Morgunblaðið - 11.02.2005, Page 48

Morgunblaðið - 11.02.2005, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Kennsla Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir: Heddi frændi EA-244, skrn. 892, þingl. eig. M200 útgerð ehf., gerðar- beiðandi Ker hf., miðvikudaginn 16. febrúar 2005 kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 10. febrúar 2005. Harpa Ævarrsdóttir ftr Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnar- stræti 1, Ísafirði, þriðjudaginn 15. febrúar 2005 kl. 14:00 á eftirfarandi eignum: Aðalgata 2a, sumarhús, fnr. 212-7025, Súðavíkurhreppi, þingl. eig. Gullrún ehf bt/Sigmundar Franz Kristjánssonar, gerðarbeiðendi Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Nesvegur 9, sumarhús, fnr. 212-7071, Súðavíkurhreppi, þingl. eig. Lárus Einarsson, v/5402830369, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið. Smiðjugata 8, fnr. 212-0351, Ísafirði, þingl. eig. Sveinbjörg Sveins- dóttir, gerðarbeiðandi Leifur Árnason hdl. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 10. febrúar 2005. Una Þóra Magnúsdóttir, fulltrúi. Stangaveiðimenn athugið! Nýtt námskeið í fluguköstum hefst sunnudaginn 13. feb. í TBR-húsinu, Gnoðarvogi 1, kl. 20. Kennt verður 13., 20., 27., feb., 6. og 13. mars. Við leggjum til stangir. Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort). Mætið tímanlega. (Íþróttaskór/inniskór). KKR, SVFR og SVH. Félagslíf Í kvöld kl. 20.30 fjallar Sigur- jón Björnsson um verk Sig- munds Freud í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjá Arnars Guð- mundssonar er sýnir myndband með Joseph Campell. Hugræktarnámskeið Guðspekifé- lagsins verður framhaldið fimmtu- daginn 17. febrúar kl. 20.30 í um- sjá Sigurðar Boga Stefánssonar: „Kristin hugleiðing“. Á fimmtudögum kl. 16.30- 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid. I.O.O.F. 1  1852118  Sk. I.O.O.F. 12  1852118½  R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is Sigurður Baldurs- son föðurbróðir minn lést föstudaginn 28. janúar síðastliðinn þá nýlega orðinn 82 ára gamall, fædd- ur fimmtudaginn 4. janúar 1923 annar í röð þriggja systkina sem á legg komust. Ragnheiður systir hans er fjórum árum eldri og lifir bræður sína, en Kristinn Magnús yngri bróðir þeirra lést 2. júní 2002. Siggi föðurbróðir hefur verið hluti af lífinu frá því ég man fyrst eftir mér og reyndar allt frá fæð- ingu minni, en hann heimsótti mig og móður mína á fæðingardeildina SIGURÐUR BALDURSSON ✝ Sigurður Bald-ursson fæddist í Reykjavík 4. janúar 1923. Hann lést á Grund við Hring- braut í Reykjavík að morgni föstu- dagsins 28. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 9. febr- úar. daginn eftir að ég fæddist, þótt ég minn- ist þess nú ekki. Hann sagði mér allnokkru síðar að hann hefði aldrei séð ljótara reifabarn. Hvað um það, minn- ingin um Sigurð er björt og ákaflega skemmtileg og reynd- ar er sama hvar borið er niður – hlátur kem- ur í hugann. Siggi var um flest einstakur og eftirminnilegur þeim er honum kynntust eða áttu við hann samskipti þótt í smáu væri. Fyrir honum var lífið sífelld skemmtun og amstur dagsins því einungis nauðsynlegt til að halda mætti skemmtuninni til haga. Hann var samt hvorki latur né hyskinn, heldur í senn vandvirkur og vinnu- samur um þau verk sem hann tók að sér – og með afbrigðum ná- kvæmur. Hann sagði Kristjönu systur minni einhvern tíma að hann hefði lært nákvæmnina af Þórði föðurbróður sínum, sem þótti svo nákvæmur að jaðraði við smásmygli. Siggi losnaði ekki við þá innrætingu, sem var honum fremur ljúf en sár og líklega einn- ig í blóð borin. Sigurður kvæntist árið 1951 Önnu Gísladóttur Ólafs- sonar bakara, eða „henni Önnu minni“ eins og hann stundum sagði. Eignuðust þau tvo syni, Baldur sem fæddur er 1952 og kvæntur Evu Benediksdóttur og Gísla sem fæddur er 1959 og kvæntur Guðrúnu Hólmgeirsdótt- ur. Barnabörnin eru fimm. Lengst af bjuggu Anna og Sigurður í Karfavogi 36, en leiðir þeirra skildi árið 1981 og kvæntist Sig- urður öðru sinni árið 1982, Lilju Bernhöft. Við Baldur erum jafnaldrar og áttum strax í frumbernsku margar glaðar stundir með bræðrunum feðrum okkar. Í barnsminni eru ýmsar myndir af Sigga sem alltaf hafði drjúgan tíma til skrafs og kúnsta. Hann tók af sér þumalinn við mikla undrun viðstaddra og sneri upp á úlnliðinn að því er virt- ist í heilhring án þess losnaði af höndin; svo dró hann upp úr vasa sínum tanngarð einn mikinn sem hann trekkti upp og hló þá garð- urinn samtímis því að hann skellti í góm og þeyttist fram og aftur um borðið. Mörg fleiri brögð hafði hann í frammi sem vöktu kátínu okkar. Og uppátækin voru ekki bundin við ungviðið, þau voru lög- uð að aldri og þroska er hvoru tveggja vatt fram. Maður vissi aldrei hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann var annars vegar. Það var alltaf gaman að koma til Önnu og Sigga í Karfavoginn. Sigurður var í meðallagi á hæð, svipfríður og kímileitur, skolhærð- ur og varð aldrei grátt hárið nema einn lokkur á miðju höfðinu. Hann var mikið snyrtimenni, gekk jafn- an í vesti við jakkafötin og hafði vasaúr í gullkeðju í vestisvasanum. Ásgeir tengdafaðir minn segir að þann veg hafi Siggi verið búinn fyrsta daginn í menntaskóla. Hann mun hafa skorið sig úr fjöldanum strax sem barn og unglingur fyrir sakir uppátækja sinna og sérvisku. Þannig lét hann til dæmis snoð- klippa sig á unglingsárum og stofnaði af því tilefni félagsskapinn Snoðklipptravinafélagið og tók að sér að snoðklippa þá sem vildu ganga í félagið. Þeir bræður Sigurður og Krist- inn fylgdust að alla sína skóla- göngu og luku báðir laganámi vor- ið 1948 – og hóf þá Sigurður strax störf hjá Ragnari Ólafssyni hrl., frænda sínum. Sigurður öðlaðist héraðsdómslögmannsréttindi 6. desember 1949 og hæstaréttarlög- mannsréttindi sömuleiðis 6. des- ember árið 1960. Hann starfaði hjá Ragnari til ársins 1967 er hann stofnaði sína eigin skrifstofu á Laugavegi 18, eða í Rúbblunni eins og sumir kölluðu það hús. Auk lögmannsstarfa sinnti Sig- urður ýmsum félagsmálum, sat m.a. í stjórn Íslensk-þýska menn- ingarfélagsins og var formaður þess um árabil. Hann fór þá oft til Austur-Þýskalands í ráðstefnu- og friðarferðir. Þá lágu tungumál ein- staklega vel fyrir honum, talaði ágæta ensku og þýsku og á miðjum aldri hóf hann að læra rússnesku af kappi og náði góðum tökum á henni. Einhverju sinni kom ég á skrifstofuna til hans að sumarlagi með belgískan frönsku- mælandi blaðamann sem var held- ur slakur í ensku. Það var eins og við manninn mælt, Sigurður ræddi við hann á frönsku eins og ekkert hefði í skorist, átti við hann langt samtal og gaf honum að lokum í staupinu. Á skrifstofu Sigurðar var starf- rækt matarfélagið Gnægtir. Fólk kom í hádeginu með eitthvað mat- arkyns sem lagt var á borð og af varð fjölbreytt veisluborð næstum eins og í Heljarslóðarorustu og ákaflega glatt á hjalla. Siggi var veislustjórinn, sagði sögur og fór með kvæði og rímur. Rætt var um skáldskap fornan og nýjan og um málefni líðandi stundar. Á föstu- dögum – og stundum endranær – var hellt í staup, stundum fleiri en eitt og fleiri en tvö og skrifstof- unni lokað eftir hádegi ef svo bar við og hægðist þá tímans þungi niður. Ef síminn hringdi er leikar stóðu sem hæst þá svaraði Siggi stundum „Teppagerð Alfreðs og Gottfreðs, góðan dag“ – og bað þá sá er hringdi afsökunar á því að hafa hringt í skakkt númer. Blómaskeið Gnægta stóð áratugina 1967–87 eða þar um bil. Sigurður var einlægur maður, hjálpsamur og góðviljaður. Þessir eiginleikar einkenndu hann í lífi, leik og starfi. Í lögmannsstörfum sínum var hann maður sátta og reyndi ætíð eftir mætti að forða fólki frá því að fara í mál, þar sem það gerði oft illt verra. Í dómsmáli bæri annar aðilinn ávallt lægri hlut, tapaði málinu. Dæmi um þetta eðlislæga við- horf Sigurðar er að finna í lítilli frásögn sem fram kemur í ræðu sem hann flutti á samkomu Orators, félags laganema árið 1963. Þar víkur hann að því í lok ræðunnar, eftir að hafa gantast um hríð, að ekki geti hann ávarpað hina ungu laganema nema að gefa þeim eitthvert heilræði í væntan- legum praxís. Segir að vísu að nauðsynlegt sé að kunna bókstaf- inn vel og gera viðskiptavinina ánægða, en við úrlausn mála, jafn- vel hinna smæstu, megi bókstaf- urinn aldrei verða til að torvelda lausn málsins. Því til sanninda- merkis segir hann eftirfarandi dæmisögu: „Á fyrstu árum mínum í praxís var ég einu sinni sem oftar stadd- ur uppi í bæjarþingsstofu í Hegn- ingarhúsinu, þegar verið var að taka fyrir ný mál. Eitthvað af fólki beið þarna frammi á gangi eftir því að nöfn þess yrðu kölluð upp. Gömul kona, sem beið þarna, vék sér að mér og sýndi mér afrit af stefnu, þar sem iðnaðarmaður, mig minnir rafvirki, stefndi henni til að greiða viðgerðarreikning upp á rúmlega 200 krónur auk vaxta og málskostnaðar. Konan fór hörðum orðum um viðgerðarmanninn og framkomu hans alla og sagðist ekki skilja í þeirri ósvífni að fara að stefna sér ofan á það sem á undan var gengið. Ég fór að athuga, hver væri lög- maður stefnanda og fann hann fljótlega. Við fórum afsíðis og ræddum málið, og þar kom, að lög- maðurinn sagði, að ef konan borg- aði hundrað krónur, áður en málið yrði tekið fyrir, skyldi hann sleppa henni við öll frekari útgjöld. Mér fannst þetta kostaboð og fór til konunnar og sagði henni hreykinn frá þessu afreki mínu, þar sem hún yrði ella að borga a.m.k. 5–600 krónur samtals með málskostnaði og málsvarnarlaunum, eins og verðlag var þá, en gamla konan var nú ekki alveg á að fara að borga þessum ósvífna manni pen- inga. Af sér skyldi hann ekki hafa einn einasta eyri. Ég sá, að rök- ræður við konuna voru gersamlega út í loftið og sagðist skyldi reyna betur. Síðan fór ég inn í réttarsal og beið þar góða stund, fór svo fram aftur og sagði konunni, að háttvirtur andstæðingur hefði látið sér segjast og málið væri fallið niður. Það þykir mér ekki mikið, sagði konan, en hvað á ég að borga yður fyrir hjálpina? Ja, þetta var nú svo sem ekki neitt og allra sízt til að taka fyrir það, segi ég. Jú, ég vil borga fyrir svona góða hjálp, segir hún. Ja, ef við tökum eitthvað, er það nú yfirleitt ekki undir 100 krónum, segi ég. Já, og þó það væri meira, skyldi ég borga það með ánægju, sagði sú gamla. Síðan kvöddumst við með mestu virktum og ég fór með hundrað- kallinn og greiddi kröfuna.“ Nú er Sigurður allur. Hann átti um margt góða ævi og þó nokkuð langa – og var oftast „vel lukk- aður“ eins og hann stundum sagði; skemmti sér konunglega – þótt nokkuð væri af honum dregið hin síðari árin. Minningin um Sigga lifir með okkur um ókomna tíð og með þeim sem þekktu hann. Það var okkur systkinunum og Systu konu minni mikil gæfa að fá að njóta vináttu hans og samveru. Við hjónin, systkini mín og móð- ir, vottum fjölskyldu Sigurðar, Lilju eiginkonu hans, Baldri og Gísla og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð við fráfall Sigurðar. Þórður Kristinsson. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STEINÞÓRS BENEDIKTSSONAR bónda, Kálfafelli, Suðursveit. Benedikt Þór Steinþórsson, Ragnheiður Magnúsdóttir, Bjarni Steinþórsson, Hrefna Guðmundardóttir, Unnsteinn Ingi Steinþórsson, Svava Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar sonar míns, bróður okkar og mágs, GUÐJÓNS SKARPHÉÐINSSONAR, Eiríksbakka. Vinum hans þökkum við ómetanlega tryggð og stuðning. Starfsfólki þeirra heilbrigðisstofnana sem hann dvaldi á eru færðar kærar þakkir fyrir góða umönnun á liðnum árum. Einnig er félögum úr Karlakórnum Fóstbræðrum færðar sérstakar þakkir. Ágústa Guðjónsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.