hamförum á okkar eig- in landi á háannatíma í ferðaþjónustu. Værum við jafn reiðubúin að veita ólíku fólki af öðr- um kynþáttum alla að- stoð? Skyldum við hjúkra þeim í híbýlum okkar, gefa þeim fæði okkar og klæði og fórna öllu, þeim til bjargar? Myndum við létta þeim missi og söknuð með grundvall- argildum tilverunnar. Mennsku, sam- hjálp og bræðralagi. Spurt er og kannski er fátt um svör. Við Íslendingar stöndum sem skjólveggur þegar áföll snerta okkur beint en vísbendingar eru um að við einblínum um of á velferð okkar sjálfra. Eins og umheimurinn komi okkur ekki við. Þannig hefur umræðan um Íraks- stríðið mengast af kapítalískum hags- munum þjóðarbúsins gagnvart veru Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Og vangaveltur um áhrif loftslags- breytinganna snúast nær einungis um örlög Íslands. Eins og umheim- urinn komi okkur ekki við. Þegar flóðbylgjueyðileggingin stóð sem hæst bar Asíufólkið boðskap inn í hjörtu okkur vesturlandabúa. Manngildisboðskapinn sem nær út fyrir öll landamæri. Það væri synd að líta framhjá því. Og við getum margt lært af þessu fólki. Boðskapur úr austri Björn Þorláksson fjallar um Ísland og umheiminn ’Áleitin er sú spurninghvort við myndum bregðast við af sömu fórnfýsi og örlæti og As- íubúarnir ef aðstæð- urnar snerust við. ‘ Björn Þorláksson Höfundur er rithöfundur og fréttamaður. Í FRÉTTUM heyrði ég að nú væri verið að skoða nýtt fyrirbæri í ferðaþjónustu, Skagafjörður nefnd- ur þar: Það er að gefa út leyfi til manna, sem geta komið norður og skotið tófu sér til skemmtunar. Hvers á útlaginn að gjalda, dýrið sem var hér á eyjunni okkar, þegar Ingólfur kom í árdaga siglandi frá Noregi með fólkið sitt? Tófan skynjaði seinna að í mann- skepnunni er engu að treysta, enda forðast tófan manninn eins og heit- an eld. Við Hrauneyjafossvirkjun, um harðan vetur, snjóþungt, skafrenn- ingur, veður vond, gerði Mikki sig heimakominn við mötuneytishús virkjunarinnar, kom í birtunni, dagurinn stuttur, sást liggja í skafli við glugga, gátum nánast horfst í augu við hann. Smátt og smátt byggðist upp traust, var Mikki að skondrast um svæðið og virtist þekkja bíla og starfsmenn virkj- unarinnar. Svo kom svartur dagur. Stór jeppi kom að sunnan, ók inn á svæðið, Mikki ekki langt frá veg- brún. Út úr jeppanum stígur mannapi með byssu og drepur varnarlaust dýrið og setur í svart- an poka. Ekki náðum við í hnakka- drambið á þessum afreksmanni, þeir óku burt. Mikið vorum við reið og sár. Við skotmanninn vil ég segja þetta: Mikið var afrek þitt að drepa varnarlaust dýrið, sem farið var að treysta manninum. AXEL B. EGGERTSSON, Flyðrugranda 4, Reykjavík. Mikki refur in memoriam Frá Axel B. Eggertssyni: BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.