Morgunblaðið - 11.02.2005, Page 22

Morgunblaðið - 11.02.2005, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Calcium Citrat Veldu kalk sem gerir gagn. Einnig hægt að fá með D vítamíni PÓSTSENDUM www.islandia.is/~heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Árnesaptóteki Selfossi, Yggdrasil Kárastíg 1. Fjarðarkaupum Borgartúni 24                                  !"#$$   %    & '     (   ) *  + &(          ,%&   -)   +  (  ( ( %   .          (    ) /)    &     (  0 (  ) + (  . (  )     0 .  ( '    )    0 &   0    (%  +    &      )  1 % '  /    ( ) /   '' + 2  % $+ # +    '  !  33+   /   /        %       /  '  1 %        &  ) 4   ' 4             5      '     %    0  #633 /  ' $  33     '      7 ( ' ' + 2  % $+ !  , &      '        %  / (     / ## (0 33+ -     ( 0  AKUREYRI AÐ UNDANFÖRNU hefur hópur erlendra kvenna sótt sérstakt kvennanámskeið hjá Alþjóðastof- unni á Akureyri. Meirihluti þessa kvennahóps rekur uppruna sinn til Taílands, en hafa allar verið bú- settar á Íslandi um allnokkurt skeið. Þessar konur hafa nú, ásamt fleiri taílenskum konum, búsettum á svæðinu, tekið höndum saman og ákveðið að efna til söfnunar til styrktar fórnarlömbum flóðbylgj- unnar í Asíu. Hefur hópurinn unnið við gerð listmuna, en söfnunin felst í sölu þessara muna. Söluverð munanna rennur óskert til styrktar fórn- arlömbum flóðbylgjunnar í Asíu. Konurnar bjóða listmunina til sölu á Glerártorgi föstudaginn 11. febrúar kl. 13–18. Safna með sölu listmuna Gönguferð | Ferðafélag Ak- ureyrar býður upp á gönguferð um bakka Eyjafjarðarár á morg- un, laugardaginn 12. febrúar. Mæting er við skrifstofu Ferða- félagsins á Strandgötu 23 kl. 10. Þaðan verður ekið á einkabílum að bílastæðinu við gömlu brýrnar yfir Eyjafjarðará og síðan gengið með- fram ánni í átt að Hrafnagili. Skráning í ferðina er frá kl. 17 til 19 í dag, föstudag á skrifstofu fé- lagsins. Þátttaka er við allra hæfi og er ókeypis. Námstefna | Námstefna leik- og grunnskóla á Akureyri undir heit- inu Þróun skólastarfs verður á laugardag, 12. febrúar, í Brekku- skóla kl. 9. Tilgangur námstefn- unnar er að kynna fjölbreytt skólaþróunarstarf í leik- og grunn- skólum á Akureyri og miðla á milli skóla. Dagskrá hefst með ávarpi Jóns Kr. Sólnes formanns skólanefndar Akureyrar en að því loknu flytja Gunnar Gíslason deildarstjóri skóladeildar og Birna Svanbjörns- dóttir sérfræðingur í kennaradeild HA erindi. Þá verða kynnt alls 13 þróun- arverkefni. Söngkeppni | Sameiginleg söng- keppni allra félagsmiðstöðva á Norðurlandi verður haldin í kvöld og er þetta í fyrsta skipti sem efnt er til slíkrar keppni. Sigurvegarar úr henni fá svo þátt- tökurétt í söngkeppni Samfés í Reykjavík í mars. Mikill áhugi er fyrir keppninni en alls taka kepp- endur frá 14 félagsmiðstöðvum frá Þórshöfn og allt vestur á Hvamms- tanga og er búist við allt að 600 gest- um. Í dómnefnd verða Pálmi Gunn- arsson, Þórhildur Örvarsdóttir og Baldvin Ringsted. Í lokin ætlar svo hljómsveitin Sent að spila fyrir dansi. STÓRMEISTARINN Jóhann Hjart- arson og alþjóðlegu meistararnir Jón Viktor Gunnarsson og Sævar Bjarnason, ásamt fleiri sterkum skákmönnum, eru á meðal kepp- enda á minningarmótinu um Jón Björgvinsson, sem fram fer í KEA salnum í Sunnuhlíð á Akureyri um helgina. Það eru Skákfélag Ak- ureyrar og Taflfélag Dalvíkur sem standa fyrir mótinu, sem hefst kl. 19.30 í kvöld með fjórum atskákum. Síðustu þrjár umferðirnar eru kappskákir, 90 mínútur á 30 leiki og 30 mínútur til að ljúka skákinni. Fimmta umferðin hefst kl. 11 á morgun, laugardag, og sjötta um- ferðin kl. 17 sama dag. Sjöunda og síðasta umferðin hefst svo kl. 11 á sunnudag og eru áhorfendur vel- komnir alla dagana. Heild- arverðlaun eru 95.000 krónur en þátttökugjald er kr. 1.500 fyrir full- orðna en frítt fyrir 15 ára og yngri. Hægt er að skrá sig á heimasíðu S.A. skakfelag.is eða hjá Gylfa í síma 862-3820 eða Smára í síma 897-7874. Minningarmót í skák Morgunblaðið/Ómar Jóhann Hjartarson stórmeistari verður einn keppenda. Reykjavík | Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir borgarstjóri segir það hafa legið fyrir í alllangan tíma, samkvæmt aðalskipulagi borgar- innar, að samgöngumiðstöð myndi rísa á þeim slóðum sem rætt sé um. Viðræður hafa staðið yfir í starfshópi milli borgaryfirvalda og samgönguráðuneytisins um nokk- urt skeið um samgöngumiðsöð, sem tæki við af BSÍ, þangað myndi starfsemi Flugrútunnar færast, strætisvagnasamgöngur færu þar um, o.s.frv. Að sögn borgarstjóra er einkum horft til þess að samgöngumiðstöð- in verði við Hlíðarfót/Hótel Loft- leiðir. Samgöngumiðstöð og íbúða- byggð geta farið saman „Ég vil bara undirstrika að það er engin breyting að verða. Það hefur legið fyrir í mörg ár að þarna myndi rísa samgöngumiðstöð, þá erum við að tala um allsherjar samgöngumiðstöð,“ segir borgar- stjóri, sem segir að vel geti farið saman samgöngumiðstöð og upp- bygging í Vatnsmýrinni. „Við erum að fara af stað með skipulagsvinnu af svæðinu sem miðar að því að þetta verði tekið í áföngum undir íbúðabyggð og atvinnustarfsemi,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Þær upplýsingar fengust í sam- gönguráðuneytinu að nefnd sem fjallað hefur um væntanlega sam- göngumiðstöð muni líklega skila af sér tillögum í næstu viku en í henni sitja fulltrúar ráðuneytisins og borgaryfirvalda. Legið fyrir í mörg ár að samgöngumiðstöð risi Morgunblaðið/Jim Smart Örn Sigurðsson frá Höfuðborgarsamtökunum afhendir Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra áskorun samtakanna. Reykjavík | Í yfirlýsingu Höfuðborg- arsamtakanna sem afhent var borg- arráðsmönnum fyrir upphaf fundar borgarráðs í gær, vara samtökin borgaryfirvöld við því að ganga til samninga við ríkið um samgöngu- miðstöð fyrir innanlandsflug á Reykjavíkurflugvelli. Samgöngu- miðstöðin muni ekki gagnast borg- arbúum og sé til þess fallin að festa flugstarfsemi í sessi í Vatnsmýri. „Höfuðborgarsamtökin krefjast þess að borgaryfirvöld sjái til þess að fallið verði nú þegar frá öllum skipulags- og framkvæmdaáætl- unum í og við Vatnsmýri uns gert hefur verið heildarskipulag af svæðinu í fullri sátt við borgarbúa.“ Tjón sem hlotist hafi af flug- starfsemi í Vatnsmýri sl. 60 ár sé ólýsanlegt. Gamli miðbærinn í Reykjavík sé kominn að fótum fram, nærþjónusta í borginni hruninn og rekstrargrunnur almennings- samgangna brostinn. Byggð á höf- uðborgarsvæðinu hafi splundrast sökum flugvallarins og borgin þeki ámóta landflæmi og evrópsk stór- borg. Með skilvirkara borg- arskipulagi án flugvallar megi ná miklum ábata á öllum sviðum sam- félagsins. Vilja ekki miðstöðina Reykjavík | Stefnt er að því að víkka út gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í sumar með því að fjölga akreinum og beygju- ljósum fyrir allar vinstri beygjur á gatnamótunum. Framkvæmdaráð og borgarráð eiga þó eftir að staðfesta útfærslu gatnamótanna áður en til fram- kvæmda kemur, en almennt hefur tilhögunin fengið mjög góðar undir- tektir, að sögn Ólafs Bjarnasonar, forstöðumanns verkfræðisviðs fram- kvæmdasviðs borgarinnar. Undirbúningi hefur verið hagað á þann veg að verkið verði klárað í haust. Verkið er fjármagnað með fé úr samgönguáætlun og unnið í sam- vinnu við Vegagerðina. Þrjár akreinar í hvora átt Gert er ráð fyrir að eftir breyting- arnar muni bæði Kringlumýrarbraut og Miklabraut vera með þremur ak- reinum í hvora akstursstefnu, auk þess sem tvær beygjuakreinar verða með beygjuljósum fyrir allar vinstri beygjur. Þá verður einnig sérstök akrein fyrir strætisvagna í vesturátt á Miklubrautinni. Stefnt að því að ljúka breikkun í haust HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Fréttir á SMS    112 dagurinn | Svonefndur 112 dagur er í dag, en af því tilefni verð- ur starfsemi Neyðarlínunnar og samstarfsaðila hennar kynnt. Opið hús verður hjá útibúi 112 á Akureyri á lögreglustöðinni og einnig hjá Slökkviliði Akureyrar við Árstíg frá kl. 14– 18. Gestum verður boðið að skoða tæki og tól og ræða við starfsmenn. Námskynning | Kynning á námi við Háskólann á Akureyri verður á morgun, laugardaginn 12. febrúar, frá kl. 13 til 17 í rannsóknar- og ný- sköpunarhúsinu Borgum og gefst gestum því kjörið tækifæri til að skoða húsakynni sem þar eru. Dag- skráin er hefðbundin þar sem nem- endur og kennarar kynna náms- framboð, en að auki verður boðið upp á kaffiveitingar og kl. 15.30 mun Helena Guðlaug Bjarnadóttir sópr- an syngja við undirleik Helgu Bryn- dísar Magnúsdóttur.      

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.