Morgunblaðið - 11.02.2005, Side 53
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fréttablaðið og Dagskráin:
Ekki í hvert hús
Í FRÉTT í Morgunblaðinu í dag,
sunnudag, heldur Gunnar Smári Eg-
ilsson því fram að Fréttablaðið sé
borið út í hvert hús á Akureyri. Það
er ekki rétt. Fréttablaðinu er t.d.
ekki dreift í hús í hverfinu þar sem
ég bý og þegar ég spurðist fyrir um
ástæðuna var mér tjáð á skrifstofu
blaðsins að hverfið væri of fámennt
til að það borgaði sig. Gunnar Smári
segir því ekki satt. Þá gildir hið
sama um auglýsingablaðið Dag-
skrána á Akureyri, sem er heldur
ekki borið út í hvert hús í bænum,
gagnstætt fullyrðingum aðstand-
enda þess, og uppgefnar ástæður
þær sömu og Fréttablaðsins. Viku-
ritið Extra stendur sig mun betur og
rennur inn um lúguna hjá mér á
hverjum miðvikudegi. Þar á bæ vilja
menn fregna ef blaðið skilar sér ekki
inn á hvert heimili í bænum og eiga
þeir heiður skilinn fyrir metnaðinn
og þjónustuna. Nokkuð virðist
skorta á hvort tveggja hjá hinum
blöðunum tveimur.
Íbúi í Naustahverfi.
Þakkir fyrir
góða grein
ÉG vil þakka Steingrími Þormóðs-
syni fyrir afar góða grein um trygg-
ingafélög og bætur til þolenda slysa.
Atferlið sem Steingrímur lýsir í
grein sinni er hárrétt og þetta eru
orð í tíma töluð.
Aðalheiður Kjartansdóttir.
Barnakerra
í óskilum
BARNAKERRA fannst í Bólstað-
arhlíð. Upplýsingar í síma 553 4328.
Gsm-sími týndist
SONY Ericsson gsm-sími týndist í
Smáralindinni, eða í leið 17, milli kl.
18–19 2. febrúar sl. Finnandi vin-
samlega hafi samband í síma
659 0601.
Morgunblaðið/Sverrir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 53
DAGBÓK
Ný Afríka í mótun“ er yfirskrift málþingssem Háskóli Íslands, Þróunarsam-vinnustofnun Íslands og Norræna Afr-íkustofnunin gangast fyrir á morgun
milli kl. 14 og 16 í Hátíðasal HÍ. Á þinginu munu
nokkrir afrískir sérfræðingar í málefnum álfunnar
leitast við að varpa ljósi á þann margþætta vanda
sem ríki í Afríku sunnanverðri eiga við að etja.
„Stundum þegar maður horfir á fjölmiðla fær
maður á tilfinninguna að það séu engir háskólar og
eða fræðimenn í álfunni sjálfri,“ segir Kristín
Loftsdóttir, sem hefur starfað við undirbúning ráð-
stefnunnar ásamt Friðriki Rafnssyni, Magnfríði
Júlíusdóttur, Sjöfn Vilhelmsdóttur og Jónínu Ein-
arsdóttur. „Við sjáum þannig alltof oft Vest-
urlandabúa tala um Afríku eða fyrir fólk í Afríku
eins og það geti ekki talað sjálft. Hér er kjörið tæki-
færi að hlusta á fólk frá álfunni segja sjálft frá sín-
um rannsóknum og niðurstöður þeirra hvað varða
hin ýmsu lönd Afríku. Efnið er einnig í sjálfu sér
mjög áhugavert og ætti að vekja áhuga þeirra sem
vilja vita meira um hnattvæddari heim.“
Hver er staða afrískrar fræðimennsku í dag?
„Mikil gróska einkennir afríska fræðimennsku
sem endurspeglast meðal annars í því að fjöldi
fræðilegra tímarita eru gefin út í álfunni. Viðfangs-
efnin eru einnig fjölþætt og ólík. Erfiðar efnahags-
aðstæður í mörgum löndum geta þó verið fræði-
mönnum erfiðar. Þær fela meðal annars í sér
erfiðari vinnuaðstæður, þ.e. minna aðgengi að
rannsóknarstyrkjum, lág laun og lítið fjármagn til
útgáfu. Það má benda á í því samhengi að Norræna
Afríkustofnunin hefur verið virk í útgáfu verka afr-
ískra fræðimanna sem hafa tengsl við stofnunina og
einnig má á heimasíðu stofnunarinnar
(www.nai.uu.se) finna vefsíður margra afrískra
tímarita.“
Hvað geta afrísk og íslensk fræðasamfélög fært
hvort öðru?
„Íslenskt fræðasamfélag hefur farið ört vaxandi
á síðustu árum og mörg viðfangsefni skarast aug-
ljóslega við það sem afrískir fræðimenn eru að fást
við. Við höfum samhliða þeirri þróun séð stækkandi
hóp fræðimanna á Íslandi sem hafa stundað rann-
sóknir tengdar Afríku og þar má finna mjög spenn-
andi og ólík viðfangsefni.
Afrískt fræðasamfélag felur samt augljóslega í
sér mun meiri fjölda og breiðari hóp fræðimanna
heldur en er á Íslandi. Ég tel að afrískt fræða-
samfélag feli í sér ferska strauma fyrir fræðimenn
hér á landi, þá ekki eingöngu fyrir þá sem vinna að
rannsóknum tengdum Afríku. Afrískir fræðimenn
hafa bent á þjóðhverfu í nálgun og aðferðum og
einnig komið með ný sjónarhorn á hugtök sem
fræðimenn í hinum ýmsu greinum hafa verið að
glíma við. Afrískir femínistar hafa, til dæmis, komið
með mikilvægt framlag til fræðilegrar umfjöllunar
um minnihlutahópa.“
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Fræðasamstarf | Málþing um málefni Afríku í Hátíðarsal Háskóla Íslands
Mikil gróska í afrískri fræðimennsku
Kristín Loftsdóttir er
fædd í Hafnarfirði árið
1968. Hún lauk B.A.
gráðu í mannfræði frá
Háskóla Íslands 1992
og doktorsprófi frá
Arizonaháskóla árið
2000.
Kristín er dósent við
mannfræði- og þjóð-
fræðiskor Háskóla Ís-
lands. Hún stundaði
m.a. mannfræðirann-
sóknir hjá WoDaBe ætt-
bálknum í Níger.
Kristín er gift Má Wolfgang Mixa, fram-
kvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu Sparisjóðs-
ins og eiga þau einn son.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
85 ÁRA afmæli. 16. febrúar nk. er85 ára Gunnar Már Hjálmtýs-
son, fyrrverandi verkamaður Af því
tilefni býður hann vinum og vanda-
mönnum til kaffisamsætis á morgun,
laugardaginn 12. febrúar, kl. 15–18 í
Bauganesi 26, Skerjafirði.
Brúðkaup | Gefin voru saman 2. júlí
sl. í Skólabæ af sr. Braga Skúlasyni
þau Guðrún Edda Gunnarsdóttir og
Amid Derayat.
Skugginn/ Barbara Birgis.
1. d4 f5 2. g3 g6 3. Bg2 Rf6 4. Rf3 Bg7
5. 0-0 0-0 6. c4 d6 7. Rc3 Rc6 8. d5 Ra5
9. Da4 c5 10. dxc6 Rxc6 11. Hd1 Kh8
12. c5 d5 13. Bf4 Be6 14. Re5 Dc8 15.
Rxc6 Dxc6 16. Da3 Re4 17. Rxe4 fxe4
18. Hac1 Bg8 19. Hc2 d4 20. Bg5 De6
21. c6 Df5 22. cxb7 Hab8 23. Bxe7
Dxf2+ 24. Kh1 d3 25. Bxf8 Hxf8 26.
Hcc1 dxe2 27. He1 e3 28. Dd6 Bxb2.
Staðan kom upp í C-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee. Natalia Zhu-
kova (2.465) hafði hvítt gegn Tea
Lanchava-Bosboom (2.366). 29. Hxe2!
Dxe2 30. Dxf8 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Blekking í vörn.
Norður
♠G5
♥G96 A/Enginn
♦D96
♣D9874
Vestur Austur
♠D72 ♠Á93
♥Á72 ♥KD1085
♦73 ♦52
♣Á10632 ♣KG5
Suður
♠K10864
♥43
♦ÁKG1084
♣–
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 hjarta 2 hjörtu *
Dobl Pass Pass 3 tíglar
3 hjörtu Pass Pass 4 tíglar
Dobl Allir pass
Suður á falleg sóknarspil og ákveður
að berjast upp á eigin spýtur í fjóra
tígla. Til að byrja með sýnir hann
minnst 5-5 í spaða og láglit með Mich-
aels-innákomunni á tveimur hjörtum,
og í framhaldinu teygir hann sig upp í
fjóra tígla yfir þremur hjörtum. Sem er
nokkuð glannalegt, en virðist vel
heppnað, því eins og legan er þarf ekki
annað en að hitta í spaðann til að fá tíu
slagi.
En þá kemur til kasta varnarinnar.
Vestur byrjar á hjartaás og spilar
hjarta áfram til austurs í öðrum slag.
Austur hugsar sig um í nokkra stund,
en leggur síðan niður laufkóng!
Nú skulum við setjast í suðursætið.
Svo virðist sem austur eigi KD í hjarta
og ÁK í laufi. Og eitthvað á vestur fyrir
doblinu og því er eðlilegt að reikna með
spaðaásnum hjá honum. Sem sagt –
sagnhafi fer inn í borð á tígulníu, spilar
spaðagosa og lætur hann rúlla. Og fer
einn niður.Austur er hetja spilsins.
Þegar hann fékk síðari hjartaslaginn
vissi hann vel að suður átti ekkert lauf,
svo það gat ekkert kostað að spila lauf-
kóng eins og hann hefði byrjað með
ÁK. Slíkar villandi upplýsingar gætu
haft áhrif á íferð sagnhafa í spaðanum.
Svo sannarlega.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Indversk-breska hljómsveitin DCS Safnanótt í Reykjavik Þjóðahátíð
Álfar og huldufólk GrímudansleikurHeimsdagur barnanna
Danshátíð
Vesturfarasetrið
Kvikmyndatónleikar
og margt fleiraLjósatónleikar
z
e
t
o
r
Fréttir á SMS
BRESKA hljómsveitin Killin Pablo á
tónleikum á Gauk á Stöng í kvöld.
Ásamt Killin’ Pablo koma einnig
fram heimasveitirnar Hoffman og
Solid I.v auk The Giant Viking
Show, sem er eins manns verkefni
Heiðars Arnar Kristjánssonar,
söngvara Botnleðju.
„Killin Pablo eru að spila alveg
dæmigert breskt popp, eins dæmi-
gert og það verður,“
segir Matthías Már Magnússon,
dagskrárstjóri Xfm, sem býður
drengjunum til landsins. Matthías
bætir við að útvarpsmenn ytra telji
sveitina meðal þeirra sveita sem
standa utan plötusamnings sem lík-
legastar eru til að gera góða hluti.
Gaukurinn opnar klukkan 23 og
kostar 1000 kr inn. Á efri hæð
Gauksins koma svo fram hið magn-
aða plötusnúðapar Pink & Floyd en
þeir eru einmitt nýbyrjaðir með út-
varpsþátt á Xfm 91.9. Pink & Floyd
eru á dagskrá Xfm alla föstudaga og
laugardaga milli klukkan 22 og 24.
Killin’ Pablo á Gauknum