Morgunblaðið - 11.02.2005, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
NÝR andi svífur
yfir vötnum í
Versló-stórsýn-
ingu vetrarins.
Nýr leikstjóri og
handritshöfund-
ur er kallaður til
leiks og tónlist-
arþemað sem
lagt er til grund-
vallar er rokk í
þyngri kantin-
um. Án þess að hafa gert mikla
rannsókn á því hef ég á tilfinning-
unni að talsverð endurnýjun sé í
hópnum, jafnvel meiri en undan-
farin ár. Útkoman er sýning sem
skortir talsvert á fágun, aga og
fagmennsku undanfarinna ára en
kemur í staðinn inn með meiri
orku, taumleysi og ögrun en
hingað til. Kemur ekki á óvart
þegar horft er til efnisins og leik-
stjórans.
Agnar Jón skrifar handrit sýn-
ingarinnar auk þess að leikstýra
og dettur niður á bráðsnjalla
grunnhugmynd, vandræðagang
hljómsveitar sem líkt og hin forn-
fræga Kiss felur sig á bak við and-
litsfarða. Enginn má komast að því
hverjir þeir félagar eru, en svo
verður söngvarinn ástfanginn af
gengilbeinu að norðan og allt verð-
ur vitlaust. Eins og hugmyndin er
góður efniviður þykir mér Agnari
ekki hafa tekist nógu vel upp í að
nýta sér hann. Fléttan er ekki
nógu þétt og mörg atriðanna of
löng og ómarkviss. Persónurnar
eru skýrar og skemmtilega ýktar
og samskipti innan hópanna
tveggja sem allt hverfist um,
hljómsveitarinnar og bargellanna,
eru vel útfærð og uppspretta
fyndninnar í sýningunni. Losara-
bragurinn verður samt til þess að
draga úr skemmtigildinu – eigin-
lega finnst mér eins og Agnar eigi
eftir að skrifa gamanleikinn sem
býr í efniviðnum.
Tónlistarvalið ber þess nokkur
merki að þungarokk er lítt leik-
húsvæn tónlist. Þó svo að AC/DC
og Kiss séu nefndar í kynningu er
megnið af tónlistinni sótt í smiðju
mildari manna af „hár-metal“ skól-
anum, einkum ballöður þeirra sem
í ljós kemur að eru óttalegt söng-
leikjafóður. Söngtextar skildust
illa eða ekki, en vel var sungið hjá
Verslingum eins og venjulega.
Einna skemmtilegast var númer
hjúkrunarkvennanna, en hræddur
er ég um að hinir karlrembulegu
Judas Priest væru lítt hrifnir af
samhenginu sem Breaking the
Law var sett í þar. Gott á þá.
Að vanda er mikið lagt í sýn-
inguna, mikill fjöldi leikara, söngv-
ara og dansara koma við sögu.
Sjálfsagt er það tónlistarstefnunni
og leikstjóranum að þakka að núna
tókst betur en oftast áður að sam-
ræma stíl leik- og söngatriða. Það
er ekki hægt að vanda sig úr hófi
við flutning á t.d. Welcome to the
Jungle án þess að það missi allan
safa og sá þáttur var með ágætum
hér. Og eins og gjarnan einkennir
leikstjórnarverkefni Agnars var
hér leikið af meira kappi en forsjá,
allt á útopnu allan tímann og kaos-
ið ekki nema hæfilega skipulagt.
Mikið gaman, og gerir öllum kleift
að blómstra sem á annað borð
hella sér í leikinn.
Lana Íris Guðmundsdóttir og
Leifur Eiríksson fara með hlut-
verk söngvarans og bardömunnar,
sem reyndar er rokkari líka. Þau
gerðu þetta ágætlega, en í svona
sýningu eru það skrítnu hliðarper-
sónurnar sem fanga athyglina. Að
þessu sinni náðu engir lengra í
þeim efnum en Eyjólfur Gíslason
sem var dásamlega skrítinn og
innlifaður sem rótarinn Ronní og
þær Margrét Ýr og Ingunn sem
tvær íðilheimskar ljóskur. Leik-
skráin gefur ekki upp föðurnöfn
þeirra, en það vill loða við að
íburðurinn í leikskrám verslinga
beri innihaldið ofurliði.
Welcome to the jungle er ágæt
skemmtun, og bætir upp með
krafti og skemmtilegu smekkleysi
það sem fórnað er af fágun og fag-
mennsku. Sem gömlum rokkhundi
þykja mér það ekki slæm býtti.
LEIKLIST
Nemendamót
Verzlunarskóla Íslands
Höfundur og leikstjóri: Agnar Jón Eg-
ilsson, tónlistarstjórn: Jón Ólafsson,
danshöfundar: Katrín Ingvadóttir og Ás-
dís Ingvadóttir, lýsing og leikmynd: Sig-
urður Kaiser.
Loftkastalanum 2. febrúar 2005.
Welcome to the Jungle
Þorgeir Tryggvason
Agnar Jón
Egilsson
VIÐ sem höf-
um það svo
fjári gott í
velmegun
hins vest-
ræna heims
og finnst
kannski að
stríð sé eitt-
hvað sem
aldrei muni snerta okkur persónu-
lega, megum aldrei láta okkur á sama
standa um hvað náungi okkar hefur
þurft að þola í styrjöldum. Við vitum
aldrei hver er næstur og okkur ber
skylda til að kynna okkur afleiðingar
stríðs, því þá er kannski einhver von
um að víti verði til varnaðar og að við
leggjum okkar af mörkum til að koma
í veg fyrir að harmleikur endurtaki
sig. Og þegar kemur að forvörnum þá
liggur beinast við að byrja á börnun-
um. Þessi bók, Ferðataska Hönu, seg-
ir ungum lesendum einmitt frá því
hvað stríð er skelfilegt. Og það sem
gerir bókina enn áhrifameiri er að
þetta er sönn saga af stelpu, sem er
eins og hver annar krakki, þar til ein-
ræðisherrann Adolf Hitler ákveður
að hún sé síðri en aðrir og að henni og
fjölskyldu hennar sé ofaukið í veröld-
inni. Einhverjum kann kannski að
finnast óþarfi að upplýsa blessuð börn
nútímans um skelfingar þær sem fólk
þurfti að ganga í gegnum í síðari
heimsstyrjöldinni, en þetta er ein af
öflugustu aðferðunum til að byggja
upp frið í veröldinni: Að brjóta niður
fordóma og vekja samúð okkar með
þeim sem verða fyrir ranglæti. Í þess-
ari bók er það gert á svo nærfærinn
en um leið ágengan hátt, að það lætur
engan ósnortinn.
Bókin er byggð upp á skemmtileg-
an hátt, hún gerist í þremur heims-
álfum á sjötíu árum: Lesendur fá að
kynnast stúlkunni Hönu og fjölskyldu
hennar sem býr í Tékkaslóvakíu
1930–40, einnig ungri konu í Japan
árið 2000 og krökkum þar sem eru að
grafast fyrir um fortíð Hönu með ekk-
ert annað í höndunum en ferðatösku
hennar sem merkt er munaðarleys-
ingja, og svo líka fullorðnum manni í
Kanada á tuttugustu og fyrstu öldinni
sem tengist leitinni.
Þessar þrjár sögur í einni bók eru
fléttaðar saman á snjallan hátt og hún
verður meira að segja spennandi. Auk
þess er bókin full af myndum, bæði
teikningum og ljósmyndum sem færa
lesendur enn nær því sem fjallað er
um. Hana verður svo raunveruleg
þegar við horfum á myndirnar af
henni. Hún var til, þessi stelpa, sem
ekkert hafði gert til að verðskulda
það sem á hana var lagt. Ein lítil saga
af einni lítilli stelpu getur orðið ótrú-
lega áhrifamikil og hún vekur vissu-
lega hugsanir um öll hin börnin fyrr
og síðar sem hafa þurft að ganga í
gegnum þann mannlega harmleik
sem styrjaldir hafa í för með sér.
Þetta er saga sem fær lesendur til að
hugsa um stríð út frá öllu venjulega
fólkinu sem fyrir því verður og þessi
saga fær lesendur sannarlega til að
hafna stríði í hvaða mynd sem er.
Sagan af Hönu kennir okkur allt um
það hvað fordómar eru grimmir og fá-
ránlegir.
Þetta er góð bók í víðustu merk-
ingu þess orðs, holl lesning bæði fyrir
börn og fullorðna.
Þýðing Vilborgar Dagbjartsdóttur
er hnökralaus.
BÆKUR
Barnabók
Karen Levine, þýðing Vilborg Dagbjarts-
dóttir, 108 bls, SALKA Reykjavík 2004.
Ferðataska Hönu – sönn saga
Kristín Heiða Kristinsdóttir
Úrslitin í spænska boltanum
beint í símann þinn
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Lau 12/2 kl 20,
Fi 17/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 25/2 kl 20,
Lau 26/2 kl 20,
Fö 4/3 kl 20,
Lau 5/3 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 13/2 kl 14
Su 20/2 kl 14
Su 27/2 kl 14
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
SÝNINGAR HALDA ÁFRAM EFTIR PÁSKA
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Í kvöld kl 20, Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20
Ath: Miðaverð kr. 1.500
AUSA -
Einstök leikhúsperla
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT
Su 13/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 17/2 kl 20,
Su 20/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 24/2 kl 20,
Fö 25/2 kl 20 - UPPSELT
SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Lau 12/2 kl 20, Fö 18/2 kl 20
Íslenski dansflokkurinn sýnir:
VIÐ ERUM ÖLL MARLENE DIETRICH FOR
eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
SÍÐASTA SÝNING
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 13/2 kl 20, Su 20/2 kl 20, Su 27/2 kl 20
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Forsala aðgöngumiða hafin
15:15 TÓNLEIKAR - BENDA NÝTT EFNI
Lau 12/2 kl 15:15
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Aðalæfing mi 16/2 kl 20 - kr. 1.000
Forsýning fi 17/2 kl 13 - kr. 1.000
Frumsýning fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20, Su 27/2 kl 20
VESTURFARARNIR - NÁMSKEIÐ
Í samstarfi við Mími-símenntun
Mi 16/2 - Helga Ögmundardóttir
Mi 23/2 - Böðvar Guðmundsson
Innifalið: Boð á Híbýli vindanna
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Lúdó og Stefán
í kvöld
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
“HREINLEGA BRILLJANT”EB DV
• Föstudag 18/2 kl 21 LAUS SÆTI
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
2. sýn. 13. feb. kl. 19 örfá sæti laus - 3. sýn. 18. feb. kl 20 örfá sæti laus
4. sýn. 20. feb. kl. 19 nokkur sæti laus – 5. sýn. 25. feb. kl. 20 nokkur sæti laus
6. sýn 27. feb. kl. 19 – 7. sýn. 4. mars kl. 20 – 8. sýn. 6. mars kl. 19 – 9. sýn. 12. mars kl. 19
Vivaldi - Trúarleg verk og óperur
Hádegistónleikar þriðjudaginn 15. feb. kl. 12.15 – Marta Hrafnsdóttir, alt,
Sigurðar Halldórsson, selló og Kurt Kopecky, sembal flytja verk eftir Vivaldi.
Miðasala á netinu: www. opera.is
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Fjarskalega
leiftrandi og
skemmtileg
sýning“
H.Ö.B. RÚV
Óliver! Eftir Lionel Bart
Fös. 11.2 kl 20 UPPSELT
Lau. 12.2 kl 20 UPPSELT
Sun. 13.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 18.2 kl 20 Örfá sæti
Lau. 19.2 kl 20 Örfá sæti
Sun. 20.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 25.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 26.2 kl 20 Örfá sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Ath! Sýningum lýkur í febrúar
!
"
#
$% $#
Fös. 11. feb. kl. 20.30
Sun. 13. feb. kl. 20.30
Fös. 18. feb. kl. 20.30
Sun. 20.feb. kl. 20.30