Morgunblaðið - 13.02.2005, Side 22
22 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt námskeið hefst 21. febrúar nk.
Skráning er hafin í síma 444 5090
eða nordicaspa@nordicaspa.is.
Námskeið greiðist við skráningu.
Athugið að síðast komust færri að en vildu!
Þjálfari er
Goran Micic
íþróttafræðingur
Súperform á fjórum vikum!
Fimm tímar í viku kl. 6:30 eða 19:30
Brennsla og styrking
Takmarkaður fjöldi
Vikulegar mælingar
Eigið prógramm í tækjasal
Persónuleg næringarráðgjöf
Matardagbók
Ráðgjöf við matarinnkaup
Fræðsla og eftirfylgni – þrír fyrirlestrar
Strangt aðhald – mikill árangur
Nýr lífsstíll
Slökun og herðanudd í pottunum að æfingu lokinni
Protein shake eftir hverja æfingu
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum
í jafnvægi. Í lok vikunnar ættir þú að finna fyrir aukinni
orku og vellíðan sem er upphafið að breyttum lífstíl.
2. vika – Öflug melting
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú
fáir sem mest út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – ónæmiskerfið eflt
Hvort sem þú ert karl eða kona og óháð aldri þá mun
þriðja vikan koma jafnvægi á hormónaflæði líkamans
sem mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft. Einnig
byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamannn á náttúrulegan hátt.
4. vika – Hreinsun
Þegar líður að viku fjögur er líkaminn tilbúinn í úrgangs-
og eiturefnahreinsun. Lifrin er byggð upp og á auðveldara
með að hreinsa út skaðleg efni úr líkamanum.
Til að komast að því hversu heilbrigður þú ert þarft þú
að fylla út spurningalista og fara í heilsufarsmælingu.
Nýtt námskeið fyrir karla
hafði farið í gegnum húsið og lent í
garðinum.
Meðal þess óskemmda var einmitt
skenkurinn sem enn stendur í stofu
Mörthu og húsgögn sem nú eru á
heimilum dætra hennar.
„Þegar þetta gerðist voru liðin níu
ár frá því við Einar hófum búskap og
við höfðum misst mestallt af því sem
við áttum. En Einar sagði að mestu
máli skipti að við hefðum öll lifað af
og við værum ennþá ung og ættum
framtíðina fyrir okkur. Við vorum
samt mjög skekin, við áttum eina
flösku af fínu hvítvíni, sem kostaði
100 mörk, sem Einar geymdi og ætl-
aði að opna þegar stríðinu væri lokið.
En nú greip hann hana og við drukk-
um úr henni til að fagna því að við
hefðum sloppið lifandi úr þessari
árás.
Það sem eftir var samningstímans
í Hamborg starfaði Einar á vegum
bresku herstjórnarinnar. Lúðvig
Guðmundsson og fleiri sendu Íslend-
ingum pakka til Þýskalands með
Rauða krossinum þegar ástandið var
sem verst, við fengum af þeim mat-
argjöfum.
Þýskaland yfirgefið og
flutt til Danmerkur
Hinn 31. júlí 1946 rann samning-
urinn út og daginn eftir yfirgáfum
við Þýskaland fyrir fullt og allt. Við
áttum fyrrnefnd húsgögn en vorum
peningalaus með öllu því verðbólgan
var ægileg. Við fórum til Danmerkur
og þaðan til Íslands. Stelpurnar
kunnu lítið í íslensku svo Einar vildi
að þær færu til ættingja. Vala fór
fyrst til prestsins í Reykholti og síðar
til Braga föðurbróður síns en Brynja
til Gústafs föðurbróður þeirra. Við
höfum ekki komið til Íslands síðan í
brúðkaupsferðinni tíu árum áður og
mér fannst margt hafa breyst.
Tengdafólk mitt tók okkur eins vel
og í fyrri heimsókninni en tengdafor-
eldrar mínir voru nýlega látnir.
Einar söng á mörgum konsertum
hér og svo fórum við til Svíþjóðar.
Nokkru áður hafði Einar prufusung-
ið í Kaupmannahöfn og þar fékk
hann samning. Hann söng þar öll
helstu tenórhlutverk tónbók-
menntanna.
Við vorum fjórtán ár í Kaup-
mannahöfn og það var verulega
góður tími, Við höfðum mikið
samband við Íslendinga, Stefán Ís-
landi og Magnús Jónsson, einnig
danskt listafólk, t.d. Paul Reumert
og konu hans Önnu Borg, sem var ís-
lensk.
Við bjuggum ágætlega og stelp-
urnar okkar tóku landspróf og stúd-
entspróf í dönskum skólum.
Veröldin hrynur
Einar hafði keypt íbúð við Ný-
lendugötu meðan við vorum í Dan-
mörku því hann ætlaði alltaf að fara
heim til Íslands. Þegar samningur
við hann rann út í Kaupmannahöfn
fluttum við í íbúðina okkar árið 1962.
„Við erum búin að flytja svo oft, nú
flytjum við ekki meira,“ sagði Einar.
Hann fór að kenna við Tónlistarskól-
ann og tók auk þess nemendur heim.
Barnabörnin okkar fæddust og allt
var gott.
En það stóð ekki lengi. Einar
veiktist alvarlega árið 1966. Heimil-
islæknirinn okkar var ekki við en
mér tókst að ná í annan lækni sem
kom. Hann skoðaði Einar og sagði að
hann þyrfti að fara á sjúkrahús.
Hann skorinn upp vegna magablæð-
ingar. Daginn eftir fór ég að heim-
sækja hann og fannst hann líta illa út.
„Fer honum ekki að batna?“ sagði
ég.
„Ég vona það,“ sagði hjúkrunar-
konan. En honum batnaði ekki, hann
dó síðar þennan sama dag.
Þá fannst mér öllu lokið úr því
Einar væri horfinn mér. Ég grét svo
hátt að ég hélt að húsið myndi
hrynja eins og veröld mín hafði
hrunið. Ég vildi ekki vera í íbúðinni
við Nýlendugötu heldur flutti til
Brynju dóttur minnar. Hún og mað-
ur hennar voru að byggja hér við
Brúnastekk, við fluttum inn í húsið
hálfklárað, það hafði ég aldrei á æv-
inni upplifað áður. Mér fannst skrít-
ið að tipla eftir plönkum til þess að
komast inn. Á neðri hæð þessa húss
fékk ég íbúð. Upphaflega átti að vera
þar billjardborð en nú settist ég þar
að með hluta af minni gömlu búslóð
og hér hef ég verið síðan. Ég er lán-
söm, á góða fjölskyldu hér sem sinn-
ir mér vel og í Vínarborg býr Hedy
systir mín, sem er að verða 95 ára
gömul, við tölum stundum saman í
síma en ég er hætt að heimsækja
hana.“
Samtal okkar Mörthu hefur staðið
langa stund og ég fer að tygja mig til
farar, tek upp töskuna mína sem
liggur á fallegu, persnesku gólfteppi.
Ég tek upp töskuna og hef um leið
orð á að teppið sé greinilega komið til
ára sinna.
„Já, foreldrar mínir áttu það, ég
fékk það hjá þeim – það hafa æði
margir gengið á þessu teppi,“ segir
Martha og brosir. Og í brosi hennar
felst allt það ósegjanlega – allt það
sem dagarnir hafa borið með sér og
manneskjan meðtekur á löngu lífs-
hlaupi – gleði, sorg og viska.
Brúðhjónin Martha og Einar Krist-
jánsson nýgift 1936.
Martha og Einar Kristjánsson nýflutt til Íslands. Systurnar Martha og Hedwig í Grikklandi með ungan frænda sinn. Fjölskyldan á Íslandi 1946 og á leið til Kaupmannahafnar.
Nýtrúlofuð á götu í Dresden, Einar fékk
sér þennan glæsilega alklæðnað áður en
hann gekk á fund tengdaforeldranna.
F.v. Vala með Árna son sinn, Einar með nafna sinn Örn Benediktsson, Martha með nöfnu sína í fanginu og Brynja með
Ástu. Sonur Brynju, Einar Júlíus, var ekki fæddur er þessi mynd var tekin, skömmu fyrir andlát Einars Kristjánssonar.
gudrung@mbl.is