Morgunblaðið - 13.02.2005, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 13.02.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2005 57 VÍKINGUR-KA Gámaþjónustan býður öllum eldri leikmönnum meistaraflokks karla í handknattleik á stórleik Víkings og KA sem fram fer í Víkinni í dag kl. 16 Vinsamlegast látið vita af ykkur við innganginn Áfram Víkingur! BÆTT UMHVERFI - BETRI FRAMTÍÐ Kvikmyndir.is Ian Nathan/EMPIRE V.G. DV. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15. B.i. 14 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun KRINGLAN Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10. B.i. 14 ára. Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA J.H.H. Kvikmyndir.com H.J. Mbl. YFIR 38.000 ÁHORFENDURI .  H.L. Mbl.  DV  Rás 2  Kvikmyndir.com ÁLFABAKKI Kl. 1.30, 3.45 og 6. Ísl.tal. / kl. 1.30 og 3.45. Enskt tal. Kvikmyndir.is Tilnefningar til óskarsverðlauna ÁLFABAKKI Sýnd kl. 1.30, 3.45, 6, 8.15 og 10.30. Tilnefningar til óskarsverðlauna4 ÁLFABAKKI Kl. 6, 8.15 og 10.30. B.i. 16. AKUREYRI Kl. 8 og 10. B.i. 16. KEFLAVÍK Sýnd kl. 2, 4 og 6. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2, 3.45 og 6.20. KRINGLAN kl. 12, 2, 4, 5 og 6.30. Ísl.tal. / Sýnd kl. 4,30. Enskt tal. AKUREYRI Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl.tal. AKUREYRI Kl. 2 og 4. Ísl.tal. Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið rækilega í gegn í USA og víðar. Varúð: Ykkur á eftir að bregða. B.i 16 ára    Ó.S.V. Mbl. FRUMSÝND Í DAG FRUMSÝND Í DAG Disneyhetjurnar Bangsímon, Grísli, Tígri og félagar lenda í stórkostlegu nýju ævintýri! Disneyhetjurnar Bangsímon, Grísli, Tígri og félagar lenda í stórkostlegu nýju ævintýri! KRINGLAN Sýnd kl. 12 og 2.15. KRINGLAN Kl. 12 og 2.15. Ísl.tal. 4 KEFLAVÍK Kl. 2. Ísl.tal. Brúðarbandið er nú orðiðrúmlega ársgamalt og hef-ur vakið þó nokkra eftirtekt hér innanlands á starfstíma sínum. Er nú nýlokið tveggja vikna tón- leikaferðalagi um Bandaríkin þar sem bandið vakti ekki síður mikla eftirtekt. Sveitin, sem leikur frísk- legt og hress- andi pönkrokk, hefur á að skipa sjö stúlk- um sem hafa það fyrir sið að troða ávallt upp í brúðarkjólum. Þetta hefur vakið töluverða athygli á sveitinni sem góðu heilli hefur í fórum sínum tónlist til að bakka það allt saman upp. Fyrsti hljóm- diskur Brúðarbandsins, Meira!, kom út síðasta sumar, og er þeirri staðhæfingu til sönnunnar. Brúðarbandið var býsna iðið við hljómleikahald á síðasta ári og hélt m.a. tónleika á síðustu Airwaves hátíð. Þar heillaðist bandarískur plötusnúður að nafni Jordan svo af leik sveitarinnar að hann skipu- lagði fyrir hana tónleikaferðalag um suðaustur Bandaríkin. Brúð- arbandið hélt svo utan 17. janúar og sneri heim 1. febrúar. Ferðalagið gekk í alla staði frá- bærlega, eins og fram kemur í frá- sögn Sigríðar Árnadóttur, sem er annar gítarleikari sveitarinnar. Út frá hreinni menningarpólitík mætti segja að þessi ferð Brúðarbandsins renni styrkum stoðum undir mik- ilvægi tónlistarhátíðarinnar Ice- land Airwaves og sjóðsins Reykja- vík Loftbrú en án þessa fyrirbæra hefði ferðin ekki orðið að veru- leika, staðfestir Sigríður. Þolgæði og dugnaður stúlknanna sá síðan um rest og meðfram rokki og róli varð til hin ágætasta landkynning. Það þarf engan reiknissnilling til að sjá að svona starfssemi skilar, hvort heldur í aurum eða andans ríkidæmi.    Þetta gekk alveg ótrúlega vel,“segir Sigríður þegar hún er beðin um að rifja upp ferðasöguna. Hún viðurkennir að þegar þær lentu í Baltimore 17. vissu þær lítið um framhaldið. „Við vissum að við áttum að spila í ákveðnum borgum en hins vegar lítið um hvernig við ættum að koma okkur þangað.“ Meðlimir brugðu þá á það ráð að leigja tvo bíla á flugvellinum og fjárfestu auk þess í tal- stöðvum sem nýttust til skilaboða og uppbyggjandi söngs. Svo var brunað með það sama niður til Nashville þar sem fyrstu tónleikarnir fóru fram. Nashville er sannkölluð höfuðborg kántrítónlist- arinnar. Þegar keyrt er inn fyrir borgarmörkin hljómar einungis kántrí í útvarpinu og borgin gerir markvisst út á ímyndina, kúrekahattar og kántríbarir út um allt. „Okkur leist ekkert á þetta í fyrstu. Fólk labbar bísperrt um með hvíta kú- rekahatta á höfði og það er ekki vottur af kaldhæðni í fasi þeirra.“ Í Nashville rúmast engu að síður önnur tónlist þótt lágt fari og Brúðarbandið lék í kjallara plötubúðar sem maður að nafni Grimey á. „Þetta var einkar svöl neðanjarðarbúð og -búlla. Meðlimir úr Lambchop kíktu á tónleikana (ein umtalaðasta nýrokk/ „alt.kántrí“- sveit síðustu ára en hún er einmitt frá Nashville).“ Sigríður segir í framhaldinu frá því að hljómborð Brúðarbandsins hafi klikkaði fyrir tónleikana. Gerði téður Grimey sér þá lítið fyr- ir og hringdi í hljómborðsleikara Dixie Chicks sem kom óðar með hljómborðið sitt og lánaði þeim það – og notuðu brúðirnar hljómborðið út ferðina. Eftir þetta var haldið til Norður Karólinu – til bæjarins Ashville, því næst til Winston-Salem í sama fylki, þá niður til Savannah í Georgíu, aftur til Norður-Karólínu þar sem leikið var í Chapel Hill og loks aft- ur til Nashville. Brúðarbandið brunaði fram og aftur um þessi Suðurríki með óteljandi pissu- og matarstoppum að sögn Sigríðar. „Það kom síðan í ljós að skipu- lagið var tipp topp. Þegar við kom- um inn í borgirnar hringdum við í eitthvað númer og þá kom mann- eskja og tók á móti okkur. Hún gaf okkur svo bjór og pitsu, sýndi okk- ur tónleikastaðinn og svoleiðis.“    Tónleikaferðalög sem þessi getahæglega orðið að stórslysum. Tónleikar falla niður, enginn mæt- ir, það springur á bílnum, allir blankir o.s.frv. Með þetta í huga var innreið Brúðarbandsins til Bandaríkjanna yfirmáta vel heppn- uð. Sigríður lýsir því að fullt hafi verið á alla staðina og meira að segja bættust við einir tónleikar. För sveitarinnar var vel kynnt og dagblöð og útvarpsstöðvar í ein- stökum borgum dekkuðu tónleika með umfjöllunum og viðtölum og stemningin og forvitnin var einatt mikil. Plata Brúðarbandsins var að sjálfsögðu með í för og seldist vel af henni á tónleikunum, svo vel að vasapeningar voru iðulega nægir. Hljómsveitir hafa líka hreinlega gliðnað í sundur eftir svona ferða- lög en þveröfug þróun varð hjá Brúðarbandinu, vinátta meðlim- anna sjö styrktist enn frekar enda ferðalagið „óendanlega skemmti- legt“ að sögn Sigríðar. Hún segir að þær stöllur hafi verið viðbúnar hinu versta enda orðnar ágætlega skólaðar í rokkfræðunum en um leið hafi þær verið býsna ákveðnar í að láta þetta ganga upp. „Flestar vorum við að koma til Bandaríkjanna í fyrsta skipti. Í ljósi þróunar síðustu ára fór maður frekar tortrygginn út og því kom það manni þægileg á óvart þessi ótrúlega góðsemi sem við kynnt- umst þarna. Það vildu allir bók- staflega allt fyrir okkur gera og við eignuðumst fullt af nýjum vinum þarna úti.“ Það er svo ýmislegt á döfinni næstu vikur hjá Brúðarbandinu. Skipulagning á stelpubandakvöldi stendur yfir og í apríl fer sveitin til Svíþjóðar og jafnvel til Danmerkur líka. Fleiri sögur af ferðalaginu er hægt að nálgast á heimasíðu Brúð- arbandsins (www.brudarband- id.biz). Bandaríkin segja „já“ við Brúðarbandinu ’Nashville er sannkölluðhöfuðborg kántrítónlist- arinnar. Þegar keyrt er inn fyrir borgarmörkin hljómar einungis kántrí í útvarpinu og borgin ger- ir markvisst út á ímynd- ina, kúrekahattar og kántríbarir út um allt.‘ AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Brúðarbandið stillir sér upp í Nashville.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.