Morgunblaðið - 11.02.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 9
FRÉTTIR
60% afsláttur
eða meira
Næst síðasti útsöludagur
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Þingholt
Veislusalur fyrir öll
tilefni
Spennandi matseðlar
og veitingar
Skoðið verðið á
www.holt.is
• • •
• • •
• • •
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
www.invita.com
Lagersölu lýkur laugardag
40-70% afsláttur
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Nýjar gallabuxur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
undirfataverslun
Síðumúla 3 - Sími 553 7355
Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga frá kl. 11-15.
Útsala
Síðustu dagar
Enn meiri verðlækkun
NÝJAR
VÖRUR
Laugavegi 25,
sími 533 5500.
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Í KJALLARA
Mjódd, sími 557 5900
Nýjar vörur frá Soya, Share og Esprit
Enn meiri afsláttur af útsöluvörum
Verið velkomnar
RANNSÓKN á hjólabúnaði Boeing
747-200 þotu Air Atlanta, sem fór út
af flugbraut í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum 7. nóvember sl. er
nú á lokastigi. Í flugtakinu sprungu
þrír hjólbarðar af fjórum á einni
hjólafestingunni og var hætt við flug-
tak og vélinni beint út af flugbrautinni
þar sem hún nálgaðist enda hennar.
Enginn slasaðist í atvikinu en flug-
vélin var dæmd ónýt.
Hluti af hjólabúnaði vélarinnar var
sendur um síðustu áramót til rann-
sóknar hjá framleiðandanum, Honey-
well í Bandaríkjunum. Þormóður
Þormóðsson, rannsóknarstjóri hjá
Rannsóknarnefnd flugslysa, var við-
staddur rannsóknina þar auk fulltrúa
bandarískra flugmálayfirvalda og frá
Boeing. Sagði hann niðurstöður
væntanlegar innan tíðar.
Ljóst væri að skemmdir hefðu orð-
ið á felgu og sprungið á þremur hjól-
börðum af fjórum á einni hjólafesting-
unni en alls eru fjórar slíkar festingar
í aðalhjólabúnaði á þotum sem þess-
um. Þormóður tjáði Morgunblaðinu
að enn væri of snemmt að segja til um
hvað væri orsök og hvað afleiðing
varðandi skemmdir eða bilun hjóla-
búnaðarins.
Þá upplýsti Þormóður Morgun-
blaðið að til rannsóknar væri hjá
RNF annað flugatvik hjá Air Atlanta
sem orðið hefði í byrjun desember.
Þar átti í hlut þota af sömu tegund,
B747-200, sem var í flugtaki í Kóreu.
Urðu flugmenn varir við eitthvað
óeðlilegt í flugtakinu en fóru samt í
loftið og lentu skömmu síðar eftir að
eldsneyti hafði verið losað. Í ljós kom
bilun í hjólabúnaði og segir Þormóður
að við rannsókn á búnaðinum í
Bandaríkjunum hafi komið í ljós að
þótt atvikin væru um margt hliðstæð
væru engin tengsl á milli orsaka
þeirra. Hins vegar væri rannsókn
seinna atviksins ekki lokið og því ekki
unnt að segja til um niðurstöður að
svo stöddu.
Rannsakendur frá Rannsóknar-
nefnd flugslysa fara jafnan á vettvang
þegar íslenskar flugvélar lenda í al-
varlegum flugatvikum eða flugslysum
erlendis og segir Þormóður slík verk-
efni hafa aukist hjá nefndinni með
aukinni útrás íslensku flugfélaganna
á síðustu árum. Segir hann kostnað
vegna þessa hafa aukist umtalsvert
síðastliðin þrjú til fjögur ár og á fjár-
hagsáætlun RNF í ár sé beinlínis gert
ráð fyrir slíkri kostnaðaraukningu.
Hann segir að Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra og samstarfs-
menn hans í samgönguráðuneytinu
hafi haft skilning á því að auka fjár-
framlög til RNF enda sé það grund-
vallaratriði að geta sinnt rannsókn-
arverkefnum sem upp koma hvort
sem þau eru innanlands eða utan.
„Flugslysarannsóknir eru unnar
eftir alþjóðlegum stöðlum og það er
beinlínis gert ráð fyrir því að við
leggjum okkar að mörkum við rann-
sókn á atvikum vegna íslenskra flug-
véla erlendis. Á sama hátt getum við
treyst á liðveislu erlendra starfs-
bræðra þegar við rannsökum atvik
erlendra flugvéla á Íslandi,“ segir
Þormóður og segir því um gagn-
kvæman hag að ræða.
Einar Óskarsson, flugöryggis-
fulltrúi Air Atlanta, kvaðst ekki geta
upplýst nánar um atvikið í Kóreu
enda væri það ennþá til rannsóknar
hjá RNF. Bjóst hann við að nokkrar
vikur væru enn í niðurstöður. Einar
sagði að samstarf RNF og Air Atl-
anta hefði verið náið í þessum málum
báðum og kvaðst hann mjög ánægður
með hversu fljótt fulltrúi RNF kom á
vettvang eftir atvikið í Sameinuðu ar-
abísku furstadæmunum í byrjun nóv-
ember.
„Það var mjög mikilvægt fyrir okk-
ur að fulltrúi íslensku rannsóknar-
nefndarinnar gat verið með í vett-
vangsrannsókninni frá upphafi og
öllum fundum sem fylgdu í kjölfarið
ásamt fulltrúa Flugmálastjórnar,“
sagði Einar sem sjálfur var á staðn-
um þegar atvikið varð og setti af stað
þá viðbragðsáætlun sem tilbúin var
hjá Air Atlanta og ætlað er að nota við
slíkar aðstæður.
Þá tók Einar undir þau orð Þor-
móðs Þormóðssonar um mikilvægi
stuðnings samgönguráðherra við
starf RNF á tímum aukins umfangs
flugvéla skráðra á Íslandi í rekstri um
allan heim.
Rannsókn í Bandaríkjunum á hjólabúnaði Atlanta-breiðþotu að ljúka
Þrír af fjórum hjólbörðum
sprungu á einni hjólafestingunni
Morgunblaðið/jt
Talið er að bilun hafi komið upp í
hjólabúnaði þotunnar í flugtakinu.
Svipað atvik varð hjá Atlanta-þotu
sömu gerðar í Kóreu mánuði síðar
Kínversk-
ur dreka-
dans á
Laugavegi
KÍNVERSK-íslenska menn-
ingarfélagið og Félag Kínverja
á Íslandi efna til drekadans nið-
ur Laugaveg í Reykjavík á
morgun, laugardaginn 12. febr-
úar, í tilefni kínverska nýársins
en 9. febrúar, sl. hófst nýtt
tunglár samkvæmt kínversku
tímatali eins og fram hefur
komið í fréttum og er nýja árið
kennt við hanann.
Haldið verður frá Hlemmi kl.
14 og gengið sem leið liggur í
miðborgina. Í göngunni verður
15 metra langur, litríkur dreki
sem eltir perlu. Þá verða slag-
verksleikarar með í för. Dreka-
dansinum stjórnar Unnur Guð-
jónsdóttir ballettmeistari og
Lárus Halldór Grímsson stýrir
slagverkinu.
Að dansinum loknum verður
sýning á Wushu/Kungfu-bar-
dagalist í sal Ráðhússins. Þátt-
takendur verða frá Heilsudrek-
anum. Stjórnandi sýning-
arinnar verður Guan
Dongqing.
Neyðar-
þjónustan
kynnt í dag
SVOKALLAÐUR 112 dagur verður
haldinn hátíðlegur í dag en með því
er vísað í neyðarnúmerið 112 og
verður m.a. dagskrá í Smáralind í
Kópvogi og slökkviliðs- og lögreglu-
stöðvar víða á landinu verða opnar.
Garðar H. Guðjónsson, verkefnis-
stjóri 112 dagsins, segir hann nú
haldinn í fyrsta sinn. Bent er á í
fréttatilkynningu um dagskrána að
með einu símtali í 112 sé á auga-
bragði unnt að virkja lögreglu,
slökkvilið og hvers kyns aðila sem
sinna neyðarhjálp.
Dagskrá verður í Smáralind kl. 14
til 18 í dag, útnefndur verður skyndi-
hjálparmaður Rauða kross Íslands
2004 og verðlaun veitt í eldvarnaget-
raun Landssambands slökkviliðs-
manna 2004. Þá sýna sjúkraflutn-
ingamenn búnað, tækjabíll
umferðardeildar lögreglustjóra
verður á staðnum og þyrla Land-
helgisgæslunnar lendir á bílastæð-
inu við Smáralind kl. 15. Opið hús
verður í dag hjá Björgunarmiðstöð-
inni við Skógarhlíð og hjá lögreglu-
og slökkvistöðvum víða eftir hádegi.