Morgunblaðið - 11.02.2005, Page 57

Morgunblaðið - 11.02.2005, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 57 ferming 2005 Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út laugardaginn 5. mars. Fermingarblaðið hefur verið ein af vinsælustu sérútgáfum Morgunblaðsins í gegnum árin og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt. Fjallað veður um allt sem tengist fermingunni svo ekki láta þetta blað framhjá þér fara. Hvað vilja fermingarbörnin? Maturinn Tískan Hárgreiðslan Skreytingarnar Myndatakan Þekktu fermingarbarnið Myndaleikur með glæsilegum verðlaunum auglýsingar 569 1111 Umsjón: Hildur Loftsdóttir Auglýsingar: Katrín Theódórsdóttir sími 568 1139 Panta þarf auglýsingar fyrir kl. 16 mánudaginn 28. febrúar. Í DAG hefur Talstöðin útsendingar, ný talmálsstöð á tíðninni 90,9. Út- varpsstjóri er Illugi Jökulsson. „Ég hef nú ekki hugmynd um hvernig þetta kom til,“ segir Illugi að- spurður. „Líklega bara áhugi á því að halda úti skemmtilegri útvarpsstöð. Heiti stöðvarinnar vísar annars vegar til þess að áhersla verður lögð á tal- mál en einnig gefur orðið „talstöð“ það til kynna að talað verði við fólk og umræðum hverskonar þar með veitt í gegnum stöðina og út í samfélagið.“ Illugi segir að Talstöðin sé ekki hugsuð sem mótvægi við eitt eða neitt, en Útvarp Saga, FM 99,4, er og talmálsstöð. „Við höfum ekki leitt hugann sér- staklega að einhverri samkeppni heldur viljum við einfaldlega vanda okkur við að búa til skemmtilega út- varpsstöð. Ef það kemur niður á ein- hverjum öðrum þá verður bara að hafa það. Það er a.m.k. ekki á stefnu- skránni að varpa sér í beina sam- keppni.“ Illugi segir að tónlist verði ekki bönnuð þrátt fyrir eðli stöðvarinnar en inntakið er fyrst og fremst talað mál. „Við munum kappkosta að vera í góðu sambandi við fólkið í landinu, segja því stórar og smáar fréttir og ennfremur viljum við fá að heyra sjónarmið þess,“ segir hann. Starfs- fólk Talstöðvarinnar er að sögn Illuga þrautreyndir útvarpsmenn í bland við nokkra unga og efnilega nýliða. „Sigurður G. Tómasson mun þann- ig stýra morgunþætti frá 7 til 9. Þá taka þau Ragnheiður Gyða Jóns- dottir og Oddur Ástráðsson við með þáttinn Dagmál. Í hádeginu verða svo fréttir og fréttaskýringaþáttur sem haukar af Fréttablaðinu sjá um.“ Af því loknum tekur Ingvi Hrafn, þá ritstjórn tímaritsins Birtu og síðan á milli 15 og 18 stýra Hallgrímur Thorsteinsson og Helga Vala Helga- dóttir þættinum Allt og sumt. Illugi segir að eftir 18 verði dag- urinn svo gerður upp og mun hann sjá um það fyrsta kastið. „Kvöldin munu til að byrja með byggjast á endurteknu efni frá við- komandi degi en eftir því sem okkur vex fiskur um hrygg verður kvöld- dagskráin mótuð. Helgarþættirnir eru sömuleiðis í mótun. Þetta verður frjálst og opið útvarp, dagskráin verður ekki niðurnjörvuð í neitt og við munum breyta því fyrirvaralaust sem þarf að breyta ef þess þarf.“ Útvarp | Talstöðin FM 90,9 fer í loftið Inntakið fyrst og fremst talað mál Morgunblaðið/Árni Sæberg Illugi Jökulsson (lengst til hægri) ásamt samstarfsfólki sínu. Útsendingar frá Talstöðinni hefjast í dag kl. 7 árdegis á tíðninni FM 90,9. EIN íslensk mynd verður sýnd í opinberri dagskrá kvik- myndahátíðarinnar í Berlín, Berlinale, sem hófst formlega í gær. Um er að ræða stutt- myndina Skagafjörður eftir Bandaríkjamanninn Peter Hutton, sem sýnd verður í dagskránni International Forum of New Cinema. Skagafjörður er þögul mynd sem tekin er á 16mm filmu þar sem fegurð Skagafjarðar er sýnd á mjög ljóðrænan hátt, myndin er framleidd af Árna Páli Jóhannssyni og Jim Stark. Samkvæmt upplýsingum frá Kvikmyndamiðstöð er þessi Forum-dagskrá mjög framsækin og athyglisverð. Þar sé gjarnan að finna mynd- ir þar sem gerðar eru tilraunir með form kvikmyndanna, eins og Hutton gerir í mynd sinni. Skagafjörður hefur vakið mikla athygli síðan hún var frumsýnd á Nordisk Panorama-hátíðinni síðasta haust. Hún hefur komist í dagskrár hjá nokkrum af helstu kvik- myndahátíðum í heimi. Má þar nefna Kvikmyndahátíðina í Toronto, Kvikmyndahátíðina í Lundúnum, Kvik- myndahátíðina í Rotterdam og nú síðast í dagskrá hér í Berlín. Á þriðja tug Íslendinga eru á Berlínarhátíðinni, fulltrú- ar úr öllum kimum íslenskrar kvikmyndamenningar; starfsmenn Kvikmyndamiðstöðvar, kvikmyndagerð- armenn eru í þeim erindagjörðum að kynna og selja ís- lenska kvikmyndagerð á meðan kvikmyndahúsaeigendur og aðrir dreifingaraðilar sækja þar markað og ganga frá kaupum og verða sér út um erlendar myndir til sýninga í íslenskum kvikmyndahúsum. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem allir íslenskir dreif- endur sækja markaðinn en mikilvægi hans hefur aukist eftir að American Film Market sem áður var haldin í mars hefur verið færð aftur til nóvember. Heimildarmyndin Gargandi snilld eftir Ara Alexander Ergis Magnússon verður sýnd á umræddum markaði en þar verður einnig kynnt vænt- anleg mynd Baltasars Kor- máks A Little Trip To Heaven. Þá verða tvær stuttmyndir kynntar á Talent Campus 2005, dagskrá fyrir myndir ungra og efnilegra kvik- myndagerðarmanna; Falskar tennur eftir Bjargeyju Ólafs- dóttur og Africa United eftir Ólaf Jóhannesson (Blindsker) sem hann hefur unnið uppúr heimildarmynd í fullri lengd sem er í vinnslu hjá Poppoli kvikmyndafélaginu. Álfrún Örnólfsdóttir er fulltrúi Íslands í Shooting Star-verkefninu sem miðar að því að kynna til sögunnar unga og efnilega evrópska leikara. Opnunarmynd þessarar 55. Berlinale hátíðar var mynd- in Man to Man eftir Regis Wargnier, með Bretunum Jos- eph Fiennes og Kristin Scott Thomas í aðalhlutverkum. Rík áhersla verður lögð á evrópska kvikmyndagerð að þessu sinni en af þeirri 21 mynd sem keppir um Gull- og Silfurbjörninn, er ríflega helmingur þeirra evrópskar, flestar franskar. Segir hátíðarstjórnandinn Dieter Koss- lick þetta vera vitnisburð um þá „miklu vitundarvakningu sem orðið hefur fyrir evrópskri kvikmyndagerð“. Fullyrðir hann að evrópsk kvikmyndagerð sé á blúss- andi skriði um þessar mundir. „Ekki er þar með sagt að engar góðar myndir komi frá Bandaríkjunum,“ sagði hann. „Málið er bara að þær eru fleiri góðar frá Evrópu.“ Alls verða sýndar vel á sjöunda hundrað myndir, 350 í opinberri dagskrá og 300 á markaðinum. Gert er ráð fyrir miklum stjörnufans á Potsdamer Platz en þar fara helstu viðhafnarsýningar fram. Þeir sem stað- fest hafa mætingu eru Will Smith (Hitch), Kevin Spacey (Beyond The Sea), Keanu Reeves (Thumbsucker), Dennis Quaid (In Good Company), Susan Sarandon og Tim Robb- ins. Berlínarhátíðin stendur yfir í 10 daga og mun ljúka 20. febrúar. Kvikmyndir | Berlinale-kvikmyndahátíðin hafin Skagafjörður í Berlín Reuters Joseph Fiennes ásamt leikstjóra opnunarmynd- arinnar Man to Man, Regis Wargnier. SÖNGVARI rokksveitar- innar fornfrægu The Who, Roger Daltrey, var sæmdur CBE orðu bresku krúnunnar á miðviku- dag „fyrir framlag hans til tón- listar, skemmt- anaiðnaðar- ins og góðgerðar- mála.“ Elísabet Englands- drottning veitti Daltrey, sem stendur á sextugu, orðuna í Buckingham-höll. Að viðhöfn lokinni grín- aðist Daltrey með orðuveit- inguna: „Hún sagði að ég hefði fengið hana fyrir tón- list mína og góðgerðarstarf en ég leyfi mér að efast um að hún sé mikill rokkunn- andi.“ Á sínum tíma þótti The Who vera háværust allra rokksveita og sagði Daltrey að drottningin myndi enda örugglega hrasa í ræðustóln- um ef hún heyrði Who-lögin leikin. Í eina tíð gat sveitin sér orð fyrir harðorða ádeilu- texta í garð kerfisins og yf- irvalda. „Það er enn ýmislegt sem ég hef út á yfirvöld að setja en drottningin er stór- merkileg kona,“ sagði Daltr- ey í vikunni. Hann hefur helgað sig góðgerðarmálum og er verndari Styrktarsjóðs fyrir krabbameinsveik börn. Þeir Pete Townsend, eft- irlifandi liðsmenn The Who, eru enn að og undirbúa út- gáfu nýrrar hljóðversplötu, þeirra fyrstu í 23 ár. Tónlist | Daltrey heiðraður Efast um rokkáhuga drottningar Roger Daltrey NÁMSKEIÐ tvö sem til- kynnt var fyrr í vikunni að dávaldurinn Sailesh myndi bjóða upp á 16. apríl, ann- ars vegar til að hjálpa fólki að hætta að reykja og hins vegar til að losna við auka- kílóin, eru yfirfull. Eft- irspurnin reyndist svo mik- il að námskeiðin fylltust á aðeins fjórum mínútum. Ekki nóg með það heldur er einnig orðið fullt á tvö viðbótarnámskeið sem ákveðið var að halda 17. apríl. Skipuleggjendur taka nú niður nöfn á bið- lista en að því getur hugsanlega orðið að Sailesh svari þessari miklu eftirspurn og bjóði upp á fleiri námskeið. Eftirsóttur dávaldur Sailesh telur sig geta hjálpað fólki við að losna við ýmsa kvilla og vonda ávana. www.event.is Pantanir eru teknar í síma 575 1522.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.