Morgunblaðið - 11.02.2005, Síða 59
Nýr og betri
www.regnboginn.is
Hverfisgötu ☎ 551 9000
kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
SIDEWAYS
„Fullkomlega ómissandi mynd“
S.V. MBL.
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd,
leikstjóri og handrit
5
Sýnd kl. 5.40 og 10.30.
MMJ kvikmyndir.com
Ó.H.T. Rás 2
Ó.Ö.H. DV SV Mbl.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Stórskemmtileg mynd þar sem
Annette Bening fer á kostum
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN -
Annette Bening sem besta leikkona
1 TILNEFNING TIL ÓSKARSVERÐLAUNA, Annette
Bening sem besta leikkona
Stórkostleg
sannsöguleg
mynd um
baráttu upp
á líf og
dauða.
M.M.J. Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30 og 8.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
LEONARDO DiCAPRIO
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti
leikari-Leonardo Dicaprio, bestu
aukaleikarar-Cate Blanchett og Alan Alda.
11
Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.15.
H.L. Mbl.
Ein vinsælasta
grínmynd allra tíma
þrjár vikur á toppnum í
USA!
Kvikmyndir.is
Ókeypis krakkaklúbbur www.myndform.is, krakkaklubbur@myndform.is
Sýnd kl. 4 Ísl tal
ATH! VERÐ KR. 500
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Baldur Popptíví
Ó.H.T Rás 2
Ó.S.V. Mbl.
3000km. að heiman. 10 eftirlifendur.
Aðeins eitt tækifæri!
Æðisleg ævintýramynd!
Vinsælasta myndin á Íslandi
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 59
BJÓLFUR og Grendill birtust
nokkrum áhorfendum í tíu mín-
útur á laugardag í tengslum við
Kvikmyndahátíðina í Gautaborg.
Með þessum bút kynntu Sturla
Gunnarsson leikstjóri og Anna
María Karlsdóttir framleiðandi
myndina Bjólfskviðu eða Beowolf
and Grendel sem verður tilbúin
síðar á þessu ári, fyrir fólki í kvik-
myndabransanum á hátíðinni inn-
an hátíðarinnar, Nordic Event.
Fyrsta Bjólfsmyndin
af þremur
Sturla fræddi atvinnumennina
um bakgrunninn; þúsund ára
gamalt kvæði um hetjuna Bjólf
sem sigrast á jötninum Grendli
sem hrellti Dani á 6. öld. Við-
fangsefnið er vinsælt um þessar
mundir og Sturla segir það ekk-
ert nema jákvætt að Robert Zem-
eckis ætli að gera tölvuteikni-
mynd um sama efni og að ópera
um Grendil sé í smíðum.
„Það er fínt fyrir okkur að
Bjólfur sé í umræðunni,“ sagði
hann brosandi. Reyndar er mynd
Sturlu aðeins sú fyrsta af þremur
sem hann áformar en verið er að
vinna í handriti að annarri og
þriðju myndinni um Bjólf.
Íslenskt landslag vakti athygli
áhorfendanna og veðrið við tökur
varð að umtalsefni. Sturla sagði
að veðrið hefði dregið fram það
besta hjá leikurunum og stormur
og slagveður hefði jafnvel gert að
verkum að leikurinn varð eðli-
legri en ella, en ofsaveður gerði á
tökutímanum og þurfti m.a.s. að
hætta tökum í nokkra daga.
Ekkert stafrænt
Bjólfskviða er kanadískt, ís-
lenskt og breskt samstarfsverk-
efni og hljóðar fjárhagsáætlun
upp á um tólf milljónir Banda-
ríkjadala. Sturla segir það lítið á
bandarískan mælikvarða en
vissulega stórt á íslenskan sem og
kanadískan. Hann segist lengi
hafa langað að gera mynd um
hetjuna og leggur áherslu á að í
myndinni sé sett spurning-
armerki við hetjumyndina.
Engum stafrænum brellum er
beitt í myndinni, þrátt fyrir
skrímslið Grendil, og segir Sturla
að metnaður hafi staðið til þess.
Hins vegar leggur Nick Dudman
til gervi en hann hefur m.a. unnið
við Harry Potter-myndirnar, að
sögn Sturlu. Hann segir ekki
ákveðið hvenær myndin verður
frumsýnd en það verði líklega á
einhverri kvikmyndahátíð í haust,
jafnvel í Toronto.
Bjólfur er leikinn af skoska
leikaranum Gerard Butler,
ófreskjuna Grendil leikur Ingvar
E. Sigurðsson og sænski leik-
arinn Stellan Skarsgård leikur
hinn danska Hróðgeir konung.
Ekki varð af því að Skarsgård
kæmi til Gautaborgar á kvik-
myndahátíðina að þessu sinni
eins og jafnvel stóð til, hann
þurfti að sögn að máta sjóræn-
ingjabúning í Los Angeles þar
sem hann fékk hlutverk í fram-
haldsmynd um sjóræningjana í
Karíbahafi.
Bútur úr Bjólfi
Morgunblaðið/Steingerður
Anna María Karlsdóttir, framleiðandi Bjólfskviðu, Sturla Gunnarsson
leikstjóri og Laufey Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Kvikmyndahá-
tíðarinnar, voru ánægð með viðtökurnar í Gautaborg.
Kvikmyndir | Bjólfskviða Sturlu kynnt í Gautaborg
Gautaborg. Morgunblaðið.
steingerdur@mbl.is
NÆRRI sex ár eru síðan
Skítamórall sendi frá sér
síðustu hljóðversplötu,
samnefnda hljómsveit-
inni. Nú snýr hún loksins
aftur, tvíefld, en tökur á
nýrri plötu standa nú yfir
og að auki hyggur sveitin
á mikla spilamennsku á
næstu vikum og mán-
uðum. Meðal annars
spila Skítamóralsmenn á
heimaslóðum á morgun, í
Hvíta húsinu á Selfossi.
Arngrímur Fannar
Haraldsson, gítarleikari
sveitarinnar, betur
þekktur sem Addi Fann-
ar, segir að mikill hugur sé í mönn-
um. Aðspurður hvort tónlistin sé af
svipuðu tagi og „í gamla daga“ segir
hann að svo sé að mestu leyti, þótt
menn hafi kynnt sér ýmsa strauma
og stefnur síðustu árin.
Íslensk poppplata
„Það stendur ekki til að finna upp
hjólið. Þetta verður bara íslensk
poppplata eins og íslenskar popp-
plötur eiga að vera. Reyndar erum
við að vinna með nýjum upptöku-
manni, Adda 800, sem hefur unnið
með mörgum popp- og rokksveitum.
Með nýjum upptökumanni kemur
auðvitað alltaf nýr blær og hann fer
svolítið nýjar leiðir með okkur, án
þess að við förum útaf sporinu“ segir
hann.
Addi Fannar segir að samstarfið
gangi mjög vel. „Við erum mjög
spenntir fyrir þessu ári. Ætlunin er
að spila mikið á næstu dögum, í mars
og kringum páskana. Svo ætlum við
að leggja lokahönd á plötuna í apríl
og útgáfudagur verður líklegast öðru
hvorum megin við mánaðamótin maí-
júní,“ segir hann.
Skítamórall gerir svo víðreist um
landið í sumar. „Við spilum meira á
landsbyggðinni á sumrin en veturna,
af skiljanlegum ástæðum. Vænt-
anlega spilum við á þessum helstu
stöðum,“ segir hann. „Þessi hefð-
bundni sveitaballarúntur heyrir því
miður sögunni til, en auðvitað leikum
við víðs vegar um landið engu að síð-
ur.“
Allt undir einum hatti
Væntanleg plata kemur út hjá
hljómplötufyrirtæki Einars Bárð-
arsonar, Plan B. „Við ákváðum að
leyfa honum að halda utan um pakk-
ann algjörlega frá a til ö. Það er mjög
þægilegt að vinna með Einari og gott
að geta haft hvort tveggja undir ein-
um hatti, kynningarmál og útgáfu-
mál,“ segir hann. Ekki er komið nafn
á endurkomuplötuna, en Addi Fann-
ar bendir fólki á að heimsækja skita-
morall.is og senda tillögur í gegnum
tölvupóst.
Tónlist | Mikill hugur í mönnum
Skítamórall 2005: Addi Fannar gítarleikari og
Gunnar Ólason, söngvari og gítarleikari, í for-
grunni, Herbert Viðarsson bassaleikari og Jó-
hann Bachmann yfirtrommari í bakgrunni.
Spilamennska og
plata í bígerð
Skítamórall spilar á Hvíta húsinu á
Selfossi annað kvöld, laugardags-
kvöld.
ivarpall@mbl.is