Morgunblaðið - 30.04.2005, Page 20

Morgunblaðið - 30.04.2005, Page 20
20 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF (  ) * +    ) * #, - +# . $    7      45*3':9.?'1/ 49(':9.?'1/ %((52':9.?'1/ %.603'1/ 6+':9.?'1/ 6':9.?'1/ 3+ 83= (*'1/ .?7* '% ('1/ 2. '1/  83= (*' 3+ 83'1/  +'1/ 8'1,3(*?4*'1/  ,*'1/'234 4..'6,01 34* =/'1/ M33.'1/ 8  7!"# 6*3((6.' 3+ 83'1/ <%': 8*'1/ <?*6, '1/ N6=9 *'1/ )149( *3,-6.* '1/234 : ,*'1/  6'1/ +04.17+'.6.+ 83'351/ 2+.*634/'6134*/'1/ * *63426* '1/ ;* 3+.3426* '1/ <9-6.'*$9= '1/  $# 9  #: .34.=((*'1/234 6*3( +8*'#,1,6'1/'234  833)*' 3+ 83'1/'234 9(*19*'1/  ;  <=#  #O )634 5*63(/5 6              $  $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $     % 4* '10 1'5*63(/5 6 $ $ $ $ $ $ $ $  $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ $ P'$>Q P'>Q P'  >Q P'$ >Q $ P'$>Q P' >Q P'$>Q P'$>Q P'$>Q P'$>Q P'>Q $ P'$>Q P'$>Q $ P'>Q $ $ $ $ P'$>Q $ $ $ $ $ $ $ P'>Q $ $ < *+85*63(*?4* 83* 3 *+=96')'+9('83R .?'''''''''+ / / /   / /  / / /  /  / / / /  /  /  $ / $ $ $ $ /  $ $ $ $ $ $ $     /            $        $                $         $  ;*63(*?4*')'7=3/'(/ </'S' 4.. +*34* 6,2+8* 5*63(*?4      $  $ $ $ $  $ $ $ $ $ $ $    </$'''T5*33'.'01+8 8*'32+.'+.41,0/ </$'''(+8'4*+'6'+ ,'1'1*42(.4*+=96' 1.'3491 34/ </$''';  '1*5'.'1,02 . '17+3/ </$ ''' 6'= *6 *'=4 1 8/ ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HAGNAÐUR af rekstri Fiskmarkaðs Íslands hf. á fyrsta fjórðungi ársins var tæplega 50 milljónir króna en var á sama tímabili síðasta árs um 40 milljónir. Velta félagsins á tímabilinu var um 156 milljónir króna. Fjár- magnsliðirnir voru jákvæðir um 10 milljónir á tímabilinu og skýrist það af arðgreiðslum frá félögum sem FMÍ á í, um 6 milljónir króna, og gengishagn- aði erlendra lána upp á um 4 milljónir. Niðurstaða er sögð í takt við vænt- ingar stjórnenda og heldur betri ef eitthvað er. Nú séu blikur á lofti sem bendi til þess að gengisþróunin fari að breytast og íslenska krónan að lækka. Gangi það eftir muni með- alverð á seldum afla hjá félaginu væntanlega hækka. Jafnframt muni það mynda gengistap af erlendum lánum félagsins. Hagnaður eykst hjá Fiskmarkaði Íslands SAMKEPPNISYFIRVÖLD í Bretlandi hafa samþykkt fyrir- hugaða yfirtöku Bakkavarar Group á matvöruframleiðslufyr- irtækinu Geest Plc. án athuga- semda. Frá þessu er greint í til- kynningu frá Bakkavör til Kauphallar Íslands. Það var 8. mars síðastliðinn sem Bakkavör lagði fram tilboð í allt hlutafé Geest. Er heildar- verðmæti viðskiptanna um 694 milljónir punda, eða um 85 millj- arðar íslenskra króna. Formleg yfirtaka er fyrirhuguð hinn 13. maí næstkomandi og verður Geest þá hluti af samstæðu Bakkavarar. Yfirtaka Bakkavar- ar á Geest samþykkt KAUPÞING banki virðist ekki ætla að láta staðar numið í Bret- landi með væntanlegri yfirtöku á breska bankanum Singer & Friedlander. Haft er eftir Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni Kaupþings banka í blaðinu The Guardian, að Kaupþing sé að leita að heppilegu verðbréfafyrirtæki í Bretlandi. Sigurður segir við blað- ið að Singer & Friedlander sé stökkpallur fyrir frekari vöxt bankans í Bretlandi og að Kauþing banki þurfi einnig að vera í verð- bréfamiðlun til þess að mæta markmiðum sínum. Sigurður segir að verðbréfafyrirtækið, sem ann- aðhvort verði keypt eða byggt frá grunni, muni einkum þjónusta lítil og meðalstór fyrirtæki auk þess að selja breskum fjárfestum hluta- bréf í norrænum fyrirtækjum. „Ef ákveðið verður að kaupa verð- bréfafyrirtæki myndi Kaupþing banki feta í fótspor Landsbankans sem nýlega yfirtók fjármálafyrir- tækið Teather & Greenwood, segir í The Guardian. Mikið er fjallað um yfirtökutil- boð Kaupþings banka í hlutafé Singer & Friedlander (S & F) í bæði breskum blöðum og blöðum í Skandinavíu. „Víkingaferð Kaup- þings yfir hafið er eins og nútíma Íslendingasaga. Bankinn hefur vaxið úr því að vera ekki neitt yfir í það að vera gerandi á á fjár- málasviðinu sem menn þurfa að taka tillit til,“ segir í undirfyr- irsögn Svenska Dagbladet. Þar er minnt á það að Kaupþing hafi ver- ið með stór hlutafjárútboð og muni því ekki eiga í vandræðum með að snara út kaupverðinu fyrir S & F. „Þetta er ekki lélegt af banka sem enginn utan Íslands hafði heyrst minnst á árið 2001. Þá byrjaði Kaupþing að láta til sín taka með kaupum á sænsku fjármálafyrir- tækjunum Aragon og Matteus og síðan sameiningu þeirra við JP Nordiska, blekið á einstökum til- boðum Kaupþings var varla þorn- að þegar það fór af stað aftur. Síð- an hafa verið sameiningar á Íslandi og kaup í Danmörku og Bretlandi fyrir meira en 15 millj- arða sænskra króna. Þetta gerir banki á eyju með færri en 300 þús- und íbúa. Eru menn þessa dagana að draga gullfiska af Íslandsmið- um?“ skrifar Svenska Dagbladet. Stefnan sett á verðbréfa- fyrirtæki í Bretlandi Morgunblaðið/Þorkell Ekki numið staðar Sigurður Einarsson segir Kaupþing banka ætla sér annaðhvort að kaupa eða koma sér upp verðbréfafyrirtæki í Bretlandi. ● TÆPLEGA 8,5 milljarða króna við- skipti urðu með hlutabréf í Íslands- banka í gær. Þar af voru 7.756 millj- ónir vegna breytinga á fjármögnun með framvirkum samningum á 350 milljónum hluta Milestone í bank- anum. Milestone gerði upp við Straum fjárfestingarbanka eldri framvirkan samning um þessa 350 milljónir hluta og var hann á framvirka geng- inu 8,36 þ.e. virðið var 2.926 millj- ónir króna. Framvirki samningurinn var fluttur til KB banka og fjármagn- aður upp á nýtt til sex mánaða á nú- verandi markaðsgengi 13,8 sem ger- ir hann 4.830 milljóna króna virði. Straumur fjárfestingarbanki hefur, sem kunnugt er, mótmælt þeirri ákvörðun Íslandsbanka að selja Sjóvá til Milestone. Guðmundur Ólason, fram- kvæmdastjóri Milestone, sagði í samtali við Morgunblaðið að endur- fjármögnunin hefði ekkert með þau mótmæli að gera. Breytingar á samningunum hefðu verið hluti af endurfjármögnun félagsins. Milestone endurfjármagnar REKSTUR Flögu Group olli 1,1 milljón dollara eða nærri 70 milljóna króna tapi á fyrsta fjórðungi ársins. Tekjur félagsins námu um 8,2 millj- ónum dollara á tímabilinu, tæpum 520 milljónum króna, og hafa þær aukist um 88% frá sama tímabili árs- ins 2004. EBITDA framlegð var neikvæð um 480 þúsund dollara, rúmar 30 milljónir króna, en var neikvæð um 577 þúsund dollara á fyrsta ársfjórð- ungi 2004. Eigið fé nam 41 milljón dollara, 2,6 milljörðum króna, hinn 31. mars, samanborið við 37,6 milljónir dollara í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfallið var 66% sem er sama hlutfall og í árslok 2004. Félagið hafði áður tilkynnt að það byggist við um 1 milljóna dollara tapi, m.a. vegna kostnaðar við skipu- lagsbreytingar og uppsagnar starfs- manna. Tapið á fjórðungnum er því lítillega yfir áætluðu tapi félagsins. Fram kemur í tilkynningu að félagið muni ráðast í aðgerðir á árinu sem snúi bæði að aukningu tekna og lækkun kostnaðarhlutfalls. Væntir félagið þess að árangur þessara að- gerða verði sýnilegur á seinni helm- ingi ársins. Nærri 70 milljóna tap á rekstri Flögu JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, þykir fjórði áhrifamesti kaupsýslumað- urinn í breskri smásölu, sam- kvæmt lista sem birtur er í breska fagtímaritinu Retail Week. Tímaritið hefur tekið saman lista yfir 50 áhrifa- mestu einstaklingana í breskri smásölu árinu 2005. Jón Ásgeir er nýr á listanum og verður sannarlega að telj- ast hástökkvari ársins. Efst á listanum trónir hinsvegar Terry Leahy, forstjóri Tesco, í öðru sæti er kaupsýslumaðurinn Philip Green og í þriðja sæti er Stuart Rose, for- stjóri Marks & Spencer. Segir í tímaritinu að Baugur hafi vaxið mjög í Bretlandi á undanförnum ár- um og eigi nú verslanir á borð við Hamleys, Iceland, Booker, Oasis og Karen Millen. Jón Ásgeir áhrifamikill Smásala Jón Ásgeir meðal þeirra fremstu. ● ÚRVALSVÍSITALA hlutabréfa lækk- aði í gær annan daginn í röð, nú um 0,4% og er 4.108 stig. Viðskipti með hlutabréf námu 11,4 milljörðum króna, þar af 8,5 milljarða tilfærsla á bréfum Milestone í Íslandsbanka. Mest hækkun var á verði bréfa í Bakkavör (4,9%) og Símanum (3,3%) en mest lækkun var á bréfum í Össuri (-3%) og Flögu (-2,9%) í kjöl- far birtingar uppgjöra þeirra. Bakkavör hækkar um 4,9% ● UNGVERSKA lágfargjaldaflug- félagið SkyEurope Airlines hefur gengið frá sam- komulagi við Sterling um að bjóða farþeg- um þeirra tíðari flugferðir á leiðinni milli Búdapest og Kaup- mannahafnar. SkyEurope er leiðandi lágfargjaldaflugfélag í Mið-Evrópu, eins og Sterling á Norðurlöndum en samkvæmt samningnum hefjast flugferðir milli Danmerkur og Ung- verjalands 1. maí og verður flogið fimm sinnum í viku í sumar. Sterling er eins og kunnugt er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Sterling og Sky- Europe í samstarf HAGNAÐUR af rekstri Össurar á fyrsta ársfjórðungi nam 3,2 millj- ónum dollara, sem svarar til 195 milljóna íslenskra króna. Er það nokkuð undir væntingum greining- ardeilda bankanna sem reiknuðu með hagnaði á bilinu 3,6 til 3,8 milljónir dollara. Sala Össurar nam alls 1,9 millj- örðum króna og jókst um 2% mæld í dollurum en mæld í stað- bundinni mynt stóð salan í stað. Þegar tillit hefur verið tekið til af- lagðrar starfsemi var vöxtur sölu í staðbundinni mynt 2% en 4% í dollurum. Vöxtur í sölunni var óvenju lítill og er það í samræmi við væntingar félagsins vegna samdráttar í sölu stuðningstækja á Bandaríkjamark- aði en hann reyndist 17% á tíma- bilinu. Þá er salan í Evrópu, sem hefur verið hraðvaxandi markaður, sögð hafa verið óvenju slök á fyrsta ársfjórðungi. Almennur rekstur er sagður hafa gengið þokkalega, og rekstr- arútgjöld hafi verið nánast þau sömu og árið á undan. Framlegð af sölu samstæðunnar var 60% og hlutfall EBITDA hagnaðar af sölu var 18%. Þá var arðsemi eigin fjár 29% en á sama tímabili í fyrra var hún 15%. Horfur Össurar á árinu 2005 eru metnar ágætar. Aðalviðfangsefnið verður að fylgja eftir sókn á stuðn- ingstækjamarkaðinn en félagið tel- ur nauðsynlegt að auka slagkraft fyrirtækisins á þeim markaði. Framvindan þar er sögð munu ráða verulega miklu um vaxtar- horfur Össurar á næstu mánuðum. Dregur úr vexti í sölu Össurar 38U V ' 2$$  62 6 $ > > 6#  W '* ' * 6$ 6$ > >  ' 8 W %2 $ 5 6 6$ > > 6W *(( * %  7 $  > > #W' 9X'N9 3 '  2% 7' 6 $ > >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.