Morgunblaðið - 11.02.2005, Side 60

Morgunblaðið - 11.02.2005, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ NÓG er af ævintýrum og spennu í myndinni Flight of the Phoenix. Myndin er endurgerð af samnefndri mynd með Jimmy Stewart í aðal- hlutverki en er nú sett í nútímalegri búning með Dennis Quaid í aðal- hlutverki. Hann leikur flugmann, sem er í hefðbundinni ferð til þess að kanna olíuborsvæði í Gobi- eyðimörkinni, og neyðist til þess að nauðlenda í einskismannslandi. Allt bendir til þess að hægur dauðdagi í eyðimörkinni bíði flugmannsins og allra sem lifðu slysið af. Eina von þeirra er að flugvirkjanum í áhöfn- inni (Giovanni Ribisi) takist að byggja glænýja vel úr flakinu. Líkt og í upphaflegu myndinni snýst myndin að mestu um karl- mannlegt ævintýri um það að lifa af og verkfræðileg undur. Í þetta sinn- ið er þó kona að nafni Kelly (Mir- anda Otto) um borð og fær róm- antíkin einhvern sess í myndinni. Leikarar á borð við Tyrese Gibson, Sticky Fingaz, Bob Brown og Kirk Jones leika aðra í áhöfninni. Leikstjóri er John Moore en fram- leiðandi er William Aldrich en Ro- bert, faðir hans, leikstýrði Stewart í upprunalegu myndinni. Frumsýning | Flight of the Phoenix Hættuför í eyði- mörkinni ANNETTE Bening leikur aðal- hlutverkið í Being Julia, á móti Jeremy Irons. Hún þykir njóta sín mjög í þessu hlutverki og hefur myndin fengið ágæta dóma. Bening leikur leikkonuna Juliu Lambert en sögusviðið er London árið 1938. Myndin er byggð á bókinni Theatre eftir W. Somerset Maugham. Julia er falleg og heillandi, á toppi ferils síns. Hún hefur notið vel- gengni á sviði en hjónaband hennar og umboðsmansinss myndarlega Michael Gossely (Irons) er orðið staðnað og ófullnægjandi. Hún þráir eitthvað nýtt, spennu og blossa. Þá kemur Tom Fennell (Shaun Evans) í líf hennar. Hann er ungur maður sem heldur því fram að hann sé stærsti aðdáandi Juliu. Leikkonan á erfitt með að standast hann og ákveður að smá rómantík sé besta meðalið gegn gráa fiðringnum og fer á kaf í ástríðufullt ástarsamband. Lífið verður sannarlega meira spennandi í kjölfarið, þangað til ung- ur ástmögur Juliu vill koma henni úr aðalhlutverki í aukahlutverk. Það á ekki við Júlíu og hún tekur til sinna ráða. Hefndin er takmark hennar, snilldarlega útfærð og sýnir hvar hún á heima, í sviðsljósinu. ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 65/100 Roger Ebert 1/2 Hollywood Reporter 70/100 New York Times 60/100 Variety 60/100 (metacritic) Frumsýning | Being Julia Hefndin er sæt MANNKYNIÐ hefur löngum verið heillað af þeirri hug- mynd að eiga samskipti við ástvini sem farið hafa yfir móðuna miklu. White Noise fjallar einmitt um slíka til- burði, með aðferð sem heitir „rafrænt raddarfyrirbæri“ (RRF, „Electronic Voice Phenomenon“, EVP, á eng- ilsaxneskri tungu). Með RRF tjá hinir látnu sig við hina lifandi í gegnum upptökutæki á heimilinu. Víðs vegar um veröld gerir fólk magnaðar upptökur með myndbands- tækjum sínum. Þessar upptökur virðast staðfesta það sem okkur hafði grunað; að hægt sé að eiga samskipti við hina framliðnu. Einungis þarf að leggja við hlustir. Michael Keaton leikur Jonathan Rivers, farsælan arkitekt, sem lendir í hringiðu atburðanna þegar kona hans, Anna (Chandra West), hverfur og deyr á óút- skýrðan hátt. Ókunnugur maður (Ian McNeice) hefur samband við Jonathan og segir honum að hann hafi feng- ið skilaboð frá Önnu í gegnum RRF. Jonathan er skilj- anlega efins í fyrstu, en verður brátt heltekinn af því að reyna sjálfur að hafa samband við hana. Með viðleitni sinni opnar arkitektinn dyr að öðrum heimi og veitir óboðnum gesti aðgang að lífi sínu. Frumsýning | White Noise Skilaboð að handan Michael Keaton reynir að ná sambandi við látna eiginkonu sína í White Noise. ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 30/100 Hollywood Reporter 60/100 New York Times 30/100 Variety 40/100 (metacritic) BANGSÍMON og Fríllinn kemur í kjölfar tveggja mynda um Bangsímon og félaga sem notið hafa mikilla vinsælda, Tumi tígur (The Tigger Movie) og Grislingur - Stórmynd (Piglet’s Big Movie). Í þetta sinnið standa Bangsímon og félagar – þau Gúri, Kanínka, Grislingur og Eyrnaslapi – frammi fyrir því að kvikindi, sem minnir einna helst á fíl en kallast hér fríll ógnar frið- inum og jafnvæginu sem verið hefur á heimaslóðum þeirra. Bangsímon og kátir kappar hans ákveða að láta til skarar skríða gegn þessum ófögnuði – sem enginn hef- ur reyndar barið augum. Kengúran litla Rúgi má hins vegar ekki koma með enda allt of lítill fyrir svona svaðilfarir. Við þetta uppveðrast hann og heitir því að finna skrímslið sjálfur til að sanna sig fyrir vinum sín- um. Málin æxlast svo þannig að Rúgi hittir fyrir Lumpa, sem er ungur fríll og alls ekki eins ógnvekjandi og sögur segja til um. Rúgi og Lumpi taka því höndum saman og sannfæra vini og kunningja úr báðum áttum að ótti sá og fordómar sem alið hefur verið á eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Bangsímon og fríllinn er með íslensku tali. Frumsýning | Bangsímon og fríllinn Vinskapur og væntumþykja Bangsímon og félagar, felmtri slegnir, enda ógnar fríllinn ófrýnilegi lífi þeirra. Kvikmyndir.is H.B. Kvikmyndir.com DV ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.30. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30. H.J. Mbl.  Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA Sýnd kl. 8.  S.V. Mbl.  Kvikmyndir.com OCEAN´S TWELVE Kvikmyndir.is Ian Nathan/EMPIRE Sýnd kl. 5.30 og 10.05. Sýnd kl. 6 og 9.10. tilnefningar til óskarsverðlauna þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar- Cate Blanchett og Alan Alda. 11 VINSÆLUSTU MYNDIRNAR Á FRÖNSKU KVIKMYNDAHÁTIÐINNI SÝNDAR ÁFRAM V.G. DV. Langa trúlofunin - Un Long dimanche. Sýnd kl. 5.30 og 10.15. Grjóthaltu kjafti - Tais toi. Sýnd kl. 8.30. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun Sýnd kl. 6, 8.30 og 11. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA LEONARDO DiCAPRIO H.L. Mbl. Kvikmyndir.is KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.40. Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð. Hefur vakið gríðarleg viðbrögð og sló í gegn í USA og víðar. Varúð: Ykkur á eftir að bregða. B.i 16 ára  Ó.S.V. Mbl.  Ó.S.V. Mbl.  FRUMSÝND Í DAG

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.