Morgunblaðið - 11.02.2005, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er ekki laust við að þú sért
kraftmikill og tilfinningasamur í
dag, hrútur góður. Þú verð skoð-
anir þínar grimmt fyrir öðrum.
Ekki hlaupa á þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert á ferð og flugi og vekur
mikla eftirtekt. Reyndu að draga
þig í hlé og vera í einrúmi. Farðu í
bíltúr eða gönguferð ef því verður
við komið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samræður við vini einkennast
hugsanlega af þrætugirni í dag.
Ástæðan er sú að allir sitja fast við
sinn keip. Hafðu hugfast; stjórnmál
eru list hins mögulega.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er líklegra en ekki að þú vekir á
þér athygli með einhverjum hætti í
dag. Ef þú þarft að beita einhvern
hörku væri kannski ráð að gera það
í einrúmi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert hvatvísin uppmáluð í dag.
Þig langar til þess að breyta til og
gera allt vitlaust. Hvernig væri að
breyta rútínunni eilítið til þess að
koma til móts við þetta?
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú finnur fyrir eigingirni í dag og
hugsanlegt að þú viljir alls ekki
deila einhverju með öðrum. Það er í
lagi, en reyndu að komast hjá átök-
um.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Tunglið er beint á móti voginni
núna. Auk þess er tunglið í merki
hins ágenga hrúts. Það þýðir að
ágreiningur við aðra gæti auðveld-
lega sprottið upp.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sýndu samstarfsfólki þolinmæði í
dag. Önnur merking enska orðsins
siðgæðisvitund er hik. Teldu því
upp að þremur áður en þú opnar
munninn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú vilt skemmta þér hvað sem taut-
ar og raular í dag. Þú vilt líka fara
þínu fram. Þú ætlar ekki að hegða
þér barnalega, en ræður bara ekki
alltaf við þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn í dag mun að líkindum
einkennast af spennu og átökum á
heimili. Sjaldan veldur einn þá tveir
deila, eins og þú veist. Reyndu að
yfirstíga ágreining.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Sýndu systkinum þolinmæði í dag.
Eitthvað gæti komið upp sem leiðir
til metings eða öfundar. Það
gagnast engum og veldur bara leið-
indum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að halda aftur af eyðslunni
ef þú ferð í búðir í dag. Ekki kaupa
eitthvað sem þig vantar alls ekki.
Hugsaðu þig um áður en þú teygir
þig eftir veskinu.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vatnsberi
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur afbragðsgáfur og ert uppfinn-
ingasöm manneskja. Þú vilt leggja þitt af
mörkum til samfélagsins og hefur áhuga
á umbótum. Þig langar til þess að bæta
umhverfið og aðstæður annarra.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 drenglunduð, 8
sjái eftir, 9 kind, 10 mis-
kunn, 11 blóðhlaupin,
13 mannsnafn, 15 stúlka,
18 fuglinn, 21 stjórna, 22
nauts, 23 eldstó, 24 hag-
kvæmt.
Lóðrétt | 2 org, 3 eyddur, 4
nam, 5 næstum ný, 6
mynnum, 7 óvild, 12 grein-
ir,14 tangi, 15 varmi, 16
furða, 17 toga, 18 stétt, 19
verk, 20 nálægð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hefna, 4 gufan, 7 gulls, 8 súrar, 9 alt, 11 autt, 13
kinn, 14 eldur, 15 þjöl, 17 álit, 20 gap, 22 kodda, 23 ómynd,
24 ilmur, 25 ledda.
Lórétt | 1 hegna, 2 fullt, 3 ausa, 4 gust, 5 ferli, 6 nýrun, 10
lydda, 12 tel, 13 krá, 15 þokki, 16 öldum, 18 leynd, 19
tudda, 20 gaur, 21 póll.
Tónlist
Gaukur á Stöng | Breska sveitin Killin
Paplo ásamt Hoffman, Solid I.v og The
Giant Viking Show kl. 23. 1.000 kr. inn.
Grand rokk | Megas, Súkkat og Megasukk
kl. 23.
Plötubúð Smekkleysu Humar eða frægð!
| Reykjavík kl. 17.
Sjallinn Ísafirði | Hljómsveitin Hraun! held-
ur tónleika kl. 23. Síðan tekur partíbandið
Hraun! við og leikur fyrir gleði til kl. 03.
Skemmtanir
Bar 11 | DJ Haffi leikur í kvöld.
Cafe Catalina | Addi M. spilar og syngur á
Catalinu í kvöld.
Café Victor | Idol-partí á risaskjám. Eftir
miðnætti spilar Heisi frændi frá Austri.
Celtic Cross | Spilafíklarnir leika í kjall-
aranum og á efri hæðinni leikur hljóm-
sveitin 2 snaffsar. Frítt inn.
Kaffi Sólon | Þröstur 3000 í sveiflu á Kaffi
Sóloni í kvöld og fram á morgun.
Klúbburinn við Gullinbrú | Dansleikur með
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.
Kringlukráin | Lúdó og Stefán verða á
Kringlukránni um helgina.
Roadhouse | Dj Maggi verður í búrinu.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Sér-
sveitin spilar um helgina. Húsið opnað kl.
22, frítt inn til miðnættis.
Myndlist
Árbæjarsafn | Í hlutanna Eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí 101 | Egill Sæbjörnsson – Herra Pí-
anó & Frú Haugur.
Gallerí Dvergur | Efrat Zehavi – Fireland.
Gallerí Humar eða frægð! | Ásdís Sif
Gunnarsdóttir sýnir vídeóverk sem hún
hefur unnið að síðastliðin ár ásamt nýrri
vídeóinnsetningu fyrir sýningarrýmið.
Gallerí I8 | Finnur Arnar – myndverk.
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós-
myndir, skúlptúra, teikningar og mynd-
bönd. Sigríður Salvarsdóttir í Vigur sýnir
listaverk úr mannshári í Boganum.
Grafíksafn Íslands | Rut Rebekka sýnir
vatnslita- og olíumálverk.
Hafnarborg | Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er
myndhöggvari febrúarmánaðar í Hafn-
arborg.
Hafnarborg | Bjarni Sigurbjörnsson og
Haraldur Karlsson – Skíramyrkur.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk í forkirkju.
Hrafnista Hafnarfirði | Tryggvi Ingvars-
son, rafvirkjameistari og heimilismaður á
Hrafnistu, sýnir útsaum og málaða dúka í
Menningarsal, 1. hæð.
Kaffi Sólon | Óli G. – Óhlutlæg verk.
Kling og Bang gallerí | Magnús Árnason –
Sjúkleiki Benedikts.
Listaháskóli Íslands | Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir – „Netscape Oracles“ – Remedy
for Starsickness. Pétur Már Gunnarsson –
Hvað er í gangi? í Kubbnum, sýningarsal
LHÍ.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930
1945 og Rúrí – Archive – endangered wa-
ters.
Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín
Gunnlaugsdóttir – mátturinn og dýrðin,
að eilífu.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verk-
um Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð-
ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar.
Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit
mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian
Griffin – Áhrifavaldar.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í Vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI Samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í Austursal.
Nýlistasafnið | Jean B. Koeman – Socles
de Monde. Samsýningin Tvívíddvídd.
Grams – Sýning á vídeóverkum úr eigu
safnsins.
Safn | Stephan Stephensen – AirCondition.
Jóhann Jóhannsson – Innsetning tengd
tónverkinu Virðulegu forsetar. Á hæðunum
þremur eru að auki ýmis verk úr safneign-
inni, þ.á m. ný verk eftir Roni Horn, Pipi-
lotti Rist og Karin Sander.
Thorvaldsen Bar | Kristín Tryggvadóttir
sýnir samspil steina, ljóss og skugga.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson
er myndlistarmaður mánaðarins í sam-
starfi Þjóðmenningarhússins og Skólavefj-
arins. Sýning á verkum Braga í veit-
ingastofu og í kjallara.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Tónlistararfur Ís-
lendinga: Kynntar eru nýjar rannsóknir á
tónlistararfinum og útgáfa efnis á geisla-
diskum. Fyrsta sýningin fjallar um Silf-
urplötur Iðunnar sem Kvæðamannafélagið
Iðunn og Smekkleysa gaf nýlega út á 4
geisladiskum ásamt veglegu riti.
Handritin: Hin fornu handrit geyma ein-
stæðar sögur, kvæði og frásagnir sem
varpa ljósi á samfélag, trúarbrögð og hug-
arheim hinna norrænu þjóða í öndverðu. Á
meðal sýningargripa eru Konungsbækur
Eddukvæða og Snorra Eddu, Flateyjarbók
og handrit lagabóka, kristilegra texta og
Íslendingasagna.
Þjóðminjasafnið – Svona var það: Leitast
er við að skapa það andrúmsloft sem ríkti
á sýningu Þjóðminjasafns Íslands í risi
Þjóðmenningarhússins þar sem það var til
húsa á fyrri hluta 20. aldar.
Heimastjórnin: Á sýningunni er dregin upp
mynd af þeim framförum, bjartsýni og
stórhug sem einkenndi líf þjóðarinnar á
tímum heimastjórnar og gerð grein fyrir
aðdraganda hennar.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1895–
1964) er skáld mánaðarins.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til – menn-
ing og samfélag í 1.200 ár. Ómur – Landið
og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós-
myndasýningarnar Hér stóð bær og Átján
vóru synir mínir í álfheimum … Opið frá kl.
11–17.
Dans
Borgarleikhúsið | Íslenski dansflokkurinn
kynnir verk eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil
Hrvatin. Þetta er sýning fyrir hermenn í
friðargæslu, fyrir þá sem láta sig lífið
varða og þá sem stendur á sama. Miða-
pantanir í Borgarleikhúsinu í síma
568 8000 eða midasala@borgarleikhus.is
www.id.is.
Mannfagnaður
AGÓGES-SALURINN | Þorrablót Súgfirð-
ingafélagsins verður haldið í Akoges-
salnum, Sóltúni 3, 12. febrúar. Húsið opnað
kl. 19 og borðhald hefst kl. 20. Miðaverð er
3.900 kr. Pantanir hjá stjórnarmönnum og
á netfangi: bjorn@fulltingi.is. Súgfirðinga-
félagið í Rvk.
Háskólabíó | Hin árlega hönnunarkeppni
véla- og iðnaðarverkfræðinema verður
haldin kl. 13, í sal 1, í Háskólabíói. Að-
alstyrktaraðilar keppninnar eru Marel hf.
og Opin kerfi hf. Vefsíða keppninnar er vel-
nem.hi.is/honnunarkeppni.
Smáralind | Idol Extra Live verður í beinni
útsendingu á PoppTíví frá Smáralind kl. 22
í kvöld. Þar mun Svavar Örn taka púlsinn á
keppendum baksviðs.
Fréttir
Hrossaræktarbúið Hestheimar | Sölusýn-
ing – öllum velkomið að skrá söluhross hjá
Gísla, s. 487 6666, hestheimar@heist-
heimar.is og Steina s. 893 9966,
steinnma@simnet.is. Síðasti skráning-
ardagur er föstudagurinn 11. febrúar kl. 17.
Skráningargjald 1.500 kr. fyrir fyrsta hross
og síðan 1.000 kr.
Fundir
Umf-húsið Hrafnaklettur | Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur stjórnmálafund í Umf-
húsinu Hrafnakletti laugardaginn 12. febr-
úar kl. 11. Yfirskrift fundarins er: Með
hækkandi sól – lægri skattar – aukin hag-
sæld. Framsögumenn: Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra og varaformaður og Einar K.
Guðfinnsson alþingismaður.
Fyrirlestrar
Raunvísindadeild Háskóla Íslands | Á mál-
stofu efnafræðiskorar Háskóla Íslands kl.
15 í stofu 158 í VR–II, flytur Fannar Jóns-
son meistaraprófsfyrirlesturinn: Áhrif kí-
tósanfásykra á stöðugleika trypsíns úr
nautabrisi. Allir velkomnir.
Ketilhús Akureyri | Listasafnið á Akureyri
stendur fyrir fyrirlestri um peninga og sið-
menningu í samvinnu við Gilfélagið, laug-
ardaginn 12. febrúar kl. 15. Jón Proppé
gagnrýnandi og heimspekingur, flytur fyr-
irlestur um peninga og siðmenningu. Allir
velkomnir og aðgangur ókeypis.
Kynning
Maður lifandi | Inga Kristjánsdóttir nemi í
næringarþerapíu DET verður með ráðgjöf í
vetur kl. 12–14 á föstudögum.
Málþing
Bifröst | Viðskiptaháskólinn á Bifröst boð-
ar til málþings um launajafnrétti kl. 13.30 á
Bifröst. Ókeypis aðgangur og skráning í
síma 433 3000 eða á netfangið agnes@bi-
frost.is. Fjallað verður um nýlegan jafn-
launadóm í máli Akureyrarbæjar og hvern-
ig sönnunarbyrði er háttað.
Námskeið
Hrossaræktarbúið Hestheimar | Reið-
námskeið dagana 11.–13. feb. Kennarar Hal-
grímur Birkisson og Ísleifur Jónasson.
Uppl. í s. 864 2118, 487 6666.
Staðlaráð Íslands | Námskeið 18. febrúar.
Fyrir þá sem vilja læra á ISO 9000 gæða-
stjórnunarstaðlana. Markmið er að þátt-
takendur geti gert grein fyrir áherslum og
uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000
röðinni og þekki hvernig þeim er beitt við
að koma á og viðhalda gæðastjórn-
unarkerfi. Nánar á www.stadlar.is.
www.ljosmyndari.is | Helgarnámskeið á
stafrænar myndavélar verður 12.–13. febr-
úar. Námskeiðið er haldið í Völuteigi 8,
Mosfellsbæ, kl. 13–17 báða dagana og er
jafnt fyrir byrjendur sem og lengra komna.
Skráning og upplýsingar á www.ljosmynd-
ari.is.
www.stafganga.is | Nýtt námskeið í staf-
göngu hefst þriðjudaginn 15. febrúar kl.
17.30 við Laugardalslauginna. Hópar fyrir
byrjendur og framhaldshópar fyrir þá sem
hafa verið áður í stafgöngu. Skráning á
www.stafganga.is eða GSM: 825 1365/
694 3571. Guðný Aradóttir & Jóna Hildur
Bjarnadóttir stafgönguþjálfarar.
Ráðstefnur
Norræna húsið | SÍBS stendur fyrir ráð-
stefnu í Norræna húsinu þriðjudaginn 15.
febrúar sem ber heitið: Líf með lyfjum.
Fjallað verður um mikilvægi lyfja fyrir ein-
staklinginn og þjóðfélagið í heild. Fulltrúar
hagsmunaaðila og stjórnvalda flytja erindi.
Ráðstefnan sem hefst kl. 14 er öllum opin
og aðgangur ókeypis.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Þingvallaganga
sunnudaginn 13. febrúar, brottför kl. 10.30.
Í þessari fyrstu gönguferð af fimm í kring-
um Þingvallavatn verður farið yfir stífluna
við útfall Sogsins úr Þingvallavatni og
gengið upp á Skinnhúfuhöfða. Göngutími
4–5 tímar. Verð 2.100/2.500 kr.
Gönguskíðaferð helgina 12.–13. febrúar.
Gengið verður af Hellisheiði um Ölkeldu-
háls á Nesjavelli. Innifalið í verði eru ferðir,
trúss, fararstjórn, gisting í svefnpokaplássi
og máltíð á laugardagskvöldinu.
Fararstjóri er Jósef Hólmjárn.
Brottför er kl. 8.
Verð 11.100/13.200 kr.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
ÁHUGAMENN um framúrstefnurokk og -popp gætu gert verri kaup í kvöld en að líta við
á Stúdentakjallaranum og hlýða á sveitirnar Reykjavík, Skakkamanage, Dáðadrengi og
Gereyðingarvopn á tónleikum. Tvær sveitanna, Reykjavík og Skakkamanage, eru á leið-
inni til London þar sem þær munu leika á tónleikum tónlistarvefjarins Drowned in Sound,
ásamt sveitunum Skátum og Jan Mayen.
Á undan tónleikunum í kvöld, sem bera það áhugaverða nafn „Mölvum feðraveldið,“
munu verða haldnir nokkrir fyrirlestrar. Þar á meðal mun Arnþrúður Ingólfsdóttir fjalla
um mismunafeminisma, auk þess sem Björn Þorsteinsson mun ræða um innflytj-
endastefnu Derrida, sem snerist um „Algjöra gestrisni“.
„Séra“ Haukur Magnússon, einn helsti lagasmiður og gítarleikari Reykjavíkur, segir
stefnu sveitarinnar að vera með og hafa gaman af því að gera skemmtilega hluti. „Eitt-
hvað annað en að horfa á sjónvarpið,“ segir Haukur. „Við höfum engin áhrif á heims-
yfirráðum, enda er hryllilegt að hugsa til þess að ráða yfir öðrum. Það er holdgervingur
limhverfunnar sem við erum að reyna að losna við. Með því að losna við hana getum við
mölvað feðraveldið. Við viljum bara róa á mið vinsemdar og virðingar og slaka á þessari
rökmiðjuhyggju, sem hefur tröllriðið vestrænum heimi síðustu 3.000 árin. Innan þess
rúmast sú hugmynd að tónlistarmenn eigi að koma fram sem einhverjir sérfræðingar
með öryggisverði og heilagleika þar sem eru skýrt afmarkaðar stjörnur. Maðurinn er bara
tilfinninga- og samskiptavera sem vill bara koma sínu lífi á framfæri við aðra í von um
samkennd og samstöðu, sem er það sem við viljum gera þegar við spilum.“Áhugasamir
geta einnig fengið forskot á sæluna og mætt í Plötubúð Smekkleysu við Laugaveg 59 kl.
17 í dag, en þar munu Reykvíkingar gefa góðan forsmekk að stuði kvöldsins.
Feðraveldið mölvað í Stúdentakjallaranum
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos